{"id":12842,"date":"2015-12-31T00:00:00","date_gmt":"2015-12-31T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/aramotakvedja-fra-baejarstjora\/"},"modified":"2022-10-25T08:59:00","modified_gmt":"2022-10-25T08:59:00","slug":"aramotakvedja-fra-baejarstjora","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/aramotakvedja-fra-baejarstjora\/","title":{"rendered":"New Year's greeting"},"content":{"rendered":"<p>Mig langar me\u00f0 nokkrum vel v\u00f6ldum or\u00f0um a\u00f0 fara yfir \u00e1ri\u00f0 sem senn rennur sitt skei\u00f0 auk \u00feess a\u00f0 tala a\u00f0eins um \u00fe\u00e1 tilfinningu sem \u00e9g hef fyrir n\u00fdju \u00e1ri, \u00e1ri sem \u00e9g er fullviss um a\u00f0 einkennast muni af krefjandi og \u00e1rangursr\u00edkum verkefnum og \u00f6flugu samstarfi einstaklinga og fyrirt\u00e6kja innan sveitarf\u00e9lagins.&nbsp;<\/p>\n<h3>Liti\u00f0 um \u00f6xl<\/h3>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2015 einkenndist af t\u00f6lum, greiningum og rekstrarlegum \u00fattektum sem n\u00fa \u00ed lok \u00e1rs eru a\u00f0 skila s\u00e9r \u00ed mikilv\u00e6gri yfirs\u00fdn og skilningi \u00e1 st\u00f6\u00f0u sveitarf\u00e9lagsins og \u00ed raunh\u00e6fri og sk\u00fdrri fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun fyrir komandi \u00e1r. \u00c1\u00e6tlun sem skilar okkur r\u00famlega 360 millj\u00f3na kr\u00f3na rekstrarafgangi. \u00c1\u00e6tlun sem \u00e9g hef fulla tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0, \u00e9g og m\u00ednir me\u00f0stj\u00f3rnendur og starfsmenn, getum n\u00e1\u00f0 a\u00f0 framfylgja og \u00fear me\u00f0 b\u00e6tt rekstrarst\u00f6\u00f0u sveitarf\u00e9lagsins til muna. Auki\u00f0 veltuf\u00e9 er forsenda \u00feess a\u00f0 h\u00e6gt ver\u00f0i a\u00f0 l\u00e6kka skuldir sveitarf\u00e9lagsins og l\u00e6kkun skulda forsenda \u00feess a\u00f0 h\u00e6gt ver\u00f0i a\u00f0 framkv\u00e6ma meira, byggja upp og b\u00e6ta veitta \u00fej\u00f3nustu. \u00c9g k\u00fds a\u00f0 l\u00edta \u00e1 Hafnarfj\u00f6r\u00f0 sem fyrirt\u00e6ki, st\u00f3rt \u00fej\u00f3nustufyrirt\u00e6ki \u00fear sem \u00e9g sem stj\u00f3rnandi vil tryggja \u00e1rangursr\u00edka og g\u00f3\u00f0an rekstrarh\u00e6tti og leggja \u00e1herslu \u00e1 g\u00f3\u00f0a fyrirt\u00e6kjamenningu og \u00fear me\u00f0 g\u00f3\u00f0an starfsanda sem aftur skilar s\u00e9r margfalt \u00ed \u00feeirri \u00fej\u00f3nustu sem veitt er til vi\u00f0skiptavina. \u00cd \u00feessu tilfelli til b\u00e6jarb\u00faa og fyrirt\u00e6kja sem starfandi eru innan b\u00e6jarmarkanna auk gesta og gangandi sem s\u00e6kja b\u00e6inn okkar heim \u00ed auknu m\u00e6li. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00feegar teki\u00f0 nokkur skref \u00ed r\u00e9tta \u00e1tt. B\u00fai\u00f0 er a\u00f0 grei\u00f0a upp erlendar skuldir b\u00e6jarins a\u00f0 st\u00e6rstum hluta auk \u00feess sem st\u00f3rir \u00fej\u00f3nustu\u00fe\u00e6ttir hafa veri\u00f0 bo\u00f0nir \u00fat og kemur \u00fatbo\u00f0 til me\u00f0 a\u00f0 skila umtalsver\u00f0um \u00e1bata \u00e1 n\u00fdju rekstrar\u00e1ri. H\u00e9r nefni \u00e9g bara \u00f6rf\u00e1 d\u00e6mi.