{"id":12918,"date":"2016-02-07T00:00:00","date_gmt":"2016-02-07T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/i-baejarfrettum-er-thetta-helst\/"},"modified":"2022-10-25T08:59:09","modified_gmt":"2022-10-25T08:59:09","slug":"i-baejarfrettum-er-thetta-helst","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/i-baejarfrettum-er-thetta-helst\/","title":{"rendered":"In the local news, the main stories are these."},"content":{"rendered":"<p><strong>A message from the mayor after the turn of the month<\/strong><\/p>\n<p>I have decided to make it a regular feature to put together a few words at the end of each month to report on interesting projects underway within the municipality and to share the highs and lows of the month's challenges, ideas, visits and meetings. There is much to report, but with this I want to better inform residents and other stakeholders about the progress of matters and plans within the municipality. &nbsp;<\/p>\n<p>Fyrsti m\u00e1nu\u00f0ur \u00e1rsins fer vel af sta\u00f0. \u00c9g hef \u00e1tt g\u00f3\u00f0a fundi og samtal vi\u00f0 helstu stj\u00f3rnendur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar og eru fleiri sl\u00edkir fundir eru fyrirhuga\u00f0ir \u00e1 n\u00e6stunni. \u00c9g \u00e6tla m\u00e9r a\u00f0 eiga sl\u00edkt samtal vi\u00f0 sem flesta starfsmenn b\u00e6jarins og mun gefa m\u00e9r t\u00edma \u00ed \u00fea\u00f0 \u00e1 komandi m\u00e1nu\u00f0um. \u00c9g tel br\u00fdnt a\u00f0 vi\u00f0 starfsmenn Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar stillum enn betur saman strengi og b\u00faum \u00feannig til gangverk sem virkar eins vel og m\u00f6gulegt er og a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um \u00f6ll a\u00f0 stefna \u00ed s\u00f6mu \u00e1tt. S\u00fa \u00e1tt er a\u00f0 gera Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 a\u00f0 sveitarf\u00e9lagi sem er til fyrirmyndar \u00ed \u00f6llu tilliti \u00fear sem veitt er \u00fej\u00f3nusta sem er b\u00e6num til s\u00f3ma. Vi\u00f0 erum a\u00f0 gera g\u00f3\u00f0a hluti \u00e1 flestum ef ekki \u00f6llum svi\u00f0um en vitum vel a\u00f0 lengi m\u00e1 gott b\u00e6ta. Samhli\u00f0a \u00feessum heims\u00f3knum er \u00e9g a\u00f0 hitta b\u00e6jarb\u00faa og starfsmenn og stj\u00f3rnendur fyrirt\u00e6kja til a\u00f0 f\u00e1 \u00feeirra s\u00fdn og hugmyndir um \u00fea\u00f0 sem betur m\u00e1 fara og n\u00fdtt m\u00e1 gera.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 gera yfirliti\u00f0 sem a\u00f0gengilegast og sk\u00fdrast hef \u00e9g \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 birta \u00fea\u00f0 undir \u00fev\u00ed stj\u00f3rnkerfisskipulagi sem vi\u00f0 st\u00f6rfum eftir innan sveitarf\u00e9lagsins.<\/p>\n<h4>Governance<\/h4>\n<ul>\n<li><a href=\"\/en\/province\/news\/bright-times-ahead\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Budget<\/a> \u2013 \u00e1\u00e6tlun liggur fyrir og var sam\u00feykkt af b\u00e6jarstj\u00f3rn \u00ed lok n\u00fdli\u00f0ins \u00e1rs. \u00c9g er fullur bjarts\u00fdni \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e1\u00e6tlunin standist enda er h\u00fan bygg\u00f0 \u00e1 \u00edtarlegri \u00fattekt sem skila\u00f0i g\u00f3\u00f0ri s\u00fdn og skilningi \u00e1 st\u00f6\u00f0u og rekstri sveitarf\u00e9lagsins. Vi\u00f0 erum a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 losa um fj\u00e1rmagn hj\u00e1 sveitarf\u00e9laginu sem n\u00fdtt ver\u00f0ur b\u00e6\u00f0i til framkv\u00e6mda og uppgrei\u00f0slu l\u00e1na.