Píanókennari – Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 09.06.2026
Umsóknarfrestur til: 23.06.2026
Tengiliður: Eiríkur Stephensen
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir rytmískum píanókennara, um 30% er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 50 kennarar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Rytmísk píanókennsla samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Framhaldsnám í rytmískum píanóleik
- Reynslu að starfa með nemendum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta er áskilin. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmuðum Evrópska tungumálarammans, Sjálsmatsrammi
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Stephensen, skólastjóri, í síma 664-5882 og í gegnum tölvupóst eirikur@tonhaf.is og Stefán Ómar Jakobsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5884 og í gegnum tölvupóst stefanj@tonhaf.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2026.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT/FÍH.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.