{"id":14017,"date":"2019-11-05T00:00:00","date_gmt":"2019-11-05T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/arid-er-1949-afmaelisveisla-fyrir-sjotuga-hafnfirdinga\/"},"modified":"2022-10-25T09:02:19","modified_gmt":"2022-10-25T09:02:19","slug":"arid-is-a-1949-birthday-party-for-a-sixty-year-old-hafnfirding","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/arid-er-1949-afmaelisveisla-fyrir-sjotuga-hafnfirdinga\/","title":{"rendered":"The year is 1949 \u2013 a birthday party for seventy-year-olds from Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur."},"content":{"rendered":"<p>S\u00fa skemmtilega hef\u00f0 hefur skapast a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00f6llum \u00feeim Hafnfir\u00f0ingum sem eru 70 \u00e1ra \u00e1 \u00e1rinu til veislu \u00ed H\u00e1s\u00f6lum. H\u00e1tt \u00ed 100 Hafnfir\u00f0ingar m\u00e6ttu til sl\u00edkrar veislu s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn f\u00f6studag. \u00dear f\u00e9kk h\u00f3purinn kynningu \u00e1  <a href=\"\/ibuar\/felagsthjonusta\/eldri-borgarar\/\" class=\"internal\">\u00fej\u00f3nustu Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar \u00ed \u00fe\u00e1gu eldri borgara<\/a> , fj\u00f6lbreyttu f\u00e9lagsstarfi hj\u00e1  <a href=\"https:\/\/febh.is\/\">F\u00e9lagi eldri borgara \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/a>  \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 hlusta \u00e1&nbsp;\u00e1hugaver\u00f0ar og skemmtilegar s\u00f6gur fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingar\u00e1rinu 1949 fr\u00e1 b\u00e6jarminjaver\u00f0i Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar.&nbsp;<\/p>\n<p>Fleiri myndir fr\u00e1 afm\u00e6li er a\u00f0 finna \u00e1  <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/hafnarfjardarbaer\/\">facebook s\u00ed\u00f0u Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar&nbsp;<\/a> <\/p>\n<h4>S\u00f6gur fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingar\u00e1rinu 1949<\/h4>\n<p>\u00c1ri\u00f0<br \/>\n1949 var \u00e1 margan h\u00e1tt merkilegt \u00e1r, b\u00e6\u00f0i \u00ed mannkynss\u00f6gunni, \u00cdslandss\u00f6gunni en<br \/>\neinnig h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i. Heimurinn var enn a\u00f0 vissu marki a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0<br \/>\naflei\u00f0ingar s\u00ed\u00f0ari heimstyrjaldarinnar sem me\u00f0al annars kom fram \u00ed uppbyggingu og<br \/>\nfj\u00e1rhagsvandr\u00e6\u00f0um v\u00ed\u00f0a. \u00deetta \u00e1r var K\u00ednverska Al\u00fe\u00fd\u00f0ul\u00fd\u00f0veldi\u00f0 stofna\u00f0 \u00feegar<br \/>\nherir komm\u00fanista hr\u00f6ktu \u00fej\u00f3\u00f0ernissinna \u00ed \u00fatleg\u00f0 til Taiwan. Str\u00ed\u00f0i Indverja og<br \/>\nPakistana lauk me\u00f0 skiptingu Kashmir-h\u00e9ra\u00f0s. Nato var stofna\u00f0 \u00ed New York.<br \/>\n\u00cdsrael f\u00e9kk inng\u00f6ngu \u00ed Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0irnar. Sambandsl\u00fd\u00f0veldi\u00f0 \u00de\u00fdskaland, e\u00f0a<br \/>\nVestur-\u00de\u00fdskaland var stofna\u00f0 \u00far hern\u00e1mssv\u00e6\u00f0um Bandar\u00edkjamanna, Breta og Frakka<br \/>\nog Austur\u00fe\u00fdska al\u00fe\u00fd\u00f0ul\u00fd\u00f0veldi\u00f0 \u00e1 hern\u00e1mssv\u00e6\u00f0i Sov\u00e9tr\u00edkjanna og Sov\u00e9tr\u00edkin ger\u00f0u<br \/>\ns\u00edna fyrstu tilraun me\u00f0 kjarnorkusprengju. Svo eitthva\u00f0 s\u00e9 nefnt en sumir telja<br \/>\na\u00f0 st\u00f3ra uppfinningin \u00feetta \u00e1r hafi veri\u00f0 tilkoma hinnar \u00fe\u00fdsku Currywurst \u00ed<br \/>\nBerl\u00edn.