{"id":14845,"date":"2021-11-29T00:00:00","date_gmt":"2021-11-29T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/althjodlegur-barattudagur-gegn-kynbundnu-ofbeldi\/"},"modified":"2022-09-26T15:18:39","modified_gmt":"2022-09-26T15:18:39","slug":"althjodlegur-barattudagur-gegn-kynbundnu-ofbeldi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/althjodlegur-barattudagur-gegn-kynbundnu-ofbeldi\/","title":{"rendered":"International 16 Days of Activism against Gender-Based Violence"},"content":{"rendered":"<p>Fimmtudaginn 25. n\u00f3vember var al\u00fej\u00f3\u00f0legur bar\u00e1ttudagur Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna gegn kynbundnu ofbeldi. Af \u00fev\u00ed tilefni var h\u00fas Hafranns\u00f3knarstofnunar \u00ed Hafnarfir\u00f0i, Harpa, Stj\u00f3rnarr\u00e1\u00f0 \u00cdslands, Gr\u00f3ttuviti auk fleiri bygginga l\u00fdstar upp \u00ed appels\u00ednugulum lit, sem er t\u00e1knr\u00e6nn fyrir von og bjarta framt\u00ed\u00f0 kvenna og st\u00falkna \u00e1n ofbeldis.&nbsp; \u00c1taki\u00f0, sem l\u00fdkur 10. desember \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0adegi mannr\u00e9ttinda, er drifi\u00f0 \u00e1fram af m\u00f6rgum a\u00f0ilum, f\u00e9lagasamt\u00f6kum og activistum \u00fe.\u00e1.m. UN Women \u00e1 \u00cdslandi og Soroptimistakl\u00fabbi Hafnarfjar\u00f0ar og Gar\u00f0ab\u00e6jar.&nbsp; H\u00fas Hafranns\u00f3knarstofnunar \u00e1 Flensborgarh\u00f6fn mun vera l\u00fdst upp \u00ed appels\u00ednugulum lit \u00e1 me\u00f0an \u00e1 \u00e1takinu stendur.&nbsp;<\/p>\n<h4>16 daga t\u00e1knr\u00e6nt \u00e1tak sem l\u00fdkur \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum mannr\u00e9ttindadegi 10. desember&nbsp;<\/h4>\n<p>\u00c1rleg lj\u00f3saganga  <a href=\"https:\/\/unwomen.is\/\">UN Women \u00e1 \u00cdslandi<\/a>  ver\u00f0ur ekki haldin \u00ed \u00e1r s\u00f6kum heimsfaraldursins, en gangan hefur marka\u00f0 upphaf 16 daga \u00e1taks gegn kynbundnu ofbeldi sem l\u00fdkur 10. desember \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum mannr\u00e9ttindadegi. \u00cd tilefni dagsins birti Stella Sam\u00faelsd\u00f3ttir framkv\u00e6mdast\u00fdra UN Women \u00e1 \u00cdslandi <a href=\"https:\/\/unwomen.is\/gleymum-ekki-konum-i-afganistan\/?fbclid=IwAR0_YhYvYrsusSxEmEwai0Zzed_tIteg3H7kPXhswcxMII-378zfuWNN6i4\">grein \u00e1 vef UN Women.<\/a> &nbsp;Vi\u00f0 l\u00e1tum efni greinar fylgja me\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.&nbsp;<\/p>\n<p>&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8211;<\/p>\n<h4>Gleymum ekki konum \u00ed Afganistan&nbsp;<\/h4>\n<p>\u00cd dag er al\u00fej\u00f3\u00f0legur bar\u00e1ttudagur Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna gegn kynbundnu ofbeldi. Af \u00fev\u00ed tilefni er Harpa, Stj\u00f3rnarr\u00e1\u00f0 \u00cdslands, Gr\u00f3ttuviti auk fleiri bygginga l\u00fdstar upp \u00ed appels\u00ednugulum lit, sem er t\u00e1knr\u00e6nn fyrir von og bjarta framt\u00ed\u00f0 kvenna og st\u00falkna \u00e1n ofbeldis. L\u00edkt og \u00ed fyrra ver\u00f0ur engin Lj\u00f3saganga UN Women \u00e1 \u00cdslandi s\u00f6kum heimsfaraldursins, en gangan hefur marka\u00f0 upphaf 16 daga \u00e1taks gegn kynbundnu ofbeldi sem l\u00fdkur 10. desember \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum mannr\u00e9ttindadegi.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00fdrri sk\u00fdrslu UN Women kemur fram a\u00f0 <strong>2 af hverjum 3<\/strong> konum greindu fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r e\u00f0a kona sem \u00fe\u00e6r \u00feekkja, hafi veri\u00f0 beittar ofbeldi og a\u00f0 \u00fe\u00e6r v\u00e6ru l\u00edklegri til a\u00f0 standa frammi fyrir f\u00e6\u00f0u\u00f3\u00f6ryggi. A\u00f0eins <strong>ein af hverjum 10<\/strong> konum sag\u00f0i a\u00f0 \u00feolendur myndu leita til l\u00f6greglu til a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0sto\u00f0.<\/p>\n<p><strong>N\u00edu af hverjum t\u00edu<\/strong> konum \u00ed Afganistan eru beittar ofbeldi af maka s\u00ednum \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni og fer s\u00fa tala h\u00e6kkandi me\u00f0 hverjum deginum. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Tal\u00edbanar t\u00f3ku yfir Afganistan, hefur a\u00f0gengi \u00feolenda a\u00f0 vi\u00f0eigandi a\u00f0sto\u00f0 versna\u00f0 til muna. Samt hefur \u00fe\u00f6rfin aukist. T\u00ed\u00f0ni barnahj\u00f3nabanda fer h\u00e6kkandi og kynbundi\u00f0 ofbeldi aukist til muna, innan sem utan heimila. Skipu\u00f0 hefur veri\u00f0 r\u00edkisstj\u00f3rn \u00ed Afganistan sem hefur engar konur og Kvenna- og jafnr\u00e9ttisr\u00e1\u00f0uneyti landsins hefur veri\u00f0 lagt ni\u00f0ur.<\/p>\n<h4>Al\u00fej\u00f3\u00f0asamf\u00e9lagi\u00f0 hefur brug\u00f0ist<\/h4>\n<p>\u00cd sumum h\u00e9ru\u00f0um Afganistan er konum sagt a\u00f0 m\u00e6ta ekki til vinnu og yfirgefa ekki heimili s\u00edn \u00e1n karlkyns \u00e6ttingja. R\u00e1\u00f0ist er \u00e1 kvennaathv\u00f6rf og starfsf\u00f3lk \u00feeirra \u00e1reitt. Sta\u00f0a kvenna og st\u00falkna \u00ed Afganistan er grafalvarleg en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ar halda konur \u00e1fram a\u00f0 berjast fyrir r\u00e9ttindum s\u00ednum og krefjast jafnr\u00e9ttis. \u00dea\u00f0 hefur ekki breyst og mun ekki breytast. Afganskar konur hafa veri\u00f0 \u00ed fararbroddi \u00ed bar\u00e1ttunni fyrir r\u00e9ttindum s\u00ednum um aldir og \u00e1 \u00fev\u00ed er ekkert l\u00e1t.<\/p>\n<p><strong><a href=\"https:\/\/unwomen.is\/lysa-yfir-miklum-ahyggjum-af-lifi-og-rettindum-afganskra-kvenna\/\">Al\u00fej\u00f3\u00f0asamf\u00e9lagi\u00f0<\/a><\/strong> hefur brug\u00f0ist konum \u00ed Afganistan. \u00dea\u00f0 er sameiginleg \u00e1byrg\u00f0 okkar allra a\u00f0 r\u00e6\u00f0ur \u00e1 tyllid\u00f6gum ver\u00f0i a\u00f0 raunverulegum a\u00f0ger\u00f0um til a\u00f0 tryggja konum grundvallarmannr\u00e9ttindi. Vi\u00f0 getum \u00f6ll s\u00fdnt afg\u00f6nskum konum samst\u00f6\u00f0u og tryggt a\u00f0 raddir \u00feeirra heyrist me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hlusta. Tryggja \u00fearf \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku kvenna \u00ed samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0um vi\u00f0 Tal\u00edbana og a\u00f0 konur s\u00e9u haf\u00f0ar me\u00f0 \u00ed r\u00e1\u00f0um vi\u00f0 skipulag og veitingu mann\u00fa\u00f0ar- og ney\u00f0ara\u00f0sto\u00f0ar. Vi\u00f0 t\u00f6kum t\u00f6kum \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feessum a\u00f0ger\u00f0um me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 styrkja starf samtaka sem sty\u00f0ja vi\u00f0 afganskar konur.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 hj\u00e1 UN Women gleymum ekki, vi\u00f0 erum \u00e1 sta\u00f0num, vi\u00f0 dreifum ney\u00f0arp\u00f6kkum til kvenna og barna \u00feeirra og gr\u00edpum \u00feolendur og kvena\u00f0ger\u00f0asinna sem gefast ekki upp \u00fer\u00e1tt fyrir skelfilegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u00cd dag skulum vi\u00f0 \u00ed sta\u00f0 Lj\u00f3sag\u00f6ngu, kveikja \u00e1 kerti af vir\u00f0ingu vi\u00f0 <strong><a href=\"https:\/\/www.unwomen.org\/en\/news\/stories\/2021\/10\/take-five-hasina-safi\">\u00f3\u00ferj\u00f3tandi bar\u00e1ttu afganskra kvenna<\/a><\/strong> fyrir l\u00edfi \u00e1n ofbeldis.<\/p>\n<p><em>Stella Sam\u00faelsd\u00f3ttir, framkv\u00e6mdast\u00fdra UN Women \u00e1 \u00cdslandi.<\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fimmtudaginn 25. n\u00f3vember var al\u00fej\u00f3\u00f0legur bar\u00e1ttudagur Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna gegn kynbundnu ofbeldi. Af \u00fev\u00ed tilefni var h\u00fas Hafranns\u00f3knarstofnunar \u00ed Hafnarfir\u00f0i, Harpa, Stj\u00f3rnarr\u00e1\u00f0 \u00cdslands, Gr\u00f3ttuviti auk fleiri bygginga l\u00fdstar upp \u00ed appels\u00ednugulum lit, sem er t\u00e1knr\u00e6nn fyrir von og bjarta framt\u00ed\u00f0 kvenna og st\u00falkna \u00e1n ofbeldis.&nbsp; \u00c1taki\u00f0, sem l\u00fdkur 10. desember \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0adegi mannr\u00e9ttinda, er drifi\u00f0 \u00e1fram [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14845","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14845","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14845"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14845\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14845"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14845"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14845"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}