Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

20. janúar 2016 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 596

Mætt til fundar

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi

Ritari

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 16011153 – Sólvangsvegur 1

      Lögð fram fundargerð frá húsfundi húsfélagsins Sólvangsvegi 1 dags. 6. janúar 2016 vegna bílastæða á lóð hússins, eigendur fara fram á að nýta 3 stæði sem tvö fyrir hreyfihamlaða.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1508014 – Norðurhella 8, breyting

      Tekið fyrir að nýju.
      Norðurhella 8 ehf (Félagið heitir núna Selið fasteignafélaga ehf sækir um að setja svalir á húsið samkvæmt teikningum Jóns Þórs Þorvaldssonar dags.18.01.2011.Nýjar teikningar bárust 21.08.2015 með stimpli Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

      Erindið var grenndarkynnt og engar athugasemdir bárust.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

Ábendingagátt