Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Lögð fram fundargerð frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 09.05.12. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$ $line$Lagt fram.$line$
Tekið fyrir að nýju í bæjarstjórn vegna athugasemda frá Skipulagsstofnun og lögð fram svohljóðandi rökstudd tillaga:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnin verði tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Hamranesnámu. Þeim hluta sem skilgreindur er sem íbúðarsvæði verði breytt í óbyggt svæði. Mælt er með að breytingin teljist óveruleg skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin telst óveruleg þar sem hún hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér og svæðið er utan alfaraleiðar. Aðliggjandi íbúðasvæði skv. aðalskipulagi hefur ekki verið deiliskipulagt og þar með engin lóðarúthlutun ekki átt sér stað. Breytingin hefur því ekki áhrif á einstaka aðila og landsvæðið og nágrenni þess er í eigu Hafnarfjarðarbæjar.”
Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. $line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 15.maí sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 16.maí sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 9.maí sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 16.maí sl. $line$a.Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 27.apríl sl.$line$Fundargerð fræðsluráðs frá 14.maí sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 16.maí sl.$line$a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 14.maí sl.$line$b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 3.apríl sl.$line$c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 15.maí sl.$line$
Kristinn Andersen tók til máls undir 7. lið – Skólaskipan í Hafnarfirði – fundargerð fræðsluráðs frá 14. maí sl. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Kristinn Andersen svaraði andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason kom að andsvari við fyrri ræðu Kristins Andersen. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls undir 7. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 14. maí sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd. Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. – Íþróttahús í Kaplakrika, framkvæmdir – og 4. lið – Reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga – í fundargerð bæjarráðs frá 16. maí sl. og 1. lið – Viðhald húsa og lóða á fræðsluþjónustu – í fundargerð fræðsluráðs frá 16. maí sl. Guðmundur Rúnar Árnason kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Helgu Ingólfsdóttur. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir 1. og 7. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 16. maí sl. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. $line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks:$line$”Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir áhyggjum af því að húsnæðisvandi við nokkra leik- og grunnskóla bæjarins, sé óleystur nú þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. $line$Ljóst hefur verið í langan tíma hvert í stefndi með fjölgun barna og skort á húsnæði við leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar á komandi hausti . Því hefði undirbúningsvinna átt að hefjast mun fyrr en raunin varð. Það óvissuástand sem nú ríkir skömmu fyrir sumarfrí er óásættanlegt og afar óþægilegt fyrir tugi fjölskyldna og starfsfólk viðkomandi stofnana. Fram komnar athugasemdir foreldra barna við Setbergs ? og Hvaleyrarskóla sýna hve mikill skortur hefur verið á samráði og upplýsingagjöf til þeirra er málið varðar . $line$Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka fyrri ábendingar og bókun sjálfstæðismanna í fræðsluráði um að ítarlegri upplýsingar um framkvæmd, fjármögnun og kostnað og kynningar á útfærslu, er þörf áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar um breytingar á skólaskipan. Einnig er óskað eftir yfirliti á fjárþörf vegna grunn- og leikskóla, hve miklum fjárhæðum er áætlað að verja það sem eftir ársins og hvort fjárútlátin séu í samræmi við fjárhagsáætlun 2012.”$line$$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Ólafur Ingi Tómasson (sign), Kristinn Andersen (sign),$line$Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).$line$$line$Gert stutt fundarhlé.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna:$line$$line$”Unnið hefur verið í nánu samráði og samstarfi við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna allra þeirra atriða sem fram koma í bókun þeirra. $line$Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna árétta enn og aftur að engar tillögur hafa komið frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins vegna skorts á húsnæði við leik- og grunnskóla eða nokkurra annarra þeirra þátta sem tilgreindir eru í fyrrgreindri bókun. $line$Eins og fram kemur í fundargerð fræðsluráðs er unnið að úrlausn húsnæðismála leik- og grunnskóla af fagfólki sveitarfélagsins í samráði við hlutaðeigandi aðila.”$line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign), Guðmundur Rúnar Árnason (sign), Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign),$line$Gunnar Axel Axelsson (sign), Hörður Þorsteinsson (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign).