{"id":13083,"date":"2016-07-14T00:00:00","date_gmt":"2016-07-14T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/i-baejarfrettum-er-thetta-helst-3\/"},"modified":"2022-10-25T08:59:34","modified_gmt":"2022-10-25T08:59:34","slug":"i-baejarfrettum-er-thetta-helst-3","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/i-baejarfrettum-er-thetta-helst-3\/","title":{"rendered":"In the local news, the main stories are these."},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa er or\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 um li\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu birtingu. \u00c1st\u00e6\u00f0an er einf\u00f6ld&#8230;\u00fea\u00f0 er margt um a\u00f0 vera \u00e1 st\u00f3ru heimili og \u00ed forgangi a\u00f0 sinna heimilisverkunum. N\u00fa hefur a\u00f0eins h\u00e6gst um og svigr\u00fam skapast til skrifa. S\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0ir hafa sem fyrr einkennst af miklu l\u00edfi, h\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ldum og verkefnum sem tengjast sumri og uppskeru \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um. \u00derif og hreinsun \u00e1 fallega b\u00e6num okkar h\u00f3fst me\u00f0 s\u00f3pun \u00e1 g\u00f6tum og g\u00f6ngust\u00edgum \u00ed apr\u00edl og \u00ed framhaldinu t\u00f3ku <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/events\/1016370405078256\/?active_tab=posts\">residents<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1185908571441754\">nemendur grunn- og leiksk\u00f3la<\/a> and <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1185350168164261\">starfsmenn b\u00e6jarins og fyrirt\u00e6kja \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/a> sig til og t\u00f3ku virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed hreinsun \u00e1 s\u00ednu n\u00e6rumhverfi. Hreinsunardagarnir \u00ed ma\u00ed \u00fe\u00f3ttu takast mj\u00f6g vel til \u00feetta \u00e1ri\u00f0 og eigi\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00f6ll hr\u00f3s skili\u00f0 fyrir ykkar framlag. Vinnusk\u00f3li Hafnarfjar\u00f0ar h\u00f3f svo st\u00f6rf um mi\u00f0jan j\u00fan\u00ed og vinna \u00ed kringum 650 unglingar vi\u00f0 sl\u00e1ttur, hreinsun og fegrun fram \u00ed \u00e1g\u00fast. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki alveg n\u00e1\u00f0 a\u00f0 tryggja sl\u00e1ttur og hreinsun \u00e1 almenningi og opnum sv\u00e6\u00f0um sem eru erfi\u00f0ari yfirfer\u00f0ar og krefjast t\u00e6kjavinnu og st\u00e6rri \u00e1kvar\u00f0anna, \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 vi\u00f0urkennast. Veri\u00f0 er a\u00f0 vinna a\u00f0 framt\u00ed\u00f0arlausnum \u00e1 \u00feessum \u00fe\u00e1ttum og stefnum vi\u00f0 \u00e1 a\u00f0 hefjast handa n\u00fa \u00ed sumar vi\u00f0 \u00fe\u00e6r lausnir en keyra af fullum krafti \u00e1 \u00fe\u00e6r strax snemma n\u00e6sta vor. \u00deessa dagana stendur yfir samkeppni \u2013 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fsnyrtileikinn-2016-tilnefningar&amp;h=UAQFPk4DA&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Snyrtileikinn 2016<\/a> &#8211; \u00fear sem allir \u00e1hugasamir eru hvattir til a\u00f0 tilnefna \u00fe\u00e6r eignir, gar\u00f0a, g\u00f6tur og fyrirt\u00e6ki sem til fyrirmyndar \u00feykja \u00ed snyrtileika og fegur\u00f0. Vi\u00f0urkenningar fyrir \u00fe\u00e1 sem hlutskarpastir \u00feykja ver\u00f0a veittar vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0lega ath\u00f6fn \u00ed \u00e1g\u00fast. \u00c9g hvet ykkur \u00f6ll til a\u00f0 velja \u00fe\u00e1 eign og g\u00f6tu og \u00feann sem \u00fe\u00e9r \u00feykir bestur og senda till\u00f6gu \u00e1 hafnarfjordur@hafnarfjordur.is<\/p>\n<h4>Mannau\u00f0urinn og einstaklingsframtaki\u00f0<\/h4>\n<p>Mikilv\u00e6gi \u00feess \u00feegar hver og einn einstaklingur leggur sitt af m\u00f6rkum til samf\u00e9lagsins ver\u00f0ur aldrei meti\u00f0 til fj\u00e1r. Mikilv\u00e6gi\u00f0 er gr\u00ed\u00f0arlegt og starfi\u00f0 \u00f3missandi hverju samf\u00e9lagi. \u00c1 hverjum degi hitti \u00e9g einstaklinga, fyrirt\u00e6ki og samt\u00f6k sem eru \u00ed sj\u00e1lfbo\u00f0avinnu sinni a\u00f0 gera g\u00f3\u00f0a hluti og h\u00f6fum vi\u00f0 eftir megni reynt a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a starf. \u00deannig er stu\u00f0ningurinn ekki alltaf fj\u00e1rhagslegur heldur l\u00edka \u00ed formi vinnu, a\u00f0st\u00f6\u00f0u og kynninga. Vi\u00f0 eigum mj\u00f6g erfitt me\u00f0 a\u00f0 sty\u00f0ja fj\u00e1rhagslega vi\u00f0 \u00f6ll verkefni og \u00feeir