{"id":14637,"date":"2021-04-07T00:00:00","date_gmt":"2021-04-07T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/skrasetti-medal-annars-heimili-langommu-sinnar\/"},"modified":"2022-09-26T15:17:20","modified_gmt":"2022-09-26T15:17:20","slug":"skrasetti-medal-annars-heimili-langommu-sinnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/skrasetti-medal-annars-heimili-langommu-sinnar\/","title":{"rendered":"Among other things, he registered his great-grandmother's home."},"content":{"rendered":"<p>\u00d6ll \u00feekkjum vi\u00f0 n\u00e1tt\u00farud\u00fdr\u00f0ina \u00ed b\u00e6jarlandi Hafnarfjar\u00f0ar. \u00c1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i sem a\u00f0 miklu leyti er byggt \u00e1 hrauni leynast fornminjar sem eru misjafnlega \u00e1berandi en allar merkilegar og tengdar s\u00f6gu b\u00e6jarins. Bygg\u00f0asafn Hafnarfjar\u00f0ar hefur \u00ed m\u00f6rg \u00e1r skr\u00e1\u00f0 og kortlagt fornminjar \u00ed b\u00e6num og \u00fe\u00e1 er mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem er 100 \u00e1ra og eldra. <a href=\"https:\/\/hafnfirdingur.is\/skrasetti-medal-annars-heimili-langommu-sinnar\/\">The town newspaper Hafnfir\u00f0ingur\u00a0<\/a> r\u00e6ddi vi\u00f0 fornleifafr\u00e6\u00f0inginn Atla R\u00fanarsson sem hefur sinnt \u00feessari kortlagningu fyrir safni\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00ed \u00e1g\u00fast \u00ed fyrra.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/atli2.jpg\" alt=\"Atli2\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1536px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1536\/1024;\" \/><sup>Bakgar\u00f0ur Herj\u00f3lfsg\u00f6tu 38 og 40 er st\u00f3rmerkilegur. Mynd\/OB\u00de<br \/><\/sup><\/p>\n<p>Fyrir aftan Herj\u00f3lfsg\u00f6tu 38 og 40 st\u00f3\u00f0 b\u00e6rinn Eyrarhraun sem bygg\u00f0ur var 1904 og brann til kaldra kola eftir \u00edkveikju \u00e1ri\u00f0 2005, eftir a\u00f0 hafa sta\u00f0i\u00f0 \u00fear mannlaus \u00ed eitt \u00e1r. Eyrarhraun haf\u00f0i miki\u00f0 menningars\u00f6gulegt gildi og \u00fear bj\u00f3 um skei\u00f0 Stef\u00e1n J\u00fal\u00edusson, h\u00f6fundur b\u00f3kanna um K\u00e1ra litla og Lappa og hann hefur einnig rita\u00f0 s\u00f6gu \u00feurrab\u00e6janna \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i. \u00cd dag s\u00e9st a\u00f0eins grunnur h\u00fassins \u00fear sem \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 en vi\u00f0 hli\u00f0 hans er ni\u00f0urgrafin geymsla og skammt fr\u00e1 fallega hla\u00f0inn t\u00fangar\u00f0ur og landamerki.\u00a0<\/p>\n<h4>Notast m.a. vi\u00f0 dr\u00f3na, \u00fer\u00edv\u00edddarl\u00edk\u00f6n og hitamyndav\u00e9l<\/h4>\n<p><em>\u201e\u00c9g er a\u00f0 vinna a\u00f0 heildarskr\u00e1ningu fornleifa \u00ed sveitarf\u00e9laginu en \u00fea\u00f0 er einmitt hluti af a\u00f0alskipulagi b\u00e6jarins. Fornleifaskr\u00e1ning er \u00ed rauninni kortlagning fornminja og er mikilv\u00e6gur hluti af verndun menningararfsins, enda getum vi\u00f0 ekki vernda\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 vitum ekki um. Fornleifaskr\u00e1ning er l\u00edka nau\u00f0synleg \u00ed skipulagsm\u00e1lum og samkv\u00e6mt l\u00f6gum um menningarminjar ver\u00f0ur fornleifaskr\u00e1ning a\u00f0 fara fram \u00e1\u00f0ur en deiliskipul\u00f6g eru sam\u00feykkt,\u201c<\/em> segir Atli. \u00c1\u00f0ur en eiginleg fornleifaskr\u00e1ning \u00e1 vettvangi \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 s\u00e9 leita\u00f0 heimilda um bygg\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu sem veri\u00f0 er a\u00f0 skr\u00e1, t.d. s\u00fdslu- og s\u00f3knarl\u00fdsingar, g\u00f6mul kort og \u00f6rnefnaskr\u00e1r. Svo s\u00e9 fari\u00f0 \u00e1 vettvang me\u00f0 