{"id":14404,"date":"2020-09-04T00:00:00","date_gmt":"2020-09-04T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/karmelklaustrid-faer-heidurskjol-snyrtileikans-2020\/"},"modified":"2022-09-26T15:16:02","modified_gmt":"2022-09-26T15:16:02","slug":"karmelklaustrid-faer-heidurskjol-snyrtileikans-2020","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/karmelklaustrid-faer-heidurskjol-snyrtileikans-2020\/","title":{"rendered":"The Carmelite Monastery receives the 2020 Cleanliness Award"},"content":{"rendered":"<p><strong>Snyrtileikinn hei\u00f0ra\u00f0ur \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/strong><\/p>\n<p>Karmelklaustri\u00f0 vi\u00f0 \u00d6ldusl\u00f3\u00f0 hlaut hei\u00f0ursskj\u00f6ld Snyrtileikans 2020 sem afhentur var vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0lega ath\u00f6fn \u00ed Gr\u00f3\u00f0rarst\u00f6\u00f0inni \u00de\u00f6ll n\u00fa \u00ed vikulok. N\u00edu eigendur s\u00e9rb\u00fdlish\u00fasa fengu vi\u00f0urkenningar fyrir fallega og vel hirta gar\u00f0a og \u00fear af fengu tveir gar\u00f0ar s\u00e9rstaka hvatningarvi\u00f0urkenningu \u00fear sem \u00feeir eru me\u00f0 fyrstu g\u00f6r\u00f0unum sem eru tilb\u00fanir \u00ed Skar\u00f0shl\u00ed\u00f0inni, n\u00fdjasta \u00edb\u00fa\u00f0ahverfi Hafnarfjar\u00f0ar. S\u00f3lgar\u00f0ur a\u00f0 \u00d3seyrarbraut 27b f\u00e9kk vi\u00f0urkenningu fyrir a\u00f0 vera snyrtilegasti gar\u00f0urinn vi\u00f0 fyrirt\u00e6ki. S\u00f3lgar\u00f0ur b\u00fdr yfir fj\u00f6lbreyttu \u00farvali af gr\u00f3\u00f0ri og hinum \u00fdmsu tegundum af hellum og steinum sem er einstaklega k\u00e6rkomi\u00f0 \u00e1 annars gr\u00e1u sv\u00e6\u00f0i og ekki skemmir fyrir fallegt \u00fats\u00fdni yfir hvorutveggja Hvaleyri og l\u00f3n.<\/p>\n<p><strong>Birkiberg er stj\u00f6rnugatan er anna\u00f0 sinn \u2013 samsta\u00f0a um snyrtileika ekki sj\u00e1lfgefin<\/strong><\/p>\n<p>Stj\u00f6rnugatan \u00ed \u00e1r er Birkiberg. Einstaklega \u00e1n\u00e6gjulegt er a\u00f0 keyra \u00feessa fallegu g\u00f6tu \u00ed Setberginu og sj\u00e1 hversu vel \u00edb\u00faar standa saman a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda vi\u00f0 g\u00f6r\u00f0um \u00ed g\u00f6tunni, \u00fev\u00ed \u00e1ri\u00f0 2007 var \u00feessi gata einnig valin stj\u00f6rnugata. \u00dea\u00f0 er alveg sama hvert liti\u00f0 er alls sta\u00f0ar er snyrtimennskan til fyrirmyndar, gr\u00f3\u00f0urinn fj\u00f6lbreyttur og \u00f6ll g\u00f6tumynd virkilega falleg. Margir fallegir gar\u00f0ar eru \u00ed \u00feessari g\u00f6tu og f\u00e6r einmitt einn gar\u00f0ur g\u00f6tunnar einnig vi\u00f0urkenningu \u00ed \u00e1r. \u00dea\u00f0 er ekki sj\u00e1lfgefi\u00f0 a\u00f0 \u00edb\u00faar standi svo vel saman en \u00edb\u00faar Birkibergs f\u00e1 hr\u00f3s fyrir samst\u00f6\u00f0una og fyrir a\u00f0 vera fr\u00e1b\u00e6r fyrirmynd fyrir a\u00f0ra.