{"id":13858,"date":"2019-06-14T00:00:00","date_gmt":"2019-06-14T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/ratleikur-hafnarfjardar-er-hafinn\/"},"modified":"2022-10-25T09:01:45","modified_gmt":"2022-10-25T09:01:45","slug":"ratleikur-hafnarfjardar-er-hafinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/ratleikur-hafnarfjardar-er-hafinn\/","title":{"rendered":"The Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur treasure hunt has begun!"},"content":{"rendered":"<p>&lt;style&gt; .wpb_animate_when_almost_visible { opacity: 1; }&lt;\/style&gt;<\/p>\n<article> <strong><a href=\"https:\/\/ratleikur.blog.is\/blog\/ratleikur\/\">Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur Treasure Hunt<\/a> <\/strong> er n\u00fa hafinn \u00ed 22. sinn. \u00deema leiksins \u00ed \u00e1r er \u201ejar\u00f0myndanir\u201c. Fj\u00f6lmargt hefur \u00e1hrif \u00e1 \u00fatlit landsins og \u00e1hrifavaldarnir geta veri\u00f0 eldgos, jar\u00f0hr\u00e6ringar, ve\u00f0ur og vatn en leikurinn lei\u00f0ir a\u00f0 \u00fdmsum \u00e1hugaver\u00f0um st\u00f6\u00f0um. Markmi\u00f0 leiksins a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1tttakendur v\u00edtt og breitt um uppland Hafnarfjar\u00f0ar og nj\u00f3ta \u00fativistar og n\u00e1tt\u00farunnar.<\/p>\n<h3>Vanda\u00f0 fr\u00edtt ratleikskort<\/h3>\n<p>\u00de\u00e1tttakendur f\u00e1 fr\u00edtt vanda\u00f0 ratleikskort og leita a\u00f0 27 ratleiksmerkjum sem sta\u00f0sett eru v\u00ed\u00f0s vegar um uppland b\u00e6jarins. Sum merkjanna eru stutt fr\u00e1 b\u00e6num, t.d. vi\u00f0 Hvaleyrarvatn og St\u00f3rh\u00f6f\u00f0a en \u00f6nnur eru lengra, \u00ed Helgadal, \u00e1 Helgafelli, \u00ed Litlu-borgum, \u00ed Sau\u00f0abrekkugj\u00e1, Fjallgj\u00e1, R\u00e9ttarklettum, \u00d3ttasta\u00f0aseli og v\u00ed\u00f0ar og sum jafnvel r\u00e9tt \u00fat fyrir b\u00e6jarm\u00f6rkin eins og \u00e1 Fjallinu eina og hinu merkilega fyrirbrig\u00f0i Ur\u00f0ar\u00e1s.<\/p>\n<p>Leikurinn stendur fr\u00e1 byrjun j\u00fan\u00ed og s\u00ed\u00f0asti skilafrestur \u00e1 \u00farlausnum er 23. september en allir sem skila 9, 18 e\u00f0a 27 lausnum geta or\u00f0i\u00f0 L\u00e9ttafeti, G\u00f6ngugarpur e\u00f0a \u00derautak\u00f3ngur og allir sem m\u00e6ta \u00e1 uppskeruh\u00e1t\u00ed\u00f0ina og hafa skila\u00f0 inn lausnum geta fengi\u00f0 \u00fatdr\u00e1ttarvinninga.<\/p>\n<h3>Styrktara\u00f0ilar<\/h3>\n<p>Fj\u00f6lm\u00f6rg fyrirt\u00e6ki gefa vinninga, Altis, Ban K\u00fann, Burger-inn, Fjallakofinn, Fj\u00f6rukr\u00e1in, Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r, Hafnarfjar\u00f0arh\u00f6fn, M\u00fasik og sport, Origo og Von. A\u00f0alstyrktara\u00f0ili leiksins, fyrir utan Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6, er VHE en a\u00f0rir sem styrkja leikinn eru Fjar\u00f0arkaup, G\u00e1ma\u00fej\u00f3nustan, Gr\u00f3\u00f0rarst\u00f6\u00f0in \u00de\u00f6ll og Landsnet.<\/p>\n<p>Gu\u00f0ni G\u00edslason leggur leikinn \u00ed 12. sinn en \u00fea\u00f0 er H\u00f6nnunarh\u00fasi\u00f0 ehf. sem gefur \u00fat leikinn \u00ed samstarfi vi\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6. \u00d3mar Sm\u00e1ri \u00c1rmannsson a\u00f0sto\u00f0a\u00f0i sem fyrr vi\u00f0 val \u00e1 ratleiksst\u00f6\u00f0um og rita\u00f0i fr\u00f3\u00f0leiksmola en hann er manna kunnugastur \u00e1 Reykjanesskaganum og heldur \u00fati fr\u00f3\u00f0leikss\u00ed\u00f0unni, ferlir.is<\/p>\n<h3>Allir geta teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt<\/h3>\n<p>Mikill \u00e1hugi er fyrir leiknum og be\u00f0i\u00f0 eftir \u00fatg\u00e1fu kortanna \u00e1 hverju \u00e1ri. \u00cd \u00e1r var engin undantekning enda \u00f3muna ve\u00f0urbl\u00ed\u00f0a og kj\u00f6rnar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur til g\u00f6ngu \u00ed upplandi b\u00e6jarins. \u00dear sem langur t\u00edmi er gefinn \u00ed leikinn getur hver og einn fari\u00f0 hann \u00e1 s\u00ednum hra\u00f0a. \u00deetta er tilvalinn fj\u00f6lskylduleikur og f\u00f3lk l\u00e6rir a\u00f0 meta \u00fea\u00f0 sem umhverfi okkar hefur upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<h3>..en hefur \u00fe\u00fa komi\u00f0 \u00ed Litlu borgir?