sem til okkar leita, sem betur fer, farnir a\u00f0 meta til muna a\u00f0rar lei\u00f0ir sem vi\u00f0 getum fari\u00f0 \u00ed stu\u00f0ningi. <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fhvatningarverdlaunin-2016&amp;h=oAQF59CoG&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Hvatningarver\u00f0laun voru afhent \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3i<\/a> \u00ed apr\u00edl til einstaklinga sem \u00fe\u00f3tt hafa skara\u00f0 fram\u00far \u00ed vinnu sinni \u00ed \u00fe\u00e1gu barna og ungmenna \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00dea\u00f0 voru Arnfr\u00ed\u00f0ur og J\u00f3hann \u00d3skar sem hlutu ver\u00f0launin \u00ed \u00feetta skipti\u00f0 fyrir a\u00f0komu s\u00edna a\u00f0 stofnun Brettaf\u00e9lagsins \u2013 fr\u00e1b\u00e6rt starf sem \u00fear er unni\u00f0.&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00fdveri\u00f0 h\u00e9lt <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fthrithrautardagurinn-2016&amp;h=wAQFlpOoK&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">3SH einn gl\u00e6silegasta \u00der\u00ed\u00ferautardag<\/a> til \u00feessa \u00fear sem keppnissv\u00e6\u00f0i\u00f0 var st\u00e6kka\u00f0 og opna\u00f0 \u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri fyrir fleiri til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt. \u00cd \u00e1r teyg\u00f0i keppnin anga s\u00edna \u00ed mi\u00f0b\u00e6 Hafnarfjar\u00f0ar og enda\u00f0i \u00fear \u00ed mikilli gle\u00f0i. Keppnin t\u00f3kst vel og eru vangaveltur uppi \u00feess efnis a\u00f0 st\u00e6kka hana enn frekar a\u00f0 \u00e1ri.&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fstutt-i-naesta-bekk&amp;h=MAQH6YboH&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">We use benches<\/a> er gott d\u00e6mi um \u00e1rangursr\u00edkt samstarf og samf\u00e9lagsverkefni sem keyrt er \u00e1fram af sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0um og hugsj\u00f3naf\u00f3lki. Markmi\u00f0 me\u00f0 verkefni er a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 aukinni hreyfingu eldri borgara og gera \u00feeim kleift a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 ganga \u00ed s\u00ednu n\u00e6rumhverfi. Verkefni\u00f0 felur \u00ed s\u00e9r a\u00f0 f\u00e1 sveitarf\u00e9l\u00f6g, fyrirt\u00e6ki, f\u00e9lagasamt\u00f6k, stofnanir og einstaklinga til a\u00f0 styrkja verkefni\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 grei\u00f0a fyrir ger\u00f0 bekkjar e\u00f0a bekkja. Fj\u00f6lmargir \u00f6flugir a\u00f0ilar hafa komi\u00f0 a\u00f0 verkefninu \u00ed Hafnarfir\u00f0i og hefur samstarfi\u00f0 gefi\u00f0 af s\u00e9r 43 n\u00fdja bekki og kort sem s\u00fdnir allar g\u00f6ngulei\u00f0ir sem eru me\u00f0 minna en 250 metra \u00e1 milli bekkja. \u00dea\u00f0 er mikill og vanda\u00f0ur mannau\u00f0ur sem b\u00fdr \u00ed hafnfirsku samf\u00e9lagi og er \u00fea\u00f0 l\u00edka raunin me\u00f0 mannau\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar.&nbsp;<\/p>\n<p>Hj\u00e1 b\u00e6num starfa h\u00e1tt \u00ed 2.000 einstaklingar sem allir hafa mikilv\u00e6gu hlutverki a\u00f0 gegna. Fj\u00f6ldi einstaklinga hefur tileinka\u00f0 b\u00e6num hug sinn og vinnuframlag til fj\u00f6lda \u00e1ra og n\u00fa \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu vikum kv\u00f6ddum vi\u00f0 \u00ferj\u00e1 einstaklinga sem komnir eru \u00e1 aldur, rei\u00f0ub\u00fanir a\u00f0 setjast \u00ed helgan stein og nj\u00f3ta l\u00edfsins lystisemda. <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/pcb.1180361141996497\/1180347735331171\/?type=3&amp;theater\">Magn\u00fas Baldursson,<\/a> fr\u00e6\u00f0slustj\u00f3ri til fj\u00f6lda \u00e1ra l\u00e9t af st\u00f6rfum \u00ed byrjun ma\u00ed eftir t\u00e6p 28 \u00e1r \u00ed starfi og er framlag hans til fr\u00e6\u00f0slum\u00e1la \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00f3metanlegt. <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1192257500806861\">M\u00e1r Sveinbj\u00f6rnsson<\/a> l\u00e9t af st\u00f6rfum sem hafnarstj\u00f3ri \u00ed ma\u00ed eftir fars\u00e6lt tveggja \u00e1ratuga skei\u00f0. M\u00e1r hefur m.a. teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed miklu uppbyggingarstarfi vi\u00f0 h\u00f6fnina og \u00e1 miklar \u00feakkir skyldar fyrir \u00fea\u00f0. <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fingibjorg-thokkud-vel-unnin-storf&amp;h=fAQEaNpIV&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Ingibj\u00f6rg Einarsd\u00f3ttir<\/a>, skrifstofustj\u00f3ri  fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstunda\u00fej\u00f3nustu, l\u00e9t af st\u00f6rfum \u00ed byrjun j\u00fal\u00ed eftir r\u00fam 20 \u00e1r \u00ed starfi. Ingibj\u00f6rg hefur komi\u00f0 a\u00f0 fj\u00f6lda fj\u00f6lbreyttra verkefna \u00e1 svi\u00f0i fr\u00e6\u00f0slum\u00e1la gegnum \u00e1rin og n\u00e6r virkni hennar langt \u00fat fyrir Hafnarfj\u00f6r\u00f0 m.a. \u00ed gegnum St\u00f3ru upplestrarkeppnina. Vi\u00f0 \u00fe\u00f6kkum \u00feessum einstaklingum gott samstarf og \u00f3eigingjarnt framlag til b\u00e6jarins gegnum \u00e1rin.