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Futbod-a-adkeyptri-thjonustu-abati-111-milljonir&amp;h=LAQG0jjz9&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">\u00datbo\u00f0ssamningar<\/a> &#8211; b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 undirrita sex \u00fatbo\u00f0ssamninga sem skila hagr\u00e6\u00f0ingu \u00ed rekstri upp \u00e1 um 100 millj\u00f3nir kr\u00f3na. H\u00e9r er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e6tti eins og a\u00f0 tryggingar, sk\u00f3laakstur, endursko\u00f0un, prentlausnir, r\u00e6stingu og framlei\u00f0slu \u00e1 mat. Til stendur a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00fat fleiri \u00fej\u00f3nustu\u00fe\u00e6tti \u00e1 \u00e1rinu. \u00c9g hef lengi veri\u00f0 \u00feeirra sko\u00f0unar a\u00f0 endurmeta eigi og hagr\u00e6\u00f0a \u00ed rekstri hins opinbera frekar en a\u00f0 auka \u00e1l\u00f6gur \u00e1 \u00edb\u00faa og vil sj\u00e1 \u00feessa sko\u00f0un og s\u00fdn endurspeglast \u00ed helst \u00f6llum a\u00f0ger\u00f0um okkar og framkv\u00e6mdum.<\/li>\n<li><a href=\"\/en\/province\/tariffs\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Price list<\/a> \u2013 \u00f3hj\u00e1kv\u00e6mileg h\u00e6kkun var\u00f0 \u00e1 gjaldskr\u00e1m hj\u00e1 okkur, breyting sem endurspeglar \u00fe\u00e1 h\u00e6kkun sem or\u00f0i\u00f0 hefur \u00ed rekstri \u00feeirra \u00fej\u00f3nustu\u00fe\u00e1tta sem um r\u00e6\u00f0ir. \u00deetta \u00e1 \u00fe\u00f3 ekki vi\u00f0 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fbarnafjolskyldur-farnar-ad-njota&amp;h=nAQFwwIfr&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">vistunargjald leiksk\u00f3la<\/a> sem er \u00f3breytt anna\u00f0 \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0. H\u00e9r \u00fearf l\u00edka a\u00f0 halda til haga a\u00f0 gjaldskr\u00e1 h\u00e9lst \u00f3breytt milli 2014 til 2015. \u00cd flestum tilvikum stendur Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur vel \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 \u00f6nnur sveitarf\u00e9l\u00f6g og \u00e1 stundum nokku\u00f0 undir me\u00f0allagi hva\u00f0 \u00feessi gj\u00f6ld var\u00f0ar. \u00c1rangur \u00feeirra a\u00f0ger\u00f0a sem r\u00e1\u00f0ist hefur veri\u00f0 \u00ed er or\u00f0inn s\u00fdnilegur og \u00fev\u00ed fagna \u00e9g. Vi\u00f0 munum halda \u00e1fram \u00e1 \u00feessari braut.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fvill-kaupa-st-josefsspitala&amp;h=TAQElXgY1&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">St. J\u00f3sefssp\u00edtali<\/a> \u2013 m\u00e9r hefur veri\u00f0 fali\u00f0 a\u00f0 ganga til samninga vi\u00f0 r\u00edki\u00f0 um kaup \u00e1 h\u00fasn\u00e6\u00f0inu. \u00cd dag eigum vi\u00f0 15% af eignunum og vill b\u00e6rinn me\u00f0 \u00feessu tryggja forr\u00e6\u00f0i yfir \u00feeim og a\u00f0 \u00fe\u00e6r komist \u00ed virka notkun \u00ed \u00fe\u00e1gu n\u00e6rsamf\u00e9lagsins. Gangi \u00feetta eftir er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 s\u00e9rst\u00f6k nefnd ver\u00f0i skipu\u00f0 \u00ed kringum framt\u00ed\u00f0 bygginganna og \u00f3ska\u00f0 eftir till\u00f6gur a\u00f0 starfsemi \u00fear \u00fat fr\u00e1 gildandi a\u00f0alskipulagi.