{"id":14243,"date":"2020-04-03T00:00:00","date_gmt":"2020-04-03T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/timi-til-ad-lesa-setjum-fyrsta-heimsmetid-i-lestri\/"},"modified":"2022-10-25T09:03:04","modified_gmt":"2022-10-25T09:03:04","slug":"timi-til-ad-lesa-setjum-fyrsta-heimsmetid-i-lestri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/timi-til-ad-lesa-setjum-fyrsta-heimsmetid-i-lestri\/","title":{"rendered":"Time to read: Let's set the first world record for reading"},"content":{"rendered":"<h4>R\u00e6ktum lesandann og setjum fyrsta heimsmeti\u00f0 \u00ed lestri<\/h4>\n<section>\n<p> <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/efst-a-baugi\/frettir\/stok-frett\/2020\/04\/01\/Timi-til-ad-lesa-Raektum-lesandann-og-setjum-fyrsta-heimsmetid-i-lestri\/\">Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0<\/a>  hleypti \u00feann 1. apr\u00edl af stokkunum lestrarverkefni fyrir \u00fej\u00f3\u00f0ina, \u00fear sem b\u00f6rn og fullor\u00f0nir eru hv\u00f6tt til a\u00f0 n\u00fdta til lesturs \u00feann t\u00edma sem gefst vi\u00f0 n\u00faverandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n<p><strong>Vi\u00f0 hvetjum Hafnfir\u00f0inga og vini Hafnarfjar\u00f0ar til virkrar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku<\/strong><\/p>\n<p>Lestur er s\u00e9rstaklega mikilv\u00e6gur fyrir b\u00f6rn, enda r\u00e6\u00f0st n\u00e1ms\u00e1rangur barna a\u00f0 st\u00f3rum hluta af lesskilningi sem eykst me\u00f0 auknum lestri. Lestur veitir fullor\u00f0num \u00f6rvandi hv\u00edld fr\u00e1 amstri og \u00e1hyggjum dagsins og me\u00f0 lestri aukum vi\u00f0 saman veg \u00edslenskrar tungu. Or\u00f0afor\u00f0i eykst, n\u00fdjar hugmyndir kvikna, skilningur \u00e1 lesm\u00e1li batnar og \u00feannig skilningur \u00e1 heiminum \u00f6llum. \u00de\u00e1 sty\u00f0ur aukinn lestur vi\u00f0 skapandi st\u00f6rf rith\u00f6funda og \u00fe\u00fd\u00f0enda. \u00dev\u00ed meira sem vi\u00f0 lesum \u00fev\u00ed betra!<\/p>\n<h4>T\u00edmi til a\u00f0 lesa &#8211; skr\u00e1um alla lestur \u00e1  <a href=\"https:\/\/timitiladlesa.is\/\">www.timitiladlesa.is&nbsp;&nbsp;<\/a> <\/h4>\n<p>Lestrarverkefni\u00f0 kallast <strong>T\u00edmi til a\u00f0 lesa<\/strong>. Heiti\u00f0 er dregi\u00f0 af a\u00f0st\u00e6\u00f0unum sem n\u00fa eru uppi, \u00fear sem margir hafa meiri t\u00edma en \u00e1\u00f0ur til a\u00f0 lesa og \u00fe\u00f6rfin fyrir hugarleikfimi hefur sjaldan veri\u00f0 meiri. \u00c1rangurinn er m\u00e6ldur \u00ed t\u00edma, \u00fear sem \u00cdslendingar eru hvattir til a\u00f0 skr\u00e1 allan sinn lestur \u00e1 vefs\u00ed\u00f0unni <strong><a href=\"https:\/\/timitiladlesa.is\/\">timitiladlesa.is<\/a><\/strong>. \u00dear geta \u00fe\u00e1tttakendur l\u00edka fylgst me\u00f0 sameiginlegum lestri \u00fej\u00f3\u00f0arinnar fr\u00e1 degi til dags. \u00c1 n\u00e6stu fj\u00f3rum vikum munu \u00fear safnast upp \u00fdmsar uppl\u00fdsingar um lestur, hugmyndir a\u00f0 lesefni fyrir \u00f3l\u00edka aldursh\u00f3pa, hvatningarmyndb\u00f6nd fr\u00e1 rith\u00f6fundum og \u00f6\u00f0rum sem segja okkur hva\u00f0 og hvar \u00feeim finnst gaman a\u00f0 lesa.<\/p>\n<h4>Verkefni\u00f0 stendur til 30. apr\u00edl &#8211; saman getum vi\u00f0 sett heimsmet!<\/h4>\n<p>Verkefni\u00f0 mun standa til 30. apr\u00edl og a\u00f0 \u00fev\u00ed loknu munum vi\u00f0 freista \u00feess a\u00f0 f\u00e1 afraksturinn skr\u00e1\u00f0an \u00ed Heimsmetab\u00f3k Guinness. Sl\u00edkt hefur ekki veri\u00f0 gert \u00e1\u00f0ur og \u00fev\u00ed yr\u00f0i h\u00e9r um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a fyrsta heimsmet sinnar tegundar. Meti\u00f0 g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 vi\u00f0mi\u00f0 annarra \u00fej\u00f3\u00f0a, e\u00f0a okkar sj\u00e1lfra til a\u00f0 b\u00e6ta me\u00f0 t\u00ed\u00f0 og t\u00edma. Umgj\u00f6r\u00f0 og \u00fatlit verkefnisins tekur mi\u00f0 af markmi\u00f0inu, \u00fear sem \u00e6tlunin er a\u00f0 virkja keppnisskap \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Merki verkefnisins svipar til merkja \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9laga, keppnistreyjur ver\u00f0a veittar heppnum \u00fe\u00e1tttakendum \u00ed lok verkefnisins og leita\u00f0 ver\u00f0ur samstarfs v\u00ed\u00f0a til a\u00f0 virkja sem flesta.&nbsp;<\/p>\n<p>Ef vel tekst til, g\u00e6ti verkefni\u00f0 or\u00f0i\u00f0 g\u00f3\u00f0ur vitnisbur\u00f0ur b\u00f3ka\u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00cdslendinga!<\/p>\n<p><strong>Lestur er l\u00edfsins leikur!<\/strong><\/p>\n<\/section>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>R\u00e6ktum lesandann og setjum fyrsta heimsmeti\u00f0 \u00ed lestri Mennta- og menningarm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 hleypti \u00feann 1. apr\u00edl af stokkunum lestrarverkefni fyrir \u00fej\u00f3\u00f0ina, \u00fear sem b\u00f6rn og fullor\u00f0nir eru hv\u00f6tt til a\u00f0 n\u00fdta til lesturs \u00feann t\u00edma sem gefst vi\u00f0 n\u00faverandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Vi\u00f0 hvetjum Hafnfir\u00f0inga og vini Hafnarfjar\u00f0ar til virkrar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku Lestur er s\u00e9rstaklega mikilv\u00e6gur fyrir b\u00f6rn, enda [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14243","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14243","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14243"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14243\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14243"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14243"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14243"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}