{"id":13562,"date":"2018-05-03T00:00:00","date_gmt":"2018-05-03T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/thingmenn-og-radherra-bryndir-vegna-reykjanesbrautar\/"},"modified":"2022-10-25T09:00:51","modified_gmt":"2022-10-25T09:00:51","slug":"thingmenn-og-radherra-bryndir-vegna-reykjanesbrautar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/thingmenn-og-radherra-bryndir-vegna-reykjanesbrautar\/","title":{"rendered":"MPs and minister urged over the Reykjanes Highway"},"content":{"rendered":"<p>B\u00e6jarstj\u00f3ri Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar sendi eftirfarandi t\u00f6lvup\u00f3st \u00e1 \u00feingmenn Su\u00f0vesturkj\u00f6rd\u00e6mis og Samg\u00f6ngur\u00e1\u00f0herra \u00ed g\u00e6r \u00ed kj\u00f6lfar enn eins alvarlegs umfer\u00f0arslyssins \u00e1 Reykjanesbrautinni. \u00dea\u00f0 er hinum \u00feekkta slysa kafla innan Hafnarfjar\u00f0ar \u00e1 vegkaflanum fr\u00e1 Kald\u00e1rselsvegi a\u00f0 misl\u00e6gum gatnam\u00f3tum vi\u00f0 Kr\u00fdsuv\u00edkurveg.<br \/>B\u00e6jarstj\u00f3rinn hefur sent sama h\u00f3p \u00edtreka\u00f0 p\u00f3sta um alvarlegt \u00e1stand \u00feessa vegarkafla og b\u00e6jarstj\u00f3rn og b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 \u00edtreka\u00f0 \u00e1lykta\u00f0 um m\u00e1li\u00f0:<br \/> Samg\u00f6ngur\u00e1\u00f0herra og \u00feingmenn Su\u00f0vesturkj\u00f6rd\u00e6mis,<br data-text=\"true\">V\u00edsa\u00f0 er \u00ed fyrri br\u00e9f og p\u00f3sta til ykkar var\u00f0andi \u00feetta br\u00fdna hagsmunam\u00e1l okkar Hafnfir\u00f0inga.<br data-text=\"true\">Enn eitt alvarlegt umfer\u00f0arslys var\u00f0 \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku \u00e1 Reykjanesbrautinni innan Hafnarfjar\u00f0ar \u00e1 vegkaflanum fr\u00e1 Kald\u00e1rselsvegi a\u00f0 misl\u00e6gum gatnam\u00f3tum vi\u00f0 Kr\u00fdsuv\u00edkurveg.  Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a hluta af Reykjanesbraut innan Hafnarfjar\u00f0ar \u00fear sem tv\u00f6f\u00f6ldun brautarinnar hefur ekki veri\u00f0 loki\u00f0.  Einn umfer\u00f0ar\u00feyngsti vegarkafli landsins \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a einn veg me\u00f0 akstursstefnu \u00ed sitt hvora \u00e1tt.  Samg\u00f6ngustofa hefur teki\u00f0 saman \u00ed \u00e1rssk\u00fdrslu slysaskr\u00e1ningar fyrir  \u00e1ri\u00f0 2015 og samkv\u00e6mt henni voru slys \u00e1 vegkaflanum fr\u00e1 Kald\u00e1rselsvegi a\u00f0 Kr\u00fdsuv\u00edkurvegi (me\u00f0 gatnam\u00f3tum) r\u00famlega 100 \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri.  \u00deessi vegarkafli er 3,5 km sem gefur gildi\u00f0 28 slys \u00e1 km.  Umfer\u00f0 um \u00feennan vegkafla hefur aukist umtalsvert \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum og fyrirsj\u00e1anlegt er a\u00f0 h\u00fan mun aukast enn frekar \u00e1 n\u00e6stu misserum me\u00f0 aukinni bygg\u00f0 \u00e1 V\u00f6llunum \u00ed Hafnarfir\u00f0i, \u00fear sem m.a. er n\u00e1nast eina skipulag\u00f0a i\u00f0na\u00f0ar- og \u00fej\u00f3nustuhverfi\u00f0 \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu, \u00fear sem l\u00f3\u00f0ir eru lausar, \u00f6rt vaxandi bygg\u00f0 \u00e1 Su\u00f0urnesjum, aukinn fer\u00f0amannastraumur o.s.frv.&nbsp;<br \/>&nbsp;Ekki \u00fearf a\u00f0 fara m\u00f6rgum or\u00f0um um \u00fea\u00f0 hvernig Reykjanesbrautin liggur \u00ed gegnum Hafnarfj\u00f6r\u00f0 n\u00e1nast mi\u00f0jan.  Vegna legu brautarinnar innan Hafnarfjar\u00f0ar komast Hafnfir\u00f0ingar ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara um brautina flestir daglega.  \u00dea\u00f0 er algj\u00f6rlega \u00f3\u00e1s\u00e6ttanlegt a\u00f0 \u00edb\u00faar \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00feurfi a\u00f0 b\u00faa vi\u00f0 \u00feessa miklu slysah\u00e6ttu sem Reykjanesbrautin er innan sveitarf\u00e9lagsins.<br \/>\u00cd ritinu Frumvarp til fj\u00e1rlaga 2018 segir m.a. \u00e1 bls. 263 \u201e\u00de\u00e1 ver\u00f0ur um 600 m.kr. vari\u00f0 til framkv\u00e6mda vi\u00f0 Reykjanesbraut,&#8230;.\u201c.  Ekki er a\u00f0 finna a\u00f0 ger\u00f0 hafi veri\u00f0 breyting \u00e1 \u00feessu vi\u00f0 afgrei\u00f0slu fj\u00e1rlaga.  