{"id":12966,"date":"2016-03-18T00:00:00","date_gmt":"2016-03-18T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/reykjavik-loves-aukid-samstarf\/"},"modified":"2022-10-25T08:59:16","modified_gmt":"2022-10-25T08:59:16","slug":"reykjavik-loves-aukid-samstarf","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/reykjavik-loves-aukid-samstarf\/","title":{"rendered":"Reykjav\u00edk Loves \u2013 collaboration"},"content":{"rendered":"<p><i>V\u00f6rumerki\u00f0 Reykjav\u00edk Loves ver\u00f0ur nota\u00f0 til a\u00f0 marka\u00f0ssetja h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed heild til erlendra fer\u00f0amanna samkv\u00e6mt samstarfssamningi sem Dagur B. Eggertsson borgarstj\u00f3ri og b\u00e6jarstj\u00f3rar sveitarf\u00e9laga \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu, \u00feau \u00c1rmann Kr. \u00d3lafsson \u00ed K\u00f3pavogi, Haraldur L. Haraldsson \u00ed Hafnarfir\u00f0i, Gunnar Einarsson \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6, Haraldur Sverrisson \u00ed Mosfellsb\u00e6 og \u00c1sger\u00f0ur Halld\u00f3rsd\u00f3ttir \u00e1 Seltjarnarnesi skrifu\u00f0u undir \u00ed dag.&nbsp;<\/i><\/p>\n<h4>Samstarf \u00e1 vettvangi marka\u00f0s- og uppl\u00fdsingam\u00e1la og vi\u00f0bur\u00f0a \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu<\/h4>\n<p>Samningurinn felur \u00ed s\u00e9r samstarf sveitarf\u00e9laganna \u00e1 vettvangi marka\u00f0sm\u00e1la, vi\u00f0bur\u00f0a og uppl\u00fdsingam\u00e1la \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu. Markmi\u00f0 samstarfsins er a\u00f0 vinna a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fer\u00f0amenn dreifist meira um h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0, verji \u00fear meiri t\u00edma og n\u00fdti betur af\u00fereyingu og \u00fej\u00f3nustu \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu \u00ed heild. \u00cd samningnum kemur m.a. fram a\u00f0 v\u00f6rumerki\u00f0 Reykjav\u00edk s\u00e9 \u00feekkt og me\u00f0 samvinnu sveitarf\u00e9laganna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu undir sameiginlegu v\u00f6rumerki Reykjav\u00edk Loves megi efla sv\u00e6\u00f0i\u00f0 enn frekar sem eftirs\u00f3knarver\u00f0an \u00e1fangasta\u00f0 fyrir erlenda fer\u00f0amenn. H\u00f6fu\u00f0borgarstofa ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 framkv\u00e6md \u00feeirra verkefna sem tilgreind eru \u00ed samstarfinu. Allir samstarfsa\u00f0ilar eiga fulltr\u00faa \u00ed samstarfsnefnd verkefnisins en hlutverk samstarfsnefndarinnar er a\u00f0 afgrei\u00f0a fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun vegna samstarfsins, meta framgang \u00feess og standa v\u00f6r\u00f0 um a\u00f0 unni\u00f0 s\u00e9 \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 markmi\u00f0 samningsins.&nbsp;<\/p>\n<h4>Sameiginlegt kynningarefni og auki\u00f0 samtal<\/h4>\n<p>Verkefni\u00f0 er hluti af s\u00f3knar\u00e1\u00e6tlun h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0isins sem haldi\u00f0 er utan um og st\u00fdrt af Samt\u00f6kum sveitarf\u00e9laga \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu (SSH). Verkefni\u00f0 byggir \u00e1 eldra samstarfi sveitarf\u00e9laganna fr\u00e1 \u00e1rinu 2005 um marka\u00f0sstarf, vi\u00f0bur\u00f0i og uppl\u00fdsingami\u00f0lun til erlendra fer\u00f0amanna. \u00dea\u00f0 samstarf var eflt til muna \u00e1ri\u00f0 2013 \u00e1 vettvangi SSH \u00feegar \u00e1kve\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 kynna h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed heild undir v\u00f6rumerkinu Reykjav\u00edk. Au\u00f0kenni fyrir h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 sem \u00e1fangasta\u00f0 fyrir erlenda fer\u00f0amenn var s\u00ed\u00f0an kynnt \u00ed okt\u00f3ber 2014 undir merkjum Reykjav\u00edk Loves. Auki\u00f0 samstarf sveitarf\u00e9laga \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu \u00ed marka\u00f0ssetningu gagnvart erlendum fer\u00f0am\u00f6nnum hefur n\u00fa \u00feegar skila\u00f0 s\u00e9r \u00ed ger\u00f0 sameiginlegs kynningarefnis s.s. \u00feemab\u00e6klinga undir merkjum Reykjav\u00edk Loves \u00fear sem sundlaugar, s\u00f6fn og hj\u00f3last\u00edgar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu eru kynnt s\u00e9rstaklega fyrir erlendum fer\u00f0am\u00f6nnum.&nbsp;Samningurinn sem undirrita\u00f0ur var \u00e1 H\u00f6fu\u00f0borgarstofu \u00ed dag gildir til 31. desember 2018.