<\/p>\n<h4>Af ve\u00f0ri og efnahags\u00e1standi<\/h4>\n<p>         \u00c1 \u00cdslandi var t\u00ed\u00f0arfari\u00f0 frekar<br \/>\n\u00f3hagst\u00e6tt \u00e1ri\u00f0 1949, \u00farkoma var yfir me\u00f0allagi en hitastig undir me\u00f0allagi, um<br \/>\nvori\u00f0 var landfastur haf\u00eds fyrir nor\u00f0urlandi og uppskera var almennt frekar<br \/>\nl\u00e9leg. \u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 st\u00e6rsti einstaki vi\u00f0bur\u00f0urinn \u00ed \u00cdslandss\u00f6gunni<br \/>\n\u00feetta \u00e1ri\u00f0 hafi veri\u00f0 innganga \u00cdslands \u00ed Nato og \u00fe\u00e6r \u00f3eir\u00f0ir sem fylgdu \u00ed<br \/>\nkj\u00f6lfari\u00f0. \u00deetta \u00e1r var fyrsta \u00edslenska talmyndin frums\u00fdnd \u00ed Gamla b\u00ed\u00f3i en \u00fea\u00f0<br \/>\nvar kvikmyndin \u201eMilli fjalls og fj\u00f6ru\u201c eftir Loft Gu\u00f0mundsson. Efnahags\u00e1standi\u00f0<br \/>\n\u00e1 landinu var \u00feungt \u00e1 \u00feessum t\u00edma, gengisfellingar, innflutningsh\u00f6ft, skammtanir<br \/>\nog verkf\u00f6ll algeng sem m.a. var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rnin sprakk og efnt var<br \/>\ntil kosninga. \u00deetta \u00e1r var tekin \u00ed gagni\u00f0 n\u00fdjung \u00ed umfer\u00f0inni h\u00e9r \u00e1 landi \u00feegar<br \/>\ng\u00f6tuvitar voru teknir \u00ed notkun \u00e1 fj\u00f3rum gatnam\u00f3tum \u00ed Reykjav\u00edk. \u00cd fr\u00e9tt af \u00feeim<br \/>\nvi\u00f0bur\u00f0i sag\u00f0i me\u00f0al annars: \u201eTilraunir me\u00f0 vitana gefa vonir um \u00e1g\u00e6tan \u00e1rangur<br \/>\naf \u00feessari n\u00fdjung, og byggist \u00fea\u00f0 fyrst og fremst \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 allir vegfarendur<br \/>\nhl\u00fd\u00f0i lj\u00f3sunum til hins \u00fdtrasta. L\u00f6greglu\u00fej\u00f3nar munu ver\u00f0a vi\u00f0 vitana til \u00feess<br \/>\na\u00f0 lei\u00f0beina eftir \u00fev\u00ed, sem \u00fe\u00f6rf reynist.\u201c<a href=\"#_edn1\"><sup><sup>[i]<\/sup><\/sup><\/a> \u00d6nnur<br \/>\nn\u00fdjung sem nefna m\u00e1 og ger\u00f0 var tilraun me\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00feetta \u00e1r, er a\u00f0 \u00feyrlu var<br \/>\nflogi\u00f0 \u00ed fyrsta sinn \u00e1 \u00cdslandi \u00e1ri\u00f0 1949, e\u00f0a eins og \u00fea\u00f0 fyrirb\u00e6ri var kalla\u00f0<br \/>\n\u00e1 \u00feeim t\u00edma: \u201ebj\u00f6rgunarflugv\u00e9l af Helicopterger\u00f0\u201c<a href=\"#_edn2\">[ii]<\/a>.\n<\/p>\n<h4>Allt \u00ed lagi lagsi<\/h4>\n<p>         \u00cd Hafnarfir\u00f0i ger\u00f0ist l\u00edka margt<br \/>\n\u00e1hugavert \u00e1 \u00e1rinu 1949. \u00cdb\u00faar b\u00e6jarins voru \u00ed \u00e1rsbyrjun 4.904 en til<br \/>\nsamanbur\u00f0ar m\u00e1 benda \u00e1 a\u00f0 n\u00fa n\u00fdveri\u00f0 n\u00e1\u00f0i \u00edb\u00faafj\u00f6ldi b\u00e6jarins 30.000<br \/>\neinstaklingum. Kvikmyndah\u00fasin<br \/>\n\u00ed b\u00e6num voru a\u00f0 venju vins\u00e6l og h\u00f3fu \u00feau \u00e1ri\u00f0 \u00e1 st\u00f3rmyndum. \u00cd Hafnarfjar\u00f0arb\u00ed\u00f3i<br \/>\nvar fyrsta mynd \u00e1rsins \u201eAllt \u00ed lagi lagsi\u201c sem augl\u00fdst var sem n\u00fd og<br \/>\nsprenghl\u00e6gileg me\u00f0 hinum \u00f3vi\u00f0jafnanlegu Abbott og Costello.<a href=\"#_edn3\"><sup><sup>[iii]<\/sup><\/sup><\/a> \u00cd<br \/>\nb\u00e6jarb\u00ed\u00f3 var hins vegar s\u00fdnd st\u00f3rmyndin Monsieur Verdoux, \u201eMj\u00f6g \u00e1hrifar\u00edk,<br \/>\nsjerkennileg og \u00f3venjulega vel leikin amer\u00edsk st\u00f3rmynd, samin og stj\u00f3rna\u00f0 af hinum<br \/>\nheimsfr\u00e6ga gamanleikara Charlie Chaplin. H\u00fan var b\u00f6nnu\u00f0 innan 16 \u00e1ra.