{"id":14545,"date":"2021-01-21T00:00:00","date_gmt":"2021-01-21T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/forvarnarnam-gegn-sjalfsskada-og-sjalfsvigum\/"},"modified":"2022-09-26T15:16:27","modified_gmt":"2022-09-26T15:16:27","slug":"forvarnarnam-gegn-sjalfsskada-og-sjalfsvigum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/forvarnarnam-gegn-sjalfsskada-og-sjalfsvigum\/","title":{"rendered":"Prevention education against self-harm and suicide"},"content":{"rendered":"<p><strong>Forvarnarn\u00e1m gegn sj\u00e1lfsska\u00f0a og sj\u00e1lfsv\u00edgum fyrir nemendur \u00ed grunnsk\u00f3lum<\/strong><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/pieta.is\/\">P\u00edetasamt\u00f6kin<\/a> , \u00ed samstarfi vi\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 og samstarfsa\u00f0ila \u00ed Lith\u00e1en og \u00e1 \u00cdrlandi, fengu n\u00fdlega 25 millj\u00f3na kr\u00f3na styrk \u00ed gegnum Erasmus+ mennta\u00e1\u00e6tlun ESB til \u00feess a\u00f0 yfirf\u00e6ra og \u00fer\u00f3a \u00e1fram n\u00e1msefni og reynslupr\u00f3fa n\u00e1mskei\u00f0 fyrir 13-14 \u00e1ra ungmenni. Verkefni\u00f0 h\u00f3fst formlega \u00ed n\u00f3vember s\u00ed\u00f0astli\u00f0num.<\/p>\n<h4><strong>Verkf\u00e6ri til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00f3l\u00edkar \u00e1skoranir \u00ed l\u00edfinu <\/strong><\/h4>\n<p>Verkefninu \u201c<em>Building Resilience and Brighter Futures<\/em>\u201d (BUILD) er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 veita ungmennum, sem m\u00f6rg hver upplifa sj\u00e1lfsv\u00edgshugsanir e\u00f0a sj\u00e1lfska\u00f0a, verkf\u00e6ri til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00f3l\u00edkar \u00e1skoranir \u00ed l\u00edfinu, byggja upp \u00ferautseigju og seiglu og efla sj\u00e1lfstraust og tilfinningaf\u00e6rni. Nemendum \u00ed 8. bekk \u00ed grunnsk\u00f3lum Hafnarfjar\u00f0ar og \u00ed Kaunas \u00ed Lith\u00e1en ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 6. vikna forvarnan\u00e1mskei\u00f0. Vonir standa til a\u00f0 h\u00e6gt ver\u00f0i a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00f6\u00f0rum sveitarf\u00e9l\u00f6gum til kennslu \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri.<\/p>\n<p>\u201c<em>Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur er heilsueflandi samf\u00e9lag og lei\u00f0andi me\u00f0al sveitarf\u00e9laga \u00ed uppbyggingu forvarnartengdrar \u00fej\u00f3nustu fyrir b\u00f6rn og ungmenni.<\/em><em> BR\u00daIN, \u00feverfaglegt samstarfsverkefni innan sveitarf\u00e9lagsins, byggir \u00e1 snemmt\u00e6kri \u00edhlutun \u00e1 fj\u00f6l\u00fe\u00e6ttan h\u00e1tt \u00ed l\u00edf barns. BUILD forvarnarverkefni\u00f0 fellur vel a\u00f0 \u00feessum \u00e1herslum og er til \u00feess falli\u00f0 a\u00f0 m\u00e6ta \u00fe\u00f6rfum ungmenna fyrir samtal og stu\u00f0ning \u00e1 mikilv\u00e6gum m\u00f3tunar\u00e1rum,\u201d <\/em>says R\u00f3sa Gu\u00f0bjartsd\u00f3ttir, the mayor.<\/p>\n<p><em>\u201cP\u00edeta samt\u00f6kin eru sj\u00e1lfsv\u00edgs- og sj\u00e1lfsska\u00f0a forvarnarsamt\u00f6k og lei\u00f0andi \u00ed forvarnarstarfi gegn sj\u00e1lfsv\u00edgum \u00e1 \u00cdslandi. BUILD verkefni\u00f0 er mj\u00f6g mikilv\u00e6gur li\u00f0ur \u00ed forvarnarstefnu samtakanna en til \u00feessa hafa samt\u00f6kin einungis sinnt einstaklingum 18 \u00e1ra og eldri. Vi\u00f0 erum me\u00f0vitu\u00f0 um a\u00f0 forvarnarstarf \u00fearf a\u00f0 byrja fyrr og um mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 kenna b\u00f6rnum og ungm\u00f6nnum a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 erfi\u00f0ar tilfinningar og andlegar \u00e1skoranir. Vi\u00f0 h\u00f6fum mikla tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 BUILD verkefni\u00f0 muni hafa mikil \u00e1hrif og \u00feakkl\u00e1t Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 fyrir a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00ed \u00fea\u00f0 me\u00f0 okkur,\u201d <\/em>segir Krist\u00edn \u00d3lafsd\u00f3ttir, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri P\u00edeta samtakanna.