Bæjarstjórn

13. mars 2013 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1699

Mætt til fundar

  • Lúðvík Geirsson aðalmaður
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir forseti
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Valdimar Svavarsson aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir aðalbæjarfulltrúar mættir nema Lúðvík Geirsson en von var á honum innan tíðar. Forseti lagði fram tillögu um að málið – Kosningar í ráð og nefndir – yrði tekið á dagskrá með afbrigðum sem 9. liður á dagskrá. T

Ritari

  • Anna Jörgensdóttir hdl. ritari bæjarstjórnar

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir aðalbæjarfulltrúar mættir nema Lúðvík Geirsson en von var á honum innan tíðar. Forseti lagði fram tillögu um að málið – Kosningar í ráð og nefndir – yrði tekið á dagskrá með afbrigðum sem 9. liður á dagskrá. T

  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 20.02.13 og 27.02.13. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$ $line$Lagt fram.$line$

    • 1210498 – Suðurbær nýtt deiliskipulag.

      4.liður úr fundargerð SBH frá 5.mars sl.$line$Tekin til umræðu að vinna við deiliskipulag fyrir reit sem er enn óskipulagður í Suðurbæ Hafnarfjarðar. áður lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að verkefnislýsingu dags. 13.02.2013. Frestað á síðasta fundi.$line$ $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir lýsinguna í samræmi við 40. gr. laga nr. 123/2010 með áorðnum breytingum.$line$$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulagslýsingu fyrir það svæði sem enn er óskipulagt í Suðurbæ Hafnarfjarðar í samræmi við 40. gr. laga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu með 10 samhljóða atkvæðum.

    • 1212076 – Hagkvæmnigreining á úthlutun lóða á Völlum 7.

      1. liður úr fundargerð BÆJH frá 7.mars sl.$line$Farið yfir hagkvæmnigreiningu vegna úthlutunar lóða á Völlum 7.$line$Bjarki Jóhannesson og Sigurður Páll Harðarson sviðsstjórar mættu á fundinn.$line$ $line$Lagt fram.$line$$line$Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:$line$$line$”Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir greinargóða úttekt en benda á að í úttektina vantar mat fjármálastjóra á hagkæmni lóðaúthlutunar í Skarðshlíð miðað við þær aðstæður sem sveitarfélagið er í, þeas að 90% af lóðarverðinu rynni til slitastjórnar Depfabanka vegna veðsetningar á öllum óseldum lóðum.”$line$

      Lúðvík Geirsson mætti til fundarins kl. 14:15.$line$$line$Valdimar Svavarsson tók til máls. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Valdimar Svavarsson svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni. Valdimar Svavarsson svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd. Valdimar Svavarsson kom að stuttri athugasemd. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Geir Jónsson kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Valdimar Svavarsson kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemd. Kristinn Andersen kom að andsvari við fyrri ræðu Eyjólfs Sæmundssonar. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Valdimar Svavarsson kom að andsvari við fyrri ræðu Eyjólfs Sæmundssonar. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Valdimar Svavarsson kom að andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni. Valdimar Svavarsson kom að stuttri athugasemd. Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemd. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að stuttri athugasemd. Kristinn Andersen kom að andsvari við fyrri ræðu Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Valdimar Svavarsson kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Kristinn Andersen kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Geir Jónsson kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Axels Axelssonar. Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari.$line$$line$Valdimar Svavarsson kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks:$line$$line$”Í hagkvæmniúttekt sem hér liggur fyrir er ekki tekið á því hvernig kostnaður og uppbygging hverfisins fellur að þeim samningum og skuldbindingum sem bæjarfélagið hefur nú þegar tekið á sig í öðrum hverfum og þeim lánasamningum sem bærinn hefur undirritað.$line$Ljóst er að þegar lánasamningur við þrotabú Depfa er tekinn inn í myndina þá rúmast uppbygging hverfisins engan veginn innan ramma tíu ára fjárhagsáætlunar bæjarins. Í þeim samningi er 90% af söluverðmæti lóða skilyrt til inngreiðslu á höfuðstól og ennfremur litið til þess að í samræmi við lög um skuldahlutfall ber sveitarfélaginu að ná skuldum niðut fyrir 150% á tíu ára tímabili og framlögð áætlun til að ná því marki gerir ráð fyrir 360 milljónum króna á ari til nýfjárfestinga á tímabilinu.$line$Samkvæmt úttektinni vantar um tvo milljarða króna til að klára uppbyggingu svæðisins og eingöngu er gert ráð fyrir litlum hluta af kostnaðinum við að byggja upp skóla og nýja Ásvallabraut.$line$Sjálfstæðismenn benda á mikilvægi þess að fjárhagslegar forsendur liggi fyrir þegar ákvörðun um uppbyggingu og úthlutun nýs hverfis verður tekin. Í úttektinni kemur líka fram að nægt framboð lóða og íbúða er í bænum nú þegar og að mögulegt ætti að vera að þétta byggð á nokkrum stöðum. Einnig ætti það að vera forgangsatriði að klára frágang í þeim hverfum sem hafa byggst upp á undanförnum árum.”$line$$line$Valdimar Svavarsson (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),$line$Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).$line$$line$Gert stutt fundarhlé.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lagði fram svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna:$line$”Fyrir liggur að hagkvæmt er og skynsamlegt að hefja uppbyggingu í Skarðshlíð í áföngum. Fyrirliggjandi hagkvæmnigreining styður þetta. Málatilbúnaður Sjálfstæðisflokksins er til þess eins fallinn að tefja þessar framkvæmdir og standa í vegi fyrir eðlilegri uppbyggingu í bæjarfélaginu.” $line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign), Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign), Gunnar Axel Axelsson (sign), $line$Eyjólfur Sæmundsson (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign), Lúðvík Geirsson (sign).