<sup><sup><a href=\"#_edn4\">[iv]<\/a><\/sup><\/sup>Svo vi\u00f0 h\u00f6ldum okkur vi\u00f0 listina \u00fe\u00e1 kom<br \/>\nsnemma \u00e1rs fr\u00e9tt um a\u00f0 Leikf\u00e9lag Hafnarfjar\u00f0ar v\u00e6ri a\u00f0 hefja \u00e6fingar \u00e1 n\u00fdrri<br \/>\nrev\u00edu sem s\u00fdnd yr\u00f0i \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3i undir vor. \u00cd fr\u00e9ttinni kom fram a\u00f0 rev\u00eda \u00feessi<br \/>\ngerist \u201e\u00e1 \u00feessum als\u00ed\u00f0ustu og beztu t\u00edmum sk\u00f6mmtunar og svartamarka\u00f0s og tekur<br \/>\ntil me\u00f0fer\u00f0ar \u00fdmis fyrirb\u00e6ri l\u00ed\u00f0andi stundar. Rev\u00fdunni hefir a\u00f0 vandlega<br \/>\nathugu\u00f0u m\u00e1li veri\u00f0 vali\u00f0 nafni\u00f0 Gullni vegurinn. \/&#8230;\/ Er \u00feegar r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00f6ll<br \/>\na\u00f0alhlutverkin, en stj\u00f3rn leikf\u00e9lagsins vill beina \u00fev\u00ed til ungs f\u00f3lks \u00ed<br \/>\nHafnarfir\u00f0i, sem \u00e1huga hefir \u00e1 leiklist, a\u00f0 enn \u00fe\u00e1 er \u00f3r\u00e1\u00f0stafa\u00f0 \u00ed nokkur<br \/>\naukahlutverk. \u00dearf \u00feetta unga f\u00f3lk au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 geta sungi\u00f0 eitthva\u00f0, e\u00f0a a\u00f0<br \/>\nminnsta kosti raula\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 vitanlega er fullt af s\u00f6ngvum \u00ed rev\u00fdunni.\u201c<a href=\"#_edn5\"><sup><sup>[v]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>Brunam\u00e1lanefnd og sl\u00f6ngub\u00edll<\/h4>\n<p>         Brunam\u00e1l komu inn \u00e1 bor\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rnar<br \/>\n\u00ed lok jan\u00faar. \u00de\u00e1 l\u00e1 fyrir stj\u00f3rninni erindi fr\u00e1 brunam\u00e1lanefnd b\u00e6jarins \u00fear sem<br \/>\nlagt var til a\u00f0 keypt yr\u00f0i v\u00e9l \u00ed n\u00fdja brunab\u00edlinn vegna \u00feess a\u00f0 s\u00e1 b\u00edll hef\u00f0i<br \/>\nsvo afllitla v\u00e9l a\u00f0 hann k\u00e6mist ekki upp brekkurnar \u00ed Hafnarfir\u00f0i. Auk \u00feessa<br \/>\n\u00f3ska\u00f0i nefndin eftir heimild til a\u00f0 yfirbyggja sl\u00f6ngub\u00edl sem keyptur haf\u00f0i<br \/>\nveri\u00f0 af Sl\u00f6kkvili\u00f0i Reykjav\u00edkur r\u00famu \u00e1ri \u00e1\u00f0ur en haf\u00f0i ekki enn veri\u00f0 ger\u00f0ur<br \/>\nnoth\u00e6fur. Um \u00feetta m\u00e1l var miki\u00f0 rifist \u00ed p\u00f3lit\u00edkinni en m\u00e1lalok ur\u00f0u \u00feau a\u00f0<br \/>\nm\u00e1linu var v\u00edsa\u00f0 til b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s og \u00fev\u00ed fali\u00f0 a\u00f0 heimila kaupin \u00e1 n\u00fdrri v\u00e9l og<br \/>\njafnframt a\u00f0 gera sl\u00f6ngub\u00edlinn noth\u00e6fan.<sup><sup><a href=\"#_edn6\">[vi]<\/a><\/sup><\/sup>Sumir hlutir voru t\u00f6luvert einfaldari \u00e1<br \/>\n\u00feessum t\u00edma en \u00feeir eru \u00ed dag. Sem d\u00e6mi um \u00feetta m\u00e1 nefna augl\u00fdsingu sem var<br \/>\nbirt \u00ed ma\u00ed 1949 \u00fear sem fram kom a\u00f0 allir b\u00edlar og bifhj\u00f3l \u00far Hafnarfir\u00f0i,<br \/>\nBessasta\u00f0a- , Gar\u00f0a-, K\u00f3pavogs- og Seltjarnarneshreppum skyldu m\u00e6ta til<br \/>\nsko\u00f0unar vi\u00f0 V\u00f6rub\u00edlast\u00f6\u00f0 Hafnarfjar\u00f0ar \u00e1 11 daga t\u00edmabili \u00ed byrjun j\u00fan\u00ed.