{"id":14957,"date":"2022-03-08T00:00:00","date_gmt":"2022-03-08T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/stodug-throun-i-adstod-vid-fatlad-folk\/"},"modified":"2022-09-26T15:18:57","modified_gmt":"2022-09-26T15:18:57","slug":"stodug-throun-i-adstod-vid-fatlad-folk","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/stodug-throun-i-adstod-vid-fatlad-folk\/","title":{"rendered":"Continuous development in support for disabled people"},"content":{"rendered":"<p>Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur er fram\u00ads\u00e6kinn b\u00e6r \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 fatla\u00f0 f\u00f3lk. Hugsa\u00f0 er \u00fat fyrir boxi\u00f0 og farnar n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 b\u00e6ta umhverfi og a\u00f0gengi. Marg\u00adv\u00edslegar \u00e1skoranir komu upp hj\u00e1 starfsf\u00f3lki \u00ed Covid og n\u00fdjungar litu dagsins lj\u00f3s.<\/p>\n<p>Hr\u00f6nn Hilmarsd\u00f3ttir, deildarstj\u00f3ri \u00fer\u00f3unar og reksturs \u00ed m\u00e1lefnum fatla\u00f0s f\u00f3lks hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6, hefur starfa\u00f0 hj\u00e1 b\u00e6num fr\u00e1 \u00e1rinu 2011. H\u00fan segir \u00fea\u00f0 a\u00f0d\u00e1unarvert hversu mikil samsta\u00f0a og j\u00e1kv\u00e6\u00f0ni s\u00e9 \u00ed starfsmannah\u00f3pum. <em>\u201eVi\u00f0 erum me\u00f0 forst\u00f6\u00f0umannah\u00f3p sem er \u00ed miklu samstarfi og \u00feeir eru s\u00ed\u00f0an me\u00f0 starfsmannah\u00f3pa sem standa \u00fe\u00e9tt saman. Starfsf\u00f3lki\u00f0 hefur gefi\u00f0 sig allt \u00ed starfi\u00f0 til a\u00f0 vernda \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem \u00fea\u00f0 \u00fej\u00f3nustar. \u00dear sem hvert heimili er l\u00edtill vinnusta\u00f0ur myndast vin\u00e1tta \u00e1 milli starfsmanna sem skilar s\u00e9r \u00ed starfi\u00f0. A\u00f0 vinna me\u00f0 f\u00f6tlu\u00f0u f\u00f3lki \u00e1 \u00feeirra heimilum er skemmtilegt og fj\u00f6lbreytt starf. Miklu m\u00e1li skiptir einnig a\u00f0 samvinna og samskipti vi\u00f0 a\u00f0standendur s\u00e9 g\u00f3\u00f0,\u201c segir Hr\u00f6nn og b\u00e6tir \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 mj\u00f6g vel hafi gengi\u00f0 a\u00f0 halda \u00fati \u00fej\u00f3nustu \u00ed Covid. \u201eVerkefnin hafa veri\u00f0 fj\u00f6lbreytt og margs konar,\u201c <\/em>segir h\u00fan.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/hronnhilmarsdottir.jpg\" alt=\"HronnHilmarsdottir\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 988px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 988\/570;\"><\/p>\n<p><sup>Hr\u00f6nn Hilmarsd\u00f3ttir segir mikla framf\u00f6r og \u00fer\u00f3un hafa or\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 fatla\u00f0 f\u00f3lk \u00ed Hafnarfir\u00f0i. FR\u00c9TTABLA\u00d0I\u00d0\/VALLI<\/sup>\u201e<br \/><em>\u00c1 t\u00edmabili var allt \u00ed samf\u00e9laginu meira og minna loka\u00f0 og fatla\u00f0 f\u00f3lk gat ekki fari\u00f0 \u00ed vinnu e\u00f0a a\u00f0rar daglegar athafnir. Fleira f\u00f3lk \u00feurfti til a\u00f0 manna