Sumarstarf hjá vatns- og fráveitu Hafnarfjarðar
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 15.05.2026
Umsóknarfrestur til: 25.05.2026
Tengiliður: Gunnólfur@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær leitar að sumarstarfsmanni til starfa við vatns- og fráveitu Hafnarfjarðar í 100% starf í sumar.
Leitað er að ábyrgum og lausnamiðuðum aðila sem hefur áhuga á verklegum störfum og leggur metnað í góða umgengni og samstarf. Aðilinn ber ábyrgð á öllum áhöldum og búnaði sem unnið er með og að öll umgengni sé til fyrirmyndar. Starfið tilheyrir umhverfis- og skipulagssviði, sem er með aðsetur að Norðurhellu 2, þar sem áhersla er á fagmennsku og öryggi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Viðhald og eftirlit með veitukerfum bæjarins í samstarfi við aðra starfsmenn vatns- og fráveitu
· Þrif og viðhald á dælu- og lokahúsum
· Málun brunahana og innan bygginga veitnanna
· Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Reynsla af sambærilegu starfi kostur
· Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund
· Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
· Geta til að vinna undir álagi
· Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
· Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
· Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta, A1 skv. samevrópskum tungumálaramma
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnólfur Lárusson yfirverkstjóri í síma 664-5641 eða í gegnum tölvupóst: gunnolfur@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.