Sérfræðingar Hafnarfjarðarbæjar opna skúffurnar og deila með íbúum og áhugasömum helstu vendingum í málefnum barna í bænum. Sumarfríið og fjölskyldusamveran er framundan og tilvalið að staldra við og skoða stöðu og reynslu barnanna okkar.
Verið öll velkomin.
Hvar

Hafnarborg – Apótekið
Hvenær

9. júní milli kl. 17:30-18:30

Dagskrá:
Fyrsta hraðerindi 
„Stundum erum við hrædd við að segja það sem við hugsum“ – Samantekt á niðurstöðum Barnaþings Hafnarfjarðar þar sem 10-12 ára börn gáfu innsýn í sitt heimili, vinahópinn og skólastarfið.
Flytjandi: Þórunn Þórarinsdóttir, umsjónarmaður Ungmennaráðs Hafnarfjarðar og verkefnastjóri Barnvæns Sveitarfélags.
Annað hraðerindi 
Ungt fólk og ofbeldi – Hvernig eru ungmenni í Hafnarfirði að kynnast og hvernig lítur nútíma ástarsamband út? Hvernig getum við leiðbeint þeim í átt að heilbrigðum samskiptum. Hver eru rauðu flöggin og hvert geta fjölskyldur leitað?
Flytjandi: Kristín Blöndal Ragnarsdóttir, kennslufulltrúi mannréttinda.
Þriðja hraðerindi
Tölfræði um áhættuhegðun og líðan grunnskólanemenda – Hvar eru áfengi og vímuefni að birtast í grunnskólunum og hvernig líður börnunum núna?
Flytjandi: Jóna Rán Pétursdóttir, forvarnafulltrúi.
Fjórða hraðerindi 
Frístundastyrkurinn – Hvernig dreifist frístundastyrkurinn til barna í Hafnarfirði, yfirlit yfir nýtingu styrksins árið 2025 og upplýsingar um breytt fyrirkomulag.
Flytjandi: Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi.
Fimmta og síðasta hraðerindið 
Skólaskylda og hvað svo? – Hver er staða barna af erlendum uppruna í Hafnarfirði og hvað stendur þeim til boða í frítíma sínum? Frásögn af samstarfsverkefnum vetrarins.
Flytjandi: Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar.
Já, þetta er klukkustund sem gefur meiri þekkingu á mínútu en flest annað þennan frábæra þriðjudag – Komdu og vertu með okkur.