<a href=\"#_edn7\"><sup><sup>[vii]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>Braggabygg\u00f0 \u00ed burtu og ol\u00edukynding \u00ed sta\u00f0 kolakyndingar<\/h4>\n<p>         \u00c1 str\u00ed\u00f0s\u00e1runum var nokkur braggabygg\u00f0 \u00ed<br \/>\nHafnarfir\u00f0i en \u00feetta \u00e1r var unni\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fjarl\u00e6gja \u00fe\u00e1. B\u00e6jarr\u00e1\u00f0 sam\u00feykkti \u00e1<br \/>\nfundi \u00ed ma\u00ed a\u00f0 \u201eger\u00f0ar yr\u00f0u n\u00fa \u00feegar r\u00e1\u00f0stafanir til a\u00f0 r\u00edfa braggann, sem er \u00e1<br \/>\ngatnam\u00f3tum Vesturg\u00f6tu og Merkurg\u00f6tu svo og pakkh\u00fasr\u00e6fil er stendur vi\u00f0 hli\u00f0<br \/>\nbraggans. Einnig, a\u00f0 a\u00f0rir braggar, sem eru or\u00f0nir l\u00e9legir og eru ekki \u00ed<br \/>\nnau\u00f0synlegri notkun, ver\u00f0i fjarl\u00e6g\u00f0ir \u00far b\u00e6num.\u201c Eins og \u00fea\u00f0 var or\u00f0a\u00f0 \u00ed<br \/>\nfundarger\u00f0inni.<sup><sup><a href=\"#_edn8\">[viii]<\/a>&nbsp;<\/sup><\/sup>Sundlaug Hafnarfjar\u00f0ar t\u00f3k til starfa \u00e1ri\u00f0 1944. \u00dea\u00f0 er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 allir voru \u00e1 einu m\u00e1li um a\u00f0 nau\u00f0synlegt<br \/>\nv\u00e6ri fyrir b\u00e6jarb\u00faa a\u00f0 koma upp sundlaug \u00ed b\u00e6num en h\u00fan var \u00f3yfirbygg\u00f0 sj\u00f3laug.<br \/>\nRekstur laugarinnar gekk illa til a\u00f0 byrja me\u00f0 og a\u00f0s\u00f3knin a\u00f0 henni var ekki<br \/>\ng\u00f3\u00f0. \u00c1ri\u00f0 1949 var brug\u00f0ist vi\u00f0 og fari\u00f0 \u00ed endurb\u00e6tur \u00e1 lauginni sem f\u00f3lust<br \/>\nme\u00f0al annars \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 komi\u00f0 var upp ol\u00edukyndingu \u00ed sta\u00f0 kolakyndingar. Var\u00f0<br \/>\n\u00feetta til \u00feess a\u00f0 jafn hiti h\u00e9lst betur \u00e1 lauginni og \u00ed sturtunum e\u00f0a eins og<br \/>\nsag\u00f0i \u00ed samt\u00edma fr\u00e9tt: \u201eVir\u00f0ist \u00fea\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 gefast vel og au\u00f0velda a\u00f0 hafa<br \/>\njafnan hita \u00ed lauginni, svo a\u00f0 sundgestir \u00feurfa ekki a\u00f0 \u00f3ttast \u00fea\u00f0, a\u00f0 laugin<br \/>\nver\u00f0i k\u00f6ld e\u00f0a ekki n\u00f3gu heitt vatn \u00ed sturtunum.\u201c <a href=\"#_edn9\"><sup><sup>[ix]<\/sup><\/sup><\/a> \u00cd<br \/>\nkj\u00f6lfari\u00f0 voru svo birtar augl\u00fdsingar \u00fear sem sag\u00f0i me\u00f0al annars \u201eMe\u00f0 hinum<br \/>\nn\u00fdju hitunart\u00e6kjum vonum v\u00e9r a\u00f0 h\u00e6gt ver\u00f0i a\u00f0 auka hita sundlaugarinnar<br \/>\nverulega fr\u00e1 \u00fev\u00ed, sem \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0. Hafnfir\u00f0ingar, noti\u00f0 \u00feennan heilsubrunn<br \/>\ny\u00f0ar og syndi\u00f0 \u00ed Sundlaug Hafnarfjar\u00f0ar.\u201c<a href=\"#_edn10\"><sup><sup>[x]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>\u00c1r mikilla hafta og sk\u00f6mmtunar<\/h4>\n<p>         Eins og \u00e1\u00f0ur segir var \u00e1ri\u00f0 1949 \u00e1r<br \/>\nmikilla hafta og sk\u00f6mmtunar og ein birtingarmynd \u00feess var hve erfitt var fyrir<br \/>\nf\u00f3lk a\u00f0 eignast heimilist\u00e6ki. \u00cd grein sem birtist um mitt sumar \u00feetta \u00e1r var<br \/>\nvakin athygli \u00e1 \u00feessu og sag\u00f0i \u00fear me\u00f0al annars: \u00fevottavjelar og \u00f6nnur<br \/>\nheimilist\u00e6ki n\u00fat\u00edmans, sj\u00e1st ekki nje f\u00e1st hjer \u00e1 landi, nema \u00e1 sv\u00f6rtum<br \/>\nmarka\u00f0i, e\u00f0a \u00ed happdr\u00e6ttum. Sennilegast, a\u00f0 hvert og eitt einasta heimili, sem<br \/>\n\u00fearf a\u00f0 eignast \u00feessi \u00fe\u00e6gindi ver\u00f0i a\u00f0 stofna til s\u00edns eigins happdr\u00e6ttis til<br \/>\na\u00f0 f\u00e1 innflutningsleyfi fyrir gersemunum.