{"id":14458,"date":"2020-10-28T00:00:00","date_gmt":"2020-10-28T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/sjalfstraust-nemenda-efldist-i-forerldrafjarvidtolum\/"},"modified":"2022-09-26T15:16:12","modified_gmt":"2022-09-26T15:16:12","slug":"sjalfstraust-nemenda-efldist-i-forerldrafjarvidtolum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/sjalfstraust-nemenda-efldist-i-forerldrafjarvidtolum\/","title":{"rendered":"Students' self-confidence was boosted in parent-teacher conferences."},"content":{"rendered":"<p>\u00c1 t\u00edmum Covid19 hefur reynt duglega \u00e1 fj\u00f6lmennan h\u00f3p sem skipar framvar\u00f0asveit \u00ed menntam\u00e1lum h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00deri\u00f0ja bylgja smita og s\u00f3ttvarnaa\u00f0ger\u00f0a stendur n\u00fa sem h\u00e6st. Grunnsk\u00f3lar hafa ekki \u00feurft a\u00f0 loka en starfsf\u00f3lk skiptist \u00ed h\u00f3lf \u00e1 kaffistofum eftir n\u00e1msstigum og foreldrar mega ekki fara inn \u00ed sk\u00f3lana.&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/sjalfstraust-nemenda-efldist-i-foreldrafjarvidtolum\/\">The town newspaper Hafnfir\u00f0ingur <\/a> r\u00e6ddi vi\u00f0 fulltr\u00faa allra \u00feriggja sk\u00f3lastiganna \u00ed L\u00e6kjarsk\u00f3la, sem rifju\u00f0u upp helstu \u00e1skoranir \u00ed lausnami\u00f0u\u00f0u sk\u00f3lastarfi og hva\u00f0a \u00f3tr\u00falega j\u00e1kv\u00e6\u00f0u \u00e1hrif \u00fea\u00f0 hefur haft. \u00dea\u00f0 eru \u00feau Hulda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, \u00c1sbj\u00f6rn Fri\u00f0riksson og Tinna \u00d3sk \u00deorvaldsd\u00f3ttir.&nbsp;<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/laekjarskoliokt2.jpg\" alt=\"LaekjarskoliOkt2\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1024px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1024\/605;\"><\/p>\n<p><sup>S\u00ed\u00f0a heimask\u00f3la L\u00e6kjarsk\u00f3la, sem au\u00f0velt er a\u00f0 finna sem undirs\u00ed\u00f0u sk\u00f3lans.<br \/><\/sup><\/p>\n<p>K\u00f6nnun var ger\u00f0 me\u00f0al kennara \u00ed L\u00e6kjarsk\u00f3la eftir a\u00f0 foreldrasamt\u00f6lum lauk fyrir sk\u00f6mmu, en \u00feau f\u00f3ru fram me\u00f0 gj\u00f6rbreyttu sni\u00f0i, vegna covid19. \u00deeir kennarar sem sv\u00f6ru\u00f0u k\u00f6nnuninni voru samm\u00e1la um a\u00f0 \u00feessi ger\u00f0 samtala f\u00e9kk nemendur til a\u00f0 taka meiri \u00e1byrg\u00f0 og sj\u00e1lfstraust \u00feeirra efldist. Vi\u00f0m\u00e6lendur Hafnfir\u00f0ings taka undir \u00feetta og segjast hafa or\u00f0i\u00f0 v\u00f6r vi\u00f0 \u00fdmis \u00f6nnur j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif breyttra \u00e1herslna, b\u00e6\u00f0i \u00ed vor og um \u00feessar mundir. <\/p>\n<h4>Margt j\u00e1kv\u00e6tt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00f3hef\u00f0bundna<\/h4>\n<p>Hulda kennir 2. bekk og segir nemendur hafa m\u00e6tt \u00f3tr\u00falega huga\u00f0a \u00ed n\u00e1mssamt\u00f6lin, \u00e1n forr\u00e1\u00f0amanna, \u00ed fyrsta sinn \u00e1 sk\u00f3lag\u00f6ngunni. <em>\u201eVi\u00f0 fengum yndislega a\u00f0sto\u00f0 hj\u00e1 starfsf\u00f3lki L\u00e6kjarsels me\u00f0 a\u00f0 senda \u00feau \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma til okkar og svo hringdu forr\u00e1\u00f0amenn \u00ed okkur \u00e1 Facetime e\u00f0a \u201espeaker\u201c, \u00fdmist a\u00f0 heiman e\u00f0a \u00far vinnunni. \u00deetta gekk alveg me\u00f0 eind\u00e6mum vel.