Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

23. apríl 2014 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 507

Mætt til fundar

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri
  • Málfríður Kristjánsdóttir starfsmaður
  • Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Brynjar Rafn Ólafsson starfsmaður
  • Þormóður Sveinsson starfsmaður

Ritari

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
  1. B-hluti skipulagserindi

    • 1402288 – Vellir 2 breyting á deiliskipulagi lóðar við Fléttuvelli.

      Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð við Fléttuvelli sem ætluð var til síðari óþekktra þarfa og mundu nánari byggingarskilmálar verða gerðir þegar þörf verður á. Erindið felur í sér að afmarkaður verði byggingarreitur fyrir þrjár lausar kennslustofur fyrir Hraunvallaskóla og skilmálum breytt þannig að grein 5.9: “Lóð frátekin til síðari þarfa” verði felld brott. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á deiliskipulagi. Erindið var grenndarkynnt skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, engar athugasemdir bárust.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið skv heimild í reglugerð nr 767/2005 um afgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar á deiliskipulagserindum og að afgreiðslu verði lokið skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ábendingagátt