<\/p>\n<p><strong>Hei\u00f0ursskj\u00f6ldinn f\u00e6r Karmelklaustri\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1939 stofnu\u00f0u hollenskar Karmelnunnur klaustur \u00ed Hafnarfir\u00f0i en 1984 t\u00f3ku Karmelnunnur fr\u00e1 P\u00f3llandi vi\u00f0 klaustrinu og eru \u00fe\u00e6r t\u00f3lf talsins \u00ed dag. \u00cd klausturgar\u00f0inum er yndislegur gar\u00f0ur sem nunnurnar hafa gert meira og minna sj\u00e1lfar. \u00cd mi\u00f0jum gar\u00f0i er Karmelfjall, en \u00fea\u00f0 fjall er \u00ed Palest\u00ednu og \u00e1 \u00feessu fjalli h\u00f3fst b\u00faseta einsetumanna sem lif\u00f0u samkv\u00e6mt skipulag\u00f0ri reglu sem var upphafi\u00f0 af reglunni eins og h\u00fan er \u00ed dag. Karmel \u00fe\u00fd\u00f0ir gar\u00f0ur. \u00c1 13. \u00f6ld breiddist Karmelreglan \u00fat um alla Evr\u00f3pu. Systurnar b\u00e1ru me\u00f0 s\u00e9r hinga\u00f0 til lands n\u00fdjungar \u00ed gr\u00e6nmetisr\u00e6ktun og voru \u00ed upphafi r\u00e6kta\u00f0ar gr\u00e6nmetistegundir sem f\u00e1ir Hafnfir\u00f0ingar h\u00f6f\u00f0u s\u00e9\u00f0 enda \u00e1 \u00feessum \u00e1rum a\u00f0allega r\u00e6kta\u00f0ar h\u00e9r kart\u00f6flur og r\u00f3fur.<\/p>\n<p>\u00cd gar\u00f0inum r\u00edkir greinilega \u00e1kve\u00f0in hugmyndafr\u00e6\u00f0i en \u00fear m\u00e1 finna gri\u00f0asta\u00f0 fyrir hverja og eina nunnu, \u00e1samt litlum b\u00e6nah\u00fasum. Mikil r\u00f3 og kyrr\u00f0 hv\u00edlir yfir \u00feessum fallega klausturgar\u00f0i og \u00fea\u00f0 er a\u00f0d\u00e1unarvert a\u00f0 sj\u00e1 hversu mikla eljusemi hefur \u00feurft til a\u00f0 koma \u00feessum gar\u00f0i \u00e1 legg. Mikil fj\u00f6lbreytni er \u00ed trj\u00e1m og gr\u00f3\u00f0ri \u00e1samt r\u00e6ktun gr\u00e6nmetis og berjarunna til eigin nota. \u00dearna m\u00e1 einnig finna jar\u00f0arber og \u00ed gr\u00f3\u00f0urh\u00fasi \u00feeirra eru r\u00e6ktu\u00f0 v\u00ednber og \u00e1vaxtatr\u00e9. \u00dea\u00f0 dylst engum hversu mikil \u00e1hrif nunnurnar \u00e1 \u00d6ldusl\u00f3\u00f0 hafa haft \u00e1 samf\u00e9lag okkar h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00de\u00e6r hafa veri\u00f0 samofnar menningu okkar og l\u00edfi \u00ed hartn\u00e6r 80 \u00e1r. \u00de\u00e6r helga l\u00edf sitt tr\u00fanni \u00e1 Jes\u00fa Krist og hefur b\u00e6rinn okkar skipa\u00f0 st\u00f3ran sess \u00ed b\u00e6num \u00feeirra. Fyrir \u00feetta ber a\u00f0 \u00feakka og er \u00fea\u00f0 me\u00f0 mikilli gle\u00f0i sem Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r f\u00e6rir Karmelsystrum hei\u00f0ursskj\u00f6ldinn \u00ed \u00e1r.<\/p>\n<p><strong>Yfirlit yfir fallegustu og snyrtilegustu gar\u00f0ana 2020<\/strong><\/p>\n<p>Fallegustu og snyrtilegustu gar\u00f0arnir \u00ed Hafnarfir\u00f0i 2020 eru eftirfarandi og l\u00e1tum vi\u00f0 h\u00e9r fylgja me\u00f0 \u00fe\u00e1 ums\u00f6gn sem ritu\u00f0 var um hvern gar\u00f0 fyrir sig.