<\/p>\n<h3>Liti\u00f0 fram \u00e1 veginn<\/h3>\n<p>\u00c9g hef fulla tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0, \u00f6ll sem eitt, viljum sj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 vaxa og dafna sem aldrei fyrr og ver\u00f0a \u00f6\u00f0rum sveitarf\u00e9l\u00f6gum g\u00f3\u00f0 fyrirmynd \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um. \u00deetta tekst me\u00f0 samhentu \u00e1taki okkar allra, j\u00e1kv\u00e6\u00f0ni og \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa \u00e1 n\u00e6rumhverfi\u00f0 me\u00f0 n\u00fd t\u00e6kif\u00e6ri og m\u00f6guleika \u00ed huga. \u00c9g sj\u00e1lfur lofa virkri hlustun og a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 \u00feau verkefni sem tala \u00ed takt vi\u00f0 h\u00e1leit markmi\u00f0 og stefnu sveitarf\u00e9lagsins um enn betri \u00fej\u00f3nustu og enn betri b\u00e6 til a\u00f0 b\u00faa \u00ed. Einstaklingsframtaki\u00f0 ver\u00f0ur seint meti\u00f0 til fj\u00e1r og langar mig a\u00f0 nota t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 og hr\u00f3sa \u00f6llu \u00fev\u00ed fr\u00e1b\u00e6ra f\u00f3lki sem hefur me\u00f0 sj\u00e1lfbo\u00f0avinnu sinni og framkv\u00e6mdagle\u00f0i hrint \u00ed framkv\u00e6md \u00f3tr\u00falegustu verkefnum sem eru b\u00e6jarf\u00e9laginu til mikils s\u00f3ma. Samhli\u00f0a vil \u00e9g \u00feakka \u00f6llu \u00fev\u00ed fr\u00e1b\u00e6ra f\u00f3lk sem vinnur hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 fyrir \u00feeirra faglegu st\u00f6rf \u00ed \u00fe\u00e1gu b\u00e6jarins og framlag til \u00feeirrar umb\u00f3tavinnu sem \u00feegar hefur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 og kemur til me\u00f0 a\u00f0 eiga s\u00e9r \u00e1fram sta\u00f0 \u00e1 n\u00fdju \u00e1ri. \u00c9g horfi me\u00f0 mikilli bjarts\u00fdni fram \u00e1 veginn og mun sigla af eftirv\u00e6ntingu inn \u00ed n\u00fdtt \u00e1r tilb\u00fainn a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 gamlar og n\u00fdjar \u00e1skoranir og verkefni. Megi n\u00fdtt \u00e1r f\u00e6ra m\u00e9r og g\u00f3\u00f0um samstarfsf\u00e9l\u00f6gum m\u00ednum fleiri samt\u00f6l vi\u00f0 \u00e1hugasama b\u00e6jarb\u00faa sem b\u00faa yfir n\u00fdjum hugmyndum og sj\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri og m\u00f6guleika \u00ed s\u00ednu n\u00e6rumhverfi, heims\u00f3knir til sem flestra fyrirt\u00e6kja h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i me\u00f0 kynningu \u00e1 starfsemi \u00feeirra og framt\u00ed\u00f0ar\u00e1formum, \u00e1hugaver\u00f0 og skemmtileg verkefni og umfram allt gla\u00f0beitta b\u00e6jarb\u00faa sem er umhuga\u00f0 um n\u00e6rumhverfi sitt og n\u00e1granna.&nbsp;<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00feessu s\u00f6g\u00f0u \u00feakka \u00e9g fyrir g\u00f3\u00f0ar stundir \u00e1 \u00e1rinu sem er a\u00f0 l\u00ed\u00f0a.<br \/>\n<br \/>\nMegi n\u00fdtt \u00e1r f\u00e6ra okkur \u00f6llum hamingju og g\u00f3\u00f0a heilsu. Saman gerum vi\u00f0 Hafnarfj\u00f6r\u00f0 a\u00f0 besta b\u00e6num!&nbsp;<\/p>\n<p>\n<br \/>\n<em><br \/>\n<strong>Haraldur L. Haraldsson, Mayor of Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur<\/strong><br \/>\n<\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mig langar me\u00f0 nokkrum vel v\u00f6ldum or\u00f0um a\u00f0 fara yfir \u00e1ri\u00f0 sem senn rennur sitt skei\u00f0 auk \u00feess a\u00f0 tala a\u00f0eins um \u00fe\u00e1 tilfinningu sem \u00e9g hef fyrir n\u00fdju \u00e1ri, \u00e1ri sem \u00e9g er fullviss um a\u00f0 einkennast muni af krefjandi og \u00e1rangursr\u00edkum verkefnum og \u00f6flugu samstarfi einstaklinga og fyrirt\u00e6kja innan sveitarf\u00e9lagins.&nbsp; Liti\u00f0 um \u00f6xl [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-12842","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12842","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=12842"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12842\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=12842"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=12842"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=12842"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}