Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel – Lækjarskóli 

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 08.06.2026

Umsóknarfrestur til: 22.06.2026

Tengiliður: Bjarnveig Dagsdóttir




<br />


 

Lækjarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 40 – 50% til lok skólaársins í frístundaheimilið Lækjarsel. 

Ráðið er í stöðuna frá ágúst 2026.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Lækjarseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1.- 4. bekk farið í frístundaheimilið Lækjarsel. Starfsemi Lækjarsels er í skólanum. Lækjarsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf og útiveru til klukkan 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. 

Möguleiki er á starfi á leikjarnámskeiði næsta sumar.

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.   

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar á frístundaheimili í hinum ýmsu tómstundum
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar börn í leik og starfi
  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki A2 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
  • Almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af frístundagjöldum
  • Forgangur í frístundaheimili
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Skilyrði við ráðningur er að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur til og með 22. júní 2026

Nánari upplýsingar fást hjá Bjarnveigu deildarstjóra tómstundamiðstöðvarinnar bjarnveig@laekjarskoli.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika. 

 

 


Önnur störf