<\/p>\n<p><strong>Bl\u00f3mvellir 13<\/strong><\/p>\n<p>Gar\u00f0urinn \u00feykir \u00e1kaflega fallegur og hefur veri\u00f0 um \u00e1rabil. A\u00f0koma a\u00f0 h\u00fasi er opin og tekur vel \u00e1 m\u00f3ti gestum og gangandi. H\u00f6nnun er n\u00fat\u00edmaleg \u00fear sem miki\u00f0 er um hellulag\u00f0a fleti me\u00f0 fallegum h\u00fasg\u00f6gnum, gr\u00f3\u00f0ri \u00ed pottum, fallegum kerum og afskornum bl\u00f3mum \u00ed vasa. Alls sta\u00f0ar \u00fear sem liti\u00f0 er, er snyrtimennskan \u00ed fyrirr\u00fami og hafa eigendur einnig huga\u00f0 a\u00f0 n\u00e6rumhverfi s\u00ednu sem er til mikillar fyrirmyndar. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a einstaklega fallegan gar\u00f0 \u00ed n\u00fdju hverfi \u00ed b\u00e6num.<\/p>\n<p><strong>Klukkuberg 1a<\/strong><\/p>\n<p>\u00deegar \u00fatsendari b\u00e6jarins f\u00f3r \u00ed \u00feennan gar\u00f0 \u00ed miklu rigningarve\u00f0ri vakti snyrtimennskan strax athygli. G\u00f6ngulei\u00f0in a\u00f0 h\u00fasinu var svo snyrtileg, me\u00f0 fj\u00f6lbreyttum gr\u00f3\u00f0ri \u00ed upph\u00e6kku\u00f0um be\u00f0um, a\u00f0 au\u00f0velt var a\u00f0 gleyma sta\u00f0 og stund \u00ed rigningunni. Fyrir framan a\u00f0komudyrnar voru pottar me\u00f0 fallegum pl\u00f6ntum og \u00feegar inn \u00ed gar\u00f0inn var komi\u00f0 l\u00e1 strax fyrir a\u00f0 \u00fearna voru eigendur greinilega \u00e1hugamenn um a\u00f0 gera gar\u00f0inn sinn fallegan og hafa snyrtilegt \u00ed kringum sig. Dvalarsv\u00e6\u00f0i voru fj\u00f6lbreytt me\u00f0 grasi, hellum, gr\u00fas- og timburg\u00f6ngulei\u00f0um og \u00fearna m\u00e1tti sj\u00e1 \u00e1hrif fr\u00e1 jap\u00f6nsku g\u00f6r\u00f0unum \u00fear sem einfaldleikinn er haf\u00f0ur a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si og n\u00e1tt\u00farulegur efnivi\u00f0ur er nota\u00f0ur \u00ed gar\u00f0h\u00f6nnun. \u00cd \u00feessum gar\u00f0i er \u00f6rugglega gott a\u00f0 taka nokkrar j\u00f3ga\u00e6fingar.<\/p>\n<p><strong>Nor\u00f0urvangur 29<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd Nor\u00f0urb\u00e6num l\u00farir \u00feessi fallegi gar\u00f0ur sem er einstaklega snyrtilegur og fallega vi\u00f0haldi\u00f0. Innan um hraunbolla og gj\u00f3tur er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 planta fj\u00f6lbreyttu gr\u00f3\u00f0ur\u00farvali, b\u00faa til tj\u00f6rn og \u00fearna er au\u00f0velt a\u00f0 finna fri\u00f0i og \u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 setjast ni\u00f0ur og nj\u00f3ta \u00ed n\u00e1l\u00e6g\u00f0 vi\u00f0 hrauni\u00f0 og klettana. Dvalarsv\u00e6\u00f0in eru falleg og snyrtileg og greinilega hefur veri\u00f0 teki\u00f0 til hendinni \u00fev\u00ed einnig m\u00e1 finna mj\u00f6g myndarlega r\u00e6ktun matjurta \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fearna eru landn\u00e1msh\u00e6nur sem greinilega hafa \u00fea\u00f0 gott. Gar\u00f0urinn er g\u00f3\u00f0ur heima a\u00f0 s\u00e6kja og upplifa \u00feann gar\u00f0\u00e1huga sem \u00ed \u00feessum gar\u00f0i b\u00fdr.