Bæjarráð

9. september 2021 kl. 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3581

Mætt til fundar

  • Ágúst Bjarni Garðarsson formaður
  • Kristinn Andersen varaformaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Sveinbergsson varaáheyrnarfulltrúi

Auk þess sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

Ritari

  • Ívar Bragason Bæjarlögmaður

Auk þess sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

  1. Almenn erindi

    • 2109323 – Sorpa, skýrsla framkvæmdastjóra

      Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri SORPU bs. mætir til fundarins.

      Til kynningar.

    • 1706134 – Skarðshlíð íbúðarfélag, húsnæðissjálfseignarstofnun

      Til umræðu. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir að unnið verði að endurbótum og fegrun umhverfis og íbúða Skarðshlíðar íbúðarfélags í samræmi við fyrirliggjandi tillögu. Úrvinnslu málsins er vísað til umhverfis- og skipulagssviðs.

    • 2107447 – Strandgata 17, Hendrikshús, flutningur og endurbygging, beiðni um samráð

      Lögð fram umsögn um málið. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað getur Hafnarfjarðarkaupstaður ekki orðið við beiðni Langelds ehf.

    • 2109293 – Árshlutreikningur, uppgjör

      Árshlutareikningur 30.06.2021 lagður fram. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2001456 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2021 og 2022-2024, viðauki III

      Lagður fram viðauki III. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Bæjarráð vísar fyrirliggjandi viðauka III til afgreiðslu í bæjarstjórn.

    • 2001456 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2021 og 2022-2024

      Lagt fram minnisblað varðandi varðandi tekjuviðmið leikskólagjalda. Guðmundur Sverrisson fjármálasvið mætir til fundarins.

      Vísað til samþykktar í bæjarstjórn.

    • 2109318 – Rekstraráætlun almenningssamgangna

      Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs. mætir til fundarins.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2004377 – Skjalavarsla

      Leiga á rými fyrir skjalasafn Hafnarfjarðarkaupstaðar. Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslu og Elín S. Kristinsdóttir skjalastjóri mæta til fundarins.

      Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá samningum um framtíðarlausn fyrir skjalavörslu sveitarstjórnarskrifstofu.

    • 2108758 – Hjallabraut 33, kvöð í lóðarleigusamningi

      Til umræðu

      Bæjarráð samþykkir að kvöð í lóðarleigusamningi um að íbúðir skulu aðeins seldar þeim sem hafa átt lögheimili í Hafnarfirði í a.m.k. 3 ár, sbr. f. lið 14. gr., skuli falla niður.

    • 2109069 – Sléttuhlíð B8, endurnýjun lóðarleigusamnings

      Endurnýjun lóðarleigusamnings Sléttuhlíð B8.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning.

    • 2109274 – Hverfisgata 23C, stækkun lóðar og lóðarleigusamningur

      Lögð fram drög að lóðarleigusamningi.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning

    • 2109180 – Íshella 2, endurnýjun lóðarleigusamnings

      Lögð fram drög að endurnýjun lóðarleigusamnings

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning.

    • 2108146 – Einhella 1, umsókn um lóð

      Lögð fram umsókn AGROS Móhella 1 ehf, um lóðina nr. 1 við Einhellu.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni nr. 1 við Einhellu verði úthlutað til AGROS Móhella 1 ehf.

    • 2108147 – Álfhella 2, umsókn um lóð

      Lögð fram umsókn AGROS Móhella 1 ehf., um lóðina nr. 2 við Álfhellu.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni nr. 2 við Álfhellu verði úthlutað til AGROS Móhella 1 ehf.

    • 2108014 – Fluguskeið 23,umsókn um lóð

      Lögð fram umsókn Tómasar Bragasonar um hesthúsalóðina nr. 23 við Fluguskeið.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að hesthúsalóð nr. 23 við Fluguskeið verði úthlutað til Tómasar Bragasonar.

    • 2108151 – Breiðhella 3 og 5,umsókn um lóð,úthlutun,skil

      Beiðni frá lóðarhafa að Breiðhellu 3 og 5 þar sem óskað er eftir því að afsala sér lóðarúthutun á lóðinni.

      Bæjarráð samþykkir beiðni um afsal á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2106263 – Hafnarfjarðarbær, heildstæð stefnumótun

      Tilnefningar í stýrihóp.

      Bæjarráð tilnefnir Jón Inga Hákonarson, Valdimar Víðisson, Sigurður Þ. Ragnarsson, Arnbjörn Ólafsson, Öddu Maríu Jóhannsdóttir og Rósu Guðbjartsdóttur í stýrihóp um heildstæða stefnumótun.

    • 2003453 – Fjarfundir sveitarstjórnar, ráða og nefnda

      Lagt fram erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu frá 1.sept. sl.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2106235 – Alþingiskosningar 2021

      Kjörskrá vegna alþingiskosninga sem fram fara laugardaginn 25.september nk. lögð fram. Á kjörskrá eru 20.463.

      Lagður fram listi yfir undirkjörstjórnir í komandi alþingiskosningum.

      Lagt fram til kynningar.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

      Frá árinu 2016 hafa fulltrúar Samfylkingarinnar írekað lagt fram tillögur þess efnis að staðsetning kjörstaða verði endurskoðuð og/eða þeim fjölgað. Bent hefur verið á skort á aðgengi íbúa á Völlum og nú í Skarðshlíð að kjörstað. Í ljósi umræðna, bókanna og samþykkta í bæjarráði síðastliðin ár lýsir fulltrúi Samfylkingarinnar miklum vonbrigðum yfir því að enn hafi ekki verið hugað að því að bæta aðgengi íbúa Valla og Skarðshlíðar að kjörstað og hvetur bæjarráð og kjörstjórn til að bæta úr því hið snarasta.

    • 2109322 – Knattspyrnufélagið Haukar, styrkbeiðni, búnaður í lyftingasal

      Lögð fram styrkbeiðni frá Knattspyrnufélaginu Haukar dags. 7.sept. sl. vegna endurnýjunar á búnaði í lyftingasal félagsins.

      Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til úrvinnslu á mennta- og lýðheilsusviði.

    Fundargerðir

    • 2108010F – Hafnarstjórn - 1604

      Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 25.ágúst.sl.

    • 2101087 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fundargerðir 2021

      Lögð fram fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 30.ágúst sl.

    • 2108019F – Menningar- og ferðamálanefnd - 374

      Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 2.sept.sl.

    • 2101086 – Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2021

      Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26.ágúst sl.

    • 2101080 – SORPA bs, fundargerðir 2021

      Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 26. og 30.ágúst sl.

    • 2101084 – Strætó bs, fundargerðir 2021

      Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 13.ágúst og 3.september sl.

Ábendingagátt