{"id":14442,"date":"2020-10-12T00:00:00","date_gmt":"2020-10-12T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/thetta-er-samvinna-alla-leid\/"},"modified":"2022-09-26T15:16:09","modified_gmt":"2022-09-26T15:16:09","slug":"thetta-er-samvinna-alla-leid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/thetta-er-samvinna-alla-leid\/","title":{"rendered":"This is a collaboration. All the way!"},"content":{"rendered":"<p>Samkv\u00e6mt greiningarvinnu fyrir Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 hefur umfer\u00f0 \u00e1 vef b\u00e6jarins st\u00f3raukist \u00e1 fyrri hluta \u00feessa \u00e1rs, sem og lestur fr\u00e9tta og tilkynninga. \u00de\u00e1 hefur n\u00fd \u00e1bendingag\u00e1tt fengi\u00f0 afar g\u00f3\u00f0ar vi\u00f0t\u00f6kur og almennum fyrirspurnum fj\u00f6lga\u00f0 miki\u00f0. Aukin \u00e1hersla hefur veri\u00f0 \u00e1 stafr\u00e6n m\u00e1l \u00ed \u00fej\u00f3nustu til a\u00f0 gera hana a\u00f0gengilegri og gagnvirkari fyrir hinn almenna \u00edb\u00faa.&nbsp;<\/p>\n<p> <a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/thetta-er-samvinna-alla-leid\/\">The town newspaper Hafnfir\u00f0ingur <\/a> r\u00e6ddi&nbsp; vi\u00f0 Gar\u00f0ar Rafn Eyj\u00f3lfsson, sem hefur veri\u00f0 vefstj\u00f3ri b\u00e6jarins undanfarin 12 \u00e1r.<\/p>\n<p><em>\u201eH\u00e9r hefur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 algj\u00f6r umbylting \u00ed rafr\u00e6nni \u00fej\u00f3nustu. \u00c9g er b\u00fainn a\u00f0 starfa hj\u00e1 b\u00e6num \u00ed 12 \u00e1r og undanfari\u00f0 \u00e1r er \u00fea\u00f0 skemmtilegasta fr\u00e1 upphafi. \u00dea\u00f0 er svo margt n\u00fdtt a\u00f0 gerast sem f\u00e6rir okkur meira til n\u00fat\u00edmans,\u201c<\/em> segir Gar\u00f0ar Rafn, en mikil \u00fearfagreining hefur veri\u00f0 unnin me\u00f0 vef Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar \u00fat fr\u00e1 sk\u00fdrslu Capacent um hva\u00f0 m\u00e6tti b\u00e6ta svo a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 leysa sem flest m\u00e1l \u00ed fyrstu snertingu me\u00f0 stafr\u00e6num h\u00e6tti e\u00f0a \u00ed \u00fej\u00f3nustuveri.<em> \u201e\u00cdb\u00faar b\u00e6jarins, notendur vefsins, eiga a\u00f0 geta fengi\u00f0 eins mikla m\u00f6gulega \u00fej\u00f3nustu \u00feegar \u00feeim hentar vi\u00f0 t\u00f6lvuna heima hj\u00e1 s\u00e9r e\u00f0a \u00ed s\u00edmanum. \u00deetta er \u00ed takti vi\u00f0 \u00fe\u00e1 stefnu sem \u00fdmis st\u00f3r fyrirt\u00e6ki hafa sett s\u00e9r og f\u00f3lk er fari\u00f0 a\u00f0 \u00feekkja.\u201c&nbsp;<\/em><\/p>\n<p><em><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/gardar2.jpg\" alt=\"Gardar2\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1024px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1024\/543;\"><\/em><sup>\u00cd \u00e1bendingag\u00e1ttinni er h\u00e6gt a\u00f0 hla\u00f0a inn mynd og merkja vi\u00f0 n\u00e1kv\u00e6ma sta\u00f0setningu, sem au\u00f0veldar vinnslu m\u00e1la hj\u00e1 b\u00e6num. Mynd\/skj\u00e1skot<\/sup><\/p>\n<h4>\u00c1bending me\u00f0 sta\u00f0setningu og mynd<\/h4>\n<p>\u00cd \u00feessu sambandi bendir Gar\u00f0ar Rafn \u00e1 a\u00f0 \u00e1bendingag\u00e1ttin s\u00e9 heldur betur farin a\u00f0 sanna gildi sitt. \u201eVi\u00f0 fengum lengi vel \u00e1bendingar mestmegnis me\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3sti e\u00f0a gegnum \u00f3l\u00edkar s\u00ed\u00f0ur \u00e1 Facebook \u00fear sem b\u00e6rinn var merktur \u00ed innleggjum e\u00f0a \u00fe\u00e1 me\u00f0 Facebook skilabo\u00f0um. Umfer\u00f0 \u00e1 \u00feessum Facebook s\u00ed\u00f0um er mikil og utanumhaldi\u00f0 a\u00f0 reynast erfitt. \u00cd dag