Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Lagt fram bréf til Sambands ísl. sveitarfélaga um að það beiti sér fyrir lækkun á innheimtuþóknun ríkisins vega innheimtu útsvars.
Jafnframt vill bæjarráð benda á að frá þeim tíma sem liðinn er frá því ríkið tók að sér innheimtu útsvars hefur orðið veruleg tækniþróun sem leitt hefur til auðveldari innheimtu og lækkun kostnaðar. Þá hefur innheimtuaðilum fækkað við það að sýslumannsembætti hafa verið lögð niður eða sameinuð í landinu.
Bæjarráð skorar á Alþingi að tryggingargjald 2016 verði lækkað verulega umfram það sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.
Bæjarráð samþykkir meðfylgjandi áskorun.
Lagt fram bréf frá fjárlaganefnd Alþingis um fund. Fundurinn verður 5. október kl. 09:50.
Lagt fram.
Beiðni um umsögn um nýtt rekstrarleyfi í flokki I. Óskað er eftir opnunartíma til kl. 03:00 alla daga.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 16. september 2015.
Lögð fram tillaga sem vísað var til bæjarráðs á fundi bæjarstjórnar þann 16.sept. sl. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja til að við umfjöllun og vinnu við skoðun þeirra tillagna rekstrarúttektar sem ekki hafa verið settar í framkvæmd verði horft til aukins samráðs og lýðræðislegra vinnubragða.
Við leggjum því til að settir verði á samráðshópar á hverju sviði með þátttöku fulltrúa starfsmanna, þjónustunotenda og hagsmunaaðila eftir því sem við á. Öll starfandi fagráð, þ.e. fræðsluráð, fjölskylduráð, skipulags- og byggingaráð og umhverfis -og framkvæmdaráð fái það verkefni að ákvarða hvaða aðilar skuli tilnefna fulltrúa í samráðshópana og gera tillögu um endanlega skipun þeirra til bæjarstjórnar. Hóparnir starfi í framhaldinu undir viðkomandi fagráði og skili greinargerð þangað með umsögn við hverja tillögu. Viðkomandi fagráði verði síðan falið að ljúka yfirferð tillagnanna og ákveða hverjar skuli sendar bæjarstjórn til afgreiðslu eða eftir atvikum forsetanefnd ef þær kalla á breytingar á samþykktum.
Tillagan er felld með 3 atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar. Fulltúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar óska bókað: Tillögur ráðgjafa vegna rekstrarúttektar hafa verið settar í farveg faglegrar og lýðræðislegrar umfjöllunar í viðeigandi ráðum, nefndum og/eða hjá stjórnsýslu bæjarins samkvæmt hefðbundnu vinnulagi. Hvert og eitt ráð eða nefnd metur hvenær og hvernig hefðbundinn samráðsvettvangur (t.d. ráðgjafaráð í málefnum fatlaðra, áheyrnarfulltrúar foreldra í fræðsluráði, fulltrúar skólasamfélagsins o.s.frv.) er víkkaður út, allt eftir eðli hvers máls fyrir sig.
Fulltrúar Samfylkingar og VG óska bókað: Ólíkt því sem fram kemur í bókun meirihlutans hafa ráð og nefndir sveitarfélagsins ekki fengið tillögur utankomandi rággjafa til umfjöllunar áður en þær hafa verið lagðar fram til samþykktar í bæjarstjórn. Ekki hefur heldur verið leitað eftir umsögnum fag- eða hagsmunaaðila í þeim málum sem nú þegar hafa verið teknar ákvarðanir um.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi lögðu fulltrúar minnihlutans fram tillögu um hvernig mætti haga framhaldi vinnu við yfirferð þeirra tillagna sem fram koma í skýrslum ráðgjafafyrirtækjanna og tryggja bætt samráð og lýðræðislegri vinnubrögð. Í umræðum í bæjarstjórn kom fram skýr andstaða fulltrúa meirihlutans við tillöguna og því óskiljanlegt með öllu hvaða tilgangi það átti að þjóna að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Dregið úr gildum umsóknum um lóðina Einivellir 1-3
Guðríður Guðmundsdóttir lögfræðingur fjölskyldusviðs dró úr gildum umsóknum
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Dverghömrum ehf lóðinni Einivellir 1-3 í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa.”
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 10.sept.sl.