GPS m\u00e6lit\u00e6ki og n\u00e1kv\u00e6mar m\u00e6lingar ger\u00f0ar af minjunum. <\/p>\n<p><em>\u201eSvo er l\u00edka stanslaus t\u00e6kni\u00fer\u00f3un \u00ed \u00feessu eins og \u00f6llu \u00f6\u00f0ru. F\u00f3lk hefur veri\u00f0 a\u00f0 pr\u00f3fa sig \u00e1fram me\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mum \u00fer\u00edv\u00edddarl\u00edk\u00f6num sem eru ger\u00f0 me\u00f0 dr\u00f3na og me\u00f0 hitamyndav\u00e9lum. En \u00fea\u00f0 er spurning hversu vel \u00fea\u00f0 myndi ganga \u00ed hrauninu h\u00e9rna \u00ed Hafnarfir\u00f0i, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri samt \u00e1hugavert a\u00f0 pr\u00f3fa \u00fea\u00f0.\u201c<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/atli3.jpg\" alt=\"Atli3\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1536px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1536\/1086;\" \/><sup>Fornminjar vi\u00f0 \u00deorbjarnarsta\u00f0i vi\u00f0 Straumsv\u00edk.<\/sup><\/p>\n<h4>Ver\u00f0ur a\u00f0gengilegt \u00e1 Kortavef b\u00e6jarins<\/h4>\n<p>Atli segir a\u00f0 Eyrarhraun s\u00e9 a\u00f0eins eitt d\u00e6mi um fj\u00f6lda minja sem fundist hafa \u00ed b\u00e6jarlandi Hafnarfjar\u00f0ar. \u201e<em>\u00dea\u00f0 var b\u00fai\u00f0 a\u00f0 skr\u00e1 miki\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00e9g kom til starfa, en skr\u00e1ningarsta\u00f0lar voru uppf\u00e6r\u00f0ir 2012 og eru or\u00f0nir n\u00e1kv\u00e6mari. \u00deess vegna voru margar af eldri skr\u00e1ningunum or\u00f0nar \u00fareltar og \u00fev\u00ed \u00feurfti a\u00f0 skr\u00e1 miki\u00f0 upp \u00e1 n\u00fdtt. Fyrri skr\u00e1ningarnar voru ger\u00f0ar h\u00e9r og \u00fear \u00ed b\u00e6num \u00ed kringum deiliskipul\u00f6g en vi\u00f0 erum n\u00fana a\u00f0 fara mj\u00f6g skipulega \u00ed verkefni\u00f0, skiptum b\u00e6num upp \u00ed t\u00f3lf sv\u00e6\u00f0i og erum a\u00f0 vinna okkur \u00ed gegnum \u00feau, \u00e9g er a\u00f0 leggja lokah\u00f6nd \u00e1 sj\u00f6unda sv\u00e6\u00f0i\u00f0 sem er Setbergi\u00f0. Skr\u00e1\u00f0ar minjar eru n\u00fa a\u00f0 ver\u00f0a \u00ed kringum 750 og flestar af \u00feeim er a\u00f0 finna \u00ed eldri hluta b\u00e6jarins og \u00e1 g\u00f6mlu b\u00faj\u00f6r\u00f0unum h\u00e9r \u00ed kringum b\u00e6inn sem hafa a\u00f0 mestu fengi\u00f0 a\u00f0 standa \u00f3hreyf\u00f0ar, eins og \u00e1 \u00d3ttarsst\u00f6\u00f0um, L\u00f3nakoti og \u00deorbjarnarst\u00f6\u00f0um. \u00c9g skrifa svo sk\u00fdrslu um hvert sv\u00e6\u00f0i \u00fear sem er sm\u00e1 s\u00f6gulegt yfirlit yfir hvert sv\u00e6\u00f0i, elstu heimildir og \u00feess h\u00e1ttar, og \u00ed \u00feeim er skr\u00e1 yfir fornminjarnar \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. \u00deetta eru rit sem getur veri\u00f0 gaman a\u00f0 fletta \u00ed gegnum og f\u00f3lk fundi\u00f0 a\u00f0gengilegar uppl\u00fdsingar um minjar \u00ed s\u00ednu n\u00e6rumhverfi.\u201c <\/em>Spur\u00f0ur segir Atli a\u00f0 allar skr\u00e1ningar muni \u00e1 endanum ver\u00f0a birtar \u00e1 Minjavefsj\u00e1 Minjastofnunar \u00cdslands og Kortavef Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar. Sk\u00fdrslurnar ver\u00f0i a\u00f0gengilegar \u00e1 vef safnsins: <a href=\"http:\/\/www.byggdasafnid.is.