{"id":13202,"date":"2016-12-29T00:00:00","date_gmt":"2016-12-29T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/ahersla-a-baettar-starfsadstaedur-kennara-a-nyju-ari\/"},"modified":"2022-10-25T08:59:53","modified_gmt":"2022-10-25T08:59:53","slug":"ahersla-a-baettar-starfsadstaedur-kennara-a-nyju-ari","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/ahersla-a-baettar-starfsadstaedur-kennara-a-nyju-ari\/","title":{"rendered":"Focus on improved working conditions for teachers in the new year"},"content":{"rendered":"<p><em>Settur hefur veri\u00f0 \u00e1 laggirnar starfsh\u00f3pur innan Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar sem hefur \u00fea\u00f0 verkefni a\u00f0 vinna a\u00f0 till\u00f6gum a\u00f0 b\u00e6ttum starfsa\u00f0st\u00e6\u00f0um kennara \u00ed grunnsk\u00f3lum Hafnarfjar\u00f0ar \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 tryggja a\u00f0 fagmennta\u00f0ir kennarar s\u00e9u \u00ed \u00f6llum st\u00f6\u00f0um, gera kennarastarfi\u00f0 eftirs\u00f3knarver\u00f0ara og m\u00e6ta \u00e1hyggjum kennara var\u00f0andi auki\u00f0 \u00e1lag \u00ed starfi. Starfsh\u00f3purinn kemur til \u00ed kj\u00f6lfar samr\u00e6\u00f0na b\u00e6jarstj\u00f3ra, fr\u00e6\u00f0slustj\u00f3ra, sk\u00f3lastj\u00f3rnenda og tr\u00fana\u00f0armanna kennara \u00ed grunnsk\u00f3lunum Hafnarfjar\u00f0ar.<\/em><\/p>\n<p><strong>Markmi\u00f0i\u00f0 a\u00f0 auka starfs\u00e1n\u00e6gju innan grunnsk\u00f3lanna<\/strong><\/p>\n<p>Starfsh\u00f3purinn mun starfa \u00ed tengslum vi\u00f0 n\u00fdsam\u00feykktan kjarasamning grunnsk\u00f3lakennara og sveitarf\u00e9laga, en \u00ed b\u00f3kun vi\u00f0 samninginn segir: \u201e\u00cd kjarasamningum 2014 voru ger\u00f0ar breytingar \u00e1 starfsumhverfi kennara og vinnumat innleitt \u00ed grunnsk\u00f3lum. Samningsa\u00f0ilar eru samm\u00e1la um a\u00f0 framkv\u00e6md breytinganna hafi ekki tekist sem skyldi \u00ed m\u00f6rgum grunnsk\u00f3lum og \u00fev\u00ed ver\u00f0i hverju sveitarf\u00e9lagi fali\u00f0 a\u00f0 fara yfir framkv\u00e6mdina \u00e1samt fulltr\u00faum kennara \u00ed hverjum sk\u00f3la. Markmi\u00f0 sl\u00edkrar vinnu er a\u00f0 b\u00e6ta framkv\u00e6mdina \u00fear sem \u00fe\u00f6rf er \u00e1 og n\u00e1 s\u00e1tt um starfsumhverfi\u00f0. Beina skal sj\u00f3num a\u00f0 innra starfi sk\u00f3la og \u00feeim verkefnum sem grunnsk\u00f3linn sinnir, tryggja a\u00f0 kennsla og undirb\u00faningur s\u00e9u forgangsverkefni \u00ed sk\u00f3lastarfi og l\u00e9tta \u00e1lagi af kennurum \u00fear sem vi\u00f0 \u00e1.\u201c<\/p>\n<p>Starfsh\u00f3purinn er skipa\u00f0ur sj\u00f6 fulltr\u00faum tr\u00fana\u00f0armanna grunnsk\u00f3lakennara \u00ed Hafnarfir\u00f0i (einum \u00far hverjum grunnsk\u00f3la), \u00feremur fulltr\u00faum sk\u00f3lastj\u00f3ra, \u00fer\u00f3unarfulltr\u00faa grunnsk\u00f3la og svi\u00f0sstj\u00f3ra fr\u00e6\u00f0slu- og fr\u00edstunda\u00fej\u00f3nustu sem jafnframt lei\u00f0ir h\u00f3pinn.\u00a0 Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 starfsh\u00f3purinn hefji st\u00f6rf \u00ed byrjun jan\u00faar 2017 og skili lokask\u00fdrslu me\u00f0 till\u00f6gum til fr\u00e6\u00f0slur\u00e1\u00f0s Hafnarfjar\u00f0ar fyrir lok sk\u00f3la\u00e1rs 2016- 2017. Samkv\u00e6mt erindisbr\u00e9fi skal h\u00f3purinn leggja fram till\u00f6gur sem b\u00e6ti starfsa\u00f0st\u00e6\u00f0ur kennara vi\u00f0 grunnsk\u00f3la Hafnarfjar\u00f0ar \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 tryggja a\u00f0 fagmennta\u00f0ir kennarar s\u00e9u \u00ed \u00f6llum st\u00f6\u00f0um, gera kennarastarfi\u00f0 eftirs\u00f3knarver\u00f0ara og m\u00e6ta \u00e1hyggjum kennara var\u00f0andi auki\u00f0 \u00e1lag \u00ed starfi. \u00deess er v\u00e6nst a\u00f0 vinna starfsh\u00f3psins lei\u00f0i til aukinnar starfs\u00e1n\u00e6gju \u00ed grunnsk\u00f3lunum.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Settur hefur veri\u00f0 \u00e1 laggirnar starfsh\u00f3pur innan Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar sem hefur \u00fea\u00f0 verkefni a\u00f0 vinna a\u00f0 till\u00f6gum a\u00f0 b\u00e6ttum starfsa\u00f0st\u00e6\u00f0um kennara \u00ed grunnsk\u00f3lum Hafnarfjar\u00f0ar \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 tryggja a\u00f0 fagmennta\u00f0ir kennarar s\u00e9u \u00ed \u00f6llum st\u00f6\u00f0um, gera kennarastarfi\u00f0 eftirs\u00f3knarver\u00f0ara og m\u00e6ta \u00e1hyggjum kennara var\u00f0andi auki\u00f0 \u00e1lag \u00ed starfi. Starfsh\u00f3purinn kemur til \u00ed kj\u00f6lfar samr\u00e6\u00f0na b\u00e6jarstj\u00f3ra, fr\u00e6\u00f0slustj\u00f3ra, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-13202","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13202","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13202"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13202\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13202"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13202"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13202"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}