{"id":14912,"date":"2022-01-20T00:00:00","date_gmt":"2022-01-20T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/fraedandi-hvetjandi-og-stydjandi-samfelag\/"},"modified":"2022-09-26T15:18:48","modified_gmt":"2022-09-26T15:18:48","slug":"fraedandi-hvetjandi-og-stydjandi-samfelag","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/fraedandi-hvetjandi-og-stydjandi-samfelag\/","title":{"rendered":"An educational, inspiring and supportive community"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1sd\u00eds Au\u00f0unsd\u00f3ttir, Inga Fr\u00ed\u00f0a Tryggvad\u00f3ttir og Unnur Elfa Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir eiga \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 vera allar metna\u00f0arfullir stj\u00f3rnendur og faglegir lei\u00f0togar hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6. \u00c1hugi, reynsla, s\u00fdn og pers\u00f3nuleiki marka stj\u00f3rnunarst\u00edl \u00feeirra og \u00e1herslur, \u00ed starfi \u00fear sem mannau\u00f0urinn er mikilv\u00e6gasta au\u00f0lindin.&nbsp;<\/p>\n<p> <a href=\"https:\/\/www.frettabladid.is\/kynningar\/frandi-hvetjandi-og-styjandi-samfelag\/\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 \u00c1sd\u00edsi, Ingu Fr\u00ed\u00f0u og Unni Elfu birtist \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu 20. jan\u00faar 2022<\/a><\/p>\n<p><em>\u201eTil a\u00f0 h\u00e9r takist sem best til ver\u00f0ur a\u00f0 vera til sta\u00f0ar gagnkv\u00e6mt traust og \u00fe\u00e1 \u00fearf stj\u00f3rnandinn a\u00f0 vera s\u00fa fyrirmynd sem starfsf\u00f3lk getur liti\u00f0 til,\u201c s<\/em>egir \u00c1sd\u00eds Au\u00f0unsd\u00f3ttir, forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur \u00e1 heimili fyrir fatla\u00f0 f\u00f3lk. <em>\u201eFj\u00e1rsj\u00f3\u00f0urinn er f\u00f3lginn \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 virkja \u00fea\u00f0 afl sem b\u00fdr \u00ed starfsmannah\u00f3pnum. \u00cd hverjum og einum starfsmanni b\u00fdr metna\u00f0ur og \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00f3l\u00edkar sko\u00f0anir, a\u00f0 starfsf\u00f3lk finni a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 teki\u00f0 mark \u00e1 \u00fev\u00ed, og a\u00f0 hugmyndir \u00feess og till\u00f6gur f\u00e1i a\u00f0 heyrast \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00e1i noti\u00f0 s\u00edn \u00ed starfi. Stj\u00f3rnandi \u00fearf einnig a\u00f0 standa me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki og sty\u00f0ja og hvetja til frumkv\u00e6\u00f0is. \u00dea\u00f0 kemur \u00f6llum til g\u00f3\u00f0a a\u00f0 stj\u00f3rnandi leggi sig fram um a\u00f0 hl\u00faa a\u00f0 starfsmannah\u00f3pnum. \u00cd okkar starfi er \u00e1kve\u00f0in festa mikilv\u00e6g; mikil starfsmannavelta er ekki g\u00f3\u00f0 fyrir \u00fej\u00f3nustunotendur.\u201c<\/em><\/p>\n<p><em><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/asdisaudunsdottir.jpg\" alt=\"AsdisAudunsdottir\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 1919px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 1919\/1109;\"><\/em><sup>\u00c1sd\u00eds Au\u00f0unsd\u00f3ttir, forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur \u00e1 heimili fyrir fatla\u00f0 f\u00f3lk. FR\u00c9TTABLA\u00d0I\u00d0\/VALLI<\/sup><em><br \/><\/em><br \/>\u00c1sd\u00eds segir a\u00f0 starfsmannah\u00f3purinn \u00e1 heimilinu \u00fear sem h\u00fan vinnur s\u00e9 fj\u00f6lbreyttur en \u00fear vinnur b\u00e6\u00f0i fagf\u00f3lk me\u00f0 mikla reynslu og svo ungt f\u00f3lk sem er a\u00f0 st\u00edga s\u00edn fyrstu skref. Segir h\u00fan a\u00f0 \u00fe\u00e1 skipti g\u00f3\u00f0 a\u00f0l\u00f6gun miklu m\u00e1li um framhaldi\u00f0. <em>\u201eHafnarfjar\u00f0arb\u00e6r hefur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 n\u00fdli\u00f0afr\u00e6\u00f0slu \u00fear sem fari\u00f0 er yfir hugmyndafr\u00e6\u00f0i, r\u00e9ttindi og skyldur \u00ed starfi. \u00dea\u00f0 er gefandi a\u00f0 sj\u00e1 ungt f\u00f3lk koma til starfa og \u00feroskast \u00ed starfi s\u00ednu og jafnvel mennta sig til starfsins. Starfsf\u00f3lk \u00fearf a\u00f0 f\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri til starfs\u00fer\u00f3unar og hefur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r veri\u00f0 me\u00f0 metna\u00f0arfulla starfs\u00fer\u00f3un \u00ed \u00feessum geira. \u00c9g hef hvatt mitt f\u00f3lk til a\u00f0 fara \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0, tileinka s\u00e9r n\u00fdja \u00feekkingu svo allir \u00feekki og raungeri hugmyndafr\u00e6\u00f0ina sem unni\u00f0 er eftir. Markmi\u00f0i\u00f0 er velfer\u00f0 \u00edb\u00faanna.\u201c<\/em><\/p>\n<p>\u00c1sd\u00eds segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0a vi\u00f0 forst\u00f6\u00f0umannastarfi\u00f0 s\u00e9 hva\u00f0 verkefnin eru fj\u00f6lbreytt, \u00fearfir \u00edb\u00faa \u00f3l\u00edkar og verkefnin margs konar. <em>\u201eForgangsverkefni er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00fej\u00f3nustan vi\u00f0 \u00edb\u00faa sem \u00fearf s\u00edfellt a\u00f0 vera \u00ed endursko\u00f0un og margir \u00fer\u00e6\u00f0ir \u00feurfa a\u00f0 sameinast svo vel takist til. G\u00f3\u00f0ur starfsmannah\u00f3pur me\u00f0 sameiginlega s\u00fdn og sem vinnur sem ein heild er lykillinn a\u00f0 \u00e1rangursr\u00edku starfi<\/em><em>.\u201c<\/em><\/p>\n<\/p>\n<h4>Hluti af h\u00f3pnum<\/h4>\n<p><em>\u201e\u00c9g var ekki me\u00f0 stj\u00f3rnunarreynslu en var b\u00fain a\u00f0 vera handbolta\u00fej\u00e1lfari \u00ed nokkur \u00e1r og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 taka svol\u00edti\u00f0 \u00fej\u00e1lfarann \u00e1 \u00feetta,\u201c <\/em>segir Inga Fr\u00ed\u00f0a Tryggvad\u00f3ttir, leiksk\u00f3lastj\u00f3ri Sm\u00e1ralundar \u00ed Hafnarfir\u00f0i, um \u00fea\u00f0 \u00feegar h\u00fan h\u00f3f st\u00f6rf \u00e1 s\u00ednum t\u00edma<em>. \u201e\u00c9g var landsli\u00f0skona \u00ed handbolta og spila\u00f0i b\u00e6\u00f0i me\u00f0 Stj\u00f6rnunni og Haukum og var heppin a\u00f0 spila \u00ed g\u00f3\u00f0um li\u00f0um me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri li\u00f0sheild og mikilli h\u00f3pstemningu. \u00deegar \u00e9g t\u00f3k vi\u00f0 starfinu fannst m\u00e9r tilvali\u00f0 og mikilv\u00e6gt a\u00f0 endurspegla og b\u00faa til \u00feessa li\u00f0sstemningu og keppnisanda. \u00c9g l\u00edt \u00e1 mig sem \u00fej\u00e1lfarann \u00ed h\u00f3pnum, reyni a\u00f0 lei\u00f0beina vel og vera fyrirmynd. Ma\u00f0ur horfir \u00ed og reynir a\u00f0 \u00fdta undir styrkleika hvers og eins \u00fev\u00ed r\u00e9tt eins og \u00e1 vellinum \u00fe\u00e1 kallar leiksk\u00f3lastarfi\u00f0 \u00e1 fj\u00f6lbreytni \u00ed f\u00f3lki, sveigjanleika og skarpa og skapandi hugsun. \u00c9g vil a\u00f0 mitt f\u00f3lk bl\u00f3mstri \u00ed s\u00ednu starfi og legg \u00fev\u00ed upp me\u00f0 a\u00f0 lesa svol\u00edti\u00f0 starfsf\u00f3lki\u00f0, e\u00f0a leikmennina, \u00ed leiksk\u00f3lanum.