Bæjarstjórn

11. apríl 2012 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1678

Mætt til fundar

  • Lúðvík Geirsson varamaður
  • Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir forseti
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson varamaður

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Mættir allir aðalbæjarfulltrúar nema Valdimar Svavarsson og Eyjólfur Sæmundsson. Í þeirra stað mættu Ólafur Ingi Tómasson og Lúðvík Geirsson.

Ritari

  • Anna Jörgensdóttir lögmaður Hafnarfjarðarbæjar

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Mættir allir aðalbæjarfulltrúar nema Valdimar Svavarsson og Eyjólfur Sæmundsson. Í þeirra stað mættu Ólafur Ingi Tómasson og Lúðvík Geirsson.

  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 21.03.12 og 28.03.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$$line$Lagt fram.$line$

    • 1009150 – Straumsvík, Gasfélagið, nýtt deiliskipulag

      5.liður úr fundargerð SBH frá 3.apríl sl.$line$Gasfélagið ehf leggur 14.09.10 fram tillögu að deiliskipulagi, samkvæmt teikningum verkfræðistofunar Mannvits dags.09.09.2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag á áður ódeiliskipulögðu svæði. Skipulags- og byggingarráð óskaði 21.09.10 eftir umhverfismati áætlunar ásamt fylgigögnum þ.m.t. áhættumati, umsögn Brunamálastofnunar og Slökkviðliðs Höfuðborgarsvæðisins og Vinnueftirlits. Skipulags- og byggingarfulltrúi sendi fyrirspurn um málsmeðferð til Skipulagsstofnunar varðandi umhverfismat áætlunar. Lagt fram svarbréf Skipulagsstofnunar dags. 07.10.10 þar sem fram kemur að gasstöð í Straumsvík falli ekki undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Með tilvísan í 5. mgr. 9. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 telur Skipulagsstofnun Hafnarfjarðarbæ þó í fullum rétti að fara fram á að gerð verði grein fyrir áhrifum deiliskipulagsáætlunarinnar á umhverfi. Áður lögð fram öryggisúttekt Mannvits ehf. Lögð fram greinargerð Mannvits ehf um áhrif á umhverfi dags. 27.10.11, ásamt umsögnum Vinnueftirlits ríkisins dags. 14.10.11, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 21.10.11 og Mannvirkjastofnunar dags. 30.08.11. Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi dags. 08.02.12. Bæjarstjórn samþykkti 29.02.12 að senda deiliskipulagið í auglýsingu skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningarfundur á verkefnislýsingu og tillögunni var haldinn 08.03.12. Engar athugasemdir komu fram.$line$$line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir að senda deiliskipulagið í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: $line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi fyrir gasstöð í Straumsvík dags. 06.02.2012 verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.

    • 1203473 – Breiðhella 4 og 6, afsal lóða

      2.liður úr fundargerð BÆJH frá 4.apríl sl.$line$Lagt fram erindi Byggðarenda ehf (áður Glerborg)kt. 580772-0139 dags. 29. mars 2012 þar sem óskað er eftir að skila ofangreindum lóðum sem úthlutað var 2006. $line$Álögð lóðagjöld voru 35.604.000 kr. byggvt. 352,3 maí 2006$line$ $line$Bæjarráð staðfestir ofangreint afsal og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar.$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir afsal vegna lóðanna Breiðhella 4 og 6.”$line$

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Lúðvík Geirsson tók til máls. Kristinn Andersen kom að andsvari. Lúðvík Geirsson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Lúðvíks Geirssonar. Lúðvík Geirsson svaraði andsvari.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.

    • 1201159 – Fundargerðir 2012, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð fræðsluráðs frá 2.apríl sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 4.apríl sl.$line$a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 28.mars sl.$line$b. Fundargerð stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 12.mars sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 3.apríl sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 4.apríl sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 28.mars sl.$line$Fundargerðir umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 26.mars og 4.apríl. sl.

