{"id":14217,"date":"2020-03-19T00:00:00","date_gmt":"2020-03-19T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/verdum-sterkara-og-samraemdara-samfelag\/"},"modified":"2022-10-25T09:02:58","modified_gmt":"2022-10-25T09:02:58","slug":"verdum-sterkara-og-samraemdara-samfelag","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/verdum-sterkara-og-samraemdara-samfelag\/","title":{"rendered":"Let's become a stronger and more united community."},"content":{"rendered":"<p><strong>\u00cd fyrsta sinn \u00ed \u00cdslandss\u00f6gunni var sett \u00e1 samkomubann \u00e1 mi\u00f0n\u00e6tti sl. sunnudag, \u00ed 4 vikur, sem hefur v\u00ed\u00f0t\u00e6k \u00e1hrif \u00e1 samf\u00e9lagi\u00f0. \u00cd st\u00f3rum verkefnum sem sl\u00edkum reynir \u00e1 ney\u00f0arstj\u00f3rnir sveitarf\u00e9laganna sem starfa \u00fat fr\u00e1 \u00e1\u00e6tlun sem unnin er \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 stigskiptingu og tilm\u00e6li almannavarna. Ney\u00f0arstj\u00f3rn Hafnarfjar\u00f0ar fundar um \u00feessar mundir daglega og er skipu\u00f0 svi\u00f0sstj\u00f3rum og lykilstj\u00f3rnendum b\u00e6jarf\u00e9lagsins. <a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/verdum-sterkara-og-samrymdara-samfelag\/?fbclid=IwAR09voUV8jRNkAE_cgPzUKedYYlXeioLd8Hxw1tf9Pcc8GxYlU3p03BD12c\">B\u00e6jarbla\u00f0i\u00f0 Hafnfir\u00f0ingur r\u00e6ddi vi\u00f0 R\u00f3su Gu\u00f0bjartsd\u00f3ttur b\u00e6jarstj\u00f3ra.<\/a> <\/strong><\/p>\n<p>\u201eNey\u00f0arstj\u00f3rn er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 samr\u00e6ma uppl\u00fdsingar og bo\u00f0lei\u00f0ir innan sveitarf\u00e9lagsins \u00feegar ney\u00f0ar\u00e1stand skapast, virkja vi\u00f0brag\u00f0s\u00e1\u00e6tlanir, forgangsra\u00f0a verkefnum, tryggja almannaheill og l\u00e1gmarka m\u00f6gulegt tj\u00f3n,\u201c segir R\u00f3sa. Fari\u00f0 s\u00e9 yfir st\u00f6\u00f0una, hvernig hlutirnir eru a\u00f0 ganga, hvar \u00fearf a\u00f0 b\u00e6ta og laga og teknar eru \u00e1kvar\u00f0anir me\u00f0 heill og hag einstaklinganna og samf\u00e9lagsins \u00ed huga. \u201eMest reynir \u00fe\u00f3 \u00e1 \u00fea\u00f0 fr\u00e1b\u00e6ra starfsf\u00f3lk sem starfar hj\u00e1 b\u00e6jarf\u00e9laginu. M\u00e9r er efst \u00ed huga miki\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti til \u00feeirra allra, ekki s\u00edst \u00feeirra sem a\u00f0 undanf\u00f6rnu hafa lagt n\u00f3tt vi\u00f0 dag vi\u00f0 a\u00f0 tryggja velfer\u00f0 vi\u00f0kv\u00e6mustu einstaklinganna \u00ed samf\u00e9laginu, sem og \u00ed sk\u00f3lakerfinu, enda er mikil \u00e1skorun \u00fear a\u00f0 l\u00e1ta hlutina ganga upp hj\u00e1 \u00fe\u00fasundum sk\u00f3labarna \u00ed takti vi\u00f0 \u00feau fyrirm\u00e6li sem heilbrig\u00f0isyfirv\u00f6ld og almannavarnir hafa gefi\u00f0.