\">www.byggdasafnid.is<\/a><\/p>\n<h4><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/atli4.jpg\" alt=\"Atli4\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1536px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1536\/1024;\" \/><\/h4>\n<p><sup>Geymsla sem var vi\u00f0 b\u00e6inn Eyrarhraun, sem nefndur er \u00ed byrjun vi\u00f0talsins. Mynd\/OB\u00de<\/sup><\/p>\n<h4>Heppinn a\u00f0 vinna vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem brennandi \u00e1hugi er \u00e1<\/h4>\n<p>Elsta b\u00faj\u00f6r\u00f0 sem vita\u00f0 er um \u00ed Hafnarfir\u00f0i er Hvaleyri en \u00fear fundust vi\u00f0 framkv\u00e6mdir minjar fr\u00e1 landn\u00e1ms\u00f6ld, kolagr\u00f6f, fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed kringum \u00e1ri\u00f0 900. <em>\u201eN\u00fdrri fornminjar eru t.d. fiskreitir og hle\u00f0slur h\u00e9rna \u00ed b\u00e6num. Flestar minjarnar eru hla\u00f0nar \u00far grj\u00f3ti \u00far hrauninu enda n\u00f3g til af \u00fev\u00ed,\u201c<\/em> segir Atli. Spur\u00f0ur segir hann ekkert hafa svo sem komi\u00f0 \u00e1 \u00f3vart \u00ed \u00feessari vinnu, enda s\u00e9 hann mennta\u00f0ur fornleifafr\u00e6\u00f0ingur og \u00fev\u00ed heillandi n\u00e1mi fylgi mikil vettvangsvinna. <em>\u201eM\u00e9r finnst \u00e9g fyrst og fremst heppinn a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vinna vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef brennandi \u00e1huga \u00e1. \u00dea\u00f0 er gefandi a\u00f0 geta ekki a\u00f0eins skr\u00e1sett minjar og s\u00f6gusta\u00f0i b\u00e6jarins heldur l\u00edka gert \u00feessar uppl\u00fdsingar a\u00f0gengilegar fyrir alla sem \u00e1huga hafa. M\u00e9r finnst \u00e9g l\u00edka tengjast \u00feessu verkefni s\u00e9rst\u00f6kum b\u00f6ndum \u00fear sem langamma m\u00edn, El\u00edn Fri\u00f0finnsd\u00f3ttir, \u00f3lst upp \u00e1 b\u00e6num \u00d3ttarsst\u00f6\u00f0um, sem er einmitt einn af \u00feeim st\u00f6\u00f0um sem \u00e9g hef skr\u00e1sett.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Spur\u00f0ur a\u00f0 lokum hvort l\u00edklegt s\u00e9 a\u00f0 fleiri fornminjar g\u00e6ti veri\u00f0 a\u00f0 finna \u00ed Hafnarfir\u00f0i sem ekki hafi veri\u00f0 vita\u00f0 um, segir Atli: <em>\u201cVi\u00f0 fornleifaskr\u00e1ningu finnst alltaf eitthva\u00f0 \u201cn\u00fdtt\u201d en skr\u00e1ningin n\u00e6r bara til \u00feess sem s\u00e9st \u00e1 yfirbor\u00f0inu og til eru heimildir um og er engan veginn t\u00e6mandi. Sumar minjar eru \u00feannig \u00ed e\u00f0li s\u00ednu a\u00f0 \u00fea\u00f0 skiptir m\u00e1li \u00e1 hva\u00f0a \u00e1rst\u00edma ma\u00f0ur m\u00e6tir og \u00fea\u00f0 getur alltaf \u00fdmislegt leynst undir sver\u00f0i l\u00edka.\u201c<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/atli5.jpg\" alt=\"Atli5\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1536px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1536\/1024;\" \/><sup>Hle\u00f0slur sem \u00feessar, sem ger\u00f0ar eru \u00far hrauninu, eru algengar \u00ed Hafnarfir\u00f0i. Mynd\/OB\u00de<\/sup><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6ll \u00feekkjum vi\u00f0 n\u00e1tt\u00farud\u00fdr\u00f0ina \u00ed b\u00e6jarlandi Hafnarfjar\u00f0ar. \u00c1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i sem a\u00f0 miklu leyti er byggt \u00e1 hrauni leynast fornminjar sem eru misjafnlega \u00e1berandi en allar merkilegar og tengdar s\u00f6gu b\u00e6jarins. Bygg\u00f0asafn Hafnarfjar\u00f0ar hefur \u00ed m\u00f6rg \u00e1r skr\u00e1\u00f0 og kortlagt fornminjar \u00ed b\u00e6num og \u00fe\u00e1 er mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem er 100 \u00e1ra og eldra. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":18375,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14637","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14637","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14637"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14637\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/18375"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14637"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14637"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14637"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}