Bæjarráð

30. júní 2012 kl. 12:00

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3320

Mætt til fundar

  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir varamaður

Ritari

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • 1204099 – Forsetakosningar 2012

      Lagðar fram leiðréttingar við kjörskrá 2012.$line$Á kjörskrá bætist 1 en 10 eru látnir frá því að kjörskrá var gefin út.$line$Einnig erindi Sigurgeirs Þórðarsonar sent í tölvupósti 26. júní sl. þar sem hann óskar eftir sérstakri undanþágu til að vera skráður á kjörskrá.

      Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um undanþágu til að vera skráður á kjörskrá þar sem það samræmist ekki 1. grein laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands og 1. og 2. grein laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis. $line$$line$Bæjarrráð staðfestir að öðru leyti ofangreindar leiðréttingar á kjörskrá.

Ábendingagátt