Smíðakennari – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 13.05.2026

Umsóknarfrestur til: 27.05.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson




<br />


Hraunvallaskóli auglýsir eftir grunnskólakennara til að sinna kennslu í hönnun og smíði skólaárið 2026-2027

Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í hönnun og smíði í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.

Starfshlutfall er 50-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri adalbjorgs@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til 27. maí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.


Önnur störf