{"id":13783,"date":"2019-03-28T00:00:00","date_gmt":"2019-03-28T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/arsreikningur-2018-ber-afram-vott-um-abyrga-fjarmalastjorn\/"},"modified":"2022-10-25T09:01:29","modified_gmt":"2022-10-25T09:01:29","slug":"arsreikningur-2018-ber-afram-vott-um-abyrga-fjarmalastjorn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/arsreikningur-2018-ber-afram-vott-um-abyrga-fjarmalastjorn\/","title":{"rendered":"The sound management of Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur municipality"},"content":{"rendered":"<ul>\n<li>Rekstrarafgangur \u00e1rsins var 1.129 millj\u00f3nir kr\u00f3na fyrir A og B hluta b\u00e6jarsj\u00f3\u00f0s<\/li>\n<li>Skuldavi\u00f0mi\u00f0 l\u00e6kkar ni\u00f0ur \u00ed 112%. Ekki veri\u00f0 l\u00e6gra \u00ed aldarfj\u00f3r\u00f0ung<\/li>\n<li>Heildartekjur \u00e1rsins voru 3,6% yfir \u00e1\u00e6tlun e\u00f0a 926 millj\u00f3nir kr\u00f3na<\/li>\n<li>Veltuf\u00e9 fr\u00e1 rekstri var 14,4% af heildartekjum e\u00f0a 3.863 millj\u00f3nir kr\u00f3na<\/li>\n<li>Fj\u00e1rfest var fyrir 5.289 millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00e1 \u00e1rinu<\/li>\n<\/ul>\n<p>&nbsp;<br \/>\u00c1rsreikningur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar fyrir \u00e1ri\u00f0 2018 var lag\u00f0ur fram \u00ed b\u00e6jarr\u00e1\u00f0i \u00ed dag. Fj\u00e1rhagssta\u00f0a Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar heldur \u00e1fram a\u00f0 styrkjast \u00fer\u00e1tt fyrir miklar fj\u00e1rfestingar \u00e1 \u00e1rinu og \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegar l\u00e1nt\u00f6kur. Rekstrarafgangur \u00e1rsins fyrir A og B hluta b\u00e6jarsj\u00f3\u00f0s nam 1.129 millj\u00f3num kr\u00f3na en \u00e1\u00e6tlun ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir 799 millj\u00f3num kr\u00f3na afgangi. Veltuf\u00e9 fr\u00e1 rekstri var 3.863 millj\u00f3nir kr\u00f3na e\u00f0a 14,4% af heildartekjum.<em>&nbsp;&#8222;\u00c1rsreikningur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar s\u00fdnir \u00e1byrga fj\u00e1rm\u00e1lastj\u00f3rn og trausta fj\u00e1rhagsst\u00f6\u00f0u. Skuldavi\u00f0mi\u00f0 sveitarf\u00e9lagsins heldur \u00e1fram a\u00f0 l\u00e6kka og rekstrarni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur heilt yfir eru j\u00e1kv\u00e6\u00f0ar og yfir \u00e1\u00e6tlunum\u201c <\/em>segir R\u00f3sa Gu\u00f0bjartsd\u00f3ttir b\u00e6jarstj\u00f3ri Hafnarfjar\u00f0ar um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur \u00e1rsreikningsins sem kynntur var \u00ed dag. Rekstrarafgangur \u00e1rsins fyrir A og B hluta b\u00e6jarsj\u00f3\u00f0s nam 1.129 millj\u00f3num kr\u00f3na. Rekstrarni\u00f0ursta\u00f0a \u00e1rsins fyrir A hluta var j\u00e1kv\u00e6\u00f0 um 490 millj\u00f3nir kr\u00f3na en \u00e1\u00e6tlun ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir 213 millj\u00f3na kr\u00f3na afgangi. Heildartekjur \u00e1rsins voru 926 millj\u00f3num kr\u00f3na h\u00e6rri en \u00e1\u00e6tlun ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir e\u00f0a 3,6% yfir \u00e1\u00e6tlun.