<\/p>\n<h4>Vi\u00f0bur\u00f0ir og h\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ld<\/h4>\n<p>Sumardagurinn fyrsti var haldinn h\u00e1t\u00ed\u00f0legur me\u00f0 fimm daga menningarh\u00e1t\u00ed\u00f0 &#8211; <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1171069266259018\">Bj\u00f6rtum d\u00f6gum<\/a>. \u00dear marka\u00f0i heimilislega t\u00f3nlistarh\u00e1t\u00ed\u00f0in HEIMA \u00e1 s\u00ed\u00f0asta vetrardegi upphafi\u00f0 og svo l\u00f6g\u00f0ust allir \u00e1 eitt, listamenn, h\u00f6nnu\u00f0ir, Bygg\u00f0asafn, b\u00f3kasafn, Hafnarborg, sk\u00e1tar, k\u00f3rar, verslunareigendur, veitingah\u00fas og margir fleiri vi\u00f0 a\u00f0 setja upp dagskr\u00e1 me\u00f0 fj\u00f6lbreyttum vi\u00f0bur\u00f0um, s\u00fdningum og upp\u00e1komum fr\u00e1 mi\u00f0vikudegi til sunnudags. Bjartir dagar er fyrsta b\u00e6jarh\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00e1rsins \u00e1 landsv\u00edsu og t\u00f3kust \u00feeir fr\u00e1b\u00e6rlega \u00ed Hafnarfir\u00f0inum \u00ed \u00e1r \u00fe\u00f6kk s\u00e9 \u00f6llum \u00fe\u00e1tttakendum. Fj\u00f6ldinn og \u00e1huginn sem r\u00edkti \u00feessa daga er merki um \u00fea\u00f0 sem koma skal h\u00e9r \u00ed Fir\u00f0inum; uppbyggingin er hr\u00f6\u00f0, sk\u00f6punargle\u00f0in mikil og \u00e1huginn \u00e1 okkur farinn a\u00f0 n\u00e1 vel \u00fat fyrir landsteinana.&nbsp;<\/p>\n<p>Fr\u00e1 Bj\u00f6rtum d\u00f6gum hefur hver h\u00e1t\u00ed\u00f0in \u00e1 f\u00e6tur annarri teki\u00f0 vi\u00f0; Gakktu \u00ed b\u00e6inn, Lifandi laugardagar, <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1199653676733910\">Sj\u00f3mannadagur<\/a> and <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1208069652558979\">17th June<\/a> sem einnig t\u00f3kust mj\u00f6g vel og fj\u00f6ldi \u00fe\u00e1tttakenda b\u00e6\u00f0i \u00ed skipulagningu og svo \u00ed h\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ldum sjaldan veri\u00f0 meiri. H\u00e9r hefur <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ffjorug-framtidarsyn-i-firdinum&amp;h=QAQHOG-Tb&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">n\u00fdstofnu\u00f0 Marka\u00f0sstofa Hafnarfjar\u00f0ar<\/a> spila\u00f0 st\u00f3rt hlutverk sem hvatningara\u00f0ili og tengili\u00f0ur milli fyrirt\u00e6kja. Sj\u00f3mannadagurinn var haldinn me\u00f0 breyttu sni\u00f0i \u00ed \u00e1r og t\u00f3ku fyrirt\u00e6ki og a\u00f0ilar \u00e1 Flensborgarh\u00f6fn og \u00e1 sv\u00e6\u00f0i \u00fear \u00ed kring sig til um a\u00f0 halda tveggja daga h\u00e1t\u00ed\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fnina \u00fear sem bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 siglingu, leiki, \u00ferautir, s\u00fdningar, veitingar og fleira. 17. j\u00fan\u00ed var l\u00edka um margt einstakur og dreif\u00f0u h\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ldin \u00far s\u00e9r \u00e1 fleiri sta\u00f0i en veri\u00f0 hefur til \u00feessa. \u00deannig var formlega dagskr\u00e1 a\u00f0 finna \u00e1 a\u00f0 minnsta kosti \u00feremur st\u00f6\u00f0um og n\u00f3g um a\u00f0 vera. Ve\u00f0ri\u00f0 l\u00e9k vi\u00f0 okkur og stemningin eftir \u00fev\u00ed. Miki\u00f0 l\u00edf hefur veri\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fnina og \u00e1 Strandst\u00edgnum \u00fea\u00f0 sem af er sumri af gangandi og hj\u00f3landi \u00edb\u00faum og gestum sem og siglandi sem hafa n\u00fdtt \u00fe\u00e1 fr\u00e1b\u00e6ru a\u00f0st\u00f6\u00f0u sem vi\u00f0 h\u00f6fum h\u00e9r vi\u00f0 h\u00f6fnina \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00dear b\u00faum vi\u00f0 \u00e1 gulln\u00e1mu.