<\/p>\n<h4><strong>Sj\u00e1lfsv\u00edg og sj\u00e1lfsska\u00f0i skilgreint sem al\u00fej\u00f3\u00f0legt heilbrig\u00f0isvandam\u00e1l<\/strong><\/h4>\n<p>Sj\u00e1lfsv\u00edg og sj\u00e1lfsska\u00f0i ungmenna er fl\u00f3ki\u00f0 vi\u00f0fangsefni og Al\u00fej\u00f3\u00f0a heilbrig\u00f0isstofnunin hefur skilgreint sj\u00e1lfsv\u00edg og sj\u00e1lfsska\u00f0a ungmenna sem al\u00fej\u00f3\u00f0legt heilbrig\u00f0isvandam\u00e1l. \u00cd n\u00fdlegri sk\u00fdrslu samtakanna kemur fram a\u00f0 sj\u00e1lfsv\u00edg eru \u00feri\u00f0ja algengasta ors\u00f6k dau\u00f0sfalla me\u00f0al 15-19 \u00e1ra ungmenna og r\u00famlega helmingur \u00feeirra sem gl\u00edma vi\u00f0 andleg vandam\u00e1l byrja a\u00f0 finna fyrir \u00feeim um 14 \u00e1ra aldur. N\u00fdleg g\u00f6gn s\u00fdna a\u00f0 sj\u00e1lfsv\u00edg me\u00f0al ungmenna 15-19 \u00e1ra er h\u00e6st \u00ed Lith\u00e1en me\u00f0al a\u00f0ildarr\u00edkja OECD e\u00f0a 13 \u00e1 hverja 100.000 \u00edb\u00faa (2017, engar t\u00f6lur fyrir \u00cdsland) en sj\u00e1lfsv\u00edg ungmenna \u00e1 \u00cdslandi \u00e1rin 2015-2019 voru 13,6 \u00e1 hverja 100.000 \u00edb\u00faa (Landl\u00e6knir).<\/p>\n<h4><strong>Ge\u00f0heilsuefling og forvarnir skipta lykilm\u00e1li<\/strong><\/h4>\n<p>Aflei\u00f0ingar \u00feess a\u00f0 takast ekki \u00e1 vi\u00f0 andlega vanl\u00ed\u00f0an ungmenna getur orsaka\u00f0 andlega vanheilsu \u00e1 fullor\u00f0ins\u00e1rum og takm\u00f6rkun l\u00edfsg\u00e6\u00f0a. Ge\u00f0heilsuefling og forvarnara\u00f0ger\u00f0ir sem mi\u00f0a a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja getu barna og ungmenna til a\u00f0 stj\u00f3rna tilfinningum, sporna vi\u00f0 \u00e1h\u00e6ttuheg\u00f0un, byggja upp \u00ferautseigju og seiglu til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og m\u00f3tl\u00e6ti, sinna sj\u00e1lfshj\u00e1lp og tryggja a\u00f0gengi a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 og \u00fej\u00f3nustu, skipta lykilm\u00e1li. Samanber ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur starfsh\u00f3ps um sj\u00e1lfsv\u00edgsforvarnir fr\u00e1 2018 er sk\u00f3lasamf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1kj\u00f3sanlegasti vettvangurinn til a\u00f0 n\u00e1 til sem flestra barna og ungmenna me\u00f0 ge\u00f0r\u00e6kt og forvarnir og lagt er til a\u00f0 sj\u00e1lfsv\u00edgsforv\u00f6rnum ver\u00f0i komi\u00f0 \u00e1 \u00ed elstu bekkjum grunnsk\u00f3la. BUILD verkefni\u00f0 svarar \u00fev\u00ed kalli.<em>&nbsp;<\/em>P\u00edetas\u00edminn 552-2218 er opinn allan s\u00f3larhringinn, Hj\u00e1lpars\u00edmi Rau\u00f0a krossins er 1717 og Ney\u00f0ars\u00edminn 112.<\/p>\n<p><strong>Further information is provided by:<\/strong><\/p>\n<ul>\n<li>Hulda Ingibj\u00f6rg Rafnarsd\u00f3ttir verkefnisstj\u00f3ri BUILD \u00ed s. <a class=\"tel\" href=\"tel:\">698-0929<\/a><\/li>\n<li>Inga Mar\u00eda Hjartard\u00f3ttir, kynningarstj\u00f3ri P\u00edeta \u00ed s. <a class=\"tel\" href=\"tel:\">896-5252<\/a><\/li>\n<li>Geir Bjarnason \u00ed\u00fer\u00f3tta- og t\u00f3mstundafulltr\u00fai Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar \u00ed s. <a class=\"tel\" href=\"tel:\">664-5754<\/a><\/li>\n<\/ul>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Forvarnarn\u00e1m gegn sj\u00e1lfsska\u00f0a og sj\u00e1lfsv\u00edgum fyrir nemendur \u00ed grunnsk\u00f3lum P\u00edetasamt\u00f6kin , \u00ed samstarfi vi\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6 og samstarfsa\u00f0ila \u00ed Lith\u00e1en og \u00e1 \u00cdrlandi, fengu n\u00fdlega 25 millj\u00f3na kr\u00f3na styrk \u00ed gegnum Erasmus+ mennta\u00e1\u00e6tlun ESB til \u00feess a\u00f0 yfirf\u00e6ra og \u00fer\u00f3a \u00e1fram n\u00e1msefni og reynslupr\u00f3fa n\u00e1mskei\u00f0 fyrir 13-14 \u00e1ra ungmenni. Verkefni\u00f0 h\u00f3fst formlega \u00ed n\u00f3vember s\u00ed\u00f0astli\u00f0num. Verkf\u00e6ri [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14545","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14545","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14545"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14545\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14545"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14545"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14545"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}