<\/li>\n<li><a href=\"\/en\/province\/news\/centre-of-elderly-care-services\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">N\u00fdtt hj\u00fakrunarheimili <\/a>\u2013 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 a\u00f0 byggja n\u00fdtt 60 r\u00fdma hj\u00fakrunarheimili \u00e1 S\u00f3lvangsreitnum. Hugmyndir eru um a\u00f0 n\u00fdta n\u00faverandi S\u00f3lvangsh\u00fas a\u00f0 hluta sem \u00fej\u00f3nustumi\u00f0st\u00f6\u00f0 fyrir eldri borgara og a\u00f0 \u00fear ver\u00f0i tuttugu hj\u00fakrunarr\u00fdmi . Er \u00feessi \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 stefnum\u00f3tun \u00ed m\u00e1lefnum eldri borgara \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00c1 S\u00f3lvangi er n\u00fa \u00feegar fyrir hendi \u00fdmis sto\u00f0\u00fej\u00f3nusta sem mikilv\u00e6gt er a\u00f0 s\u00e9 til sta\u00f0ar \u00ed n\u00e6rumhverfi n\u00fds hj\u00fakrunarheimilis.<\/li>\n<\/ul>\n<h4>Fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstunda\u00fej\u00f3nusta<\/h4>\n<ul>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fibuar%2Fithrottir-og-utivera%2Ffristundastyrkir%2F&amp;h=zAQHnCqCD&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Hobby grants<\/a> \u2013 breyting hefur or\u00f0i\u00f0 \u00e1 <a href=\"\/en\/province\/news\/fristundastyrkir-breyting\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">fyrirkomulagi fr\u00edstundastyrkja<\/a> og n\u00fa geta hafnfirsk b\u00f6rn sem stunda \u00ed\u00fer\u00f3tt s\u00edna fyrir utan sveitarf\u00e9lagi\u00f0 einnig fengi\u00f0 styrk vegna \u00feess. <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fum-65m-til-heimila-i-hafnarfirdi&amp;h=PAQEHLHGx&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">B\u00e6rinn ni\u00f0urgreiddi \u00ed\u00fer\u00f3tta- og t\u00f3mstundastarf um 64,5 millj\u00f3nir kr\u00f3na<\/a> \u00e1 \u00e1rinu 2015 til 3.050 barna. \u00dearf af voru r\u00famlega 2.500 b\u00f6rn sem fengu ni\u00f0urgrei\u00f0slu fyrir fleiri en eitt n\u00e1mskei\u00f0.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fheilahristingur-heimavinnuadstod&amp;h=KAQF6SN5s&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Concussion<\/a> \u2013 heimaa\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 heiman\u00e1m grunnsk\u00f3lanemenda \u00ed 4. \u2013 10. bekk h\u00f3fst n\u00fa \u00ed m\u00e1nu\u00f0inum. A\u00f0sto\u00f0in er einkum hugsu\u00f0 fyrir nemendur sem eru af erlendu bergi brotnir og er h\u00fan \u00ed bo\u00f0i einu sinni \u00ed viku \u00ed fj\u00f6lnotasal B\u00f3kasafns Hafnarfjar\u00f0ar. H\u00e9r er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a samstarfsverkefni B\u00f3kasafns Hafnarfjar\u00f0ar og Rau\u00f0a krossins \u00ed Hafnarfir\u00f0i og Gar\u00f0ab\u00e6.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Flandsleikur-i-lestri&amp;h=wAQFwxaIB&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">National reading competition <\/a>\u2013 lestrar\u00e1tak sem f\u00f3r af sta\u00f0 \u00e1 b\u00f3ndadaginn og endar \u00e1 konudaginn. \u00c1taki\u00f0 fellur vel a\u00f0 \u00f6\u00f0rum lestrarverkefnum b\u00e6jarins sem \u00ed gangi eru allt \u00e1ri\u00f0 um kring. <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fbaejarstjorn-med-i-landsleik&amp;h=SAQExBNpP&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Town Council <\/a>tekur virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed landsleiknum \u00e1samt fj\u00f6lda h\u00f3pa \u00e1 fleiri vinnust\u00f6\u00f0um. Lestur er l\u00edfsins leikur.