heimilin \u00fear sem allir voru heima allan daginn. Vi\u00f0 brug\u00f0um \u00fev\u00ed \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 a\u00f0 starfsf\u00f3lk vinnusta\u00f0a, h\u00e6fingarst\u00f6\u00f0va og annarrar dag\u00fej\u00f3nustu f\u00f3r \u00ed breytt verkefni. Sumir s\u00e1u um a\u00f0 hringja \u00ed f\u00f3lk sem bj\u00f3 eitt til a\u00f0 taka st\u00f6\u00f0una \u00e1 l\u00ed\u00f0an og \u00feess h\u00e1ttar. A\u00f0rir starfsmenn f\u00f3ru inn \u00e1 heimilin til a\u00f0 sinna f\u00f3lkinu og svo framvegis. \u00deetta \u00fatheimti miki\u00f0 skipulag og a\u00f0 starfsf\u00f3lk v\u00e6ri tilb\u00fai\u00f0 \u00ed breytt verkefni,\u201c <\/em>uppl\u00fdsir Hr\u00f6nn.<\/p>\n<h4>Al\u00fej\u00f3\u00f0legar vi\u00f0urkenningar<\/h4>\n<p><em>\u201eE\u00f0lilega henta\u00f0i ekki \u00f6llum \u00edb\u00faum a\u00f0 komast ekki \u00fat \u00e1 me\u00f0al manna og a\u00f0 f\u00e1 frekar litla tilbreytingu. Vi\u00f0 ur\u00f0um \u00fev\u00ed a\u00f0 finna lausnir og n\u00fdjar lei\u00f0ir. Sem d\u00e6mi \u00fe\u00e1 settu Geitungarnir, sem er n\u00fdsk\u00f6punar- og atvinnu\u00fej\u00e1lfun fyrir fatla\u00f0 f\u00f3lk, \u00e1 f\u00f3t \u201elitla kaffih\u00fasi\u00f0 okkar\u201c \u00feegar \u00f6ll \u00f6nnur kaffih\u00fas voru loku\u00f0. Fatla\u00f0 f\u00f3lk gat panta\u00f0 t\u00edma \u00ed kaffih\u00fasinu og \u00fear me\u00f0 broti\u00f0 upp hversdaginn og gert eitthva\u00f0 skemmtilegt. Geitungarnir hlutu evr\u00f3pska vi\u00f0urkenningu fyrir starfsemina \u00e1ri\u00f0 2017 og M\u00farbrj\u00f3tinn \u00e1ri\u00f0 2018. S\u00e9rsta\u00f0a \u00feeirra er hversu einstaklingsmi\u00f0u\u00f0 \u00fej\u00f3nustan er. Allir \u00fej\u00f3nustunotendur eru me\u00f0 pers\u00f3nulega stundat\u00f6flu sem er sett upp eftir \u00e1hugasvi\u00f0i hvers og eins. \u00deannig er leitast vi\u00f0 a\u00f0 notendur f\u00e1i t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 auka vi\u00f0 reynslu og \u00feekkingu s\u00edna \u00e1 v\u00ed\u00f0t\u00e6kum svi\u00f0um atvinnul\u00edfsins,\u201c segir Hr\u00f6nn enn fremur. Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r setti \u00e1 f\u00f3t n\u00fdjan b\u00fasetukjarna \u00ed lok sumars \u00e1ri\u00f0 2020 og annan \u00e1ri\u00f0 2021 og n\u00fa \u00ed mars 2022 fer af sta\u00f0 enn einn b\u00fasetukjarninn en me\u00f0 \u00f6\u00f0ru sni\u00f0i en \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0 gert.\u201c<\/em><\/p>\n<h4>N\u00fdtt b\u00fasetuform<\/h4>\n<p><em>\u201eHugmynd a\u00f0 n\u00fdju b\u00fasetuformi kvikna\u00f0i hj\u00e1 nokkrum foreldrum ungmenna me\u00f0 Downs heilkenni \u00feegar \u00feau voru a\u00f0 r\u00e6\u00f0a saman um framt\u00ed\u00f0 barna sinna. \u00deau b\u00e1ru hugmyndina undir b\u00e6jaryfirv\u00f6ld sem t\u00f3ku vel \u00ed hana. \u00c1ri\u00f0 2019 var undirrita\u00f0ur samningur \u00e1 milli Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar og rekstrarf\u00e9lags Vinab\u00e6jar um \u00fej\u00f3nustu fyrir \u00edb\u00fa\u00f0akjarnann en b\u00e6rinn grei\u00f0ir \u00fea\u00f0 fj\u00e1rmagn sem \u00fearf til rekstursins. \u00deroskahj\u00e1lp bygg\u00f0i ra\u00f0h\u00fasi\u00f0 me\u00f0 sex \u00edb\u00fa\u00f0um auk starfsmannaa\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00ed mi\u00f0ju h\u00fassins. \u00cdb\u00faarnir leigja hverjir s\u00edna \u00edb\u00fa\u00f0 af \u00deroskahj\u00e1lp. Rekstrarf\u00e9lagi\u00f0 Vinab\u00e6r er \u00ed eigu \u00edb\u00faanna sj\u00e1lfra og munu \u00feeir \u00fev\u00ed taka fullan \u00fe\u00e1tt og hafa bein \u00e1hrif \u00e1 stefnur og \u00e1herslur \u00ed \u00fej\u00f3nustunni. Samningurinn \u00e1 s\u00e9r engin ford\u00e6mi h\u00e9r \u00e1 landi. \u00cdb\u00faarnir \u00feekkjast vel, hafa veri\u00f0 vinir \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og eru tilb\u00fanir a\u00f0 flytja a\u00f0 heiman \u00ed sitt eigi\u00f0 h\u00fasn\u00e6\u00f0i. Sem d\u00e6mi \u00fe\u00e1 hafa \u00edb\u00faarnir hafa haft sitt a\u00f0 segja um r\u00e1\u00f0ningu starfsf\u00f3lks. Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur og deildarstj\u00f3ri t\u00f3ku r\u00e1\u00f0ningarvi\u00f0t\u00f6lin og ums\u00e6kjendur fengu t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 koma einhverju s\u00e9rst\u00f6ku \u00e1 framf\u00e6ri til \u00edb\u00faanna. Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur, deildarstj\u00f3ri og allir \u00edb\u00faarnir h\u00e9ldu fund saman \u00fear sem fari\u00f0 var yfir allar starfsums\u00f3knir, \u00edb\u00faunum voru s\u00fdndar myndir af ums\u00e6kjendum og skilabo\u00f0um komi\u00f0 \u00e1 framf\u00e6ri. \u00cdb\u00faarnir h\u00f6f\u00f0u svo lokaval um \u00fea\u00f0 hva\u00f0a starfsf\u00f3lk yr\u00f0i r\u00e1\u00f0i\u00f0. \u00deetta er mj\u00f6g spennandi verkefni sem gaman ver\u00f0ur a\u00f0 fylgjast me\u00f0,\u201c<\/em> segir h\u00fan.<\/p>\n<h4>\u00d3hef\u00f0bundnar tj\u00e1skiptalei\u00f0ir<\/h4>\n<p>N\u00fdjungar hafa liti\u00f0 dagsins lj\u00f3s og m\u00e1 \u00fear nefna a\u00f0 h\u00e6fingarst\u00f6\u00f0in \u00ed B\u00e6jarhrauni sem \u00fej\u00f3nustar fatla\u00f0 f\u00f3lk me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 \u00f3hef\u00f0bundnar tj\u00e1skiptalei\u00f0ir annars vegar og skyn\u00f6rvandi umhverfi hins vegar hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed mikilli fram\u00fer\u00f3un.<em> \u201eS\u00e9rkenni h\u00e6fingarst\u00f6\u00f0varinnar er og hefur me\u00f0al annars veri\u00f0 einstaklingsmi\u00f0u\u00f0 notkun \u00e1 st\u00fdrib\u00fana\u00f0i fyrir tj\u00e1skiptat\u00f6lvur. \u00c1\u00f0ur en tj\u00e1skiptat\u00f6lvur komu til var \u201et\u00f6lvu-st\u00fdrib\u00fana\u00f0urinn\u201c s\u00e9rhanna\u00f0ur og sm\u00ed\u00f0a\u00f0ur fyrir notendur og \u00feurfti \u00fe\u00e1 a\u00f0 leita \u00ed erlent samstarf til a\u00f0 sl\u00edkt v\u00e6ri framkv\u00e6manlegt. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00f3tti merkilegt fyrir r\u00famum 25 \u00e1rum a\u00f0 stj\u00f3rna t\u00f6lvu me\u00f0 tunguhreyfingum og augnhreyfingum. N\u00fana eru starfsmenn og notendur \u00fej\u00f3nustunnar \u00ed h\u00e6fingarst\u00f6\u00f0inni \u00ed miklu al\u00fej\u00f3\u00f0legu samstarfi.