{"id":14966,"date":"2022-03-12T00:00:00","date_gmt":"2022-03-12T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/gaflaraleikhusid-hlaut-hvatingarverdlaun-msh-2022\/"},"modified":"2022-09-26T15:20:20","modified_gmt":"2022-09-26T15:20:20","slug":"gaflaraleikhusid-hlaut-hvatingarverdlaun-msh-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/gaflaraleikhusid-hlaut-hvatingarverdlaun-msh-2022\/","title":{"rendered":"The Fork Theatre received the MsH 2022 Encouragement Award."},"content":{"rendered":"<p>Hvatningaver\u00f0laun Marka\u00f0sstofu Hafnarfjar\u00f0ar voru veitt \u00ed sj\u00f6tta sinn \u00e1 s.l. fimmtudag vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0lega og skemmtilega ath\u00f6fn \u00ed Hafnarborg.<\/p>\n<p>Gaflaraleikh\u00fasi\u00f0 f\u00e9kk hvatningaver\u00f0launin a\u00f0 \u00feessu sinni me\u00f0al annars fyrir fyrir a\u00f0 standa fyrir m\u00f6rgum fr\u00e1b\u00e6rum s\u00fdningum \u00ed gegnum \u00e1rin sem eru \u00f3metanlegar fyrir menningarl\u00edf b\u00e6jarins og mikill gle\u00f0igjafi.<\/p>\n<img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/0k1a3997.jpg\" alt=\"0K1A3997\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 578px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 578\/433;\" \/>\n<p><a href=\"https:\/\/www.msh.is\/msh-frettir\/2022\/3\/11\/gaflaraleikhsi-fkk-hvatningarverlaunin\">Sj\u00e1 tilkynningu og fleiri myndir \u00e1 vef MsH<\/a><\/p>\n<p>Vi\u00f0 ath\u00f6fnin voru einnig veitar vi\u00f0urkenningar til fj\u00f6gurra a\u00f0ila fyrir starfsemi \u00ed \u00fe\u00e1gu eflingar atvinnul\u00edfs og b\u00e6jaranda \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00de\u00e6r hlutu Brikk, I\u00f0nmark, J\u00f3natan Gar\u00f0arsson og Betri stofan sem n\u00fdli\u00f0i \u00e1 marka\u00f0i.\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><em>H\u00e9r eru umsagnir um vi\u00f0urkenningarhafana:<\/em><\/p>\n<p><strong>The Fork Theatre<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd ums\u00f6gn me\u00f0 hvatningarver\u00f0laununum segir a\u00f0 Gaflaraleikh\u00fasi\u00f0 eigi \u00feessi ver\u00f0laun skili\u00f0 fyrir a\u00f0 standa fyrir m\u00f6rgum fr\u00e1b\u00e6rum s\u00fdningum \u00ed gegnum \u00e1rin sem eru \u00f3metanlegar fyrir menningarl\u00edf b\u00e6jarins og mikill gle\u00f0igjafi. \u00de\u00e1 hafa \u00feau jafnframt hvatt gesti s\u00edna til a\u00f0 n\u00fdta a\u00f0ra \u00fej\u00f3nustu \u00ed b\u00e6num, svo sem veitinga- og kaffih\u00fas og \u00fear me\u00f0 gl\u00e6tt Hafnarfj\u00f6r\u00f0inn enn meira l\u00edfi.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feeim fj\u00f6lm\u00f6rgu ums\u00f6gnum sem sendar voru inn um Gaflaraleikh\u00fasi\u00f0 nefndu mj\u00f6g margir a\u00f0 barna- og unglingastarf \u00feeirra v\u00e6ri algj\u00f6rlega til fyrirmyndar og fj\u00f6lmargir einstaklingar hafi fengi\u00f0 gott veganesti \u00fat \u00ed l\u00edfi\u00f0 eftir a\u00f0 hafa starfa\u00f0 me\u00f0 \u00feeim. \u00de\u00e1 komst einn svona a\u00f0 or\u00f0i: \u201eGaflaraleikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 \u00feessi ver\u00f0laun skili\u00f0 fyrir \u00feeirra elju og ofurdugna\u00f0 \u00ed a\u00f0 skemmta b\u00e6jarb\u00faum b\u00e6\u00f0i ungum sem \u00f6ldnum \u00f3h\u00e1\u00f0 kyni.