<\/h3>\n<p>\u201e..en hefur \u00fe\u00fa komi\u00f0 \u00ed Litlu borgir?\u201c er algeng spurning hj\u00e1 Gu\u00f0na, umsj\u00f3narmanni leiksins \u00feegar f\u00f3lk segir honum fr\u00e1 heims\u00f3kn sinni \u00e1 einhvern merkissta\u00f0 \u00fati \u00ed heimi. Oftast er svari\u00f0 nei \u00fe\u00f3 a\u00f0eins \u00feurfi a\u00f0 fara r\u00e9tt upp fyrir Helgafell til a\u00f0 finna Litlu borgir.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/gudnigisla.jpg\" alt=\"GudniGisla\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 696px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 696\/348;\"><\/p>\n<p><sup>Gu\u00f0ni G\u00edslason, umsj\u00f3narma\u00f0ur leiksins og mikill unnandi \u00fativistar og upplands Hafnarfjar\u00f0ar<\/sup><\/p>\n<p>\u00cd leiknum m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 rekast \u00e1 ummerki um mannvistir fyrri alda \u00fati hrauni, hella, jar\u00f0sig, fj\u00f6lbreyttar jar\u00f0myndanir, gr\u00f3\u00f0ur enda uppland Hafnarfjar\u00f0ar og n\u00e1grenni gr\u00ed\u00f0arlega fj\u00f6lbreytt og skemmtilegt. Gu\u00f0ni hvetur alla til a\u00f0 n\u00e1lgast kort \u00e1 me\u00f0an \u00feau eru til og byrja a\u00f0 leita. Kortin f\u00e1st fr\u00edtt m.a. \u00ed Fjar\u00f0arkaupum, \u00ed r\u00e1\u00f0h\u00fasinu, B\u00f3kasafninu, sundst\u00f6\u00f0um, \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasum, \u00ed M\u00fasik og sport, Altis, bens\u00ednst\u00f6\u00f0vum og v\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>N\u00e1nar m\u00e1 sj\u00e1 um leikin \u00e1 <a href=\"https:\/\/ratleikur.blog.is\/blog\/ratleikur\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\">ratleikur.blog.is<\/a> and on <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/ratleikur\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\">www.facebook.com\/ratleikur<\/a><\/p>\n<p>\u00de\u00e1tttakendur eru hvattir til a\u00f0 deila myndum \u00far leiknum og merkja <strong>#ratleikur2019<\/strong><\/p>\n<\/article>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&lt;style&gt; .wpb_animate_when_almost_visible { opacity: 1; }&lt;\/style&gt; Ratleikur Hafnarfjar\u00f0ar er n\u00fa hafinn \u00ed 22. sinn. \u00deema leiksins \u00ed \u00e1r er \u201ejar\u00f0myndanir\u201c. Fj\u00f6lmargt hefur \u00e1hrif \u00e1 \u00fatlit landsins og \u00e1hrifavaldarnir geta veri\u00f0 eldgos, jar\u00f0hr\u00e6ringar, ve\u00f0ur og vatn en leikurinn lei\u00f0ir a\u00f0 \u00fdmsum \u00e1hugaver\u00f0um st\u00f6\u00f0um. Markmi\u00f0 leiksins a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1tttakendur v\u00edtt og breitt um uppland Hafnarfjar\u00f0ar og nj\u00f3ta [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":16716,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-13858","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13858","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13858"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13858\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/16716"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13858"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13858"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13858"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}