Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

22. júní 2022 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 888

Mætt til fundar

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Eva Ósk Guðmundsdóttir aðstoðarmaður byggingafulltrúa
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Anna Margrét Tómasdóttir starfsmaður

Ritari

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 2206212 – Hádegisskarð 5, byggingarleyfi

      RK bygg ehf. sækir þann 13.06.2022 um leyfi til að byggia parhús. Sjá mál 2107159.

      Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 2206213 – Hádegisskarð 9, byggingarleyfi

      RK bygg ehf. sækir þann 13.06.2022 um leyfi til að byggia parhús. Sjá mál 2107160.

      Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 2206214 – Hádegisskarð 15, byggingarleyfi

      RK bygg ehf. sækir þann 13.06.2022 um leyfi til að byggia parhús. Sjá mál 2107161.

      Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 2205459 – Álfhella 5, MHL.01, umfangsflokkur 2

      Reynir Kristjánsson fh. lóðarhafa sækir 18.5.2022 um byggingarheimild fyrir 2 hæða iðnaðarhúsnæði skv. teikningum dags. 19.5.2022.

      Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 2206002 – Hringhamar 13-15, umfangsflokkur 2, mhl.04 og 05

      Plúsarkitektar ehf. fh. lóðarhafa sækir 30.5.2022 um byggingarleyfi fyrir mhl. 04 og 05 skv. teikningum Haralds Ingvarssonar dags. 12.4.2022. Matshluti 04 er 39 íbúða hús og matshluti 05 er djúpgámar. Byggingin skiptist í tvo sambyggða hluta með aðskilda stigakjarna. Lægri hluti er 4 hæðir og 15 íbúðir og hærri hluti 7 hæðir og 24 íbúðir.

      Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    B-hluti skipulagserindi

    • 2206065 – Tinnuskarð 12, breyting á deiliskipulag

      Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Tekið var jákvætt í fyrirspurn á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 1. júní sl.

      Erindið sent í grenndarkynningu

    • 2206190 – Áshamar 12, deiliskipulagsbreyting

      Ásgeir Ásgeirsson f.h lóðarhafa sækir um breytingu á deiliskipulagi þann 10.06.2022.

      Um óverulega breytingu á deiliskipulagi að ræða sem ekki hefur áhrif á aðliggjandi lóðarhafa. Fallið er því frá grenndarkynningu sbr. heimild 3. mgr. 44. greinar skipulagslaga og erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.

    • 2206380 – Fagraberg 2, deiliskipulag, bílastæði

      Sótt er um að fjölga bílastæðum á lóð og flytja ljósastaur

      Tekið er jákvætt í erindið.

    E-hluti frestað

    • 2206231 – Hringbraut 77, Suðurbæjarlaug, breyting

      Jón Þór Þorvaldsson f.h. Hafnarfjarðarbæjar sækir um leyfi til að breyta innra skipulagi búningshúss og um leið stækka vindfang. Byggja á sundlaugarsvæði úti tvo kalda potta, eina vaðlaug, útihús sem inniheldur eimbað, útigeymslu og upphækkað vaktsvæði.
      Teikningar dagsettar 10.06.2022 bárust þann 14.06.2022 í tvíriti.

      Frestað gögn ófullnægjandi

    • 2206106 – Hringhamar 35-37, byggingarleyfi

      Sett er um að leyfi til að byggja 46 íbúða og 5 hæða fjölbýlishús. Fjölbýlishúsið skiptist upp í tvo hluta sem tengdir eru um bílageymslu.

      Frestað gögn ófullnægjandi

    • 2206224 – Breiðvangur 62b, byggingarleyfi

      Jóhannes Þórðarson f.h. lóðarhafa sækir þann 14.06.2022 um leyfi til að byggja 57 fm. viðbyggingu.

      Frestað gögn ófullnægjandi

    • 2206017 – Smárahvammur 1, sólskáli, endurnýjun

      endurnýjun eldri samþykktar fyrir sólskála við gamalt hús sem fallin er úr gildi. Tvívegis var sótt um skála, 2002 og 2012, hér notuð minni útgáfa og því leiðrétt skráningartafla miðað við það.

      Frestað gögn ófullnægjandi

    F-hluti önnur mál

    • 2206367 – Hringhamar 31-33, framkvæmdaleyfi

      Sótt er um framkvæmdaleyfi til að hefja jarðvinnu ogaðstöðusköpun. Þær framkvæmdir sem unnar eru verða nýttar fyrir komand framkvæmdir.

      Skipulagsfulltrúa/bygggingarfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við skipulagslög.

Ábendingagátt