<\/p>\n<h4>Fj\u00e1rfesting \u00ed mikilv\u00e6gum innvi\u00f0um og \u00fej\u00f3nustu<\/h4>\n<p>Fj\u00e1rfestingar \u00e1 \u00e1rinu 2018 n\u00e1mu 5.289 millj\u00f3num kr\u00f3na. Me\u00f0al helstu framkv\u00e6mda voru bygging n\u00fds sk\u00f3la \u00ed Skar\u00f0shl\u00ed\u00f0 fyrir 2.061 millj\u00f3n kr\u00f3na, bygging hj\u00fakrunarheimilis fyrir 850 millj\u00f3nir kr\u00f3na og framkv\u00e6mdir vegna \u00ed\u00fer\u00f3ttamannvirkja a\u00f0 \u00c1sv\u00f6llum, Kaplakrika og vi\u00f0 Keili fyrir alls um 696 millj\u00f3nir kr\u00f3na. Kaupver\u00f0 \u00edb\u00fa\u00f0a \u00ed f\u00e9lagslegt h\u00fasn\u00e6\u00f0iskerfi sveitarf\u00e9lagsins nam 457 millj\u00f3num kr\u00f3na og endurb\u00e6tur \u00e1 St. J\u00f3sefssp\u00edtala, um 113 millj\u00f3num kr\u00f3na. Um einn milljar\u00f0ur kr\u00f3na f\u00f3ru \u00ed framkv\u00e6mdir vi\u00f0 gatnager\u00f0. Tekin voru n\u00fd l\u00e1n \u00e1 \u00e1rinu vegna uppgj\u00f6rs vi\u00f0 Br\u00fa l\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0 um 2 milljar\u00f0ar kr\u00f3na og um 1,4 milljar\u00f0ur kr\u00f3na vegna byggingar hj\u00fakrunarheimilis. Auk \u00feess var teki\u00f0 500 millj\u00f3na kr\u00f3na l\u00e1n vegna fj\u00e1rfestinga H\u00fasn\u00e6\u00f0isskrifstofu \u00e1 leigu\u00edb\u00fa\u00f0um \u00ed f\u00e9lagslega kerfi\u00f0. Grei\u00f0slur langt\u00edmaskulda n\u00e1mu alls 1,6 milljar\u00f0i kr\u00f3na e\u00f0a um 200 millj\u00f3nir kr\u00f3na umfram afborganir samkv\u00e6mt l\u00e1nasamningum.&nbsp;<\/p>\n<p><em>\u201eRekstur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar er aga\u00f0ur og borin er vir\u00f0ing fyrir skattf\u00e9 b\u00e6jarb\u00faa. Fj\u00f6lgun \u00edb\u00faa kallar \u00e1 nau\u00f0synlega uppbyggingu innvi\u00f0a samhli\u00f0a mikilv\u00e6gu vi\u00f0haldi \u00e1 \u00f6llum eignum b\u00e6jarins. Skammt er s\u00ed\u00f0an Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r var undir s\u00e9rst\u00f6ku eftirliti eftirlitsnefndar me\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lum sveitarf\u00e9laga en n\u00fa er \u00f6ldin \u00f6nnur. \u00deennan g\u00f3\u00f0a \u00e1rangur m\u00e1 \u00feakka stj\u00f3rnendum b\u00e6jarins og starfsm\u00f6nnum. Me\u00f0 \u00e1byrgum rekstri undanfarinna \u00e1ra eru allar undirst\u00f6\u00f0ur rekstrar b\u00e6jarf\u00e9lagsins \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi og b\u00e6rinn hefur bur\u00f0i til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00e1skoranir sem kunna a\u00f0 felast \u00ed \u00feeirri k\u00e6lingu efnahagsl\u00edfsins sem n\u00fa blasir vi\u00f0. Vi\u00f0 horfum \u00fev\u00ed bjarts\u00fdn fram \u00e1 veginn\u201c<\/em> says R\u00f3sa.