<a href=\"#_edn11\"><sup><sup>[xi]<\/sup><\/sup><\/a> \u00c1 \u00feessu<br \/>\nvar\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0 breyting \u00feetta \u00e1r \u00feegar Raft\u00e6kjaverksmi\u00f0jan \u00ed Hafnarfir\u00f0i, RAFHA,<br \/>\nbyrja\u00f0i framlei\u00f0slu k\u00e6lisk\u00e1pa. \u00deetta fyrsta \u00e1r voru framleiddir um 100 sk\u00e1par<br \/>\nen framlei\u00f0slugeta verksmi\u00f0junnar var um 500 sk\u00e1par \u00e1 \u00e1ri en \u00fea\u00f0 var \u00fe\u00f3 bundi\u00f0<br \/>\n\u00feeim skilyr\u00f0um a\u00f0 gjaldeyrisleyfi fengist til efniskaupa. K\u00e6lisk\u00e1par \u00feessir<br \/>\nvoru framleiddir \u00ed n\u00e1nu samstarfi vi\u00f0 Electrolux \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 en sk\u00e1parnir voru<br \/>\nallir sm\u00ed\u00f0a\u00f0ir h\u00e9r \u00e1 landi og settir saman. Geymslupl\u00e1ss \u00ed \u00feessum sk\u00e1pum var 85<br \/>\nl\u00edtrar og var \u00fea\u00f0 talin st\u00e6r\u00f0 sem henta\u00f0i \u00f6llum almenningi.<sup><sup><a href=\"#_edn12\">[xii]<\/a>&nbsp;<\/sup><\/sup>\u00c9g<br \/>\nhef \u00e1\u00f0ur minnst \u00e1 kvikmyndah\u00fasin \u00ed b\u00e6num en s\u00fa merkilega n\u00fdjung kom fram sumari\u00f0<br \/>\n1949 \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3i a\u00f0 kvikmyndin sem \u00fear var \u00fe\u00e1 s\u00fdnd, \u201eHamlet\u201c, sem valin haf\u00f0i<br \/>\nveri\u00f0 besta mynd \u00e1rsins 1948, var fyrsta erlenda talmyndin sem s\u00fdnd var me\u00f0<br \/>\n\u00edslenskum texta.<a href=\"#_edn13\"><sup><sup>[xiii]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>Miklar framkv\u00e6mdir \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/h4>\n<p>         Miklar framkv\u00e6mdir st\u00f3\u00f0u yfir \u00ed<br \/>\nHafnarfir\u00f0i \u00e1 vegum b\u00e6jarf\u00e9lagsins sumari\u00f0 1949 og st\u00f6rfu\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00e1 anna\u00f0 hundra\u00f0<br \/>\nverkamenn \u00e1 vegum b\u00e6jarins. \u00de\u00e1 var m.a. veri\u00f0 a\u00f0 leggja vatnsveitu ofan \u00far<br \/>\nkald\u00e1rbotnum ni\u00f0ur \u00ed b\u00e6, unni\u00f0 var a\u00f0 lengingu sy\u00f0ri hafnargar\u00f0sins, \u00fatb\u00fanir<br \/>\nvoru tveir leikvellir, S\u00f3lvangur var \u00ed byggingu, Strandgatan var lengd og tengd<br \/>\nvi\u00f0 Reykjanesbrautina og knattspyrnuv\u00f6llurinn \u00e1 Hvaleyrarholtinu var lagf\u00e6r\u00f0ur<br \/>\nog st\u00e6kka\u00f0ur. Auk \u00feessa st\u00f3\u00f0 b\u00e6jarf\u00e9lagi\u00f0 fyrir miklum framkv\u00e6mdum \u00ed Kr\u00fdsuv\u00edk<br \/>\n\u00feetta sumar er sn\u00e9ru a\u00f0 jar\u00f0borunum, byggingar- og r\u00e6ktunar-framkv\u00e6mdum \u00fear. Um<br \/>\nallar framkv\u00e6mdir \u00ed Kr\u00fdsuv\u00edk r\u00edkti mikil p\u00f3lit\u00edsk spenna.<sup><sup><a href=\"#_edn14\">[xiv]<\/a>&nbsp;<\/sup><\/sup>\u00cd tilefni af 25 \u00e1ra afm\u00e6li Hellisger\u00f0is<br \/>\n\u00feetta sumar voru settar n\u00fdjar reglur fyrir gesti gar\u00f0sins. \u00dear kom me\u00f0al annars<br \/>\nfram a\u00f0 hlaup og leikir voru stranglega banna\u00f0ir svo og \u00f3p og \u00f3hlj\u00f3\u00f0 e\u00f0a anna\u00f0<br \/>\n\u00fea\u00f0 er veldur truflun e\u00f0a h\u00e1va\u00f0a. B\u00f6rn m\u00e1ttu ekki dvelja \u00ed gar\u00f0inum nema \u00ed<br \/>\nfylgd fullor\u00f0inna og \u00fea\u00f0 var banna\u00f0 a\u00f0 fara inn \u00e1 grasi\u00f0 me\u00f0 barnavagna e\u00f0a<br \/>\nkerrur svo og \u00f6nnur farart\u00e6ki. Gestum var skylt a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00ed einu og \u00f6llu<br \/>\nfyrirm\u00e6lum umsj\u00f3narmanns og gat hann v\u00edsa\u00f0 gestum burt \u00far gar\u00f0inum, ef honum<br \/>\nfast \u00e1st\u00e6\u00f0a til.