&nbsp;<\/p>\n<p>A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u fylgdum vi\u00f0 svo str\u00e1kunum okkar alla lei\u00f0 \u00e1 EM 2016. Bl\u00e1si\u00f0 var til <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1219406978091913\">f\u00f3tboltaveislu \u00e1 n\u00fdjum heimavelli Hafnfir\u00f0inga \u00e1 Thorsplani<\/a> \u00fear sem h\u00e1tt \u00ed 2.000 hressir gestir komu saman, horf\u00f0u \u00e1 leikinn og f\u00f6gnu\u00f0u fr\u00e1b\u00e6rum \u00e1rangri \u00cdslands \u00e1 EM. \u00cd byrjun j\u00fal\u00ed var bl\u00e1si\u00f0 til hvorutveggja <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1215674581798486\">dorgvei\u00f0ikeppni fyrir 6-12 \u00e1ra<\/a> and <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/?tab=album&amp;album_id=1220320874667190\">sumarh\u00e1t\u00ed\u00f0ar \u00e1 V\u00ed\u00f0ista\u00f0at\u00fani<\/a> \u00ed fr\u00e1b\u00e6ru ve\u00f0ri. \u00dear komu saman h\u00e1tt \u00ed 400 b\u00f6rn og unglingar sem teki\u00f0 hafa \u00fe\u00e1tt \u00ed sumarstarfi \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00fea\u00f0 sem af er sumri, krakkar \u00e1 leikjan\u00e1mskei\u00f0um og ungmenni \u00ed vinnusk\u00f3la. Bo\u00f0i\u00f0 var m.a. upp \u00e1 vatnsrennibraut, leiki, \u00ferautir, kubb og f\u00f3tbolta.&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00e6sti st\u00f3ri vi\u00f0bur\u00f0ur sem \u00ed undirb\u00faningi er, er \u00fe\u00e1tttaka okkar \u00ed Gle\u00f0ig\u00f6ngunni. L\u00edkt og hin s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r tekur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r \u00fe\u00e1tt og eru \u00fea\u00f0 starfsmenn jafningjafr\u00e6\u00f0slu \u00ed samstarfi vi\u00f0 skapandi sumarst\u00f6rf og listah\u00f3p sem skipuleggja g\u00f6ngu, sj\u00e1 um skreytingar og val \u00e1 \u00feema g\u00f6ngunnar \u00ed \u00e1r.<\/p>\n<h4>Hafnfirsk fj\u00f6lmenning<\/h4>\n<p><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fflottafjolskyldurnar-okkar&amp;h=8AQGiie2b&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">\u00derj\u00e1r n\u00fdjar fl\u00f3ttafj\u00f6lskyldur settust a\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/a> \u00ed apr\u00edl. H\u00e9r var um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a 11 einstaklinga \u00e1 \u00f6llum aldri sem voru \u00e1 landfl\u00f3tta fr\u00e1 S\u00fdrlandi. A\u00f0l\u00f6gun \u00feeirra a\u00f0 \u00edslenskum a\u00f0st\u00e6\u00f0um og samf\u00e9laginu h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i hefur gengi\u00f0 framar vonum og \u00feykir s\u00fdnt og sanna\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 undirb\u00faningur sem \u00e1tt hefur s\u00e9r sta\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0i er a\u00f0 skila s\u00e9r beint til f\u00f3lksins og faglegrar m\u00f3tt\u00f6ku \u00feeirra. \u00dea\u00f0 hafa allir lagst \u00e1 eitt vi\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1lpa fj\u00f6lskyldunum a\u00f0 komast hratt og \u00f6rugglega inn \u00ed hlutina og \u00fe\u00e6r, n\u00fa a\u00f0eins \u00feremur m\u00e1nu\u00f0um seinna, farnar a\u00f0 taka virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed samf\u00e9laginu \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 enn s\u00e9 nokku\u00f0 \u00ed land me\u00f0 fulla \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku. H\u00f3purinn hefur stu\u00f0ningsa\u00f0ila sem h\u00e6gt er a\u00f0 leita til auk \u00feess a\u00f0 hafa seti\u00f0 \u00edslenskukennslu s\u00ed\u00f0ustu vikurnar.&nbsp;<\/p>\n<p>G\u00f3\u00f0ur undirb\u00faningur fyrir m\u00f3tt\u00f6ku fl\u00f3ttaf\u00f3lks \u00e1 \u00cdslandi hefur vaki\u00f0 ver\u00f0skulda\u00f0a athygli og var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fsamraemd-thjonusta-vid-flottafolk&amp;h=yAQEFpqsi&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">evr\u00f3pskan samr\u00e1\u00f0sfund um m\u00f3tt\u00f6ku og a\u00f0l\u00f6gun fl\u00f3ttaf\u00f3lks \u00e1 \u00cdslandi<\/a>, r\u00e9ttindi og t\u00e6kif\u00e6ri fl\u00f3ttaf\u00f3lks \u00ed m\u00f3tt\u00f6kulandi og stu\u00f0ning til virkrar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed samf\u00e9laginu. Fundurinn f\u00f3r fram \u00ed Menntasetrinu vi\u00f0 L\u00e6kinn \u00ed byrjun j\u00fan\u00ed. \u00dear komu saman fulltr\u00faar stj\u00f3rnvalda og s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga \u00ed m\u00e1lefnum fl\u00f3ttaf\u00f3lks fr\u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndunum og Eystrasaltsr\u00edkjunum til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a a\u00f0l\u00f6gun fl\u00f3ttaf\u00f3lks. Markmi\u00f0 fundar var a\u00f0 finna \u00e1hrifar\u00edka lei\u00f0 sem hefur hvorutveggja hagsmuni, r\u00e9ttindi og skyldur fl\u00f3ttaf\u00f3lksins og samf\u00e9lagsins a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si. N\u00fd fj\u00f6lskylda, s\u00fa fj\u00f3r\u00f0a \u00feetta \u00e1ri\u00f0, er v\u00e6ntanleg til Hafnarfjar\u00f0ar n\u00fa \u00ed \u00e1g\u00fast.