Bæjarráð

21. mars 2013 kl. 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3345

Mætt til fundar

  • Gunnar Axel Axelsson formaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður

Ritari

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • 1303283 – Klukkuberg 32, takmörkuð veðsetning

      Lagt fram erindi Þórðar Jónssonar f.h. Frjálsa hf. sent í tölvupósti 11. mars sl. þar sem óskað er eftir að takmökun á veðsetningu ofangreindrar lóðar verði aflétt.

      Bæjarráð samþykkir erindið.

    • 1303178 – Slysatryggingar almannatrygginga (heildarlög), 635. mál

      Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um slysatryggingar almannatrygginga.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1212213 – Staðarmörk sveitarfélaga, óbyggðanefnd

      Lögð fram niðurstaða óbyggðanefndar í máli nr. S-1/2011 dags. 4.3. 2013 en nefndin telur sig skorta valdheimildir til að úrskurða í málinu.

      Lagt fram.

    • 1301616 – Aðalfundur Suðurlinda ohf.

      Lögð fram fundargerð aðalfundarins sem haldinn var 18. mars sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1209311 – Hjúkrunarheimili á Völlum, undirbúningur

      Lögð fram viðbótartilnefning Félags eldri borgara í verkefnisstjórnina send í tölvupósti 15. 3. sl.$line$Farið yfir óstaðfesta fundargerð 1. fundar.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1303305 – Sorpa bs, Ársreikningur 2012

      Lagður fram til kynningar ársreikningur Sorpu bs fyrir árið 2012.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1303022 – Sólvangur, ályktun Bandalags kvenna

      Lögð fram ályktun frá fulltrúaráðsfundi Bandalags kvenna í Hafnarfirði dags. 28.febrúar sl. varðandi Sólvang.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara ályktuninni.$line$$line$Bæjarráðfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:$line$Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka erindið og minna á fyrri bókun sína í bæjarráði um að staðið verði við fyrri samþykktir skýrslu starfshóps frá 2006, og ítrekun starfshóps fjölskylduráðs frá 2012, um áframhaldandi þróun og uppbyggingu Sólvangssvæðisins, þar sem verði framtíð miðstöðvar öldrunarþjónustu í Hafnarfirði.$line$$line$Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:$line$Eins fram kemur í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins hefur bæjarstjórn Hafnarfjarðar lagt fram skýra stefnumörkun varðandi uppbyggingu heildrænnar öldrunarþjónustu í Hafnarfirði og hefur hún verið unnin í nánu samstarfi og samráði við bæði ríki og aðra sem sinna öldrunarþjónustu í bænum. Byggir sú ákvörðun að hefja uppbyggingu á nýju þjónustusvæði í Skarðshlíð og styrkingu Sólvangssvæðisins á þeim grunni. Í síðustu endurskoðun Fjölskylduráðs á markaðri stefnu, sem ráðið skilaði í júní 2012 og breið samstaða var um í ráðinu, kemur fram að gert sé ráð fyrir að í tengslum við byggingu nýs hjúkrunarheimilis verði sú aðstaða sem til staðar er á Sólvangi, með tengingu við starfsemi heilsugæslunnar sem er í samtengdu húsnæði og nærliggjandi þjónustuíbúðum aldraðra, nýtt til uppbyggingar á miðstöð öldrunarþjónustu, s.s. á sviði dagþjónustu, endurhæfingar, sameiginlegri stjórnstöð heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu og upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu fyrir aldraða. Þá liggja fyrir hugmyndir Öldrunarsamtakanna Hafnar um frekari uppbyggingu á svæðinu sem miða að því að styrkja það verulega sem heildstæðan þjónustukjarna til framtíðar. $line$Eins og kemur fram í afgreiðslu fjölskylduráðs frá 20. febrúar sl. hefur Hafnarfjarðarfjarðarbær sótt um starfsleyfi til velferðarráðuneytisins um rekstur dagdvalar sbr. 2. gr. reglugerðar um dagvist aldraðra nr. 45/1990 og er gert ráð fyrir að sú þjónustu verði meðal þeirra þjónustuþátta sem fyrirhugað er að staðsetja á Sólvangstorfunni. Er það einn liður í innleiðingu fyrrgreindrar stefnumótunar um miðstöð öldrunarþjónustu á Sólvagnstorfunni.$line$ $line$ $line$

    Styrkir

    • 1301058 – Styrkir bæjarráðs 2013

      Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir sem borist hafa en umsóknarfrestur rann út 7. mars sl.

    Fundargerðir

    • 1301060 – Sorpa bs, fundargerðir 2013

      Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sorpu bs.frá 11. mars sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1301061 – Strætó bs, fundargerðir 2013

      Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 30. 11. 2012. 4.2., 1.3. og 8.3. sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1303004F – Menningar- og ferðamálanefnd - 196

      Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 7. mars sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1303010F – Menningar- og ferðamálanefnd - 197

      Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 12. mars sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1303007F – Stjórn Hafnarborgar - 320

      Lögð fram fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 17. janúar sl.

      Lagt fram til kynningar.

Ábendingagátt