\u201c<\/p>\n<p>Stj\u00f3rn Marka\u00f0sstofu Hafnarfjar\u00f0ar vonar a\u00f0 ver\u00f0launin ver\u00f0i Gaflaraleikh\u00fasinu hvatning til a\u00f0 starfa \u00e1fram af s\u00f6mu \u00e1str\u00ed\u00f0u og eldm\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/fb.watch\/bH4CCn16RX\/\">Myndband um Gaflaraleikh\u00fasi\u00f0<\/a><\/p>\n<p><strong>Betri stofan<\/strong><\/p>\n<p>Betri stofan f\u00e9kk n\u00fdli\u00f0avi\u00f0urkenninguna \u00feetta \u00e1ri\u00f0 en stofan opna\u00f0i \u00ed desember s\u00ed\u00f0astli\u00f0num \u00e1 sj\u00f6undu og efstu h\u00e6\u00f0 \u00ed nor\u00f0urturni Fjar\u00f0ar. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a sta\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk getur komi\u00f0 og unni\u00f0 \u00ed fallegri og notalegri a\u00f0st\u00f6\u00f0u og jafnframt n\u00fdtt tv\u00f6 \u00f3l\u00edk fundarherbergi sem og \u00e1tt \u00feess kost eftir vinnudag a\u00f0 nj\u00f3ta samveru me\u00f0 vinum og\/e\u00f0a vinnuf\u00e9l\u00f6gum. <\/p>\n<p>\u00deessi n\u00fdjung \u00ed Hafnarfir\u00f0i hefur fengi\u00f0 g\u00f3\u00f0ar vi\u00f0t\u00f6kur me\u00f0al einstaklinga og fyrirt\u00e6kja sem hafa tryggt s\u00e9r a\u00f0ild og hafa \u00fear me\u00f0 aukinn m\u00f6guleika \u00e1 sveigjanlegum vinnusta\u00f0 \u00ed sta\u00f0 hef\u00f0bundinnar skrifstofua\u00f0st\u00f6\u00f0u. Sta\u00f0setningin er einst\u00f6k e\u00f0a eins og sag\u00f0i \u00ed einum r\u00f6kstu\u00f0ningi fyrir tilnefningu: \u201eFallegasti samkomusta\u00f0ur \u00ed Hafnarfir\u00f0i og \u00fats\u00fdni\u00f0 yfir h\u00f6fnina gu\u00f0d\u00f3mlegt.\u201c<\/p>\n<p>Eigendur Betri stofunnar eru hj\u00f3nin Geir\u00fer\u00fa\u00f0ur Guttormsd\u00f3ttir og Hafsteinn Hafsteinsson og hj\u00f3nin Sign\u00fd Eir\u00edksd\u00f3ttir og J\u00f3n Tryggvason.<\/p>\n<p>Stj\u00f3rn marka\u00f0sstofunnar telur a\u00f0 starfsemi Betri stofunnar lyfti enn frekar upp b\u00e6jarandanum og veitir henni \u00fev\u00ed \u00feessa vi\u00f0urkenningu.<\/p>\n<p><strong>BRIKK<\/strong><\/p>\n<p>Brikk, brau\u00f0 og eldh\u00fas, opna\u00f0i \u00ed j\u00fan\u00ed \u00e1ri\u00f0 2017 og fagnar \u00fev\u00ed fimm \u00e1ra afm\u00e6li \u00ed sumar.<\/p>\n<p>Hj\u00e1 Brikk eru g\u00e6\u00f0in \u00ed fyrirr\u00fami, ekta s\u00fakkula\u00f0i og rj\u00f3mi \u00ed \u00f6llum kremum, nautakj\u00f6ti\u00f0 \u00ed samlokurnar h\u00e6gelda\u00f0 og mikil vinna a\u00f0 baki hverjum einasta sn\u00fa\u00f0. S\u00fardeigsbrau\u00f0in \u00feeirra og sal\u00f6tin standa alltaf fyrir s\u00ednu og hafa algj\u00f6rlega slegi\u00f0 \u00ed gegn.