<\/p>\n<h4>Fj\u00e1rhagurinn<\/h4>\n<p>\u00c1rsreikningur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar \u00e1ri\u00f0 2015 s\u00fdndi neikv\u00e6\u00f0a rekstrarni\u00f0urst\u00f6\u00f0u um 512 millj\u00f3nir kr\u00f3na. H\u00e6kkun launa vegna starfsmats og n\u00fdrra kjarasamninga \u00e1samt l\u00edfeyrisskuldbindingum vega \u00feungt og sk\u00fdra a\u00f0 mestu fr\u00e1vik fr\u00e1 fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun. \u00dea\u00f0 horfir \u00fe\u00f3 til betri t\u00edma og s\u00fdna fyrstu m\u00e1nu\u00f0ir 2016 a\u00f0 \u00fattekt og rekstrarr\u00fdni \u00e1 \u00e1rinu 2015, sem leiddi af s\u00e9r fj\u00f6lda a\u00f0ger\u00f0a til hagr\u00e6\u00f0inga, er a\u00f0 skila s\u00e9r beint \u00ed reksturinn \u00e1 sveitarf\u00e9laginu.&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0i h\u00f6fum vi\u00f0 markvisst veri\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00fat \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem vi\u00f0 kaupum a\u00f0. \u00dea\u00f0 er nau\u00f0synlegt, b\u00e6\u00f0i til a\u00f0 halda okkur \u00e1 t\u00e1num og me\u00f0vitu\u00f0um um gang m\u00e1la \u00e1 marka\u00f0i og ekki s\u00ed\u00f0ur til a\u00f0 halda \u00fej\u00f3nustuveitanda \u00e1 t\u00e1num \u00feannig a\u00f0 tryggt s\u00e9 a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 f\u00e1 100% \u00fej\u00f3nustu \u00ed takt vi\u00f0 auknar \u00fearfir og breytingar \u00ed starfsumhverfi. \u00cd flestum tilfellum eru \u00fatbo\u00f0in a\u00f0 skila okkur umtalsver\u00f0um \u00e1bata og hagr\u00e6\u00f0ingu. \u00deannig h\u00f6fum vi\u00f0 n\u00fdlega bo\u00f0i\u00f0 \u00fat \u00f6ryggis\u00fej\u00f3nustuna hj\u00e1 okkur \u00fear sem vi\u00f0 erum <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fi-oruggum-hondum-securitas&amp;h=1AQH4ce0s&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">komin \u00ed \u00f6ruggar hendur Securitas<\/a>, s\u00edma- og fjarskipta\u00fej\u00f3nustuna <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fvodafone-hlutskarpast-i-utbodi&amp;h=0AQE16f7D&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">\u00fear sem Vodafone reyndist hlutskarpast<\/a> and <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Futbod-matur-fyrir-motuneyti&amp;h=ZAQHfcPAP&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">mat fyrir m\u00f6tuneyti leik- og grunnsk\u00f3la<\/a> \u00ed b\u00e6num \u00fear sem samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0ur eru enn \u00ed gangi.&nbsp;<\/p>\n<p>\u00deessar a\u00f0ger\u00f0ir og a\u00f0rar eru a\u00f0 ver\u00f0a til \u00feess a\u00f0 h\u00e6gt er a\u00f0 endurhugsa fyrirkomulag og veita betri \u00fej\u00f3nustu \u00e1 hagst\u00e6\u00f0ari kj\u00f6rum.  Gott d\u00e6mi eru n\u00fdlegar \u00e1kvar\u00f0anir um <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fkjarabot-fyrir-fjolskyldufolk&amp;h=DAQFgPMDN&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">breytingar \u00e1 gjaldskr\u00e1 og ni\u00f0urgrei\u00f0slum \u00e1 fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstundasvi\u00f0i<\/a>. \u00deannig mun systkinaafsl\u00e1ttur vera aukinn til muna fr\u00e1 hausti 2016 og m\u00e1na\u00f0arlegir fr\u00edstundastyrkir h\u00e6kka\u00f0ir auk \u00feess sem aldursm\u00f6rk styrkja munu h\u00e6kka \u00far 16 \u00e1rum \u00ed 18 \u00e1r. \u00dearna er stigi\u00f0 mikilv\u00e6gt skref \u00ed \u00e1tt a\u00f0 minni kostna\u00f0i fyrir hafnfirskar fj\u00f6lskyldur, j\u00f6fnum a\u00f0gangi a\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3ttum og fr\u00edstundum fyrir alla og \u00e1 sama t\u00edma sporna\u00f0 gegn brottfalli \u00e1 unglingsaldri.  Vonir standa til \u00feess a\u00f0 \u00feessar a\u00f0ger\u00f0ir ver\u00f0i til \u00feess a\u00f0 auki\u00f0 svigr\u00fam skapist fyrir markvissara vi\u00f0hald og framkv\u00e6mdir innan b\u00e6jarf\u00e9lagsins. \u00dea\u00f0 svigr\u00fam sk\u00f6pum vi\u00f0 me\u00f0 hagr\u00e6\u00f0ingu \u00e1 svi\u00f0um sem h\u00e6gt er a\u00f0 hagr\u00e6\u00f0a \u00e1 \u00e1n sker\u00f0ingar \u00e1 \u00fej\u00f3nustu og l\u00edfsg\u00e6\u00f0um \u00feeirra sem lifa og starfa \u00ed Hafnarfir\u00f0i.