\u00cd tilefni af undirritun samningsins s\u00f6g\u00f0u borgarstj\u00f3ri og b\u00e6jarstj\u00f3rar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu eftirfarandi:&nbsp;<\/p>\n<p><b>Dagur B. Eggertsson borgarstj\u00f3ri:<\/b> <i>\u201eGott samstarf \u00e1 milli sveitarf\u00e9laganna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu er mikilv\u00e6gt og vi\u00f0 eigum \u00f6ll mikil t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed sameiginlegri marka\u00f0ssetningu. \u00deessi samningur endurspeglar a\u00f0 samstarf sveitarf\u00e9laganna hefur sjaldan veri\u00f0 betra en n\u00fa og au\u00f0vita\u00f0 eru \u00fea\u00f0 umtalsver\u00f0 t\u00edmam\u00f3t a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin hafa sameinast um a\u00f0 marka\u00f0setja h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed heild undir nafninu Reykjav\u00edk. \u201c<\/i><\/p>\n<p><b>\u00c1rmann Kr. Einarsson b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00ed K\u00f3pavogi:<\/b><i> \u201eGr\u00ed\u00f0arleg fj\u00f6lgun erlendra fer\u00f0amanna kallar \u00e1 auki\u00f0 marka\u00f0sstarf til a\u00f0 kynna af\u00fereyingu \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu \u00f6llu. \u00dev\u00ed fagna \u00e9g auknu samstarfi milli sveitarf\u00e9laganna \u00ed marka\u00f0sm\u00e1lum, vi\u00f0 nj\u00f3tum \u00f6ll g\u00f3\u00f0s af \u00fev\u00ed.\u201c<\/i><\/p>\n<p><b>Haraldur L. Haraldsson b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00ed Hafnarfir\u00f0i: <\/b><i>\u201eVi\u00f0 f\u00f6gnum auknu og samr\u00e6mdu samstarfi \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i og munum taka vel \u00e1 m\u00f3ti vaxandi fj\u00f6lda fer\u00f0amanna. T\u00e6kif\u00e6rin \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu eru mikil og allir innvi\u00f0ir til sta\u00f0ar.\u201c<\/i><\/p>\n<p><b>Gunnar Einarsson b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6: <\/b><i>\u201e\u00c9g hef miklar v\u00e6ntingar til \u00feess a\u00f0 \u00f6flugt samstarf sveitarf\u00e9laganna ver\u00f0i til a\u00f0 styrkja \u00feau \u00f6ll og geri \u00fe\u00e1 fj\u00f6lbreyttu menningu og af\u00fereyingu sem er \u00ed bo\u00f0i \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu a\u00f0gengilegri fyrir fer\u00f0amenn.\u201c<\/i><\/p>\n<p><b>Haraldur Sverrisson b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00ed Mosfellsb\u00e6:<i> <\/i><\/b><i>\u201e\u00c9g hef mikla tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 n\u00e1i markmi\u00f0um s\u00ednum \u00ed m\u00e1lefnum er var\u00f0a fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustuna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sameina krafta s\u00edna eins og gert er me\u00f0 \u00feessu samkomulagi.\u201c<\/i><\/p>\n<p><b>\u00c1sger\u00f0ur Halld\u00f3rsd\u00f3ttir b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00e1 Seltjarnarnesi:<\/b><i> \u201eSeltjarnarnesb\u00e6r l\u00fdsir yfir mikilli \u00e1n\u00e6gju me\u00f0 samstarfi\u00f0 vi\u00f0 n\u00e1grannasveitarf\u00e9l\u00f6gin og hefur \u00feegar sett af sta\u00f0 nefnd sem \u00e6tla\u00f0 er a\u00f0 m\u00f3ta stefnu sveitarf\u00e9lagsins gagnvart fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustunni.\u201c<\/i><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V\u00f6rumerki\u00f0 Reykjav\u00edk Loves ver\u00f0ur nota\u00f0 til a\u00f0 marka\u00f0ssetja h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed heild til erlendra fer\u00f0amanna samkv\u00e6mt samstarfssamningi sem Dagur B. Eggertsson borgarstj\u00f3ri og b\u00e6jarstj\u00f3rar sveitarf\u00e9laga \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu, \u00feau \u00c1rmann Kr. \u00d3lafsson \u00ed K\u00f3pavogi, Haraldur L. Haraldsson \u00ed Hafnarfir\u00f0i, Gunnar Einarsson \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6, Haraldur Sverrisson \u00ed Mosfellsb\u00e6 og \u00c1sger\u00f0ur Halld\u00f3rsd\u00f3ttir \u00e1 Seltjarnarnesi skrifu\u00f0u undir \u00ed dag.&nbsp; Samstarf [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-12966","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12966","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=12966"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/12966\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=12966"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=12966"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=12966"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}