<\/p>\n<p>\u00c1 Mi\u00f0hellu eru \u00ed raun h\u00f6fu\u00f0st\u00f6\u00f0var fyrirt\u00e6kisins. \u00dear fer \u00f6ll forvinnsla fram sem og framlei\u00f0sla \u00ed heilds\u00f6luhluta fyrirt\u00e6kisins. Flestir \u00feekkja \u00fe\u00f3 einna helst til Brikk \u00e1 Nor\u00f0urbakkanum, sem er or\u00f0inn vins\u00e6ll \u00e1fangasta\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0al g\u00f6ngulei\u00f0 Hafnfir\u00f0inga vi\u00f0 sj\u00e1vars\u00ed\u00f0una og hefur gl\u00e6tt hana enn meira l\u00edfi og ilmi af n\u00fdb\u00f6ku\u00f0u bakkelsi.<\/p>\n<p>Vins\u00e6ldir Brikk hafa veri\u00f0 \u00fea\u00f0 miklar a\u00f0 opna\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00fatib\u00fa \u00ed Reykjav\u00edk og fyrir stuttu einnig \u00ed K\u00f3pavogi.<\/p>\n<p>Fyrirt\u00e6ki\u00f0 er \u00ed eigu \u00feriggja fj\u00f6lskyldna en fremstir \u00ed br\u00fanni standa \u00feeir Oddur Sm\u00e1ri Rafnsson og Dav\u00ed\u00f0 Magn\u00fasson.<\/p>\n<p>Stj\u00f3rn marka\u00f0sstofunnar vill hvetja Brikk til a\u00f0 halda \u00e1fram \u00e1 s\u00f6mu braut, \u00fear sem \u00e1str\u00ed\u00f0an fyrir g\u00e6\u00f0um er \u00ed fyrirr\u00fami og veitir fyrirt\u00e6kinu \u00fev\u00ed \u00feessa vi\u00f0urkenningu.<\/p>\n<p><strong>I\u00f0nmark<\/strong><\/p>\n<p>Fj\u00f6lskyldufyrirt\u00e6ki\u00f0 I\u00f0nmark hefur veri\u00f0 starfandi fr\u00e1 \u00e1rinu 1988 og alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00dea\u00f0 er stofna\u00f0 af hj\u00f3nunum Dagbjarti Bj\u00f6rnssyni og Eyr\u00fanu Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir en er reki\u00f0 \u00ed dag af b\u00f6rnum \u00feeirra Sigurj\u00f3ni, J\u00f3h\u00f6nnu og Ingibj\u00f6rgu.<\/p>\n<p>Allt h\u00f3fst \u00feetta me\u00f0 Stj\u00f6rnupoppinu fr\u00e6ga og stuttu s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r fyrirt\u00e6ki\u00f0 a\u00f0 framlei\u00f0a snakk me\u00f0 hinum \u00fdmsu brag\u00f0tegundum. \u00cd dag \u00feekkja meira og minna allir landsmenn v\u00f6rur fyrirt\u00e6kisins sem f\u00e1st \u00ed velflestum ef ekki \u00f6llum matv\u00f6ruverslunum landsins.<\/p>\n<p>\u00cd verksmi\u00f0ju sinni vi\u00f0 Gj\u00f3tuhraun framlei\u00f0ir I\u00f0nmark um 200 \u00fe\u00fasund poka af snakki og poppi \u00ed hverjum m\u00e1nu\u00f0i og \u00ed raun er algerlega \u00f3vi\u00f0unandi a\u00f0 halda part\u00fd, \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega J\u00far\u00f3v\u00edsj\u00f3npart\u00fd, \u00e1n \u00feess a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 a\u00f0 minnsta kosti \u00ferj\u00e1r tegundir af snakki fr\u00e1 \u00feeim.<\/p>\n<p>Fyrirt\u00e6ki\u00f0 hefur \u00ed gegnum \u00e1rin veri\u00f0 einstaklega velvilja\u00f0 \u00f6llum \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9l\u00f6gum og \u00f6\u00f0rum f\u00e9lagasamt\u00f6kum \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00feegar kemur a\u00f0 styrkjum og fj\u00e1r\u00f6flunum og \u00fea\u00f0 er s\u00e9rstaklega vegna \u00feessarar sterku samf\u00e9lagslegu \u00e1byrg\u00f0ar sem stj\u00f3rn marka\u00f0sstofunnar \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 veita I\u00f0nmark \u00feessa vi\u00f0urkenningu.