&nbsp;<br \/>N\u00fdlega skrifu\u00f0um vi\u00f0 undir <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fsamstarf-um-uppbyggingu-ibuda&amp;h=_AQEoVQcU&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">viljayfirl\u00fdsingu vi\u00f0 AS\u00cd<\/a> sem sn\u00fdr a\u00f0 uppbyggingu 150 leigu\u00edb\u00fa\u00f0a \u00ed Hafnarfir\u00f0i og \u00e6tla\u00f0ar eru tekjuminni einstaklingum og fj\u00f6lskyldum. Me\u00f0 \u00feessu viljum vi\u00f0 svara uppsafna\u00f0ri \u00fe\u00f6rf \u00e1 leigumarka\u00f0i me\u00f0al h\u00f3ps sem hefur \u00e1tt nokku\u00f0 erfitt um vik.<\/p>\n<h4>Vacant plots<\/h4>\n<p>N\u00fdveri\u00f0 f\u00f3rum vi\u00f0 af sta\u00f0 me\u00f0 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fatvinnulodir-a-vaxtarsvaedi&amp;h=MAQH6YboH&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">augl\u00fdsingar \u00e1 atvinnul\u00f3\u00f0um<\/a> sem henta fj\u00f6lbreyttri starfsemi, eru sveigjanlegar a\u00f0 st\u00e6r\u00f0 og hagst\u00e6\u00f0ar \u00ed svo m\u00f6rgu tilliti. H\u00e9r er a\u00f0allega um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a l\u00f3\u00f0ir \u00ed \u00f6rt st\u00e6kkandi i\u00f0na\u00f0arhverfi vi\u00f0 Vellina \u00ed Hafnarfir\u00f0i, sv\u00e6\u00f0i sem vel sta\u00f0sett upp \u00e1 alla flutninga a\u00f0 gera hvort sem heldur er me\u00f0 flugi, flutningab\u00edl e\u00f0a skipi. Eins stefnir allt \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 vinna vi\u00f0 misl\u00e6g gatnam\u00f3t hefjist \u00ed s\u00ed\u00f0asta lagi 2017 og mun \u00fea\u00f0 grei\u00f0a lei\u00f0 til og fr\u00e1 sv\u00e6\u00f0inu enn frekar. Vi\u00f0 viljum f\u00e1 til okkar fyrirt\u00e6ki sem eru \u00ed leit a\u00f0 framt\u00ed\u00f0arsta\u00f0setningu og \u00feannig rei\u00f0ub\u00fain a\u00f0 b\u00e6tast \u00ed \u00fe\u00e1 fl\u00f3ru fj\u00f6lbreytts atvinnul\u00edfs sem fyrir er \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Atvinnuhverfinu er skipt upp eftir starfsemi og \u00fev\u00ed tilb\u00fai\u00f0 til a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti \u00f3l\u00edkum fyrirt\u00e6kjum af \u00f6llum st\u00e6r\u00f0um og ger\u00f0um s.s. \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu, verslun, \u00fej\u00f3nustu, \u00feekkingari\u00f0na\u00f0i og framlei\u00f0slu. Fyrirt\u00e6ki eins og Icelandair, Promens og Naust-Marine eru me\u00f0al \u00feeirra sem hafa komi\u00f0 s\u00e9r vel fyrir \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Innan skamms munum vi\u00f0 l\u00edka fara me\u00f0 \u00ed augl\u00fdsingu \u00edb\u00fa\u00f0al\u00f3\u00f0ir \u00ed Skar\u00f0shl\u00ed\u00f0inni \u00fear sem r\u00e1\u00f0ger\u00f0 er uppbygging \u00e1 um 230 \u00edb\u00fa\u00f0um. Yfirlit yfir lausar l\u00f3\u00f0ir hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 og n\u00e1kv\u00e6mar uppl\u00fdsingar er a\u00f0 finna \u00e1 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fibuar%2Flodir-og-teikningar%2Flausar-lodir%2F&amp;h=gAQG9qoj7&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">heimas\u00ed\u00f0u b\u00e6jarins<\/a><\/p>\n<h4>Organisational changes<\/h4>\n<p><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fibuar%2Fskipulag%2Fhverfaskipting%2F&amp;h=iAQFTom6C&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Allar skipulagsbreytingar hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6<\/a> eru augl\u00fdstar \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu auk \u00feess sem fr\u00e9ttir um till\u00f6gur a\u00f0 breytingum eru birtar \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u b\u00e6jarins og <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/\">Facebook page<\/a>. \u00c1kve\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 a\u00f0 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fbaerinn-kaupir-laekjargotu-2&amp;h=RAQF9pyB1&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">kaupa allt h\u00fasn\u00e6\u00f0i\u00f0 a\u00f0 L\u00e6kjarg\u00f6tu 2<\/a> sem \u00ed daglegu tali gengur undir nafninu Dvergurinn. Fyrirhuga\u00f0 er a\u00f0 vinna vi\u00f0 breytingu \u00e1 deiliskipulagi L\u00e6kjarg\u00f6tu \u2013 Dvergsl\u00f3\u00f0ar og hugsanlega n\u00e6sta n\u00e1grennis hefjist flj\u00f3tlega. L\u00f3\u00f0in er \u00e1 eftirs\u00f3knarver\u00f0u sv\u00e6\u00f0i fyrir \u00edb\u00fa\u00f0arbygg\u00f0 en hefur um \u00e1rabil ver\u00f0 vann\u00fdtt og h\u00fasi\u00f0 l\u00edtil pr\u00fd\u00f0i fyrir \u00e1s\u00fdnd b\u00e6jarins. Tillaga a\u00f0 <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ftillaga-ad-breytingu-hellubraut&amp;h=NAQG0RGfW&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">breytingu \u00e1 deiliskipulagi vi\u00f0 Hellubraut 5 og 7<\/a> er \u00ed augl\u00fdsingu \u00feessa