Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Lögð fram fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2020. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mættu til fundarins.
1.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 30.okt.sl. Framhald umræðu um fjárhagsáætlun 2018.
Einnig farið yfir gjaldskrár hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að liður 31- 582-4976 í rekstraráætlun eignasjóðs, snjómokstur, verði leiðréttur um 21 millj.kr. til að tryggja viðunandi þjónustu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi gjaldskrár fyrir eignasjóð, vatns- og fráveitu og vísar þeim til bæjarráðs.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa fyrirliggjandi rekstrar- og framkvæmdaáætlun til bæjarráðs.
Fulltrúar Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun: “Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að farið sé í uppbyggingu á leikskóla á Öldunum í Suðurbæ strax á næsta ári. Síðan starfsstöð Brekkuhvamms við Hlíðarbraut var lögð niður á síðasta skólaári sækja nú um 100 leikskólabörn er búa í Suðurbæ, leikskóla í önnur skólahverfi. Er það umstalsvert meira en í nokkru öðru hverfi bæjarins. Af því hlýst mikið óhagræði fyrir íbúa hverfisins með börn á leikskólaaldri. Leikskólaþjónusta er nærþjónusta og mikilvægt er að hún sé það m.a. með tilliti til umhverfismála, gæða íbúahverfa sem og annarra þátta. Að okkar mati þarf 100 milljónir inn í fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2018 svo hægt sé að fara í þessa uppbyggingu á næsta ári. Við fulltrúar Samfylkingarinnar hefðum einnig viljað sjá hærri upphæðir fara til umhverfismála í sveitarfélaginu á næsta ári sem og að markvissari skref hefðu verið stígin í að íbúar hefðu raunveruleg áhrif á framkvæmdir í sínu nærumhverfi með samræðu og tillögum á grundvelli aukins íbúalýðræðis líkt og gerist í nágrannasveitarfélögum okkar og hefur gefið góða raun. Að áætla 32 milljónir til þessara þátta í fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun á næsta ári er langt frá því að vera ásættanlegt. Það á ekki síst við í ljósi þess að fjárhagsstaða bæjarins er með besta móti en hagnaður fyrstu 8 mánuði ársins er um 1300 miljónir króna. Af því má sjá að við erum í færum til að setja aukið fé til þessara mikilvægu málaflokka sem uppbygging leikskóla í Suðurbæ, aukin áhersla á umhverfismál og áhersla á íbúalýðræði í tengslum við framkvæmdir eru. Fulltrúar Samfylkingarinnar geta á grunni þessara athugasemda ekki samþykkt áætlunina og sitja því hjá við afgreiðslu hennar.”
1.liður úr fundargerð fræðsluráðs 30. otk. s.l. Yfirferð á fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu fyrir fjárhagsárið 2018 lög fram. Fræðsluráð samþykkir fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu 2018 með þremur atkvæðum, tveir sitja hjá. Fræðsluráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu til bæjarráðs.
1.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 31.okt.sl. Yfirferð fjárhagsáætlunar fjölskylduþjónustu fyrir fjárhagsárið 2018 lögð fram. Fjölskylduráð samþykkir fjárhagsáætlun fjölskylduþjónustu 2018. Fjölskylduráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun fjölskylduþjónustu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2018 til fyrri umræðu í bæjarstjórn með áorðnum breytingum.