Bæjarráð

1. júlí 2014 kl. 08:30

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3381

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir formaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir varaformaður
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • 1406465 – Fiskistofa, flutningur

      Tekinn til umfjöllunar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um flutning Fiskistofu til Akureyrar.$line$Sviðsstjóri gerði grein fyrir samtölum sem hann átti við ráðuneytið og forstjóra Fiskistofu.

      Bæjarráð Hafnarfjarðar gerir alvarlegar athugasemdir við þau áform sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnar að flytja Fiskistofu úr Hafnarfirði. Um er að ræða fjölmennan og sérhæfðan vinnustað í bæjarfélaginu sem auk þess að veita hópi Hafnfirðinga atvinnu hefur umtalsverð samlegðaráhrif á verslun og þjónustufyrirtæki í bænum. $line$Í Hafnarfirði er lögð rík áhersla á að hlúa að atvinnustarfsemi í bænum og skapa umgjörð um fjölbreytilegt atvinnulíf. Því yrði mikil eftirsjá af öflugum vinnustað eins og Fiskistofu. $line$Bæjarráð hefur miklar áhyggjur af því hve rýr hlutur bæjarfélagsins er nú þegar orðinn hvað umfang stofnana og þjónustufyrirtækja á vegum ríkisins varðar. Óvissa ríkir vegna væntanlegra breytinga á sýslumannsembættinu og fyrir tveimur árum var öll starfsemi lögð af á St. Jósefsspítala. Bæjarráð Hafnarfjarðar mun beita sér af fullum þunga gegn þessari þróun og fyrir því að bærinn beri ekki skarðan hlut frá borði þegar kemur að staðsetningu stofnana og þjónustufyrirtækja hins opinbera. Jafnframt lýsir bæjarráð yfir furðu á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru þegar ákvörðunin var tilkynnt án nokkurs fyrirvara. $line$

    • 1104347 – Endurfjármögnun lána

      Tekið fyrir að nýju varðandi mögulegan gjaldeyrisskiptasamning fyrir Hafnarfjarðarbæ í samræmi við heimild Seðlabanka Íslands.

      Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir að fela sviðsstjóra að leita eftir tilboðum í gjaldeyrisskiptasamning fyrir Hafnarfjarðarbæ.

Ábendingagátt