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ffleiri-baekur-a-bokasofn-skolanna&amp;h=WAQHzqzIW&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Fleiri b\u00e6kur \u00e1 b\u00f3kas\u00f6fn <\/a>\u2013 tekin var \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 ver\u00f0a vi\u00f0 \u00e1skorun b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0inga \u00ed grunnsk\u00f3lum Hafnarfjar\u00f0ar og auka fj\u00e1rveitingu til b\u00f3kakaupa \u00ed sk\u00f3lum b\u00e6jarins. Fj\u00e1rveitingin var aukin um 50% til \u00feess a\u00f0 sty\u00f0ja \u00feannig enn betur vi\u00f0 b\u00e6tt l\u00e6si barnanna okkar.<\/li>\n<\/ul>\n<h4>Family services<\/h4>\n<ul>\n<li>Aukin \u00fej\u00f3nusta vi\u00f0 fatla\u00f0 f\u00f3lk \u2013 fj\u00f6lm\u00f6rg skapandi og skemmtileg verkefni eru \u00ed gangi \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i. <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fnyskopun-i-atvinnumalum-fatlads-folks-1&amp;h=CAQFWupnB&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">The wasps<\/a> vaxa og dafna og hafa fengi\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 komast \u00fat \u00e1 almennan vinnumarka\u00f0. Teki\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1 m\u00f3ti fleiri einstaklingum \u00ed h\u00f3pinn n\u00fa \u00ed upphafi n\u00fds \u00e1rs. Til vi\u00f0b\u00f3tar hefur n\u00fdr samningur l\u00edka veri\u00f0 ger\u00f0ur vi\u00f0 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Faukin-thjonusta-fyrir-fatlad-folk&amp;h=dAQEUYjzZ&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Specialisterne<\/a> sem teki\u00f0 hafa a\u00f0 s\u00e9r faglega \u00fej\u00f3nustu til fatla\u00f0a atvinnuleitendur.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fheilsueflandi-starf-eldri-borgara&amp;h=fAQEVi0NA&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">M\u00e1lefni eldri borgara<\/a> \u2013 \u00e9g hef \u00e1tt gott samtal vi\u00f0 marga eldri borgara n\u00fa \u00ed jan\u00faar, f\u00f3lk sem \u00e1 \u00fea\u00f0 sammerkt a\u00f0 vera j\u00e1kv\u00e6tt, l\u00edfsglatt og \u00feakkl\u00e1tt fyrir veitta \u00fej\u00f3nustu. Kr\u00f6fur \u00feeirra eru ekki \u00f3raunh\u00e6far heldur sanngjarnar, eins og a\u00f0 f\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 nj\u00f3ta efri \u00e1ranna og f\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri til samveru og skemmtunar.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fhafnfirsku-flottafjolskyldurnar&amp;h=jAQE_l7L7&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">The Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur refugee families <\/a>\u2013 fj\u00f6lskyldurnar sem koma til okkar eru v\u00e6ntanlegar \u00ed byrjun mars. \u00de\u00e6r \u00e1ttu a\u00f0 koma \u00ed jan\u00faar en breytingar \u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0um og \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum \u00feeirra ur\u00f0u til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 dr\u00f3st. Mikill undirb\u00faningur hefur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 og vi\u00f0 tilb\u00fain til a\u00f0 taka vel \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim fj\u00f6lskyldum sem eru a\u00f0 ver\u00f0a hafnfirskar.