<\/em><\/p>\n<p><em>Me\u00f0al annars vi\u00f0 \u00fer\u00f3un \u00e1 Bliss-tungum\u00e1linu sem er myndr\u00e6nt vi\u00f0urkennt tungum\u00e1l sem byggir \u00e1 merkingarfr\u00e6\u00f0i. \u00deeir sem nota Bliss-tungum\u00e1li\u00f0 nota oftast ekki hef\u00f0bundi\u00f0 talm\u00e1l og\/ e\u00f0a nota \u00fea\u00f0 sem stu\u00f0ning vi\u00f0 talm\u00e1l sem er \u00f3sk\u00fdrt.<\/em><\/p>\n<p><em>Talsvert er leita\u00f0 til h\u00e6fingarst\u00f6\u00f0varinnar til a\u00f0 f\u00e1 kynningu \u00e1 notkun Blisstungum\u00e1lsins sem og \u201et\u00f6lvutj\u00e1skiptab\u00fana\u00f0inum\u201c sem er mikill h\u00e1t\u00e6knib\u00fana\u00f0ur og er me\u00f0al annars stj\u00f3rna\u00f0 me\u00f0 augne\u00f0a h\u00f6fu\u00f0hreyfingum. N\u00fa er h\u00e6fingarst\u00f6\u00f0in a\u00f0 undirb\u00faa anna\u00f0 erlent samstarfi, en stefnt er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ing \u00cdslands\/Hafnarfjar\u00f0ar sem mun halda n\u00e1mskei\u00f0 var\u00f0andi annars konar lei\u00f0 \u00f3hef\u00f0bundinna tj\u00e1skipta, \u00fea\u00f0 er Intensive Interaction. Um lei\u00f0 er t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 skapa \u00far okkar fr\u00e1b\u00e6ra starfsmannah\u00f3pi hafnfirskan s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ing sem g\u00e6ti auki\u00f0 \u00feekkingu v\u00ed\u00f0ar en \u00ed Hafnarfir\u00f0i. Tj\u00e1ning er hluti af grundvallarmannr\u00e9ttindum allra, alls sta\u00f0ar,\u201c<\/em> segir Hr\u00f6nn<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/www.frettabladid.is\/kynningar\/stodug-throun-i-adstod-vid-fatlad-folk\/\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 Hr\u00f6nn birtist \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu fimmtudaginn 3. mars 2022.<\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur er fram\u00ads\u00e6kinn b\u00e6r \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 fatla\u00f0 f\u00f3lk. Hugsa\u00f0 er \u00fat fyrir boxi\u00f0 og farnar n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 b\u00e6ta umhverfi og a\u00f0gengi. Marg\u00adv\u00edslegar \u00e1skoranir komu upp hj\u00e1 starfsf\u00f3lki \u00ed Covid og n\u00fdjungar litu dagsins lj\u00f3s. Hr\u00f6nn Hilmarsd\u00f3ttir, deildarstj\u00f3ri \u00fer\u00f3unar og reksturs \u00ed m\u00e1lefnum fatla\u00f0s f\u00f3lks hj\u00e1 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6, hefur starfa\u00f0 hj\u00e1 b\u00e6num [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":19114,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14957","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14957","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14957"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14957\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/19114"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14957"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14957"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14957"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}