Me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af \u00fev\u00ed er sk\u00fdrt a\u00f0 l\u00f6ggjafinn \u00e6tlar 600 millj\u00f3num kr\u00f3na \u00ed framkv\u00e6mdir vi\u00f0 Reykjanesbrautina \u00ed \u00e1r.  N\u00fa liggur fyrir a\u00f0 fara \u00e1 \u00ed br\u00e1\u00f0abirg\u00f0aframkv\u00e6md vi\u00f0 Reykjanesbrautina n\u00e1nar tilteki\u00f0 vi\u00f0 gatnam\u00f3t vi\u00f0 Kaplakrika.  Samkv\u00e6mt uppl\u00fdsingum sem undirrita\u00f0ur hefur afla\u00f0 s\u00e9r er \u00e1\u00e6tla\u00f0ur kostna\u00f0ar vi\u00f0 \u00feessa framkv\u00e6md innan vi\u00f0 100 millj\u00f3nir kr\u00f3na, e\u00f0a \u00e1 bilinu 70 til 100 millj\u00f3nir kr\u00f3na.  Gangi \u00fea\u00f0 eftir standa eftir af \u00feessari fj\u00e1rveitingu a.m.k. 500 millj\u00f3nir kr\u00f3na.<br data-text=\"true\">N\u00fa hefur veri\u00f0 sam\u00feykkt a\u00f0 veita um fj\u00f3rum millj\u00f6r\u00f0um kr\u00f3na til vi\u00f0b\u00f3tar \u00ed vegam\u00e1l umfram \u00fea\u00f0 sem sam\u00feykkt var \u00e1 fj\u00e1rl\u00f6gum.  Me\u00f0 v\u00edsan til \u00feess er skora\u00f0 \u00e1 samg\u00f6ngur\u00e1\u00f0herra og \u00feingmenn Su\u00f0vesturkj\u00f6rd\u00e6mis a\u00f0 sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 2 til 300 millj\u00f3nir kr\u00f3na f\u00e1ist af \u00feessari fj\u00e1rveitingu \u00ed \u00e1r til framkv\u00e6mda vi\u00f0 Reykjanesbrautina innan Hafnarfjar\u00f0ar \u00feannig a\u00f0 til r\u00e1\u00f0st\u00f6funar ver\u00f0i allt a\u00f0 800 millj\u00f3nir til vi\u00f0b\u00f3tar vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e6tla\u00f0 er \u00ed br\u00e1\u00f0abirg\u00f0aframkv\u00e6md vi\u00f0 gatnam\u00f3t vi\u00f0 Kaplakrika.<br data-text=\"true\">\u00datbo\u00f0sg\u00f6gn vegna tv\u00f6f\u00f6ldunar \u00e1 Reykjanesbraut fr\u00e1 Kald\u00e1rselsvegi a\u00f0 misl\u00e6gum gatnam\u00f3tum vi\u00f0 Kr\u00fdsuv\u00edkurveg liggja fyrir svo til tilb\u00fain \u00feannig a\u00f0 ekkert \u00e1 a\u00f0 vera \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a verki\u00f0 \u00fat.<br data-text=\"true\">Skora\u00f0 er \u00e1 samg\u00f6ngur\u00e1\u00f0herra og \u00feingmenn Su\u00f0vesturkj\u00f6rd\u00e6mis a\u00f0 sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 framkv\u00e6mdin ver\u00f0i bo\u00f0in n\u00fa \u00feegar \u00fat \u00feannig a\u00f0 framkv\u00e6mdir hefjist \u00ed \u00e1r og lj\u00faki \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri.<br data-text=\"true\">Ver\u00f0i ekki af \u00feessu er \u00f3ska\u00f0 sk\u00fdringa \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig framkv\u00e6mdavaldi\u00f0 gerir r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 verja \u00feeim 600 millj\u00f3num kr\u00f3na sem l\u00f6ggjafavaldi\u00f0 sam\u00feykkti \u00ed framkv\u00e6mdir vi\u00f0 Reykjanesbrautina  \u00e1ri\u00f0 2018 samanber framanrita\u00f0.<br data-text=\"true\">Kve\u00f0ja Haraldur L. Haraldsson B\u00e6jarstj\u00f3ri<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>B\u00e6jarstj\u00f3ri Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar sendi eftirfarandi t\u00f6lvup\u00f3st \u00e1 \u00feingmenn Su\u00f0vesturkj\u00f6rd\u00e6mis og Samg\u00f6ngur\u00e1\u00f0herra \u00ed g\u00e6r \u00ed kj\u00f6lfar enn eins alvarlegs umfer\u00f0arslyssins \u00e1 Reykjanesbrautinni. \u00dea\u00f0 er hinum \u00feekkta slysa kafla innan Hafnarfjar\u00f0ar \u00e1 vegkaflanum fr\u00e1 Kald\u00e1rselsvegi a\u00f0 misl\u00e6gum gatnam\u00f3tum vi\u00f0 Kr\u00fdsuv\u00edkurveg.B\u00e6jarstj\u00f3rinn hefur sent sama h\u00f3p \u00edtreka\u00f0 p\u00f3sta um alvarlegt \u00e1stand \u00feessa vegarkafla og b\u00e6jarstj\u00f3rn og b\u00e6jarr\u00e1\u00f0 \u00edtreka\u00f0 \u00e1lykta\u00f0 um [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-13562","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13562","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13562"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13562\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13562"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13562"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13562"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}