{"id":14685,"date":"2021-05-21T00:00:00","date_gmt":"2021-05-21T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/aukin-framlog-til-uppbyggingar-innvida-og-sumarstarfa-ungmenna\/"},"modified":"2022-09-26T15:17:25","modified_gmt":"2022-09-26T15:17:25","slug":"aukin-framlog-til-uppbyggingar-innvida-og-sumarstarfa-ungmenna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/aukin-framlog-til-uppbyggingar-innvida-og-sumarstarfa-ungmenna\/","title":{"rendered":"Increased funding for development and summer jobs"},"content":{"rendered":"<p><strong>Aukin framl\u00f6g til innvi\u00f0auppbyggingar og sumarstarfa ungmenna<\/strong><\/p>\n<p><strong><a class=\"internal\" href=\"\/en\/province\/meeting-minutes\/displaymeeting.aspx\/?id=eoUMFMxHeUKIv_7HtiMxxg1&amp;text=\">B\u00e6jarr\u00e1\u00f0 Hafnarfjar\u00f0ar sam\u00feykkti \u00e1 fundi s\u00ednum \u00ed g\u00e6r \u00e1\u00e6tlun um eftirfylgni og \u00e1framhaldandi a\u00f0ger\u00f0ir vegna Covid19.<\/a> <\/strong> \u00c1\u00e6tlunin tekur til \u00e1framhaldandi stu\u00f0nings vi\u00f0 \u00edb\u00faa og atvinnul\u00edf \u00ed Hafnarfir\u00f0i og \u00feess a\u00f0 styrkja grunnsto\u00f0ir b\u00e6jarins \u00fear til efnahagsl\u00edfi\u00f0 hefur n\u00e1\u00f0 fyrri styrk. Me\u00f0 n\u00fdrri \u00e1\u00e6tlun fylgja b\u00e6jaryfirv\u00f6ld \u00ed Hafnarfir\u00f0i eftir fyrri \u00e1\u00e6tlun og halda \u00e1fram a\u00f0 breg\u00f0ast me\u00f0 markvissum h\u00e6tti vi\u00f0 \u00e1hrifum faraldursins \u00e1 atvinnu og efnahagsl\u00edf.<\/p>\n<h4><strong>Framundan eru krefjandi verkefni \u00e1 vettvangi sveitarf\u00e9laga<\/strong><\/h4>\n<p>\u00de\u00f3tt v\u00edsbendingar s\u00e9u um h\u00e6gfara endurreisn fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu h\u00e9r \u00e1 landi, \u00fe\u00e1 s\u00e9r ekki fyrir endann \u00e1 faraldrinum \u00e1 heimsv\u00edsu og efnahagslegum aflei\u00f0ingum. T\u00edmabundnar stu\u00f0ningsa\u00f0ger\u00f0ir stj\u00f3rnvalda hafa unni\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti vaxandi atvinnuleysi h\u00e9r \u00e1 landi og vegi\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti tekjumissi. Enn eru krefjandi verkefni \u00e1 vettvangi sveitarf\u00e9laga vi\u00f0 a\u00f0 halda uppi fullri \u00fej\u00f3nustu og framkv\u00e6mdastigi. <em>\u201eVi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 neikv\u00e6\u00f0um \u00e1hrifum Covid19 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fj\u00f6lga sumarst\u00f6rfum fyrir ungmenni \u00ed b\u00e6num \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 ums\u00f3knir hafa aldrei veri\u00f0 fleiri en \u00ed \u00e1r. Einnig sty\u00f0jum vi\u00f0 \u00e1fram vi\u00f0 atvinnul\u00edfi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 auka vi\u00f0 framkv\u00e6mdir \u00ed sveitarf\u00e9laginu. N\u00fa \u00ed sumar leggjum vi\u00f0 auki\u00f0 f\u00e9 \u00ed endurb\u00e6tur, fegrun og fr\u00e1gang st\u00edga og gatna \u00ed hverfum b\u00e6jarins. Me\u00f0 \u00feessu h\u00f6ldum vi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 taka virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feeirri endurreisn sem fyrir h\u00f6ndum er. Traust fj\u00e1rhagssta\u00f0a sveitarf\u00e9lagsins, me\u00f0al annars vegna aukinnar l\u00f3\u00f0as\u00f6lu og s\u00f6lunnar \u00e1 hlutnum \u00ed HS-Veitum gerir okkur \u00feetta kleift,\u201c<\/em> says R\u00f3sa Gu\u00f0bjartsd\u00f3ttir, Mayor of Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur.<\/p>\n<p><strong>\u00cd framhaldi af fyrri a\u00f0ger\u00f0ar\u00e1\u00e6tlun leggur b\u00e6jarstj\u00f3rn fram eftirfarandi \u00e1\u00e6tlun:<\/strong><\/p>\n<ol>\n<li><strong>T\u00edmabundin st\u00f6rf<\/strong> &#8211; auki\u00f0 fj\u00e1rmagn ver\u00f0ur lagt \u00ed t\u00edmabundin st\u00f6rf \u00e1 vegum b\u00e6jarins. Bo\u00f0i\u00f0 ver\u00f0ur upp \u00e1 fleiri st\u00f6rf \u00ed vinnusk\u00f3la, auk myndarlegrar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed atvinnu\u00e1taki stj\u00f3rnvalda \u00fear sem bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 sumarst\u00f6rf fyrir n\u00e1msmenn og t\u00edmabundin st\u00f6rf fyrir f\u00f3lk \u00ed atvinnuleit. Samtals ver\u00f0a 250 millj\u00f3nir kr\u00f3na lag\u00f0ar \u00ed t\u00edmabundin st\u00f6rf \u00e1 vegum Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar.