{"id":14305,"date":"2020-05-25T00:00:00","date_gmt":"2020-05-25T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/barnamenning-blomstrar-uthlutun-barnamenningarsjods\/"},"modified":"2022-10-25T09:03:14","modified_gmt":"2022-10-25T09:03:14","slug":"barnamenning-blomstrar-uthlutun-barnamenningarsjods","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/barnamenning-blomstrar-uthlutun-barnamenningarsjods\/","title":{"rendered":"Children's culture flourishes \u2013 42 projects receive funding"},"content":{"rendered":"<p><strong>Barnamenning bl\u00f3mstrar \u2013 tv\u00f6 verkefni tengd Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 hlj\u00f3ta styrk <\/strong><\/p>\n<p>Allocation  <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/efst-a-baugi\/frettir\/stok-frett\/2020\/05\/24\/Barnamenning-blomstrar-41-verkefni-hlytur-styrk-ur-Barnamenningarsjodi-Islands\/\">Barnamenningarsj\u00f3\u00f0s \u00cdslands<\/a>  f\u00f3r fram \u00ed g\u00e6r og hlutu 42 verkefni styrk \u00far sj\u00f3\u00f0num \u00ed \u00e1r. \u00deetta var \u00f6nnur \u00fathlutun sj\u00f3\u00f0sins sem stofna\u00f0ur var \u00ed tilefni aldarafm\u00e6lis fullveldisins. Sj\u00f3\u00f0urinn hefur \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 fj\u00f6lbreytta starfsemi \u00e1 svi\u00f0i barnamenningar me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 sk\u00f6pun, listir og virka \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku barna \u00ed menningarl\u00edfinu. Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r f\u00e9kk styrk \u00ed verkefni\u00f0 B\u00e6jarstj\u00f3rn unga f\u00f3lksins, hlutverkaleik sem tengist s\u00fdningu listamannatv\u00edeykisins \u00d3lafs \u00d3lafssonar og Libiu Castro sem ver\u00f0ur sett upp \u00ed Hafnarborg \u00ed vetur. Anna\u00f0 verkefni, FLY \u2013 \u00cdsland 2, sem tengist \u00feremur grunnsk\u00f3lum \u00ed sveitarf\u00e9laginu hlaut einnig styrk.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/barnamenningarhatid_hopur.jpg\" alt=\"Barnamenningarhatid_hopur\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1920px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1920\/1280;\"><sup>Barnamenning bl\u00f3mstrar: 42 verkefni hlj\u00f3ta styrk \u00far Barnamenningarsj\u00f3\u00f0i \u00cdslands. Mynd: Stj\u00f3rnarr\u00e1\u00f0i\u00f0&nbsp;<\/sup><\/p>\n<p>Alls b\u00e1rust 112 ums\u00f3knir \u00ed \u00e1r og er \u00e1hersla l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 verkefnin m\u00e6ti fj\u00f6lbreyttum \u00fe\u00f6rfum barna og ungmenna. \u00cd \u00fev\u00ed skyni er til a\u00f0 mynda horft til aldurs, uppruna, f\u00e6rni, efnahags og b\u00fasetu. \u00de\u00e1 tekur \u00fathlutun sj\u00f3\u00f0sins einni mi\u00f0 af \u00e1herslu n\u00fagildandi menningarstefnu \u00e1 samstarf stofnana, sk\u00f3la, f\u00e9lagasamtaka og einstaklinga.<\/p>\n<p><strong>Um B\u00e6jarstj\u00f3rn unga f\u00f3lksins<\/strong><\/p>\n<p>B\u00e6jarstj\u00f3rn unga f\u00f3lksins er hlutverkaleikur fyrir einn \u00e1rgang \u00far grunnsk\u00f3lum Hafnarfjar\u00f0ar \u00fear sem unga f\u00f3lki\u00f0 setur sig \u00ed hlutverk b\u00e6jarfulltr\u00faa \u00ed einn dag og vinnur me\u00f0 m\u00e1lefni sem \u00feau velja sj\u00e1lf. Verkefni\u00f0 tengist s\u00fdningu listamannatv\u00edeykisins \u00d3lafs \u00d3lafssonar og Libiu Castro sem ver\u00f0ur sett upp \u00ed Hafnarborg \u00ed vetur \u00fear sem stj\u00f3rnarskr\u00e1 l\u00fd\u00f0veldisins \u00cdslands er til umfj\u00f6llunar en undanfarin 10 \u00e1r hafa \u00feau unni\u00f0 me\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1na og tj\u00e1ningarfrelsi\u00f0 \u00ed verkum s\u00ednum.<\/p>\n<p>Verkefni\u00f0 stu\u00f0lar a\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegri virkni barna \u00ed samf\u00e9laginu me\u00f0 virkri tengingu vi\u00f0 menningarl\u00edf. \u00cd verkefninu f\u00e1 b\u00f6rnin t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 kynna s\u00e9r s\u00fdningu \u00fear sem sko\u00f0a\u00f0 er hvernig stj\u00f3rnarskr\u00e1 og tj\u00e1ningarfrelsi eru undirsta\u00f0a l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is \u00ed \u00edslensku samf\u00e9lagi. \u00cd 12. grein Barnas\u00e1ttm\u00e1la S\u00de er b\u00f6rnum trygg\u00f0ur r\u00e9ttur til a\u00f0 l\u00e1ta sko\u00f0anir s\u00ednar \u00ed lj\u00f3s \u00ed \u00f6llum m\u00e1lum er \u00feau var\u00f0a og \u00ed verkefninu ver\u00f0ur unni\u00f0 me\u00f0 raunverulegar hugmyndir \u00feeirra og \u00feeim komi\u00f0 til skila til yfirvalda. L\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isleg vinnubr\u00f6g\u00f0 eru \u00ed fyrsta s\u00e6ti yfir \u00fea\u00f0 sem ungmennin eiga a\u00f0 \u00f6\u00f0last betri skilning \u00e1 \u00ed verkefninu en a\u00f0 auki er markmi\u00f0 verkefnisins a\u00f0 efla skilning