<\/li>\n<\/ul>\n<h4>Umhverfis- og skipulags\u00fej\u00f3nusta<\/h4>\n<ul>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ffljugandi-halka-um-allan-bae&amp;h=EAQFa24Vp&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Mokstur \u00e1 g\u00f6tum og h\u00e1lkuvarnir <\/a> &#8211; hafa fari\u00f0 nokku\u00f0 vel af sta\u00f0 \u00e1 n\u00fdju \u00e1ri. H\u00e9r er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 m\u00e1l sem flestar \u00e1bendingar berast um og reglubundi\u00f0 er unni\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ta ferla og b\u00e6ta vinnulagi\u00f0. Samhli\u00f0a er reynt a\u00f0 finna sem hagkv\u00e6mastar lei\u00f0ir \u00feannig a\u00f0 n\u00fdta megi \u00fea\u00f0 fj\u00e1rmagn sem vari\u00f0 er til \u00feessa verkefnis sem best<\/li>\n<li>Hir\u00f0ing j\u00f3latrj\u00e1a &#8211; gekk \u00e1g\u00e6tlega eftir. Snj\u00f3koma og h\u00e1lka \u00e1 sama t\u00edma seinka\u00f0i hir\u00f0ingu um nokkra daga enda um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a sama kr\u00f6ftuga mannskapinn sem sinnir hvoru tveggja.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fibuar%2Fsamgongur%2Fsorphirda%2F&amp;h=sAQH2o1KC&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Waste collection <\/a>&#8211; hefur gengi\u00f0 nokku\u00f0 vel \u00fea\u00f0 sem af er n\u00fdju \u00e1ri. Einhverjir \u00edb\u00faar n\u00fdttu s\u00e9r \u00fej\u00f3nustu b\u00e6jarins a\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 auka poka til s\u00f6lu \u00e1 v\u00f6ldum st\u00f6\u00f0um. S\u00e9rmerktir pokar sem voru hirtir samhli\u00f0a annarri reglubundinni t\u00e6mingu. Einhver seinkun var\u00f0 \u00e1 sorphir\u00f0u vegna bilunar \u00e1 b\u00edlum hj\u00e1 verktaka en \u00fea\u00f0 var unni\u00f0 upp \u00ed upphafi \u00e1rsins.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fibuar%2Flodir-og-teikningar%2Flausar-lodir%2F&amp;h=FAQHr6UUU&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Eftirspurn eftir l\u00f3\u00f0um <\/a>&#8211; fyrir atvinnu- og \u00edb\u00fa\u00f0arh\u00fasn\u00e6\u00f0i. Mikil uppbygging er a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 V\u00f6llunum \u00ed auk \u00feess sem \u00e1hugi er fyrir a\u00f0 koma a\u00f0 \u00fe\u00e9ttingu bygg\u00f0ar \u00e1 spennandi sv\u00e6\u00f0um, sv\u00e6\u00f0um sem kalla \u00e1 endurskipulagningu og \u00fearfnast vi\u00f0halds og breytinga. Fj\u00f6ldi fyrirspurna eru n\u00fa a\u00f0 berast um atvinnul\u00f3\u00f0ir og \u00e1 vorm\u00e1nu\u00f0um ver\u00f0a l\u00f3\u00f0ir augl\u00fdstar. Stefnt er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hefja \u00fathlutun fj\u00f6lb\u00fdlisl\u00f3\u00f0a \u00ed Skar\u00f0shl\u00ed\u00f0 \u00ed mars\/apr\u00edl n.k.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fthetting-byggdar-skyrsla&amp;h=GAQE2ZWz7&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Urban densification<\/a> \u2013 n\u00fd sk\u00fdrsla komin \u00fat. \u00cd sk\u00fdrslunni er a\u00f0 finna tv\u00e6r till\u00f6gur sem b\u00e1\u00f0ar fela \u00ed s\u00e9r breytingar \u00e1 gildandi skipulagi Hafnarfjar\u00f0ar. Mikil vinna og umr\u00e6\u00f0a \u00e1 eftir a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0 var\u00f0andi till\u00f6gur fagh\u00f3psins sem vann sk\u00fdrsluna og ver\u00f0a hugmyndirnar kynntar \u00ed Hafnarborg \u00ed mars.