<\/li>\n<li><strong>Framkv\u00e6mda\u00e1\u00e6tlun \u2013 \u00e1hersla \u00e1 vi\u00f0haldsframkv\u00e6mdir og uppbyggingu innvi\u00f0a. <\/strong>Fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed fj\u00f6lbreyttar framkv\u00e6mdir \u00ed b\u00e6num sem bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 \u00fdmiskonar atvinnut\u00e6kif\u00e6ri. D\u00e6mi um verkefni er endurn\u00fdjun gangst\u00e9tta \u00ed eldri hverfum b\u00e6jarins, fr\u00e1gangur gatna og st\u00edga \u00ed Skar\u00f0shl\u00ed\u00f0 og Hellnahrauni, endurn\u00fdjun og vi\u00f0hald \u00e1 sk\u00f3lal\u00f3\u00f0um og endurn\u00fdjun st\u00edga og rafmagns \u00ed Hellisger\u00f0i. Samtals ver\u00f0ur 340 millj\u00f3num kr\u00f3na b\u00e6tt vi\u00f0 vi\u00f0halds- og innvi\u00f0aframkv\u00e6mdir \u00e1 vegum Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar.<\/li>\n<li><strong>Menning, listir og skapandi greinar \u2013 <\/strong>\u00e1kve\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 a\u00f0 b\u00e6jarh\u00e1t\u00ed\u00f0in Bjartir dagar standi yfir \u00ed allt sumar og endurspegli allt \u00fea\u00f0 fj\u00f6lbreytta menningarstarf sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00cd venjulegu \u00e1ri stendur \u00feessi fyrsta b\u00e6jarh\u00e1t\u00ed\u00f0 landsins yfir \u00ed fimm daga. Samtals ver\u00f0ur b\u00e6tt vi\u00f0 5 millj\u00f3num kr\u00f3na til s\u00e9rstakra menningarvi\u00f0bur\u00f0a \u00ed Hafnarfir\u00f0i sumari\u00f0 2021.<\/li>\n<\/ol>\n<h4><strong>Einhugur og samsta\u00f0a um a\u00f0ger\u00f0ir<\/strong><\/h4>\n<p><a class=\"internal\" href=\"\/en\/province\/news\/adgerdir-hafnarfjardarbaejar-vegna-covid19\/\">B\u00e6jarstj\u00f3rn Hafnarfjar\u00f0ar sam\u00feykkti \u00ed apr\u00edl 2020 a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlun til a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 efnahagslegum \u00e1hrifum COVID-19 faraldursins \u00e1 \u00edb\u00faa, f\u00e9l\u00f6g og fyrirt\u00e6ki auk reksturs sveitarf\u00e9lagsins sj\u00e1lfs. <\/a> L\u00f6g\u00f0 var \u00e1hersla \u00e1 a\u00f0 um fyrstu a\u00f0ger\u00f0ir Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, sem \u00e6tla\u00f0 var a\u00f0 tryggja rekstur b\u00e6jarf\u00e9lagsins og koma til m\u00f3ts vi\u00f0 atvinnul\u00edf og \u00edb\u00faa sem \u00feurfa a\u00f0 standa af s\u00e9r aflei\u00f0ingar faraldursins. A\u00f0ger\u00f0irnar mi\u00f0u\u00f0u einnig a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1gmarka \u00fe\u00e1 ni\u00f0ursveiflu sem \u00f3hj\u00e1kv\u00e6mileg v\u00e6ri og standa v\u00f6r\u00f0 um \u00fej\u00f3nustu b\u00e6jarf\u00e9lagsins. Samsta\u00f0a var \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn um \u00e1\u00e6tlunina og hefur veri\u00f0 starfa\u00f0 \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 hana me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri\u00f0. N\u00fd a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlun ver\u00f0ur \u00e1samt vi\u00f0auka vi\u00f0 fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlun l\u00f6g\u00f0 fyrir til sam\u00feykktar \u00e1 fundi b\u00e6jarstj\u00f3rnar 26. ma\u00ed n\u00e6stkomandi.&nbsp;&nbsp;<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aukin framl\u00f6g til innvi\u00f0auppbyggingar og sumarstarfa ungmenna B\u00e6jarr\u00e1\u00f0 Hafnarfjar\u00f0ar sam\u00feykkti \u00e1 fundi s\u00ednum \u00ed g\u00e6r \u00e1\u00e6tlun um eftirfylgni og \u00e1framhaldandi a\u00f0ger\u00f0ir vegna Covid19. \u00c1\u00e6tlunin tekur til \u00e1framhaldandi stu\u00f0nings vi\u00f0 \u00edb\u00faa og atvinnul\u00edf \u00ed Hafnarfir\u00f0i og \u00feess a\u00f0 styrkja grunnsto\u00f0ir b\u00e6jarins \u00fear til efnahagsl\u00edfi\u00f0 hefur n\u00e1\u00f0 fyrri styrk. Me\u00f0 n\u00fdrri \u00e1\u00e6tlun fylgja b\u00e6jaryfirv\u00f6ld \u00ed Hafnarfir\u00f0i eftir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14685","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14685","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14685"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14685\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14685"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14685"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14685"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}