<a href=\"#_edn15\"><sup><sup>[xv]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>N\u00fdjungar og&nbsp; tilraunaverkefni<\/h4>\n<p>         Hausti\u00f0 1949 var ger\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0 tilraun<br \/>\n\u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00feegar sett var upp n\u00fd v\u00e9l \u00ed fiskvinnsluh\u00fasi \u00ed b\u00e6num. Um var a\u00f0<br \/>\nr\u00e6\u00f0a \u00fe\u00fdska fl\u00f6kunarv\u00e9l sem sett var upp sem tilraunaverkefni. Skemmst er fr\u00e1<br \/>\n\u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 \u00feessi tilraun mist\u00f3kst me\u00f0 \u00f6llu \u00fear sem h\u00fan var ger\u00f0 fyrir mun<br \/>\nminni fisk en veiddist h\u00e9r vi\u00f0 land. Vert\u00ed\u00f0ar\u00feorskurinn vi\u00f0 \u00cdsland var mun<br \/>\nst\u00e6rri en s\u00e1 sem veiddist su\u00f0ur vi\u00f0 \u00de\u00fdskaland og \u00fev\u00ed henta\u00f0i v\u00e9lin ekki h\u00e9r \u00ed<br \/>\nHafnarfir\u00f0i.<sup><sup><a href=\"#_edn16\">[xvi]<\/a><\/sup><\/sup>\u00d6nnur n\u00fdjung h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00e1ri\u00f0 1949<br \/>\nvar \u00feegar M\u00e1lningarstofan vi\u00f0 L\u00e6kjarg\u00f6tu opna\u00f0i smurst\u00f6\u00f0 fyrir bifrei\u00f0ar. T\u00e6kin<br \/>\n\u00e1 smurst\u00f6\u00f0inni voru amer\u00edsk og af fullkomnustu ger\u00f0 en \u00feau h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 p\u00f6ntu\u00f0<br \/>\ntil landsins fj\u00f3rum \u00e1rum \u00e1\u00f0ur en afgrei\u00f0sla \u00feeirra taf\u00f0ist um \u00feennan t\u00edma \u00fear<br \/>\nsem fj\u00e1rfestingarleyfi\u00f0 var tors\u00f3tt. \u00cd fr\u00e9tt af opnun smurst\u00f6\u00f0varinnar sag\u00f0i<br \/>\n\u201eEru h\u00fasakynni M\u00e1lningarstofunnar hin vistlegustu og samsvara fyllilega kr\u00f6fum<br \/>\nt\u00edmans. Er \u00fea\u00f0 \u00e1n\u00e6gjulegt a\u00f0 \u00feessi starfsemi \u2014 a\u00f0 f\u00e1 b\u00edlana smur\u00f0a me\u00f0 n\u00fdt\u00edsku<br \/>\na\u00f0fer\u00f0um \u2014 er n\u00fa framkv\u00e6md h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i me\u00f0 sl\u00edkum myndarbrag, en \u00e1\u00f0ur<br \/>\n\u00feurftu bifrei\u00f0aeigendur a\u00f0 s\u00e6kja \u00fea\u00f0 til Reykjav\u00edkur, sem haf\u00f0i mikinn kostna\u00f0<br \/>\n\u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r.<a href=\"#_edn17\"><sup><sup>[xvii]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>F\u00e1broti\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3ttal\u00edf og h\u00f6r\u00f0 kosningabar\u00e1tta<\/h4>\n<p>         \u00cd\u00fer\u00f3ttal\u00edfi\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i var frekar<br \/>\nf\u00e1broti\u00f0 og \u00f3\u00e1hugavert \u00e1ri\u00f0 1949. \u00dear sem framkv\u00e6mdir vi\u00f0 knattspyrnuv\u00f6llinn<br \/>\nh\u00f6f\u00f0u dregist \u00e1 langinn var s\u00fa \u00ed\u00fer\u00f3tt l\u00edti\u00f0 stundu\u00f0 \u00ed b\u00e6num \u00feetta \u00e1r. FH og<br \/>\nHaukar sendu sameiginleg li\u00f0 undir merkjum \u00cdBH \u00e1 \u00cdslandsm\u00f3tin \u00ed karla- og<br \/>\nkvennaflokki \u00ed handknattleik en b\u00e1\u00f0um li\u00f0unum gekk illa. Lj\u00f3si punkturinn \u00ed<br \/>\n\u00ed\u00fer\u00f3ttas\u00f6gu b\u00e6jarins \u00feetta \u00e1ri\u00f0 var \u00cdslandsmet FH-ingsins Sigur\u00f0ar<br \/>\nFri\u00f0finnssonar \u00ed tug\u00feraut og endurvakning Sundmeistaram\u00f3ts Hafnarfjar\u00f0ar.