{"id":14152,"date":"2020-02-11T00:00:00","date_gmt":"2020-02-11T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/viljum-vinna-med-foreldrum\/"},"modified":"2022-10-25T09:02:45","modified_gmt":"2022-10-25T09:02:45","slug":"viljum-vinna-med-foreldrum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/viljum-vinna-med-foreldrum\/","title":{"rendered":"We want to work with parents"},"content":{"rendered":"<p><strong>Hlutverk  <a href=\"\/en\/ibuar\/felagsthjonusta\/child-protection\/\" class=\"internal\">barnaverndar<\/a>  er a\u00f0 tryggja a\u00f0 b\u00f6rn sem b\u00faa vi\u00f0 \u00f3vi\u00f0unandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur e\u00f0a b\u00f6rn sem stofna heilsu sinni og \u00feroska \u00ed h\u00e6ttu f\u00e1i nau\u00f0synlega a\u00f0sto\u00f0. Barnavernd leitast vi\u00f0 a\u00f0 styrkja fj\u00f6lskyldur \u00ed uppeldishlutverki s\u00ednu og beita \u00farr\u00e6\u00f0um til verndar einst\u00f6kum b\u00f6rnum \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0.  <a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/viljum-vinna-med-foreldrum\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">The town newspaper Hafnfir\u00f0ingur <\/a> hitti Helenu Unnarsd\u00f3ttur, deildarstj\u00f3ra <a href=\"\/en\/ibuar\/felagsthjonusta\/child-protection\/\" class=\"internal\"> barnaverndar hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6<\/a> , en \u00fear starfa 11 manns vi\u00f0 \u00feessi mikilv\u00e6gu og krefjandi verkefni. <\/strong><\/p>\n<p><em>\u201e\u00dea\u00f0 ber \u00f6llum skylda til a\u00f0 tilkynna til barnaverndar ef grunur leikur \u00e1 vanr\u00e6kslu, ofbeldi e\u00f0a sl\u00e6mum a\u00f0b\u00fana\u00f0i barna. F\u00f3lk \u00e1 a\u00f0 leyfa s\u00e9r a\u00f0 vera svol\u00edti\u00f0 forviti\u00f0 um hag barna og \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem \u00fea\u00f0 b\u00fdr vi\u00f0. \u00dea\u00f0 styrkir m\u00e1lin ef fleiri tilkynna \u00far \u00f3l\u00edkum \u00e1ttum. Vi\u00f0 st\u00f6rfum eftir l\u00f6gum og vi\u00f0 f\u00f6rum ekki \u00ed \u00farr\u00e6\u00f0i nema hafa kanna\u00f0 m\u00e1lin og reynum alltaf v\u00e6gustu \u00farr\u00e6\u00f0in fyrst. \u00deetta hefst allt \u00e1 tilkynningum sem okkur ber a\u00f0 taka afst\u00f6\u00f0u til innan sj\u00f6 daga,\u201c<\/em> segir Helena og \u00e1 \u00fe\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e1 s\u00e9 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 hvort kanna eigi m\u00e1li\u00f0 n\u00e1nar. Ef ekki, \u00fe\u00e1 f\u00e1i foreldrar sent br\u00e9f um a\u00f0 tilkynning hafi borist en ekki hafi veri\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 a\u00f0hafast nokku\u00f0 frekar en nokkur hluti tilkynninga fer ekki \u00ed k\u00f6nnun. <\/p>\n<p><strong>Me\u00f0fer\u00f0ar\u00e1\u00e6tlun og r\u00e1\u00f0gj\u00f6f<\/strong><\/p>\n<p>K\u00f6nnun \u00e1 ekki a\u00f0 taka lengri t\u00edma en \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i.<em> \u201eVi\u00f0 byrjum oftast \u00e1 a\u00f0 tala vi\u00f0 foreldra og f\u00e1 afst\u00f6\u00f0u \u00feeirra til tilkynningarinnar. Einnig r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 b\u00f6rnin og sko\u00f0a heimilisa\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Ef k\u00f6nnun lei\u00f0ir \u00ed lj\u00f3s misbrest \u00ed a\u00f0b\u00fana\u00f0i barna er ger\u00f0 \u00e1\u00e6tlun um me\u00f0fer\u00f0 m\u00e1ls, \u00ed ca. 3-6 m\u00e1nu\u00f0i, \u00fear sem eru tilgreind \u00feau \u00farr\u00e6\u00f0i sem \u00e6tlunin er a\u00f0 sty\u00f0ja foreldra og b\u00f6rn me\u00f0. Sem d\u00e6mi um \u00farr\u00e6\u00f0i m\u00e1 nefna tilsj\u00f3n inn \u00e1 heimili\u00f0 \u00fear sem foreldrum er lei\u00f0beint me\u00f0 t.d. me\u00f0 \u00e1kve\u00f0na r\u00fat\u00ednu, hvatningu, m\u00f6rk og fj\u00e1rm\u00e1l o.fl,\u201c<\/em> segir Helena og b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 