\u201c<\/p>\n<p>The Icelandic<\/p>\n<p><em><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/ingafridatryggvadottir.jpg\" alt=\"IngaFridaTryggvadottir\" class=\"center lazyload\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" style=\"--smush-placeholder-width: 800px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 800\/1202;\"><\/em><sup><\/sup><\/p>\n<p align=\"center\"><sup>Inga Fr\u00ed\u00f0a Tryggvad\u00f3ttir, leiksk\u00f3lastj\u00f3ri hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6.FR\u00c9TTABLA\u00d0I\u00d0\/VALLI<\/sup><\/p>\n<p>Inga Fr\u00ed\u00f0a segir \u00fea\u00f0 einkennandi a\u00f0 starfsf\u00f3lk leiksk\u00f3la hugsi \u00ed lausnum. <em>\u201eLeiksk\u00f3lastarfi\u00f0 er \u00e1n vafa eitt skemmtilegasta og mest gefandi starf \u00ed heimi. \u00dev\u00ed fylgir mikil gle\u00f0i en l\u00edka miki\u00f0 \u00e1lag. B\u00f6rn \u00e1 hverri deild eru m\u00f6rg, \u00fearfirnar \u00f3l\u00edkar, r\u00fdmi oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um l\u00edti\u00f0 og h\u00e1va\u00f0inn mikill. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00feetta vel og l\u00e1tum verkin tala. \u00dea\u00f0 a\u00f0 breyta a\u00f0st\u00f6\u00f0u og umhverfi er svol\u00edti\u00f0 undir okkur komi\u00f0; alveg eins og \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttum \u00fear sem leikmenn \u00feurfa a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort og \u00fe\u00e1 hvernig \u00feeir \u00e6tla a\u00f0 leggja sig fram \u00ed leikjum til a\u00f0 vinna. Sigurinn er svo miklu s\u00e6tari. Vi\u00f0 nennum ekki a\u00f0 staldra lengi vi\u00f0 einhver vandam\u00e1l e\u00f0a krefjandi verkefni. Vi\u00f0 reynum a\u00f0 passa vel upp \u00e1 okkar andlegu l\u00ed\u00f0an; notum n\u00favitund \u00ed starfi b\u00e6\u00f0i fyrir okkur sj\u00e1lf og nemendur til a\u00f0 hl\u00faa a\u00f0 okkur og sj\u00e1lfi okkar. \u00c9g vil a\u00f0 \u00f6llum l\u00ed\u00f0i vel og velti fyrir m\u00e9r hva\u00f0 \u00e9g get gert til a\u00f0 \u00fdta undir vell\u00ed\u00f0an \u00ed starfi, til a\u00f0 minnka \u00e1lagi\u00f0 og au\u00f0vita\u00f0 vera me\u00f0 fram\u00farskarandi sk\u00f3lastarf. H\u00f3purinn minn er fr\u00e1b\u00e6r og starfsmannaveltan hefur veri\u00f0 l\u00edtil \u00feannig a\u00f0 eitthva\u00f0 erum vi\u00f0 a\u00f0 gera r\u00e9tt.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Inga Fr\u00ed\u00f0a segist almennt leggja \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 vera hluti af h\u00f3pnum \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 s\u00e9 svo h\u00fan sem taki loka\u00e1kvar\u00f0anirnar og \u00feurfi a\u00f0 taka \u00e1 erfi\u00f0um m\u00e1lum. <em>\u201e\u00c9g geng \u00ed \u00f6ll st\u00f6rf \u00feannig a\u00f0 \u00e9g veit hva\u00f0 \u00e9g er a\u00f0 tala um. \u00c9g er s\u00fdnilegur stj\u00f3rnandi og reyni a\u00f0 vera lei\u00f0togi b\u00e6\u00f0i \u00ed or\u00f0i og \u00e1 bor\u00f0i; a\u00f0 vera j\u00e1kv\u00e6\u00f0 og lausnami\u00f0u\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 smitist \u00fat \u00ed starfi\u00f0 og til f\u00e9laga minna. \u00c9g legg \u00feannig frekar \u00e1herslu \u00e1 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 getum gert \u00ed hinum \u00f3tr\u00falegustu a\u00f0st\u00e6\u00f0um en ekki hversu st\u00f3rt verkefni\u00f0 er. \u00c9g reyni a\u00f0 enda alltaf daginn inni \u00e1 deild \u00feannig a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 \u00ed samskiptum vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i starfsf\u00f3lk og foreldra. \u00deetta fyrirkomulag gefur m\u00e9r miki\u00f0, styrkir tengslin, fyllir mig gle\u00f0i og l\u00e9ttir lundina eftir langan dag \u00e1 skrifstofunni.\u201c<br \/><\/em><\/p>\n<h4>\u00c1rangur kemur me\u00f0 vell\u00ed\u00f0an og \u00f6ryggi<\/h4>\n<p><em>\u201e\u00dea\u00f0 er skemmtilegt og gefandi starf a\u00f0 vera stj\u00f3rnandi \u00ed sk\u00f3la. Verkefnin eru m\u00f6rg og mismunandi og enginn dagur eins. A\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00f3v\u00e6ntum a\u00f0st\u00e6\u00f0um er daglegt brau\u00f0 og \u00fea\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti og s\u00fa hl\u00fdja sem ma\u00f0ur f\u00e6r fr\u00e1 nemendum s\u00ednum gefur starfinu \u00fe\u00fd\u00f0ingarmikinn bl\u00e6. \u00dea\u00f0 er okkar starf a\u00f0 virkja og styrkja einstaklingana til \u00e1rangurs, hvern \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i, og gefa \u00feeim t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 skapa s\u00e9r bjarta framt\u00ed\u00f0,\u201c<\/em> segir Unnur Elfa Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir, sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00c1slandssk\u00f3la.<\/p>\n<p><em>\u201eMe\u00f0 g\u00f3\u00f0ri samvinnu og samskiptum sem einkennast af vir\u00f0ingu vi\u00f0 nemendur, foreldra og samstarfsf\u00f3lk byggir ma\u00f0ur upp gott sk\u00f3lasamf\u00e9lag sem er fr\u00e6\u00f0andi, hvetjandi og sty\u00f0jandi. Samvinna og samtal eru \u00fe\u00e6ttir sem skila miklu til okkar \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 skapa traust og samst\u00f6\u00f0u. \u00d6flugt sk\u00f3lasamf\u00e9lag er lykil\u00fe\u00e1ttur \u00ed l\u00edfi okkar allra og vell\u00ed\u00f0an nemenda getur skipt sk\u00f6pum \u00ed \u00fe\u00e1ttum eins og n\u00e1ms\u00e1rangri. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 hlusta og s\u00fdna \u00e1huga, f\u00e1 foreldra til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed mj\u00f6g svo fj\u00f6lbreyttum a\u00f0st\u00e6\u00f0um og b\u00faa \u00feannig um a\u00f0 allir s\u00e9u hluti af sameiginlegri heild, heild sem hefur \u00fea\u00f0 markmi\u00f0 a\u00f0 ala upp b\u00f6rn og ungmenni \u00ed heilbrig\u00f0u samf\u00e9lagi.\u201c<\/em><\/p>\n<p><em><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/5o5a5372.jpg\" alt=\"5O5A5372\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 2048px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 2048\/1366;\"><\/em><sup>Unnur Elfa Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir, sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00c1slandssk\u00f3la. HAFNARFJAR\u00d0ARB\u00c6R\/\u00d3lafur M\u00e1r Svavarsson&nbsp;<\/sup><em><br \/><\/em><br \/>Unnur Elfa segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi margoft s\u00fdnt sig a\u00f0 starfsf\u00f3lk, sem l\u00ed\u00f0ur vel, skilar \u00e1rangri og metna\u00f0arfullu starfi og \u00fea\u00f0 eigi svo sannarlega vi\u00f0 \u00ed \u00c1slandssk\u00f3la.