dagana. Breyting felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 l\u00f3\u00f0 vi\u00f0 Hellubraut 5 ver\u00f0i n\u00fa heimilt a\u00f0 byggja tveggja h\u00e6\u00f0a h\u00fas \u00ed sta\u00f0 1,5 h\u00e6\u00f0a og a\u00f0 n\u00faverandi h\u00fas \u00e1samt b\u00edlsk\u00far vi\u00f0 Hellubraut 7 ver\u00f0i rifin og \u00ed sta\u00f0 \u00feeirra byggt n\u00fdtt h\u00fas. Kynningarfundur um <a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fendurbygging-hrauna-vestur&amp;h=LAQFJHpFJ&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">endurbyggingu Hrauna \u2013 vestur<\/a> var svo haldinn um mi\u00f0jan j\u00fan\u00ed og var hann vel s\u00f3ttur. Mikill \u00e1hugi er fyrir breytingum og uppbyggingu \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i sem upphaflega bygg\u00f0ist upp sem i\u00f0na\u00f0arhverfi. N\u00fa hafa b\u00e6jaryfirv\u00f6ld \u00ed hyggju a\u00f0 reisa \u00fear blanda\u00f0a bygg\u00f0 fyrir l\u00e9ttan i\u00f0na\u00f0, \u00fej\u00f3nustu og \u00edb\u00fa\u00f0ir.&nbsp;<br \/>\u00c9g vona a\u00f0 \u00feessi skrif s\u00e9u uppl\u00fdsandi og varpi lj\u00f3si \u00e1 hluta \u00feeirra fj\u00f6lbreyttu verkefna sem \u00ed gangi eru hverju sinni hj\u00e1 okkur. \u00c9g minni \u00edb\u00faa og fyrirt\u00e6ki \u00e1 vikulega vi\u00f0talst\u00edma m\u00edna \u00e1 \u00feri\u00f0judagsmorgnum \u00fear sem \u00e9g tek gla\u00f0ur \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim sem vilja eiga samtal vi\u00f0 mig. Vi\u00f0talsb\u00f3kanir eru \u00ed s\u00edma 585-5506. <br \/><strong><br \/><\/strong><strong>Yfirlit yfir helstu fr\u00e9ttir s\u00ed\u00f0ustu daga og vikur:<\/strong><strong><br \/><\/strong><\/p>\n<ul>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fsamstarf-um-uppbyggingu-ibuda&amp;h=aAQF4D2Z9&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Partnership on the development of housing<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ffanney-radin-fraedslustjori&amp;h=HAQEuLCPq&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Fanney appointed Director of Education<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ftuttugu-hljota-menningarstyrki&amp;h=yAQEFpqsi&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Twenty receive cultural grants<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fskraning-i-sumarstarf-fristundis&amp;h=2AQEFdAnR&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Sumarstarf \u2013 fristund.is<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Flaekjarskoli-er-grunnskolameistari&amp;h=uAQH-8p01&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Primary School Champions 2015-2016<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fstodugjold-a-gamum&amp;h=EAQF3dU-H&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Fees for containers<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fludvik-radinn-hafnarstjori&amp;h=_AQEoVQcU&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Ludwig appointed harbour master<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fingibjorg-heidrud&amp;h=iAQFTom6C&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Ingibj\u00f6rg Einarsd\u00f3ttir hei\u00f0ru\u00f0<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Ffrabaer-arangur-hrafnhildar&amp;h=_AQEoVQcU&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Hrafnhildur's fantastic achievement<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fhafnarfjardarbaer-veiti-haettunni-a-mansali-serstaka-athygli&amp;h=1AQH4ce0s&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Trafficking in persons given special attention<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fvinabaejarmot-i-undirbuningi&amp;h=NAQG0RGfW&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Twin town meeting in preparation<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fnyr-sproti-i-starfi-tonlistarskolans&amp;h=PAQFPky2X&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">A new venture in music school<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fheimsokn-fra-cuxhaven&amp;h=LAQFJHpFJ&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">A visit from Cuxhaven<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fgutto-menningarmidstod&amp;h=ZAQHfcPAP&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">G\u00fatt\u00f3 \u2013 vagga menningarl\u00edfs<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fsjoundi-graenfaninn-a-nordurbergi&amp;h=HAQEuLCPq&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Sj\u00f6undi