nemenda \u00e1 stj\u00f3rnskipulagi Hafnarfjar\u00f0arkaupsta\u00f0ar, st\u00f6rfum b\u00e6jarstj\u00f3rnar og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegum vinnubr\u00f6g\u00f0um. Fulltr\u00faar \u00ed Ungmennar\u00e1\u00f0i Hafnarfjar\u00f0ar munu vera til r\u00e1\u00f0gjafar vi\u00f0 undirb\u00faning og muni a\u00f0 lokum fullvinna og kynna \u00fe\u00e6r till\u00f6gur sem unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn unga f\u00f3lksins fyrir b\u00e6jarstj\u00f3rn Hafnarfjar\u00f0ar. Mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 a\u00f0 fyrsti h\u00f3purinn komi 15. okt\u00f3ber \u00e1 degi borgaravitundar og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is en Evr\u00f3pur\u00e1\u00f0i\u00f0 hvetur sveitarf\u00e9l\u00f6g \u00ed a\u00f0ildarr\u00edkjum s\u00ednum til skipuleggja l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isviku \u00ed kringum \u00feann dag en sama dag \u00e1ri\u00f0 1985 var Evr\u00f3pus\u00e1ttm\u00e1li um sj\u00e1lfstj\u00f3rn sveitarf\u00e9laga opna\u00f0ur til undirritunar.<\/p>\n<p><strong>Um FLY \u2013 \u00cdsland 2<\/strong><\/p>\n<p>FLY \u2013 \u00cdSLAND 2 er framhald verkefnis sem mi\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 innlei\u00f0a n\u00fdjar kennslua\u00f0fer\u00f0ir \u00e1 svi\u00f0i sj\u00f3nr\u00e6nnar s\u00f6guger\u00f0ar \u00ed grunnsk\u00f3lum. Verkefni\u00f0 byggir \u00e1 vinnustofum fyrir kennara og nemendur \u00feeirra, \u00e1samt ger\u00f0 kennsluefnis og mi\u00f0lun \u00feekkingar og reynslu af samb\u00e6rilegu verkefni \u00ed Danm\u00f6rku.  <a href=\"\/en\/province\/news\/althjodlegt-fly-verkefni-sem-ytir-undir-kvikmyndalaesi\/\" class=\"internal\">Fyrsti hluti verkefnisins f\u00e9kk stu\u00f0ning fr\u00e1 Barnamenningarsj\u00f3\u00f0i 2019.<\/a>  \u00dea\u00f0 er Ari Hlynur Gu\u00f0mundsson Yates \u00ed samstarfi vi\u00f0 The Animation Workshop\/VIA University College \u00ed Viborg, Listkennsludeild LH\u00cd, L\u00e6kjarsk\u00f3la, Setbergssk\u00f3la og Hraunvallask\u00f3la \u00ed Hafnarfir\u00f0i, Gar\u00f0ask\u00f3la \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6, Fellask\u00f3la \u00ed Reykjav\u00edk og Landvernd sem s\u00f3tti um styrk \u00ed verkefni\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deannig hafa nemendur m.a. \u00ed L\u00e6kjarsk\u00f3la, Setbergssk\u00f3la og Hraunvallask\u00f3la \u00feegar teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed vinnustofu um stuttmyndager\u00f0 me\u00f0 Martin Spenner fr\u00e1 Lommefilm og \u00fear me\u00f0 \u00ed \u00feessu al\u00fej\u00f3\u00f0lega FLY-verkefni sem vill h\u00f6f\u00f0a til og nota kvikmyndal\u00e6si \u00ed kennslu barna og unglinga. FLY skammst\u00f6funin stendur fyrir Fly Littercy Years. Rekja m\u00e1 uppruna FLY samstarfsverkefnisins til Danmerkur en verkefni\u00f0 teygir anga s\u00edna v\u00ed\u00f0a og hefur veri\u00f0 a\u00f0 ry\u00f0ja s\u00e9r til r\u00fams \u00e1 \u00cdslandi s\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0i og \u00e1r. Hafin er uppbygging samstarfsnets kennara \u00e1 \u00cdslandi sem tengist al\u00fej\u00f3\u00f0legu neti kennara me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 deila a\u00f0fer\u00f0um sem n\u00fdta stutt- og hreyfimyndager\u00f0 sem verkf\u00e6ri og a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i \u00ed kennslu.&nbsp;<\/p>\n<p> <a href=\"http:\/\/dev.animatedlearning.dk\/fly\/\">N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um FLY &#8211; verkefni\u00f0<\/a> <\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Barnamenning bl\u00f3mstrar \u2013 tv\u00f6 verkefni tengd Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 hlj\u00f3ta styrk \u00dathlutun Barnamenningarsj\u00f3\u00f0s \u00cdslands f\u00f3r fram \u00ed g\u00e6r og hlutu 42 verkefni styrk \u00far sj\u00f3\u00f0num \u00ed \u00e1r. \u00deetta var \u00f6nnur \u00fathlutun sj\u00f3\u00f0sins sem stofna\u00f0ur var \u00ed tilefni aldarafm\u00e6lis fullveldisins. Sj\u00f3\u00f0urinn hefur \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 fj\u00f6lbreytta starfsemi \u00e1 svi\u00f0i barnamenningar me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 sk\u00f6pun, listir og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":17573,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14305","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14305","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14305"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14305\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/17573"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14305"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14305"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14305"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}