<\/p>\n<p><strong>J\u00f3natan Gar\u00f0arsson<\/strong><\/p>\n<p>J\u00f3natan Gar\u00f0arsson f\u00e9kk vi\u00f0urkenningu fyrir margv\u00edsleg st\u00f6rf og framl\u00f6g til hafnfirskrar listar og menningar. Hann er mikill Hafnfir\u00f0ingur, hefur \u00e1vallt veri\u00f0 stoltur af \u00fev\u00ed og \u00feekkir b\u00e6inn sinn vel. \u00de\u00e1 hefur hann auki\u00f0 hr\u00f3\u00f0ur Hafnarfjar\u00f0ar \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina.<\/p>\n<p>\u00c1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum hefur hann mi\u00f0la\u00f0 af fr\u00f3\u00f0leik s\u00ednum um s\u00f6gu Hafnarfjar\u00f0ar tengda t\u00f3nlist, byggingum, pers\u00f3num og fyrirt\u00e6kjum \u00ed heilsu- og menningarg\u00f6ngum sem nokkur hundru\u00f0 manns hafa s\u00f3tt og segja kunnugir a\u00f0 g\u00f6ngur hans einkennist af miklum fr\u00f3\u00f0leik samfara mikilli gle\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00dativist og g\u00f6ngur hafa allt fr\u00e1 \u00e6sku\u00e1rum veri\u00f0 \u00e1hugam\u00e1l J\u00f3natans sem situr me\u00f0al annars \u00ed stj\u00f3rn Sk\u00f3gr\u00e6ktarf\u00e9lags Hafnarfjar\u00f0ar og stendur me\u00f0al annars \u00e1vallt vaktina \u00ed \u00e1rlegri j\u00f3latrj\u00e1as\u00f6lu f\u00e9lagsins. \u00de\u00e1 er hann forma\u00f0ur Vinaf\u00e9lags Kr\u00fdsuv\u00edkurkirkju sem vann a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reisa n\u00fdja kirkju eftir a\u00f0 s\u00fa gamla brann.<\/p>\n<p>Stj\u00f3rn marka\u00f0sstofunnar vonar a\u00f0 J\u00f3natan haldi \u00e1fram a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed hversu d\u00e1samlegur b\u00e6rinn okkar s\u00e9 og veitir honum h\u00e9r me\u00f0 \u00feessa vi\u00f0urkenningu.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvatningaver\u00f0laun Marka\u00f0sstofu Hafnarfjar\u00f0ar voru veitt \u00ed sj\u00f6tta sinn \u00e1 s.l. fimmtudag vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0lega og skemmtilega ath\u00f6fn \u00ed Hafnarborg. Gaflaraleikh\u00fasi\u00f0 f\u00e9kk hvatningaver\u00f0launin a\u00f0 \u00feessu sinni me\u00f0al annars fyrir fyrir a\u00f0 standa fyrir m\u00f6rgum fr\u00e1b\u00e6rum s\u00fdningum \u00ed gegnum \u00e1rin sem eru \u00f3metanlegar fyrir menningarl\u00edf b\u00e6jarins og mikill gle\u00f0igjafi. Sj\u00e1 tilkynningu og fleiri myndir \u00e1 vef MsH Vi\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":19143,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-14966","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14966","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=14966"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/14966\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/19143"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=14966"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=14966"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=14966"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}