oft f\u00e1st pers\u00f3nulegir r\u00e1\u00f0gjafar til a\u00f0 vera \u201est\u00f3ra systkini\u201c og kynna b\u00f6rnin fyrir n\u00fdjum t\u00f3mstundum e\u00f0a \u00e1hugam\u00e1lum. Stundum \u00fearf stu\u00f0ningsfj\u00f6lskyldur til a\u00f0 v\u00edkka \u00fat sj\u00f3ndeildarhring barnanna e\u00f0a hv\u00edla foreldrana, 1-2 helgar \u00ed m\u00e1nu\u00f0i. Helena og tekur fram a\u00f0 alltaf vanti g\u00f3\u00f0ar stu\u00f0ningsfj\u00f6lskyldur. <\/p>\n<p>Einnig s\u00e9 bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ivi\u00f0t\u00f6l, fj\u00f6lskyldume\u00f0fer\u00f0, foreldran\u00e1mskei\u00f0 eins og PMTO, MST sem er fj\u00f6lkerfame\u00f0fer\u00f0 fyrir b\u00f6rn me\u00f0 \u00e1h\u00e6ttuheg\u00f0un, me\u00f0fer\u00f0 og greiningu \u00e1 Stu\u00f0lum og eftirme\u00f0fer\u00f0.<em> \u201eEf vel tekst til er oft h\u00e6gt a\u00f0 loka m\u00e1lum \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. Ef allt er komi\u00f0 \u00ed \u00ferot er barn sett \u00ed t\u00edmabundi\u00f0 f\u00f3stur og \u00fe\u00e1 oftast me\u00f0 sam\u00feykki foreldra. Tilgangurinn er alltaf a\u00f0 barni\u00f0 fari heim aftur nema \u00feegar \u00feau fara \u00ed varanlegt f\u00f3stur, en oft fara b\u00f6rnin \u00ed f\u00f3stur til n\u00e1inna \u00e6ttingja og er ger\u00f0 \u00fattekt \u00e1 \u00feeim \u00e1\u00f0ur.\u201c <\/em><\/p>\n<p><strong>Oft miklar framfarir<\/strong><\/p>\n<p>Tilkynningar \u00e1ri\u00f0 2019 voru um 1100; oft s\u00f6mu atvik og s\u00f6mu b\u00f6rn. Um \u00feessar mundir er barnavernd me\u00f0 350-360 m\u00e1l \u00ed vinnslu og hver starfsma\u00f0ur er me\u00f0 30-40 m\u00e1l \u00e1 sinni k\u00f6nnu. Helena segir starfi\u00f0 vera fj\u00f6lbreytt og krefjandi en afar gefandi l\u00edka.<em> \u201eOft sj\u00e1um vi\u00f0 miklar framfarir og kraftaverk gerast. F\u00f3lk \u00e1 a\u00f0 treysta \u00e1 barnaverndina \u00fev\u00ed vi\u00f0 erum fyrst og fremst a\u00f0 sty\u00f0ja foreldra og b\u00f6rn. \u00dea\u00f0 er algj\u00f6rt ney\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i a\u00f0 st\u00eda fj\u00f6lskyldur \u00ed sundur og \u00feegar foreldrar eru sviptir forsj\u00e1,\u201c <\/em>segir Helena a\u00f0 endingu.<\/p>\n<\/p>\n<ul>\n<li><a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/viljum-vinna-med-foreldrum\/\"><strong>Vi\u00f0tal vi\u00f0 Helenu birtist \u00ed Hafnfir\u00f0ingi 9. febr\u00faar 2020<\/strong><\/a><\/li>\n<li><strong><a href=\"\/en\/province\/hafnarfjordur\/hladvarp\/\" class=\"internal\">Hlusta \u00e1 Vitann &#8211; spjall vi\u00f0 Helenu \u00ed hla\u00f0varpi Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar<\/a>&nbsp;<\/strong>&#8211; \u00fe\u00e1ttur 18<\/li>\n<\/ul><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hlutverk barnaverndar er a\u00f0 tryggja a\u00f0 b\u00f6rn sem b\u00faa vi\u00f0 \u00f3vi\u00f0unandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur e\u00f0a b\u00f6rn sem stofna heilsu sinni og \u00feroska \u00ed h\u00e6ttu f\u00e1i nau\u00f0synlega a\u00f0sto\u00f0. Barnavernd leitast vi\u00f0 a\u00f0 styrkja fj\u00f6lskyldur \u00ed uppeldishlutverki s\u00ednu og beita \u00farr\u00e6\u00f0um til verndar einst\u00f6kum b\u00f6rnum \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0. B\u00e6jarbla\u00f0i\u00f0 Hafnfir\u00f0ingur hitti Helenu Unnarsd\u00f3ttur, deildarstj\u00f3ra barnaverndar hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 , [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14152","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14152","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14152"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14152\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14152"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14152"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14152"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}