\u201c<\/p>\n<p><strong>Allir a\u00f0 gera sitt besta <\/strong><\/p>\n<p>Spur\u00f0 um hvernig s\u00e9 a\u00f0 vera b\u00e6jarstj\u00f3ri \u00e1 svona t\u00edmum segir R\u00f3sa \u00fe\u00e1 sannarlega vera \u00f3venjulega og tekist s\u00e9 \u00e1 vi\u00f0 m\u00f6rg krefjandi verkefni. \u201eVissulega er \u00ed m\u00f6rg horn a\u00f0 l\u00edta hj\u00e1 b\u00e6jarstj\u00f3ra eins og flestum \u00f6\u00f0rum. Vi\u00f0fangsefni\u00f0 er a\u00f0 g\u00e6ta a\u00f0 l\u00edfi, heilsu og velfer\u00f0 okkar allra \u00e1 sama t\u00edma og reynt er a\u00f0 tryggja l\u00f6gbundna \u00fej\u00f3nustu sveitarf\u00e9lagsins eins og h\u00e6gt er \u00ed \u00feessum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ldum r\u00f3 okkar, sn\u00faum b\u00f6kum saman, verum j\u00e1kv\u00e6\u00f0 og vong\u00f3\u00f0 og h\u00f6fum skynsemina a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si. S\u00fdnum umhyggju, n\u00e6rg\u00e6tni og umbur\u00f0arlyndi gagnvart \u00fev\u00ed sem sagt er e\u00f0a \u00f3sagt er. \u00dea\u00f0 eru allir a\u00f0 gera sitt besta og miklu meira en \u00fea\u00f0. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 sk\u00edna sterkt \u00ed gegn \u00ed \u00f6llum vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um f\u00f3lks \u00ed okkar \u00f6fluga samf\u00e9lagi h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i.\u201c<\/p>\n<p><strong>Frelsi\u00f0 ekki sj\u00e1lfgefi\u00f0 og undirsta\u00f0a l\u00edfsg\u00e6\u00f0a<\/strong><\/p>\n<p>V\u00ed\u00f0a hafa komi\u00f0 fram sko\u00f0anir f\u00f3lks \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 t\u00edmar eins og \u00feessir komi til me\u00f0 a\u00f0 breyta hugarfari og venjum f\u00f3lks. A\u00f0spur\u00f0 tekur R\u00f3sa undir \u00fea\u00f0 og segist strax sj\u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00ednu n\u00e1nasta umhverfi. \u201e\u00deetta minnir okkur meira en nokkru sinni \u00e1 hve heilsan er d\u00fdrm\u00e6t og hva\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fea\u00f0 gott \u00e1 \u00cdslandi. Frelsi\u00f0 sem vi\u00f0 b\u00faum vi\u00f0 h\u00e9r er ekki sj\u00e1lfgefi\u00f0, en \u00fea\u00f0 er undirsta\u00f0a \u00feeirra l\u00edfsg\u00e6\u00f0a sem vi\u00f0 h\u00f6fum sem \u00fej\u00f3\u00f0. \u00deetta \u00e1 unga f\u00f3lki\u00f0 okkar, sem \u00feekkir ekkert anna\u00f0 en a\u00f0 geta gengi\u00f0 a\u00f0 hlutunum sem sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um, eftir a\u00f0 finna beint \u00e1 eigin skinni. Finna hve mikilv\u00e6gt er a\u00f0 allir \u00fe\u00e6ttir samf\u00e9lagsins virki, enda eru \u00feeir undirsta\u00f0a \u00feeirra velfer\u00f0ar og n\u00fat\u00edmal\u00edfs sem vi\u00f0 \u00feekkjum og viljum.\u201c Jafnframt upplifi \u00fej\u00f3\u00f0in mikla samkennd og hj\u00e1lpsemi sem komi fram \u00ed \u00fdmsum myndum. \u201eM\u00e9r er ofarlega \u00ed huga eldra f\u00f3lk sem erfitt er a\u00f0 geta ekki heims\u00f3tt og a\u00f0 vita af \u00fev\u00ed kannski einmana \u00ed \u00feessum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. Innan Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar er veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 finna lei\u00f0ir til a\u00f0 koma til m\u00f3ts vi\u00f0 \u00fe\u00e1 einstaklinga. Einnig er lj\u00f3st a\u00f0 heilmikil reynsla mun koma \u00fat \u00far notkun t\u00e6kninnar, til d\u00e6mis hva\u00f0 fjarfundi og fjarkennslu var\u00f0ar. Vi\u00f0 munum nota sl\u00edkt \u00ed mun meira m\u00e6li eftir \u00feetta t\u00edmabil. \u00dea\u00f0 hefur mikil umhverfisleg og hagr\u00e6n \u00e1hrif \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu.\u201c<\/p>\n<p><strong>Vill sj\u00e1 umtalsver\u00f0a l\u00e6kkun tryggingargjalds <\/strong><\/p>\n<p>Spur\u00f0 hvernig h\u00fan sj\u00e1i fyrir s\u00e9r samf\u00e9lagi\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i r\u00edsa \u00e1 n\u00fd eftir \u00feetta t\u00edmabil, tr\u00fair R\u00f3sa a\u00f0 \u00fev\u00ed muni fylgja miki\u00f0 l\u00e6rd\u00f3msferli. \u201eN\u00fa er verkefni\u00f0 a\u00f0 hl\u00edta fyrirm\u00e6lum yfirvalda og ber hver og einn \u00e1byrg\u00f0 \u00ed \u00feeim efnum. Efnahagsleg \u00e1hrif ver\u00f0a mikil en greining \u00e1 m\u00f6gulegum fj\u00e1rhagslegum \u00e1hrifum er hafin \u00e1 vettvangi sveitarf\u00e9laga og r\u00edkisins. \u00c9g hef tala\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed og n\u00fa sem aldrei fyrr a\u00f0 umtalsver\u00f0 l\u00e6kkun tryggingargjalds er eitthva\u00f0 sem myndi n\u00fdtast sveitarf\u00e9l\u00f6gunum vel eins og \u00f6llum \u00f6\u00f0rum vinnuveitendum.\u201c \u00de\u00f3tt tekjur dragist saman s\u00e9 gr\u00ed\u00f0arlega mikilv\u00e6gt a\u00f0 opinberir a\u00f0ilar geri allt hva\u00f0 h\u00e6gt er til a\u00f0 halda framkv\u00e6mdum og sl\u00edku \u00e1fram. \u201eVi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 leggja okkar af m\u00f6rkum til a\u00f0 hj\u00f3l atvinnul\u00edfsins haldi \u00e1fram a\u00f0 sn\u00faast. \u00dea\u00f0 er mikil \u00f3vissa r\u00edkjandi en \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 ganga \u00ed gegnum dal \u00fe\u00e1 vonum vi\u00f0 a\u00f0 hann ver\u00f0i ekki \u00fdkja dj\u00fapur n\u00e9 langvinnur. En \u00f3ttumst ekki \u2013 og vori\u00f0 er handan vi\u00f0 horni\u00f0. Nj\u00f3tum samskipta vi\u00f0 okkar n\u00e1nustu, gerum skemmtilega hluti saman, lesum, eldum hollan mat, spilum, prj\u00f3num, r\u00e6ktum, huglei\u00f0um, nj\u00f3tum \u00fativeru og hreyfum okkur. Saman komumst vi\u00f0 \u00fat \u00far \u00feessu sterkari og samr\u00fdmdari en nokkru sinni.\u201c<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/verdum-sterkara-og-samrymdara-samfelag\/?fbclid=IwAR09voUV8jRNkAE_cgPzUKedYYlXeioLd8Hxw1tf9Pcc8GxYlU3p03BD12c\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 R\u00f3su birtist \u00ed Hafnfir\u00f0ingi 19. mars 2020<\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fyrsta sinn \u00ed \u00cdslandss\u00f6gunni var sett \u00e1 samkomubann \u00e1 mi\u00f0n\u00e6tti sl. sunnudag, \u00ed 4 vikur, sem hefur v\u00ed\u00f0t\u00e6k \u00e1hrif \u00e1 samf\u00e9lagi\u00f0. \u00cd st\u00f3rum verkefnum sem sl\u00edkum reynir \u00e1 ney\u00f0arstj\u00f3rnir sveitarf\u00e9laganna sem starfa \u00fat fr\u00e1 \u00e1\u00e6tlun sem unnin er \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 stigskiptingu og tilm\u00e6li almannavarna. Ney\u00f0arstj\u00f3rn Hafnarfjar\u00f0ar fundar um \u00feessar mundir daglega og er [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14217","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14217","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14217"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14217\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14217"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14217"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14217"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}