{"id":13648,"date":"2018-10-22T00:00:00","date_gmt":"2018-10-22T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/namsefnisgjof-til-leikskola\/"},"modified":"2022-10-25T09:01:06","modified_gmt":"2022-10-25T09:01:06","slug":"namsefnisgjof-til-leikskola","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/namsefnisgjof-til-leikskola\/","title":{"rendered":"Provision of learning materials to nurseries"},"content":{"rendered":"<section>\n<article>\n<p>Fulltr\u00faar \u00ed Lionskl\u00fabbi Hafnarfjar\u00f0ar afhentu \u00e1 d\u00f6gunum n\u00e1msefnispakka til nemenda \u00e1 Leiksk\u00f3lanum V\u00ed\u00f0iv\u00f6llum. Eru n\u00fa allir leiksk\u00f3lar \u00ed Hafnarfir\u00f0i komnir me\u00f0 fj\u00f6l\u00fe\u00e6ttan n\u00e1msefnispakka \u00ed hendurnar sem Menntam\u00e1lastofnun, \u00ed samstarfi vi\u00f0 Lions, er a\u00f0 f\u00e6ra \u00f6llum leiksk\u00f3lum landsins.<\/p>\n<p>\u00cd pakkanum er a\u00f0 finna spj\u00f6ld me\u00f0 b\u00f3kst\u00f6fum sem h\u00e6gt er a\u00f0 nota \u00e1 fj\u00f6lbreyttan h\u00e1tt, einnig veggspj\u00f6ld me\u00f0 b\u00f3k- og t\u00f6lust\u00f6fum sem h\u00e6gt er a\u00f0 hafa s\u00fdnileg \u00ed umhverfinu, hreyfispil, t\u00f3nlistarleiki og l\u00e9ttlestrarb\u00e6kur.&nbsp; Afhending n\u00e1msefnisins er li\u00f0ur \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0ars\u00e1ttm\u00e1la um l\u00e6si og er \u00fea\u00f0 von Menntam\u00e1lastofnunar a\u00f0 efni\u00f0 muni n\u00fdtast vel til eflingar m\u00e1ls og l\u00e6sis \u00ed \u00fev\u00ed fj\u00f6lbreytta starfi sem fram fer \u00ed leiksk\u00f3lum landsins. Fulltr\u00faar Lions-hreyfingarinnar \u00e1 \u00cdslandi t\u00f3ku a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1 um dreifingu \u00e1 n\u00e1msefninu og heims\u00e6kja alla leiksk\u00f3la me\u00f0 gla\u00f0ninginn.&nbsp; Lionskl\u00fabbarnir \u00fer\u00edr \u00ed Hafnarfir\u00f0i s\u00e1u um dreifingu til hafnfirskra leiksk\u00f3la. Lions er st\u00e6rsta al\u00fej\u00f3\u00f0lega \u00fej\u00f3nustu-hreyfing heims, stofnu\u00f0 \u00ed Bandar\u00edkjunum 1917. \u00cd dag starfa yfir 1,4 millj\u00f3nir Lions-f\u00e9laga \u00ed 206 l\u00f6ndum.&nbsp; \u00c1 heimsv\u00edsu er Lions hreyfingin a\u00f0 berjast gegn \u00f3l\u00e6si og hvetja til lestrar og hefur gert s\u00ed\u00f0ustu 10 \u00e1rum me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri. Lionskl\u00fabbar eru hvattir til a\u00f0 sinna s\u00ednu bygg\u00f0arlagi auk \u00feess sem kl\u00fabbar geta unni\u00f0 saman \u00e1 landsv\u00edsu vi\u00f0 st\u00e6rri verkefni.&nbsp; \u00deessi n\u00e1msefnispakki fr\u00e1 Menntam\u00e1lastofnun, \u00ed samstarfi vi\u00f0 Lions, er k\u00e6rkomin gj\u00f6f sem talar vel saman vi\u00f0 l\u00e6sisstefnu Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar.&nbsp;&nbsp;<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00fe\u00f6kkum Menntam\u00e1lastofnun og Lionskl\u00fabbum Hafnarfjar\u00f0ar innilega fyrir okkur!<\/p>\n<h3>L\u00e6sisstefna Hafnarfjar\u00f0ar<\/h3>\n<p>L\u00e6sisstefna Hafnarfjar\u00f0ar er samf\u00e9lagslegt verkefni \u00fear sem leik- og grunnsk\u00f3lar, \u00e1samt foreldrum og \u00fdmsum stofnunum b\u00e6jarins, taka h\u00f6ndum saman um a\u00f0 efla m\u00e1l\u00feroska og l\u00e6si barna. Tilgangur \u00feess a\u00f0 efla l\u00e6si er a\u00f0 nemendur geti lesi\u00f0 s\u00e9r til gagns og \u00e1n\u00e6gju vi\u00f0 lok grunnsk\u00f3lag\u00f6ngu. Sett eru vi\u00f0mi\u00f0 um \u00e6skilegan \u00e1rangur og l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 a\u00f0 veita \u00f6llum nemendum kennslu vi\u00f0 h\u00e6fi. Starfsf\u00f3lk leik- og grunnsk\u00f3la velur \u00e1rangursr\u00edkar kennslua\u00f0fer\u00f0ir sem stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6sismarkmi\u00f0um s\u00e9 n\u00e1\u00f0.<\/p>\n<\/article>\n<\/section>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fulltr\u00faar \u00ed Lionskl\u00fabbi Hafnarfjar\u00f0ar afhentu \u00e1 d\u00f6gunum n\u00e1msefnispakka til nemenda \u00e1 Leiksk\u00f3lanum V\u00ed\u00f0iv\u00f6llum. Eru n\u00fa allir leiksk\u00f3lar \u00ed Hafnarfir\u00f0i komnir me\u00f0 fj\u00f6l\u00fe\u00e6ttan n\u00e1msefnispakka \u00ed hendurnar sem Menntam\u00e1lastofnun, \u00ed samstarfi vi\u00f0 Lions, er a\u00f0 f\u00e6ra \u00f6llum leiksk\u00f3lum landsins. \u00cd pakkanum er a\u00f0 finna spj\u00f6ld me\u00f0 b\u00f3kst\u00f6fum sem h\u00e6gt er a\u00f0 nota \u00e1 fj\u00f6lbreyttan h\u00e1tt, einnig veggspj\u00f6ld [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-13648","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13648","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13648"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13648\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13648"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13648"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13648"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}