{"id":15093,"date":"2022-08-09T00:00:00","date_gmt":"2022-08-09T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/fjolbreyttar-syningar-a-nokkrum-stodum\/"},"modified":"2022-09-26T15:20:44","modified_gmt":"2022-09-26T15:20:44","slug":"fjolbreyttar-syningar-a-nokkrum-stodum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/fjolbreyttar-syningar-a-nokkrum-stodum\/","title":{"rendered":"Diverse exhibitions in several locations"},"content":{"rendered":"<p> <a href=\"https:\/\/byggdasafnid.is\/\">Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur Museum of Local History<\/a>  er me\u00f0 tv\u00e6r n\u00fdjar s\u00fdningar \u00ed sumar.<br \/>\n\u00dea\u00f0 er annars vegar s\u00fdning \u00ed forsal Pakkh\u00fassins \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0legum munum \u00far safni<br \/>\n\u00deorbjargar Bergmann og svo er \u00fea\u00f0 lj\u00f3smyndas\u00fdning vi\u00f0 Strandst\u00edginn. \u00de\u00e1 eru<br \/>\nfastar s\u00fdningar \u00ed nokkrum h\u00fasum \u00ed b\u00e6num.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/bygg6.jpg\" alt=\"Bygg6\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 978px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 978\/563;\"><sup>Bj\u00f6rn P\u00e9tursson b\u00e6jarminjav\u00f6r\u00f0ur og Brynd\u00eds L\u00e1ra Bjarnad\u00f3ttir, safnv\u00f6r\u00f0ur \u00e1 Bygg\u00f0asafninu. FR\u00c9TTABLA\u00d0I\u00d0\/ERNIR<\/sup><\/p>\n<p> <a href=\"https:\/\/www.frettabladid.is\/kynningar\/fjolbreyttar-syningar-a-nokkrum-stoum\/\">Vi\u00f0tal vi\u00f0 Bj\u00f6rn P\u00e9tursson birtist \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu 13. j\u00fal\u00ed 2022<\/a><\/p>\n<p>\u00c1 hverju vori setur  <a href=\"https:\/\/byggdasafnid.is\/\">Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur Museum of Local History<\/a>  upp n\u00fdja<br \/>\n\u00feemas\u00fdningu \u00ed forsal Pakkh\u00fassins og s\u00fdning \u00feessa sumars fjallar um \u00deorbj\u00f6rgu<br \/>\nBergmann. <em>\u201eH\u00fan var fyrsti hafnfirski safnarinn,\u201c<\/em> segir Bj\u00f6rn P\u00e9tursson<br \/>\nb\u00e6jarminjav\u00f6r\u00f0ur. <em>\u201eH\u00fan bj\u00f3 \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00e1 \u00e1runum 1900-1930 og allan \u00feann t\u00edma<br \/>\nsafna\u00f0i h\u00fan \u00fej\u00f3\u00f0legum munum b\u00e6\u00f0i \u00ed Hafnarfir\u00f0i og utan Hafnarfjar\u00f0ar og lag\u00f0i<br \/>\nmiki\u00f0 upp \u00far \u00fev\u00ed. Me\u00f0 \u00feessari s\u00fdningu erum vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i a\u00f0 segja s\u00f6gu hennar og<br \/>\ns\u00fdna hluta af \u00feessum gripum sem h\u00fan safna\u00f0i. S\u00fdningin er unnin \u00ed g\u00f3\u00f0u samstarfi<br \/>\nvi\u00f0 Borgars\u00f6gusafn og eins afkomendur \u00deorbjargar sem l\u00e1nu\u00f0u okkur b\u00e6\u00f0i miki\u00f0 af<br \/>\nmunum og myndum og eru margir af \u00feessum munum \u00f3tr\u00falega fallegir og merkilegir.<br \/>\n\u00deorbj\u00f6rg var mikil hannyr\u00f0akona og \u00e1 s\u00fdningunni s\u00e9st \u00e1hugi hennar \u00e1 \u00edslensku<br \/>\nhandverki. H\u00fan var sj\u00e1lf margver\u00f0launu\u00f0 sem hannyr\u00f0akona og st\u00f3\u00f0 \u00deorbj\u00f6rg,<br \/>\n\u00e1samt Katr\u00ednu Briem, fyrir \u00fdmiss konar n\u00e1mskei\u00f0um \u00ed handavinnu fyrir st\u00falkur \u00ed<br \/>\nHafnarfj\u00f6r\u00f0ur.