<a href=\"#_edn18\">[xviii]<\/a>. Um hausti\u00f0 var kosi\u00f0 til Al\u00feingis og<br \/>\nvar kosningabar\u00e1ttan h\u00f6r\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i. St\u00f3\u00f0 bar\u00e1ttan einna helst \u00e1 milli<br \/>\nEmils J\u00f3nssonar frambj\u00f3\u00f0enda Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins og Ing\u00f3lfs Flygenring frambj\u00f3\u00f0enda<br \/>\nSj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins. Kosninga\u00fe\u00e1tttakan \u00ed Hafnarfir\u00f0i var mj\u00f6g g\u00f3\u00f0 a\u00f0 \u00feessu<br \/>\nsinni, r\u00e9tt um 92% og f\u00f3r svo a\u00f0 Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkurinn og Emil h\u00f6f\u00f0u betur og<br \/>\nhrepptu \u00feings\u00e6ti Hafnarfjar\u00f0ar. \u00deess m\u00e1 \u00fe\u00f3 geta a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feennan sigur<br \/>\nEmils \u00fe\u00e1 tapa\u00f0i flokkurinn t\u00f6luver\u00f0u fylgi fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu kosningum og<br \/>\nSj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn j\u00f3k fylgi sitt st\u00f3rlega, \u00fe\u00f3 ekki n\u00e6gilega til a\u00f0<br \/>\nframbj\u00f3\u00f0andi \u00feeirra hlyti kosningu. Skemmst er \u00fe\u00f3 fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir<br \/>\nflokkarnir l\u00fdstu yfir sigri, annar fyrir a\u00f0 hreppa \u00feings\u00e6ti\u00f0 en hinn fyrir<br \/>\nst\u00f3rauki\u00f0 fylgi fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu kosningum.<a href=\"#_edn19\"><sup><sup>[xix]<\/sup><\/sup><\/a><\/p>\n<h4>Sk\u00f6mmtun \u00e1 rj\u00f3ma fyrir j\u00f3lin<\/h4>\n<p>         \u00deegar l\u00ed\u00f0a f\u00f3r a\u00f0 j\u00f3lum var birt<br \/>\ntilkynning \u00ed dagbl\u00f6\u00f0unum um sk\u00f6mmtun \u00e1 rj\u00f3ma. \u00dear sag\u00f0i: \u201eJ\u00f3larj\u00f3minn sem<br \/>\nseldur ver\u00f0ur \u00ed mj\u00f3lkurb\u00fa\u00f0unum hjer \u00ed Reykjav\u00edk, \u00ed Hafnarfir\u00f0i og Su\u00f0urnesjum \u00e1<br \/>\nmorgun, ver\u00f0ur allur skammta\u00f0ur. Mj\u00f3lkursk\u00f6mmtunarreitur nr. 40 ver\u00f0ur nota\u00f0ur<br \/>\ntil rj\u00f3makaupa og ver\u00f0ur gegn honum afhentur einn desil\u00edtri, eftir \u00fev\u00ed sem<br \/>\nrj\u00f3mabirg\u00f0irnar endast. Rj\u00f3minn kemur allur a\u00f0 nor\u00f0an og l\u00e6tur n\u00e6rri a\u00f0 \u00fea\u00f0<br \/>\nsjeu um 7.000 pottar.\u201c<a href=\"#_edn20\">[xx]<\/a>. A\u00f0 lokum er r\u00e9tt a\u00f0 segja fr\u00e1<br \/>\nj\u00f3lamyndunum sem s\u00fdndar voru \u00ed hafnfirsku kvikmyndah\u00fasunum fyrir j\u00f3lin 1949. \u00cd<br \/>\nB\u00e6jarb\u00ed\u00f3i var s\u00fdnd myndin \u201e\u00cdrska villir\u00f3sin\u201c sem s\u00f6g\u00f0 var vera br\u00e1\u00f0skemmtileg<br \/>\nog falleg amer\u00edsk s\u00f6ngva- og gamanmynd \u00ed e\u00f0lilegum litum en \u00ed Hafnarfjar\u00f0arb\u00ed\u00f3<br \/>\nvar s\u00fdnd s\u00f6ngvamyndin \u201e\u00derj\u00e1r r\u00f6skar systur\u201c. \u00dear var brug\u00f0i\u00f0 upp vi\u00f0kv\u00e6mum og torskildum<br \/>\n\u00e1starharmi sem leysist \u00fe\u00f3 \u00e1 skemmtilegan og \u00e1hrifar\u00edkan h\u00e1tt, \u00f6llum til \u00e1n\u00e6gju.<a href=\"#_edn21\">[xxi]<\/a><\/p>\n<hr size=\"1\">\n<ul>\n<li><sub><a href=\"#_ednref1\">[i]<\/a><br \/>\nAl\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0, 08. 11. 1949, bls. 8<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref2\">[ii]<\/a> T\u00edminn,<br \/>\n15. 06. 1949, bls. 1<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref3\">[iii]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 18. 01. 1949, bls. 5<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref4\">[iv]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 18. 