      Annar varaforseti, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, tók við fundarstjórn. Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls undir 1. lið – Frístundabíllinn, framtíð hans – í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. apríl sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að stuttri athugasemd. Geir Jónsson kom að andsvari við fyrri ræðu Margrétar Gauju Magnúsdóttur. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Geir Jónsson kom að andsvari öðru sinni. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Geir Jónsson kom að stuttri athugasemd. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að stuttri athugasemd. Kristinn Andersen kom að andsvari við fyrri ræðu Margrétar Gauju Magnúsdóttur. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Kristinn Andersen kom að andsvari öðru sinni. Margrét Gauja Magnúsdottir svaraði andsvari öðru sinni. Kristinn Andersen kom að stuttri athugasemd. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að stuttri athugasemd. Ólafur Ingi Tómasson tók til máls undir 2. lið – Hellubraut 7, fyrirspurn – í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 3. apríl sl. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari. Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 1. lið í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs fra 4. apríl sl. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Annar varaforseti tók við fundarstjórn að nýju. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Helgu Ingólfsdóttur. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að stuttri athugasemd. Helga Ingólfsdóttir kom að stuttri athugasemd. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls undir 1. lið í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. apríl sl. og 2. lið í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 3. apríl sl. Kristinn Andersen kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Kristinn Andersen kom að andsvari öðru sinni. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi Tómasson kom að andsvari við fyrri ræðu Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Ólafur Ingi Tómasson kom að andsvari öðru sinni. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi Tómasson kom að stuttri athugasemd. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir 1. lið í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. apríl sl. og 1. lið – Umhverfis- og framkvæmdaráð, fjárhagsáætlun 2012 – í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 26. mars sl. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Annar varaforseti tók við fundarstjórn að nýju. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi Tómasson tók til máls undir 12. lið – Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og byggingarráði – í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 3. apríl sl. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari. Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 2. – Fatlaðir, málefni, eignarhald og leiga fasteigna – og 3. lið – Efnislosun – í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. apríl sl. Annar varaforseti tók við fundarstjórn. Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls undir 1. lið í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 26. mars sl. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Margrétar Gauju Magnúsdóttur. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls undir 3. lið í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. apríl sl. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls undir 1. lið í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 26. mars sl. Forseti tók við fundarstjórn. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðmundur Rúnar Árnason svaraði andsvari öðru sinni.$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks:$line$”Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir miklum vonbrigðum með að meirihluti bæjarstjórnar hefur hafnað áframhaldandi samstarfi við Frístundabílinn og þar með stöðvað starfsemi þessa mikilvæga og góða samfélagsverkefnis. $line$Mikil ánægja hefur verið með þjónustu Frístundabílsins sem hefur auðveldað börnum að stunda frístundir sínar og minnkað akstur foreldra á einkabílum til að koma börnum til og frá íþrótta- eða tómstundaiðkun. $line$Fyrirtæki í bæjarfélaginu hafa komið að verkefninu með stuðningi sínum með eftirtektarverðum hætti og verða tvö ár að teljast of skammur tími til að skera úr um hvort verkefnið geti borið sig. Með því að hætta samstarfi við Frístundabílinn nú og leita samninga við Strætó um umtalsvert dýrari kost við að auka innanbæjarakstur sýnir meirihlutinn í verki hver raunverulegur áhugi og velvilji í garð frumkvöðlastarfsemi í bæjarfélaginu er takmarkaður.” $line$$line$Ólafur Ingi Tómasson (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),$line$Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign). $line$$line$Gert stutt fundarhlé.$line$$line$Gunnar Axel Axelsson kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna:$line$$line$”Frístundabíllinn var tilraunaverkefni sem sett var á stofn með stuðningi Hafnarfjarðarbæjar og nokkurra fyrirtækja í sveitarfélaginu. Tilgangur verkefnisins var að mæta betur þörfum barna og ungmenna um bættar almenningssamgöngur. $line$Eftir næstum þriggja ára tilraunaverkefni er það mat rekstraraðila Frístundabílsins að verkefnið standi ekki undir sér nema sveitarfélagið leggi því til aukið fé. Það hlýtur því að vera eðlilegt að skoðaðar séu aðrar leiðir til að sinna þjónustu við þennan aldurshóp, sér í lagi í ljósi þeirrar augljósu staðreyndar að Hafnarfjarðarbær á aðild að almenningssamgöngufyrirtækinu Strætó bs . Á þeim forsendum samþykkti Umhverfis- og framkvæmdaráð að hefja viðræður við byggðasamlagið um að auka innanbæjarakstur með það fyrir augum að þjóna börnum og ungmennum sem taka þátt í skipulögðu frístundastarfi með sambærilegum hætti og gert hefur verið með þjónustu Frístundabílsins. Þannig er leitast við að tryggja betur nýtingu þeirra fjármuna sem veitt er til almeningssamgangna og auka um leið þjónustu við alla bæjarbúa, óháð aldri. $line$$line$Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í bæjarstjórn þakka aðstandendum Frístundabílsins óeigingjarnt frumkvöðlastarf við að koma til móts við foreldra barna með það að markmiði að minnka notkun einkabílsins og kynna börnum og unglingum í Hafnarfirði kosti þess að nota almenningssamgöngur. Forsvarsmenn Frístundabílsins hafa brotið blað með þessu mikilvæga frumkvöðlastarfi, þannig að til þess er horft víða að af landinu.” $line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign), Guðmundur Rúnar Árnason (sign), Lúðvík Geirsson (sign),$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign), Gunnar Axel Axelsson (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign).

Ábendingagátt