<\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fthryst-a-adgerdir-raduneytis&amp;h=FAQHr6UUU&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Umfer\u00f0ar\u00f6ryggi og a\u00f0ger\u00f0ir<\/a> \u2013 \u00fer\u00fdstingur \u00e1 stj\u00f3rnv\u00f6ld. T-gatnam\u00f3t vi\u00f0 Kr\u00fdsuv\u00edkurveg\/Reykjanesbraut eru l\u00f6ngu or\u00f0in barns s\u00edns t\u00edma og h\u00e6ttan sem skapast \u00fear vegna umfer\u00f0ar \u00e1 h\u00e1annat\u00edmum ver\u00f0ur s\u00edfellt meiri. Fyrirt\u00e6ki \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu vilja sj\u00e1 misl\u00e6g gatnam\u00f3t r\u00edsa sem fyrst og hafa skora\u00f0 \u00e1 innanr\u00edkisr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 a\u00f0 framkv\u00e6mdir ver\u00f0i hafnar \u00e1 \u00e1rinu. B\u00e6jaryfirv\u00f6ld \u00ed Hafnarfir\u00f0i taka undir \u00e1skorunina um a\u00f0 b\u00e6ta umfer\u00f0ar\u00f6ryggi og tryggja grei\u00f0ari samg\u00f6ngur \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur hefur or\u00f0i\u00f0 mj\u00f6g \u00fatundan hva\u00f0 var\u00f0ar ger\u00f0 misl\u00e6gra gatnam\u00f3ta vi\u00f0 Reykjanesbrautina \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 n\u00e1grannasveitarf\u00e9l\u00f6g. \u00deessu \u00fearf a\u00f0 breyta. Vi\u00f0 \u00e1ttum fund me\u00f0 innanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra um m\u00e1li\u00f0 \u00e1samt fulltr\u00faa fyrirt\u00e6kja.<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00c9g vona a\u00f0 m\u00e1na\u00f0arleg skrif m\u00edn komi til me\u00f0 a\u00f0 varpa einhverju lj\u00f3si \u00e1 hluta \u00feess fj\u00f6lbreytta starfs sem unni\u00f0 er a\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1gu sveitarf\u00e9lagsins og \u00feeirra sem \u00fear b\u00faa. \u00c9g minni \u00edb\u00faa og fyrirt\u00e6ki \u00e1 vikulega vi\u00f0talst\u00edma m\u00edna \u00e1 \u00feri\u00f0judagsmorgnum \u00fear sem \u00e9g tek gla\u00f0ur \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim sem vilja eiga samtal vi\u00f0 mig. Vi\u00f0talsb\u00f3kanir eru \u00ed s\u00edma 585-5506.<\/p>\n<p>Me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri kve\u00f0ju<\/p>\n<p>Haraldur L. Haraldsson, b\u00e6jarstj\u00f3ri<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Or\u00f0 fr\u00e1 b\u00e6jarstj\u00f3ra eftir m\u00e1na\u00f0arm\u00f3t \u00c9g hef \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 sem fastan li\u00f0 a\u00f0 setja saman nokkur or\u00f0 um m\u00e1na\u00f0am\u00f3t til a\u00f0 segja fr\u00e1 \u00e1hugaver\u00f0um verkefnum sem \u00ed gangi eru innan sveitarf\u00e9lagsins og upp og ofan af \u00e1skorunum, hugmyndum, heims\u00f3knum og fundum m\u00e1na\u00f0arins. Af m\u00f6rgu er a\u00f0 taka en me\u00f0 \u00feessu vil \u00e9g uppl\u00fdsa [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-12918","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12918","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=12918"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12918\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=12918"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=12918"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=12918"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}