<\/p>\n<p><strong>Birkiberg 42<\/strong><\/p>\n<p>A\u00f0koman vakti strax athygli. Holtagrj\u00f3t \u00e1 l\u00f3\u00f0arm\u00f6rkum me\u00f0 fallegum r\u00f3sum \u00e1samt \u00f6\u00f0rum gr\u00f3\u00f0ri. Hellul\u00f6gnin n\u00fd s\u00f3pu\u00f0 og grasi\u00f0 alveg s\u00e9rstaklega fallegt \u00fear sem b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 kantskera \u00feannig a\u00f0 pl\u00f6nturnar nutu s\u00edn vel \u00ed fl\u00f6tinni. \u00deegar inn \u00ed gar\u00f0inn var komi\u00f0 \u00fe\u00e1 blasti snyrtimennskan vi\u00f0, allt pallasv\u00e6\u00f0i til fyrirmyndar og vel vi\u00f0haldi\u00f0, holtagrj\u00f3ti\u00f0 alveg s\u00e9rstaklega fallegt og \u00fearna b\u00fai\u00f0 a\u00f0 koma fyrir fj\u00f6lbreyttum gr\u00f3\u00f0ri sem passar vel vi\u00f0 umhverfi\u00f0. Bl\u00f3m \u00ed kerum og krukkum gefa fallegan lit me\u00f0 gr\u00e1u grj\u00f3tinu.<\/p>\n<p><strong>Austurgata 37<\/strong><\/p>\n<p>H\u00e9r er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a fallega perlu \u00ed gamla b\u00e6num, innan um kletta og hraundranga. D\u00e1samlega fallegur \u00e6vint\u00fdragar\u00f0ur sem hefur veri\u00f0 gaman a\u00f0 heims\u00e6kja \u00e1 17. j\u00fan\u00ed \u00fev\u00ed eigendur hafa veri\u00f0 svo rausnarlegir a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a gestum og gangandi a\u00f0 koma \u00ed \u00feennan gar\u00f0. \u00dearna sk\u00edn \u00ed gegn g\u00f3\u00f0 samvinna milli n\u00e1tt\u00faru og hins mannger\u00f0a umhverfis, \u00fev\u00ed hrauni\u00f0 \u00e1 st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt \u00ed hversu vel heppna\u00f0ur \u00feessi gar\u00f0ur er. L\u00edti\u00f0 gr\u00f3\u00f0urh\u00fas \u00e1samt sturtuhausnum sem kemur \u00far klettinum er hluti af \u00e6vint\u00fdraver\u00f6ldinni.<\/p>\n<p><strong>Austurgata 40<\/strong><\/p>\n<p>St\u00f3rgl\u00e6silegur gar\u00f0ur \u00fear sem allt vi\u00f0hald er til fyrirmyndar, gr\u00f3\u00f0ur vel hirtur, \u00f6ll be\u00f0 eru hrein og allir kantar vel klipptir \u00ed beinum r\u00f6\u00f0um. \u00deetta er einn af fallegustu g\u00f6r\u00f0um b\u00e6jarins \u00e1samt h\u00fasinu sj\u00e1lfu en h\u00e9r hafa eigendur greinilega sinnt vel h\u00fasi og gar\u00f0i \u00feannig a\u00f0 eftir er teki\u00f0. Einst\u00f6k snyrtimennska og metna\u00f0ur \u00ed \u00f6llu sem \u00fearna s\u00e9st. \u00deessi gar\u00f0ur er eins og skr\u00fa\u00f0gar\u00f0ur og er mikil b\u00e6jarpr\u00fd\u00f0i.<\/p>\n<p><strong>Mi\u00f0vangur 102<\/strong><\/p>\n<p>Mj\u00f6g fallegur gar\u00f0ur \u00ed Nor\u00f0urb\u00e6num, a\u00f0komugar\u00f0urinn er st\u00f3r me\u00f0 einstaklega fallegri grasfl\u00f6t, l\u00e1gv\u00f6xnum gr\u00f3\u00f0ri og skemmtilegum f\u00edg\u00farum \u00fat vi\u00f0 g\u00f6tu sem heilsa f\u00f3lki sem gengur framhj\u00e1. Snyrtimennskan er einst\u00f6k \u00e1samt fallegum bakgar\u00f0i \u00fear sem \u00farval r\u00f3sa er miki\u00f0 \u00e1samt skj\u00f3ls\u00e6lu dvalarsv\u00e6\u00f0i me\u00f0 h\u00fasg\u00f6gnum og bl\u00f3mapottum. L\u00edti\u00f0 fuglah\u00fas \u00ed h\u00e1um trj\u00e1num me\u00f0 f\u00f3\u00f0ursk\u00e1l dregur a\u00f0 s\u00e9r sm\u00e1fuglana. Bl\u00f3mapottarnir eru hanna\u00f0ir af h\u00fasm\u00f3\u00f0urinni og gera gar\u00f0inn enn skemmtilegri.