01. 1949, bls. 5<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref5\">[v]<\/a> T\u00edminn,<br \/>\n19. 01. 1949, bls. 8<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref6\">[vi]<\/a><br \/>\n\u00dej\u00f3\u00f0viljinn, 27. 01. 1949, bls. 8<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref7\">[vii]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 03. 05. 1949, bls. 10<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref8\">[viii]<\/a><br \/>\nHamar, 16. 05. 1949, bls. 1<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref9\">[ix]<\/a> Hamar,<br \/>\n16. 05. 1949, bls. 2<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref10\">[x]<\/a><br \/>\nAl\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0, 29. 04. 1949, bls. 4<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref11\">[xi]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 23. 06. 1949, bls. 8<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref12\">[xii]<\/a> T\u00edminn,<br \/>\n16. 09. 1949, bls. 1<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref13\">[xiii]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 30. 06. 1949, bls. 13<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref14\">[xiv]<\/a><br \/>\nAl\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0, 21. 08. 1949, bls. 1 og 3<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref15\">[xv]<\/a> Hamar,<br \/>\n08. 08. 1949, bls. 4<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref16\">[xvi]<\/a><br \/>\nAl\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0, 29. 12. 1949, bls. 8<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref17\">[xvii]<\/a><br \/>\nAl\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0 Hafnarfjar\u00f0ar, 10. 12. 1949, bls. 5<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref18\">[xviii]<\/a> Saga<br \/>\nFH, bls. 68-69<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref19\">[xix]<\/a><br \/>\nAl\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0i\u00f0, 25. 10. 1949, bls. 1<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref20\">[xx]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 23. 12. 1949, bls. 1<\/sub><\/li>\n<li><sub><a href=\"#_ednref21\">[xxi]<\/a><br \/>\nMorgunbla\u00f0i\u00f0, 24. 12. 1949, bls. 13<\/sub><\/li>\n<\/ul>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00fa skemmtilega hef\u00f0 hefur skapast a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00f6llum \u00feeim Hafnfir\u00f0ingum sem eru 70 \u00e1ra \u00e1 \u00e1rinu til veislu \u00ed H\u00e1s\u00f6lum. H\u00e1tt \u00ed 100 Hafnfir\u00f0ingar m\u00e6ttu til sl\u00edkrar veislu s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn f\u00f6studag. \u00dear f\u00e9kk h\u00f3purinn kynningu \u00e1 \u00fej\u00f3nustu Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar \u00ed \u00fe\u00e1gu eldri borgara , fj\u00f6lbreyttu f\u00e9lagsstarfi hj\u00e1 F\u00e9lagi eldri borgara \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 hlusta \u00e1&nbsp;\u00e1hugaver\u00f0ar [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14017","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14017","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14017"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14017\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14017"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14017"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14017"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}