\u201c <\/em>\u00de\u00f3 svo a\u00f0 fyrirkomulagi\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00f3hef\u00f0bundi\u00f0 var margt j\u00e1kv\u00e6tt vi\u00f0 \u00fea\u00f0, en \u00fea\u00f0 er nokku\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 n\u00e1mssamt\u00f6lin hef\u00f0u ekki gengi\u00f0 svona vel nema me\u00f0 mikilli skipulagningu a\u00f0 h\u00e1lfu starfsf\u00f3lks sk\u00f3lans og foreldra.<\/p>\n<p><em>\u201e\u00dea\u00f0 var svo gaman a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 \u00feau voru \u00f6rugg en m\u00f6rg \u00feeirra klesstu s\u00e9r upp vi\u00f0 mig a\u00f0 spenningi vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 m\u00f6mmu og pabba \u00e1 skj\u00e1num e\u00f0a heyra \u00ed \u00feeim \u00ed s\u00edmanum. Margskonar skemmtilegar upp\u00e1komur komu \u00e1 \u00f3vart en a\u00f0alm\u00e1li\u00f0 var gefandi og gott samstarf allra sem komu a\u00f0,\u201c<\/em> segir Hulda. H\u00fan vi\u00f0urkennir a\u00f0 \u00e1standi\u00f0 hafi veri\u00f0 einkar erfitt s.l. vor, \u00feegar eki\u00f0 var me\u00f0 n\u00e1msefni heim til nemenda sem komust ekki \u00ed sk\u00f3lann, \u00fea\u00f0 hengt \u00e1 hur\u00f0arh\u00fana, b\u00edlflautur \u00feeyttar og kallast \u00e1 \u00ed gegnum opna glugga. \u201eVi\u00f0 s\u00f6knu\u00f0um \u00feeirra svo miki\u00f0 en finnum eftir aukin samskipti vi\u00f0 foreldra \u00e1 \u00feessum t\u00edmum, hversu allir eru rei\u00f0ub\u00fanir a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00feessar krefjandi a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem vi\u00f0 b\u00faum vi\u00f0 \u00ed dag, reynslunni r\u00edkari. \u00dea\u00f0 er \u00e1kve\u00f0in au\u00f0m\u00fdkt og \u00feakkl\u00e6ti fyrir \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 \u00fe\u00f3 h\u00f6fum og getum gert.\u201c<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" class=\"center lazyload\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/laekjarskoliokt3.jpg\" alt=\"LaekjarskoliOkt3\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" style=\"--smush-placeholder-width: 641px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 641\/1024;\"><sup>\u00c1skoranir nemenda \u00e1 heimask\u00f3las\u00ed\u00f0unni tengdust einnig heilsunni, sem er mikilv\u00e6gust \u00e1 svona t\u00edmum.<\/sup><\/p>\n<h4>N\u00e1\u00f0i d\u00fdrm\u00e6tu spjalli me\u00f0 hverjum nemanda<\/h4>\n<p>\u00c1sbj\u00f6rn kennir st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00ed 7. til 10. bekk. Hann segir eftirminnilegustu \u00e1skoranirnar \u00e1 t\u00edmum Covid19 hafa veri\u00f0 foreldravi\u00f0t\u00f6lin, en \u00feau hafi \u00fe\u00f3 gengi\u00f0 mj\u00f6g vel.<em> \u201e\u00dea\u00f0 voru n\u00e1nast engin t\u00e6knileg vandam\u00e1l. Nemendur m\u00e6ttu til okkar og svo notu\u00f0um vi\u00f0 bara Google Meet, \u00fear sem foreldrar t\u00f3ku \u00fe\u00e1tt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 hlekk sem veitti \u00feeim a\u00f0gang \u00feegar \u00feeirra t\u00edmi var kominn. \u00c9g vil taka fram a\u00f0 foreldrarnir eiga hr\u00f3s skili\u00f0 fyrir sinn hlut og hva\u00f0 \u00feeir t\u00f3ku vel \u00ed \u00feetta og s\u00fdndu engin merki um stress.