<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/bygg1.jpg\" alt=\"Bygg1\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 900px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 900\/600;\"><sup>\u00cd einum b\u00e1s \u00ed Bygg\u00f0asafni Hafnarfjar\u00f0ar er s\u00fdnt hvernig<br \/>\nhermenn bjuggu \u00e1 hern\u00e1ms\u00e1runum \u00e1 \u00cdslandi. Fr\u00f3\u00f0legt og skemmtilegt a\u00f0 sko\u00f0a.<\/sup><\/p>\n<p><em>\u00deorbj\u00f6rg \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 \u00feessum \u00e1rum a\u00f0 \u00edslenskt samf\u00e9lag<br \/>\nvar a\u00f0 breytast \u2013 \u00fea\u00f0 var \u00feessi \u00fe\u00e9ttb\u00fdlismyndun og b\u00e6ndasamf\u00e9lagi\u00f0 var a\u00f0 l\u00e1ta<br \/>\nundan \u2013 og h\u00fan s\u00e1 a\u00f0 munir voru a\u00f0 glatast samfara \u00feessari breytingu og h\u00fan f\u00f3r<br \/>\n\u00ed \u00feessa s\u00f6fnun s\u00edna til \u00feess a\u00f0 var\u00f0veita \u00edslenska menningu; til \u00feess a\u00f0 bjarga<br \/>\nhlutum fr\u00e1 gl\u00f6tun og safna\u00f0i yfir 400 munum.<\/em><\/p>\n<p><em>\u00deorbj\u00f6rg flutti til Reykjav\u00edkur \u00e1ri\u00f0 1930 til d\u00f3ttur sinnar<br \/>\nog tengdasonar og eftir hennar dag g\u00e1fu \u00feau safn hennar, \u00feessa 400 gripi, til Reykv\u00edkingaf\u00e9lagsins<br \/>\nog var \u00feetta langst\u00e6rsta gj\u00f6fin \u00ed \u00c1rb\u00e6jarsafni \u00feegar \u00fea\u00f0 var opna\u00f0.<br \/>\nBorgars\u00f6gusafn l\u00e1na\u00f0i okkur hluta af \u00feessum munum til \u00feess a\u00f0 vera me\u00f0 \u00e1<br \/>\ns\u00fdningunni og eins fengum vi\u00f0 l\u00e1na\u00f0a muni fr\u00e1 afkomendum \u00deorbjargar.\u201c<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/bygg2.jpg\" alt=\"Bygg2\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 900px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 900\/600;\"><\/p>\n<p><sup>Leikfangasafni\u00f0 gefur f\u00f3lki kost \u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 alls kyns d\u00fdrgripi<br \/>\nfr\u00e1 li\u00f0num t\u00edma.<\/sup><\/p>\n<h4>Photographic exhibition on the Strand<\/h4>\n<p>Bygg\u00f0asafn Hafnarfjar\u00f0ar er me\u00f0 s\u00fdningara\u00f0st\u00f6\u00f0u fyrir<br \/>\nlj\u00f3smyndasafn sitt \u00e1 Strandst\u00edgnum me\u00f0fram h\u00f6fninni \u00ed Hafnarfir\u00f0i og eru \u00fear<br \/>\n\u00e1rlega settar upp lj\u00f3smyndas\u00fdningar sem varpa lj\u00f3si \u00e1 dagleg st\u00f6rf og s\u00f6gu<br \/>\nf\u00f3lksins sem bj\u00f3 \u00ed b\u00e6num.<em> \u201e\u00cd \u00e1r eru \u00feetta 52 myndir og heitir s\u00fdningin B\u00e6rinn minn.<br \/>\n\u00deetta eru lj\u00f3smyndir sem Anna J\u00f3nsd\u00f3ttir t\u00f3k fr\u00e1 1920-1940 og eru<br \/>\nmannl\u00edfsmyndir fr\u00e1 Hafnarfir\u00f0i. \u00deetta eru gr\u00ed\u00f0arlega skemmtilegar og fallegar<br \/>\nmyndir sem veita inns\u00fdn \u00ed \u00fer\u00f3un b\u00e6jarins fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma.<\/em><\/p>\n<p><em>Anna var lj\u00f3smyndari \u00ed Hafnarfir\u00f0i og var n\u00e1tengd b\u00e6num alla<br \/>\nt\u00ed\u00f0 og rak \u00fear lj\u00f3smyndastofu og er lj\u00f3smyndasafn hennar, e\u00f0a filmusafn,<br \/>\nvar\u00f0veitt \u00e1 bygg\u00f0asafninu og b\u00fai\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed \u00e1ratugi. \u00deetta er a\u00f0 st\u00f3rum hluta<br \/>\nfilmusafn \u00e1 glerpl\u00f6tum og sumar af \u00feessum myndum sem vi\u00f0 erum a\u00f0 s\u00fdna n\u00fana hafa<br \/>\nekki veri\u00f0 birtar \u00e1\u00f0ur a\u00f0 okkur vitandi; allvega ekki hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1r. Hluti af<br \/>\n\u00feessum myndum var tekinn fyrir \u00ed b\u00f3k sem var gefin \u00fat \u00e1ri\u00f0 1933 \u00feannig a\u00f0 \u00feetta<br \/>\neru myndir sem hafa gleymst en a\u00f0rar eru vel \u00feekktar og hafa veri\u00f0 \u00e1 s\u00fdningum<br \/>\nhj\u00e1 okkur.\u201c<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/bygg3.jpg\" alt=\"Bygg3\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 900px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 900\/600;\"><\/p>\n<p><sup>Fr\u00e1 s\u00fdningu um \u00deorbj\u00f6rgu Bergmann sem var fyrsti hafnfirski<br \/>\nsafnarinn. S\u00fdningin var opnu\u00f0 \u00ed Bygg\u00f0asafninu 1. j\u00fan\u00ed og stendur enn.<\/sup><\/p>\n<h4>The History of Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur<\/h4>\n<p>Bygg\u00f0asafn Hafnarfjar\u00f0ar er me\u00f0 fleiri s\u00fdningar burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1<br \/>\nsumars\u00fdningum. <em>\u201eVi\u00f0 erum me\u00f0 s\u00fdningar \u00fati um allan b\u00e6. \u00cd Pakkh\u00fasinu er \u00e1<br \/>\ntveimur h\u00e6\u00f0um st\u00f3r s\u00fdning um s\u00f6gu Hafnarfjar\u00f0ar. H\u00fan heitir \u00deannig var og er<br \/>\nsaga Hafnarfjar\u00f0ar allt fr\u00e1 landn\u00e1mi til okkar daga. \u00dearna rekjum vi\u00f0 s\u00f6gu<br \/>\nb\u00e6jarins \u00ed gegnum \u00e1kve\u00f0in \u00feemu og v\u00f6rpum lj\u00f3si \u00e1 b\u00e6inn og \u00feorpi\u00f0 b\u00e6\u00f0i me\u00f0<br \/>\nsagnfr\u00e6\u00f0ilegum textum, lj\u00f3smyndum og s\u00ed\u00f0an miklu safni muna. Vi\u00f0 setjum \u00feetta<br \/>\nni\u00f0ur \u00ed h\u00f3lf og segjum til d\u00e6mis \u00e1 einum sta\u00f0 fr\u00e1 verslunarb\u00e6num, \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0<br \/>\nfr\u00e1 \u00fatger\u00f0arb\u00e6num og \u00e1 \u00feeim \u00feri\u00f0ja fr\u00e1 hern\u00e1minu. \u00deessi s\u00fdning er uppf\u00e6r\u00f0 \u00e1<br \/>\nhverju \u00e1ri \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 er alltaf eitthva\u00f0 n\u00fdtt a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 henni. N\u00fana \u00ed vor<br \/>\nsettum vi\u00f0 til d\u00e6mis upp l\u00edtinn verslunarb\u00e1s; gamla kj\u00f6rb\u00fa\u00f0. \u00dea\u00f0 er n\u00fdjungin \u00e1<br \/>\n\u00feeirri s\u00fdningu \u00ed \u00e1r.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Leikfangas\u00fdning er \u00e1 efstu h\u00e6\u00f0inni \u00ed Pakkh\u00fasinu. <em>\u201e\u00dear erum<br \/>\nvi\u00f0 me\u00f0 alls konar leikf\u00f6ng og anna\u00f0 sem sn\u00fdr a\u00f0 b\u00f6rnum. \u00dea\u00f0 er algj\u00f6rlega<br \/>\ntextalaus s\u00fdning s\u00e9rstaklega h\u00f6nnu\u00f0 fyrir b\u00f6rn; \u00feetta er meira<br \/>\nupplifunars\u00fdning. \u00dear eru til d\u00e6mis gamlir t\u00f6lvuleikir sem h\u00e6gt er a\u00f0 spila,<br \/>\nme\u00f0al annars Space Invaders og Super Mario Bros.