<\/p>\n<p>Skatttekjur voru 236 millj\u00f3num kr\u00f3na h\u00e6rri en \u00e1\u00e6tlun ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir. Framl\u00f6g j\u00f6fnunarsj\u00f3\u00f0s voru 270 millj\u00f3nir kr\u00f3na umfram \u00e1\u00e6tlun og a\u00f0rar tekjur voru 420 millj\u00f3nir kr\u00f3na umfram \u00e1\u00e6tlun en \u00fear af nam tekjuf\u00e6rsla vegna seldra l\u00f3\u00f0a um 65 millj\u00f3num kr\u00f3na. Kostna\u00f0ur var um 416 millj\u00f3nir kr\u00f3na umfram \u00e1\u00e6tlun sem er 1,8% fr\u00e1vik. Fj\u00e1rmagnsli\u00f0ir voru um 153 millj\u00f3num kr\u00f3num h\u00e6rri en \u00e1\u00e6tlun ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir. Rekstur m\u00e1laflokka var \u00ed takti vi\u00f0 fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun en helstu fr\u00e1vik m\u00e1 rekja til h\u00e6kkunar vistunargjalda, aukins kostna\u00f0ar \u00ed m\u00e1lefnum fatla\u00f0s f\u00f3lks og a\u00f0keyptrar kennslu\u00fej\u00f3nustu. Heildareignir \u00ed lok \u00e1rs n\u00e1mu samtals 55.971 millj\u00f3n kr\u00f3na og jukust um 4.798 millj\u00f3nir milli \u00e1ra. Heildarskuldir og skuldbindingar n\u00e1mu samtals 43.191 millj\u00f3num kr\u00f3na og h\u00e6kku\u00f0u um 3.004 millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00e1 milli \u00e1ra. Langt\u00edmaskuldir jukust um 2.944 millj\u00f3nir kr\u00f3na vegna fyrrgreindrar l\u00e1nt\u00f6ku, l\u00edfeyrisskuldbinding h\u00e6kka\u00f0i um 525 millj\u00f3nir kr\u00f3na en skammt\u00edmaskuldir l\u00e6kku\u00f0u um 763 millj\u00f3nir kr\u00f3na.<\/p>\n<p>\u00cdb\u00faar Hafnarfjar\u00f0ar voru 29.791 \u00feann 1. desember 2018 samanbori\u00f0 vi\u00f0 29.360 \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur sem er \u00edb\u00faafj\u00f6lgun um 431 e\u00f0a 1,5%.<\/p>\n<p>\u00c1rsreikning Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar m\u00e1 n\u00e1lgast <a href=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/media\/fjarmal\/Hafnarfjardarbaer_arsreikningur_-2018.pdf\/\">Here<\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Rekstrarafgangur \u00e1rsins var 1.129 millj\u00f3nir kr\u00f3na fyrir A og B hluta b\u00e6jarsj\u00f3\u00f0s Skuldavi\u00f0mi\u00f0 l\u00e6kkar ni\u00f0ur \u00ed 112%. Ekki veri\u00f0 l\u00e6gra \u00ed aldarfj\u00f3r\u00f0ung Heildartekjur \u00e1rsins voru 3,6% yfir \u00e1\u00e6tlun e\u00f0a 926 millj\u00f3nir kr\u00f3na Veltuf\u00e9 fr\u00e1 rekstri var 14,4% af heildartekjum e\u00f0a 3.863 millj\u00f3nir kr\u00f3na Fj\u00e1rfest var fyrir 5.289 millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00e1 \u00e1rinu &nbsp;\u00c1rsreikningur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar fyrir \u00e1ri\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-13783","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13783","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13783"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13783\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13783"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13783"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13783"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}