bendum vi\u00f0 \u00edb\u00faum a\u00f0 skr\u00e1 \u00e1bendingu beint \u00ed \u00e1bendingag\u00e1ttina sem fer \u00fe\u00e1 strax \u00ed formlegt ferli og sv\u00f6run hj\u00e1 vi\u00f0komandi svi\u00f0i. \u00dear er l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 skr\u00e1 sta\u00f0setningu og deila mynd \u00feegar \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 og veita \u00feannig allar nau\u00f0synlegar uppl\u00fdsingar strax vi\u00f0 fyrstu snertingu. \u00deetta hefur st\u00f3rb\u00e6tt ferli\u00f0 og \u00fej\u00f3nustuna og vi\u00f0 erum h\u00e6st\u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0in, enda f\u00e1um vi\u00f0 \u00e1bendingar \u00far \u00f6llum \u00e1ttum um allt m\u00f6gulegt. \u00c1 3 m\u00e1nu\u00f0um reyndust \u00e1bendingar r\u00e9tt t\u00e6plega 400.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/gardar3.jpg\" alt=\"Gardar3\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1024px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1024\/768;\"><sup>Fleiri nota snjallt\u00e6ki til a\u00f0 fletta upp \u00e1 efni \u00e1 s\u00ed\u00f0u Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar. Mynd\/OB\u00de<\/sup><\/p>\n<\/p>\n<h4>Fleiri og yngri lesa fr\u00e9ttir \u2013 \u00ed snjallt\u00e6kjum<\/h4>\n<p>Gar\u00f0ar Rafn segir a\u00f0 vefur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar hafi \u00e1 einu \u00e1ri \u00fer\u00f3ast \u00ed \u00f6flugan mi\u00f0il og l\u00f6g\u00f0 s\u00e9 \u00e1hersla \u00e1 virka uppl\u00fdsingagj\u00f6f og tilkynningar um starfsemi b\u00e6jarins og samstarfsverkefni. <em>\u201eUmfer\u00f0in \u00e1 vefnum hefur st\u00f3raukist, \u00fear af lestur fr\u00e9tta og tilkynninga um 49%. \u00dea\u00f0 vekur s\u00e9rstaka athygli a\u00f0 me\u00f0alaldur \u00feeirra sem lesa fr\u00e9ttirnar er mun l\u00e6gri og \u00fe\u00e6r eru einnig meira lesnar \u00ed snjallt\u00e6kjum en \u00e1\u00f0ur. Facebook s\u00ed\u00f0an okkar er mj\u00f6g lifandi. Vi\u00f0 erum einnig me\u00f0 Instagram s\u00ed\u00f0u og h\u00f6fum a\u00f0eins gefi\u00f0 \u00ed \u00fear s\u00ed\u00f0an \u00ed sumar,\u201c<\/em> segir Gar\u00f0ar Rafn.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/gardar4.jpg\" alt=\"Gardar4\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1024px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1024\/559;\"><sup>S\u00ed\u00f0an Betri Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur. Mynd\/skj\u00e1skot<\/sup><\/p>\n<p>\u00de\u00e1 taki vefur b\u00e6jarins \u00e1 allri starfsemi sveitarf\u00e9lagsins og \u00e1hersla \u00fear l\u00f6g\u00f0 \u00e1 einfalt og gott a\u00f0gengi a\u00f0 uppl\u00fdsingum m.a. me\u00f0 \u00f6flugri leitarv\u00e9l. <em>\u201e\u00dea\u00f0 er mikil vinna \u00ed gangi me\u00f0 M\u00ednar s\u00ed\u00f0ur \u2013 \u00edb\u00faag\u00e1tt \u2013 og vi\u00f0 viljum b\u00e6ta efni, a\u00f0gengi og endurgj\u00f6f \u00fear. N\u00fdlega settum vi\u00f0 svo \u00ed lofti\u00f0 einfalda uppflettingu \u00e1 n\u00e6stu dagsetningu \u00e1 losun sorps og mi\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 b\u00e6ta samb\u00e6rilegri uppflettingu vi\u00f0 fyrir snj\u00f3mokstur n\u00fa \u00ed vetur. Svo eru n\u00fdju reikniv\u00e9larnar okkar a\u00f0 reynast vins\u00e6lar en me\u00f0 \u00feeim erum vi\u00f0 a\u00f0 gera gjaldskr\u00e1 sveitarf\u00e9lagsins a\u00f0gengilegri og skiljanlegri\u201d. <\/em>\u00deegar eru komnar \u00ed lofti\u00f0 reikniv\u00e9lar fyrir leiksk\u00f3lagj\u00f6ld, fr\u00edstundaheimili og fasteignagj\u00f6ld.  <\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/gardar5.jpg\" alt=\"Gardar5\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1024px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1024\/565;\"><sup>Enska \u00fatg\u00e1fan af vef b\u00e6jarins kom \u00ed lofti\u00f0 fyrir sk\u00f6mmu. Mynd\/skj\u00e1skot<br \/><\/sup><\/p>\n<h4>A\u00f0rir vefir einnig \u00ed vinnslu<\/h4>\n<p>Ensk \u00fatg\u00e1fa af vef Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar er komin \u00ed lofti\u00f0 og Gar\u00f0ar Rafn segir umfer\u00f0 um n\u00fdja vefinn strax or\u00f0na t\u00f6luver\u00f0a og a\u00f0 innan skamms ver\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a efni \u00e1 enskum vef beint yfir \u00e1 fj\u00f6lm\u00f6rg \u00f6nnur tungum\u00e1l. Framkv\u00e6mdin s\u00e9 li\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed mikilv\u00e6ga verkefni a\u00f0 \u00edb\u00faar af erlendum uppruna finni strax a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u hluti af samf\u00e9laginu. Unni\u00f0 s\u00e9 \u00ed a\u00f0 koma \u00edb\u00faag\u00e1ttinni yfir \u00e1 ensku auk \u00feess sem r\u00e1\u00f0ningarvefur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar s\u00e9 \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu. Tilt\u00f6lulega l\u00edtil verkefni en afar mikilv\u00e6g \u00ed st\u00f3ra samhenginu \u00feannig a\u00f0 \u00edb\u00faar sem ekki hafa \u00edslensku a\u00f0 m\u00f3\u00f0urm\u00e1li upplifi samfellu \u00ed \u00fej\u00f3nustunni og sj\u00e1i l\u00edka m\u00f6guleikana. \u201eVi\u00f0 erum svo a\u00f0 kl\u00e1ra a\u00f0 forrita vef fyrir Bygg\u00f0asafn Hafnarfjar\u00f0ar og erum a\u00f0 hefja vinnu vi\u00f0 gl\u00e6n\u00fdjan vef b\u00f3kasafnsins \u00ed samstarfi vi\u00f0 \u00edb\u00faa b\u00e6jarins og starfsf\u00f3lk safnsins. Spennandi vinna sem leggur \u00e1kve\u00f0inn grunn a\u00f0 framt\u00ed\u00f0arhugsun \u00ed vefm\u00e1lum sveitarf\u00e9lagsins\u201c. Spur\u00f0ur um hva\u00f0a eiginleika g\u00f3\u00f0ur vefstj\u00f3ri \u00feurfi a\u00f0 hafa segir hann a\u00f0 lykilatri\u00f0i s\u00e9 a\u00f0 sinna starfinu me\u00f0 opnum huga og vera g\u00f3\u00f0ur hlustandi. <em>\u201e\u00deetta er samvinna, alla lei\u00f0!\u201c<\/em><\/p>\n<p> <a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/thetta-er-samvinna-alla-leid\/\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 Gar\u00f0ar birtist \u00ed Hafnfir\u00f0ingi 10. okt\u00f3ber 2020.&nbsp;<\/a> <\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Samkv\u00e6mt greiningarvinnu fyrir Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 hefur umfer\u00f0 \u00e1 vef b\u00e6jarins st\u00f3raukist \u00e1 fyrri hluta \u00feessa \u00e1rs, sem og lestur fr\u00e9tta og tilkynninga. \u00de\u00e1 hefur n\u00fd \u00e1bendingag\u00e1tt fengi\u00f0 afar g\u00f3\u00f0ar vi\u00f0t\u00f6kur og almennum fyrirspurnum fj\u00f6lga\u00f0 miki\u00f0. Aukin \u00e1hersla hefur veri\u00f0 \u00e1 stafr\u00e6n m\u00e1l \u00ed \u00fej\u00f3nustu til a\u00f0 gera hana a\u00f0gengilegri og gagnvirkari fyrir hinn almenna \u00edb\u00faa.&nbsp; B\u00e6jarbla\u00f0i\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":17890,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14442","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14442","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14442"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14442\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/17890"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14442"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14442"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14442"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}