\u201c<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/bygg4.jpg\" alt=\"Bygg4\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 800px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 800\/1200;\"><\/p>\n<p><sup>Gr\u00e1sleppusk\u00far fr\u00e1 \u00e1runum 1960-1970 sem sko\u00f0a m\u00e1 \u00e1 safninu.<\/sup><\/p>\n<h4>\u00d3l\u00edk heimili<\/h4>\n<p>S\u00edvertsens-h\u00fasi\u00f0 er elsta h\u00fas Hafnarfjar\u00f0ar og \u00fea\u00f0 l\u00e9t<br \/>\nBjarni S\u00edvertsen athafnama\u00f0ur byggja \u00e1 \u00e1runum 1803-1805. <em>\u201eHann hefur veri\u00f0<br \/>\nnefndur \u201efa\u00f0ir Hafnarfjar\u00f0ar\u201c. Hann var fyrsti \u00edslenski kaupma\u00f0urinn eftir a\u00f0<br \/>\nvi\u00f0 losnu\u00f0um undan einokuninni og hann bygg\u00f0i S\u00edvertsens-h\u00fasi\u00f0 fyrir fj\u00f6lskyldu<br \/>\ns\u00edna og verslunarh\u00fas vi\u00f0 hli\u00f0ina. Saga Bjarna er \u00e1 margan h\u00e1tt mj\u00f6g merkileg og<br \/>\nh\u00fan endurspeglast svol\u00edti\u00f0 \u00ed h\u00fasinu. Vi\u00f0 s\u00fdnum hvernig yfirst\u00e9ttarfj\u00f6lskylda<br \/>\nbj\u00f3 \u00e1 \u00feessum t\u00edma og rekjum s\u00f6gu Bjarna og Rannveigar, konu hans.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Siggub\u00e6r, sem stendur vi\u00f0 Kirkjuveg, er s\u00fdnishorn af heimili<br \/>\nverkamanns og sj\u00f3manns \u00ed Hafnarfir\u00f0i fr\u00e1 fyrri hluta 20. aldar \u00fear sem gestir<br \/>\ngeta upplifa\u00f0 og kynnst \u00fev\u00ed hvernig al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lk \u00ed b\u00e6num bj\u00f3 \u00e1 \u00feeim t\u00edma en \u00fea\u00f0<br \/>\nvar Erlendur Marteinsson sj\u00f3ma\u00f0ur sem l\u00e9t byggja h\u00fasi\u00f0. <em>\u201eSiggub\u00e6r er d\u00e6miger\u00f0ur fyrir \u00feessi h\u00fas sem voru \u00ed<br \/>\nHafnarfir\u00f0i \u00e1 \u00feessum t\u00edma \u2013 \u00feessi al\u00fe\u00fd\u00f0uheimili; skilgreiningin \u00e1 b\u00e6 versus h\u00fas<br \/>\ner a\u00f0 hann er me\u00f0 l\u00e1ga veggi og \u00fea\u00f0 eru gluggar bara \u00e1 g\u00f6flunum.\u201c<\/em><\/p>\n<p><img decoding=\"async\" data-src=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/wp-content\/uploads\/2022\/09\/bygg5.jpg\" alt=\"Bygg5\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" class=\"lazyload\" style=\"--smush-placeholder-width: 900px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 900\/600;\"><\/p>\n<p><sup>Kaupma\u00f0urinn \u00e1 horninu var sumars\u00fdning \u00ed fyrra og var hluti<br \/>\nhennar settur inn \u00e1 fastas\u00fdninguna \u00ed ma\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn.<\/sup><\/p>\n<h4>Erlend \u00fatger\u00f0<\/h4>\n<p>H\u00fasi\u00f0 Bookless Bungalow, sem stendur vi\u00f0 Vesturg\u00f6tu 32, var<br \/>\nbyggt \u00e1ri\u00f0 1920 fyrir Skotann Douglas Bookless en hann og br\u00f3\u00f0ir hans, Harry,<br \/>\nh\u00f6f\u00f0u \u00e1 fyrri hluta 20. aldar reki\u00f0 umfangsmikla \u00fatger\u00f0 fr\u00e1 Hafnarfir\u00f0i.