<\/em>\u201c Nemendurnir hafi m\u00e6tt einir \u00ed sk\u00f3lann og \u00c1sbj\u00f6rn n\u00e1\u00f0i spjalli me\u00f0 hverjum og einum \u00ed nokkrar m\u00edn\u00fatur \u00e1\u00f0ur en foreldrarnir komu inn \u00ed samtali\u00f0.<\/p>\n<p><em>\u201eNemandinn st\u00fdr\u00f0i samtalinu \u00fat fr\u00e1 eigin forsendum og \u00ed daglegu starfi kennara er oft erfitt a\u00f0 gefa s\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 spjalla vi\u00f0 hvern og einn nemanda, \u00ed vi\u00f0urvist 30-40 annarra andlita. \u00dearna gafst gott t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess, svo a\u00f0 \u00feetta fyrirkomulag er bara alls ekki svo gali\u00f0 yfirleitt.\u201c <\/em>\u00c1sbirni fannst erfi\u00f0ast \u00ed vor \u00feegar a\u00f0eins m\u00e1tti hitta umsj\u00f3narnemendur, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 kenna miklu fleirum. <em>\u201e\u00dea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 \u00fatb\u00faa kennslumyndb\u00f6nd, \u00edtarlegar uppl\u00fdsingar og treysta \u00e1 a\u00f0 foreldrar g\u00e6tu hj\u00e1lpa\u00f0 til. Reyndar voru margir nemendur sem n\u00fdttu \u00feennan t\u00edma vel og h\u00f6f\u00f0u kannski d\u00e1l\u00edti\u00f0 gott af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa ekki stanslaust a\u00f0gengi a\u00f0 kennara. F\u00edn \u00e6fing fyrir \u00feau og \u00f3v\u00e6ntar vangaveltur sem komu fr\u00e1 \u00feeim \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00dea\u00f0 \u00feyrfti a\u00f0 skapa oftar sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur fyrir nemendur, \u00e1n Covid19. L\u00e1ta \u00feau taka \u00e1byrg\u00f0 og fylgja \u00e1\u00e6tlun. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur st\u00f6kki\u00f0 \u00ed framhaldssk\u00f3lann eflaust ekki eins miki\u00f0.\u201c<br \/><\/em><br \/><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/laekjarskoliokt4.jpg\" alt=\"LaekjarskoliOkt4\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1024px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1024\/694;\"><sup>Skj\u00e1skot \u00far myndbandinu me\u00f0 nemendum syngjandi lag eftir Da\u00f0a og Gagnamagni\u00f0.<\/sup><\/p>\n<h4>Bjuggu til t\u00f3nlistarmyndband<\/h4>\n<p>Tinna kennir 5. bekk en kenndi \u00ed vor \u00e1 spjaldt\u00f6lvur, t\u00f6lvur og 10. bekkingum fj\u00e1rm\u00e1lal\u00e6si, auk \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 um Mentor forriti\u00f0. H\u00fan segir \u00e1standi\u00f0 hafa auki\u00f0 notkun spjaldt\u00f6lva mj\u00f6g miki\u00f0, sem og fjarfundab\u00fana\u00f0ar og Google Classroom.<em> \u201e\u00cd vor var \u00e9g \u00ed stj\u00f3rnendar\u00fdminu sem m\u00e6tti \u00e1 undan \u00f6llu \u00f6\u00f0ru starfsf\u00f3lki og f\u00f3r heim eftir a\u00f0 a\u00f0rir voru farnir. \u00c9g a\u00f0sto\u00f0a\u00f0i m.a. kennara vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 Google Meet og \u00feegar allir voru me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 hreinu haf\u00f0i \u00e9g minna a\u00f0 gera og og bj\u00f3 til heimask\u00f3la \u2013 \u00ed formi heimas\u00ed\u00f0u, fyrir \u00f6ll n\u00e1msstig. N\u00fana er \u00feessi s\u00ed\u00f0a til og h\u00e6gt a\u00f0 nota ef vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 skipta yfir \u00ed heimakennslu.