<\/p>\n<p><strong>Malarskar\u00f0 13-15<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er me\u00f0 mikilli \u00e1n\u00e6gju sem \u00feessir tveir gar\u00f0ar \u00ed parh\u00fasi f\u00e1i vi\u00f0urkenningu, en \u00feeir eru spegilmynd af hvor \u00f6\u00f0rum og eru \u00fev\u00ed alveg eins. Virkilega flottur ungur gar\u00f0ur \u00fear sem ungt f\u00f3lk hefur lagt mikinn metna\u00f0 \u00ed a\u00f0 gera fallegan gar\u00f0 umhverfis h\u00fas sitt. \u00dearna eru dvalarsv\u00e6\u00f0i me\u00f0 heitum potti, fallegum gr\u00f3\u00f0ri og fallegri hle\u00f0slu sem fellur vel a\u00f0 umhverfi s\u00ednu. \u00deessi gar\u00f0ur f\u00e6r s\u00e9rstaka hvatningarvi\u00f0urkenningu \u00fear sem hann er me\u00f0 \u00feeim fyrstu sem eru tilb\u00fanir \u00ed \u00feessu n\u00fdjasta hverfi Hafnarfjar\u00f0ar og veitir n\u00e1gr\u00f6nnum \u00feannig b\u00e6\u00f0i innbl\u00e1stur og hvatningu.<\/p>\n<p><strong>Val til Snyrtileikans byggir alfari\u00f0 \u00e1 innsendum tilnefningum<\/strong><\/p>\n<p>Val til Snyrtileikans byggir alfari\u00f0 \u00e1 tilnefningum \u00edb\u00faa og vina Hafnarfjar\u00f0ar en opi\u00f0 var fyrir tilnefningar \u00ed allt sumar. Fj\u00f6ldi \u00e1bendinga barst \u00feetta sumari\u00f0 og greinilegt a\u00f0 Hafnfir\u00f0ingar hafa noti\u00f0 heima vi\u00f0 \u00ed sumar og dytta\u00f0 a\u00f0 n\u00e6rumhverfi s\u00ednu.<\/p>\n<p><em>Vi\u00f0 \u00f3skum \u00edb\u00faum og eigendum \u00feessara gar\u00f0a innilega til hamingju me\u00f0 vi\u00f0urkenninguna!\u00a0<\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Snyrtileikinn hei\u00f0ra\u00f0ur \u00ed Hafnarfir\u00f0i Karmelklaustri\u00f0 vi\u00f0 \u00d6ldusl\u00f3\u00f0 hlaut hei\u00f0ursskj\u00f6ld Snyrtileikans 2020 sem afhentur var vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0lega ath\u00f6fn \u00ed Gr\u00f3\u00f0rarst\u00f6\u00f0inni \u00de\u00f6ll n\u00fa \u00ed vikulok. N\u00edu eigendur s\u00e9rb\u00fdlish\u00fasa fengu vi\u00f0urkenningar fyrir fallega og vel hirta gar\u00f0a og \u00fear af fengu tveir gar\u00f0ar s\u00e9rstaka hvatningarvi\u00f0urkenningu \u00fear sem \u00feeir eru me\u00f0 fyrstu g\u00f6r\u00f0unum sem eru tilb\u00fanir \u00ed Skar\u00f0shl\u00ed\u00f0inni, n\u00fdjasta [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14404","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14404","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14404"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14404\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14404"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14404"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14404"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}