Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 6. nóvember sl. var samþykkt að hefja undirbúning að stofnun Deiglunnar, atvinnu- og þróunarseturs í Hafnarfirði, til að bregðast við þrengingum á vinnumarkaði og vaxandi atvinnuleysi. Tilgangur með Deiglunni er að skapa vettvang og umhverfi fyrir fólk sem vill hrinda hugmyndum til atvinnusköpunar í framkvæmd sem og að skapa aðstöðu fyrir samveru, hugmyndavinnu og þróun nýrra tækifæra. Af því tilefni hefur verið stofnaður samstarfshópur sem í eiga sæti m.a. fulltrúar frá verkalýðsfélögunum Hlíf og STH, Flensborgarskóla, Iðnskólanum, Vinnumálastofnun, Nýsköpunarmiðstöð, Námsflokkum Hafnarfjarðar, Ungum frumkvöðlum, Meistarafélagi iðnaðarmanna í Hafnarfirði og Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar. Auk þess er stefnt að samstarfi við fleiri aðila varðandi ráðgjöf, fræðslu og námskeið. Ætlunin er að boðið verði upp á ráðgjöf hvað varðar breytt umhverfi í kjölfar atvinnumissis og stefnt er að því að fulltrúar stéttafélaga og vinnumiðlunar verði með fasta viðtalstíma til að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum, leiðum til úrbóta og hugsanlegum atvinnutækifærum .
Allir sem vilja leggja hönd á plóginn og búa yfir góðum hugmyndum sem nýtast við uppbyggingu setursins eru hvattir til að hafa samband við Brynhildi Barðadóttur, verkefnisstjóra Deiglunnar á netfangið brynhildur@hafnarfjordur.is
Þær breytingar hafa orðið á starfsemi Deiglunnar, sem fram til þessa hefur verið starfrækt í Menntasetrinu við Lækinn (Gamla Lækjarskóla), að hafið hefur verið samstarf með Hafnarfjarðardeild Rauða kross Íslands og hefur starfsemi Deiglunnar verið flutt í húsnæði deildarinnar að Strandgötu 24 Hf. þar sem öll dagskrá fer framvegis fram. Þar með leggst einnig af að starfsmaður sé staðsettur í Deiglunni eins og verið hefur en opið er hjá Hafnarfjarðardeild RKÍ frá 9.00 – 15.00.
Varðandi frí sund- og bókasafnskort fyrir fólk í atvinnuleit verður framvegis sótt um þau í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, á 1. hæð Ráðhússins að Strandgötu 6.
SPURT OG SVARAÐ
Í þessu skjali er að finna samantekin svör við flestum þeim spurningum sem rekja má út úr því upplýsingaefni sem ASÍ hefur gefið út vegna yfirstandandi efnahagsþrenginga. Fjallað er um uppsagnir, hópuppsagnir, aðilaskipti, gjaldþrot, atvinnuleysi, atvinnuleysisbætur þ.m.t. hlutabætur, innistæður í bönkum, lífeyriseignir og ýmis úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Spurt og svarað.
Upplýsingar fyrir útlendinga (English/Polski)