Gr\u00e6nf\u00e1ninn \u00e1 Nor\u00f0urberg<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fithrottastyrkir-fyrir-16-ara-og-yngri&amp;h=oAQF59CoG&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Grants and Equality Awards<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fnyir-grenndargamar&amp;h=QAQHOG-Tb&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">New nearby bins<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fskolahatid-ordin-hverfishatid&amp;h=1AQH4ce0s&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">School festival becomes a neighbourhood festival<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fumhverfismennt-og-utikennsla&amp;h=fAQEaNpIV&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Environmental education and outdoor teaching<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fratleikur-hafnarfjardar&amp;h=3AQGtfA5a&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur Treasure Hunt<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Flitla-alfabudin-i-oddrunarbae&amp;h=JAQFAviyF&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Litla \u00c1lfab\u00fain \u00ed Oddr\u00fanarb\u00e6<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2F650-ungmenni-hreinsa-baeinn&amp;h=JAQFAviyF&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">650 young people clean the town<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fskuggakosningar-i-hafnarfirdi&amp;h=xAQEJTi-Z&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Shadow elections in Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/photos\/a.262985090400778.70526.160540443978577\/1201602779872333\/?type=3&amp;theater\">\u00datskrift Fj\u00f6lgreinadeildar<\/a><\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fgraenfani-til-vinnuskola&amp;h=rAQEtOw28&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Gr\u00e6nf\u00e1ni til Vinnusk\u00f3la Hafnarfjar\u00f0ar<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fatvinnulodir-a-vaxtarsvaedi&amp;h=gAQG9qoj7&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Industrial plots in a growth area<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fatvinnuhverfi-fyrir-allskonar&amp;h=qAQGbMlok&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Atvinnuhverfi fyrir allskonar fyrirt\u00e6ki<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"\/en\/province\/news\/supportive-families-wanted\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Foster families wanted<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"http:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.hafnarfjordur.is%2Fstjornsysla%2Ffrettir%2Fnyr-hafnfirskur-frettavefur&amp;h=MAQH6YboH&amp;s=1\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">New Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur news website<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"\/en\/province\/news\/frisbigolf-med-fjolskyldunni\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Disc golf with the family<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"\/en\/province\/news\/the-town-is-buying-laekjargata-2\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">The town is buying L\u00e6kjargata 2<\/a> <\/li>\n<li><a href=\"\/en\/province\/news\/veidi-og-fiskraekt-i-kleifarvatni\/\" target=\"_blank\" rel=\"nofollow noopener\">Hunting and fish farming in Kleifarvatn<\/a><\/li>\n<\/ul>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa er or\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 um li\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu birtingu. \u00c1st\u00e6\u00f0an er einf\u00f6ld&#8230;\u00fea\u00f0 er margt um a\u00f0 vera \u00e1 st\u00f3ru heimili og \u00ed forgangi a\u00f0 sinna heimilisverkunum. N\u00fa hefur a\u00f0eins h\u00e6gst um og svigr\u00fam skapast til skrifa. S\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0ir hafa sem fyrr einkennst af miklu l\u00edfi, h\u00e1t\u00ed\u00f0arh\u00f6ldum og verkefnum sem tengjast sumri og uppskeru \u00e1 \u00f6llum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-13083","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13083","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13083"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13083\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13083"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13083"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13083"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}