<em> \u201eStarfsf\u00f3lk sem n\u00fdtur stu\u00f0nings og upplifir traust og skilning \u00e1 s\u00edn st\u00f6rf n\u00e6r aukum \u00e1rangri. Me\u00f0 \u00e1kve\u00f0inni festu en jafnframt sveigjanleika skapast besta starfsumhverfi\u00f0.\u201c&nbsp;<\/em>Unnur Elfa bendir \u00e1 a\u00f0 mikilv\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 velvild s\u00e9 til sta\u00f0ar \u00e1 vinnusta\u00f0num, framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn s\u00e9 sk\u00fdr og a\u00f0 allir viti til hvers s\u00e9 \u00e6tlast af \u00feeim sem og a\u00f0 einstaklingurinn upplifi \u00f6ryggi.<\/p>\n<\/p>\n<p><em>\u201eVi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 vera \u00f3hr\u00e6dd vi\u00f0 a\u00f0 gera breytingar sem teknar eru me\u00f0 uppl\u00fdstum \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum og tryggja a\u00f0 mismunandi raddir heyrist, vera fyrirmynd og s\u00fdna sanngirni og hei\u00f0arleika me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta \u00ed lj\u00f3s sko\u00f0anir s\u00ednar \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u ekki alltaf l\u00edklegar til vins\u00e6lda. Stj\u00f3rnandinn \u00fearf \u00ed senn a\u00f0 vera b\u00e6\u00f0i stj\u00f3rnandi og lei\u00f0togi, vera hvetjandi, \u00f3hr\u00e6ddur vi\u00f0 a\u00f0 deila verkefnum til annarra, fanga og \u00fdta undir s\u00e9rst\u00f6\u00f0u og n\u00fdta h\u00e6fileika hvers og eins til sterkari framt\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er mikill mannau\u00f0ur \u00ed sk\u00f3lasamf\u00e9laginu sem mikilv\u00e6gt a\u00f0 vir\u00f0a og meta.\u201c<\/em><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/www.frettabladid.is\/kynningar\/frandi-hvetjandi-og-styjandi-samfelag\/\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 \u00c1sd\u00edsi, Ingu Fr\u00ed\u00f0u og Unni Elfu birtist \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu 20. jan\u00faar 2022<\/a><em><br \/><\/em><\/p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1sd\u00eds Au\u00f0unsd\u00f3ttir, Inga Fr\u00ed\u00f0a Tryggvad\u00f3ttir og Unnur Elfa Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir eiga \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 vera allar metna\u00f0arfullir stj\u00f3rnendur og faglegir lei\u00f0togar hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6. \u00c1hugi, reynsla, s\u00fdn og pers\u00f3nuleiki marka stj\u00f3rnunarst\u00edl \u00feeirra og \u00e1herslur, \u00ed starfi \u00fear sem mannau\u00f0urinn er mikilv\u00e6gasta au\u00f0lindin.&nbsp; Vi\u00f0tal vi\u00f0 \u00c1sd\u00edsi, Ingu Fr\u00ed\u00f0u og Unni Elfu birtist \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu 20. jan\u00faar 2022 \u201eTil [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":19006,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14912","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14912","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14912"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14912\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/19006"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14912"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14912"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14912"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}