\u201c<br \/><\/em><br \/>Tinna b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 ekki hafi endilega \u00feurft a\u00f0 finna upp hj\u00f3li\u00f0 og \u00fdmislegt hafi veri\u00f0 n\u00fdtt sem \u00e1\u00f0ur var til og a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0u gert. <em>\u201eMikilli \u00feekkingu var deilt \u00e1 milli sk\u00f3la \u00ed Hafnarfir\u00f0i og l\u00edka \u00e1 milli sveitarf\u00e9laga. Vi\u00f0 vorum og erum \u00f6ll \u00ed sama hernum \u00ed sama str\u00ed\u00f0inu. Allir til sta\u00f0ar til a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00e1 mismunandi h\u00e1tt.\u201c <\/em>Eftirminnilegast finnst henni \u00fe\u00f3 myndband sem h\u00fan, sk\u00f3lastj\u00f3ri og t\u00f3nmenntakennarinn fengu fj\u00f6lda nemenda til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 senda myndskei\u00f0 af s\u00e9r syngja lag me\u00f0 Da\u00f0a og Gagnamagninu<em>. \u201eVi\u00f0 vorum \u00f6ll hvert \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 en \u00far var\u00f0 virkilega skemmtileg samvinna og \u00fe\u00e1tttakan kom \u00e1 \u00f3vart. Svo var gaman a\u00f0 vita til \u00feess a\u00f0 nemendur t\u00f3ku upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r fjart\u00e6knina og hj\u00e1lpast a\u00f0 vi\u00f0 heimal\u00e6rd\u00f3minn.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Fors\u00ed\u00f0umynd\/OB\u00de:&nbsp; Hulda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, \u00c1sbj\u00f6rn Fri\u00f0riksson og Tinna \u00d3sk \u00deorvaldsd\u00f3ttir.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/sjalfstraust-nemenda-efldist-i-foreldrafjarvidtolum\/\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 \u00fer\u00edeyki\u00f0 \u00ed L\u00e6kjarsk\u00f3la birtist \u00ed Hafnfir\u00f0ingi 25. okt\u00f3ber 2020.&nbsp;&nbsp;<\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 t\u00edmum Covid19 hefur reynt duglega \u00e1 fj\u00f6lmennan h\u00f3p sem skipar framvar\u00f0asveit \u00ed menntam\u00e1lum h\u00e9r \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00deri\u00f0ja bylgja smita og s\u00f3ttvarnaa\u00f0ger\u00f0a stendur n\u00fa sem h\u00e6st. Grunnsk\u00f3lar hafa ekki \u00feurft a\u00f0 loka en starfsf\u00f3lk skiptist \u00ed h\u00f3lf \u00e1 kaffistofum eftir n\u00e1msstigum og foreldrar mega ekki fara inn \u00ed sk\u00f3lana.&nbsp; B\u00e6jarbla\u00f0i\u00f0 Hafnfir\u00f0ingur r\u00e6ddi vi\u00f0 fulltr\u00faa allra [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":17942,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14458","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14458","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14458"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14458\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/17942"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14458"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14458"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14458"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}