&nbsp;<em>\u201e\u00c1 \u00feessum t\u00edma var erlend \u00fatger\u00f0 mj\u00f6g sterk og mikil \u00ed<br \/>\nHafnarfir\u00f0i og \u00ed h\u00fasinu segjum vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i s\u00f6gu Bookless-br\u00e6\u00f0ra og l\u00edka \u00feessarar<br \/>\nmiklu erlendu \u00fatger\u00f0ar sem var \u00ed b\u00e6num. Vi\u00f0 erum a\u00f0 segja s\u00f6gu erlendu \u00fatger\u00f0arinnar<br \/>\n\u00e1 fyrstu \u00e1ratugum 20. aldar. Br\u00e6\u00f0urnir voru me\u00f0 alls konar n\u00fdjungar sem<br \/>\n\u00cdslendingar \u00feekktu ekki \u00e1 \u00feessum t\u00edma en \u00feeir l\u00f6g\u00f0u til d\u00e6mis brautarteina \u00fat<br \/>\nfr\u00e1 \u00feurrkh\u00fasunum upp \u00e1 saltfiskreitina. \u00dea\u00f0 voru alls konar n\u00fdjungar sem \u00feeir<br \/>\nkynntu fyrir landsm\u00f6nnum og \u00fe\u00e1 a\u00f0allega sem sneri a\u00f0 fiskvei\u00f0um, \u00fatger\u00f0 og<br \/>\nfiskverkun.\u201c<\/em><\/p>\n<h4>Verslunarminjas\u00fdning<\/h4>\n<p>Verslunarminjasafn Bygg\u00f0asafns Hafnarfjar\u00f0ar er \u00ed Beggub\u00fa\u00f0.<em><br \/>\n\u201e\u00deetta er gamalt verslunarh\u00fas sem st\u00f3\u00f0 \u00e1\u00f0ur vi\u00f0 Strandg\u00f6tu og var flutt \u00e1 l\u00f3\u00f0<br \/>\nbygg\u00f0asafnsins og opnu\u00f0 \u00fear s\u00fdning \u00e1ri\u00f0 2008. \u00deetta er upprunalegt h\u00fasn\u00e6\u00f0i me\u00f0<br \/>\nupprunalegum innr\u00e9ttingum og \u00fearna h\u00f6fum vi\u00f0 sett upp gamla verslun eins og \u00fe\u00e6r<br \/>\nvoru \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. \u00deetta er h\u00fas sem margir muna eftir \u00e1 Strandg\u00f6tunni og<br \/>\nmargir hafa tengingu og tilfinningar til. \u00dearna h\u00f6fum vi\u00f0 l\u00edka sett metna\u00f0 \u00ed a\u00f0<br \/>\nsetja \u00fat s\u00e9rstakar glugga\u00fatstillingar vi\u00f0 hin og \u00feessi t\u00e6kif\u00e6ri. Vi\u00f0 setjum til<br \/>\nd\u00e6mis upp s\u00e9rstaka glugga\u00fatstillingu fyrir 17. j\u00fan\u00ed og a\u00f0ra fyrir j\u00f3lin. \u00de\u00f3tt<br \/>\nsafni\u00f0 s\u00e9 loka\u00f0 \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 me\u00f0 \u00feessa st\u00f3ru glugga me\u00f0 einhverri skemmtilegri<br \/>\n\u00fatstillingu.\u201c<\/em> \u25a0<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bygg\u00f0asafn Hafnarfjar\u00f0ar er me\u00f0 tv\u00e6r n\u00fdjar s\u00fdningar \u00ed sumar. \u00dea\u00f0 er annars vegar s\u00fdning \u00ed forsal Pakkh\u00fassins \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0legum munum \u00far safni \u00deorbjargar Bergmann og svo er \u00fea\u00f0 lj\u00f3smyndas\u00fdning vi\u00f0 Strandst\u00edginn. \u00de\u00e1 eru fastar s\u00fdningar \u00ed nokkrum h\u00fasum \u00ed b\u00e6num. Bj\u00f6rn P\u00e9tursson b\u00e6jarminjav\u00f6r\u00f0ur og Brynd\u00eds L\u00e1ra Bjarnad\u00f3ttir, safnv\u00f6r\u00f0ur \u00e1 Bygg\u00f0asafninu. FR\u00c9TTABLA\u00d0I\u00d0\/ERNIR Vi\u00f0tal vi\u00f0 Bj\u00f6rn P\u00e9tursson [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":19530,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"_breakdance_hide_in_design_set":false,"_breakdance_tags":"","wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-15093","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/15093","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=15093"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/15093\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/19530"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=15093"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=15093"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hafnarfjordur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=15093"}],"curies":[{"name":"WordPress","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}