    • 1301616 – Aðalfundur Suðurlinda ohf.

      4.liður úr fundargerð BÆJH frá 7.mars sl.$line$Lagt fram fundarboð dags. 5. mars 2013 vegna aðalfundar Suðurlinda ohf. sem haldinn verður 18. mars nk.$line$Einnig lagðar fram samþykktir félagsins og ársreikningur 2012.$line$ $line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að félaginu verði slitið og tekið upp óformlegt samráð viðkomandi aðila.$line$$line$Jafnframt er kosningu í stjórn vísað til bæjarstjórnar.$line$

      Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Þá Lúðvík Geirsson. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. $line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 8 atkvæðum að félaginu verði slitið og tekið upp óformlegt samráð viðkomandi aðila. 1 sat hjá.

    • 1001193 – Innkaupareglur, endurskoðun

      11. liður úr fundargerð BÆJH frá 7.mars sl.$line$Tekið fyrir að nýju og lagðar fram umbeðnar umsagnir.$line$ $line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðr samþykkir fyrirliggjandi drög að innkaupareglum.”$line$

      Gunnar Axel Axelsson tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.

    • 1302329 – Austurgata 7, ósk um lóðarstækkun

      12.liður úr fundargerð BÆJH frá 7.mars sl.$line$$line$Lögð fram umsókn Ólafs Tryggva Gíslason dags. 19. febrúar sl. um lóðarstækkun við ofangreinda lóð en íbúar hafa sinnt þessum lóðarskika á umliðnum árum.$line$Jákvæð umsögn skipulags- og byggingarmála liggur fyrir.$line$ $line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að veita ofangreindum aðila lóðastækkun í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa.”$line$ $line$$line$

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.

    • 1302344 – Flatahraun 7, umsókn um lóðarstækkun

      13.liður úr fundargerð BÆJH frá 7.mars sl.$line$ Lögð fram umsókn Pústþjónustunnar BJB send í tölvupósti 22. febrúar sl. um lóðarstækkun á ofangreindri lóð skv. nýju deiliskipulagi. $line$Jákvæð umsögn skipulags- g byggingarmála liggur fyrir.$line$ $line$ Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að veita ofangreindum aðila lóðastækkun í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa.”$line$

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 10 atkvæðum framlagða tillögu.

    • 1006286 – Umhverfis- og auðlindastefna.

      2.liður úr fundargerð UMFRH frá 20.febr. sl.$line$Tekið fyrir að nýju.$line$$line$Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir framkomnar ábendingar og vísar Umhverfis- og auðlindastefnu til samþykktar í bæjarstjórn.$line$

      Fyrsti varaforseti, Kristinn Andersen, tók við fundarstjórn. Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls. Þá Valdimar Svavarsson, Eyjólfur Sæmundsson og Helga Ingólfsdóttir.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða umhverfis- og auðlindastefnu.$line$$line$Forseti tók við fundarstjórn að nýju.

    • 0708213 – Kosning í ráð og nefndir

      Lagðar fram eftirfarandi tilnefningar í fjölskylduráð og stjórn Suðurlinda ohf.$line$$line$Aðalmaður í fjölskylduráði:$line$Guðrún Jónsdóttir, Suðurgötu 67, í stað Sigríðar Elínar Ólafsdóttur.$line$$line$Varamaður í fjölskylduráði:$line$Þorgerður María Halldórsdóttir, Hjallabraut 1$line$$line$Aðalmenn í Suðurlindum ohf.:$line$Gunnar Axel Axelsson, Brekkugötu 18$line$Rósa Guðbjartsdóttir, Kirkjuvegi 7$line$$line$Varamenn í Suðurlindum ohf.:$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Suðurgötu 82$line$Valdimar Svavarsson, Birkibergi 30$line$$line$Ekki bárust frekari tilnefningar og teljast framangreind réttkjörin í fjölskylduráð og stjórn Suðurlinda ohf.

    • 1301059 – Fundargerðir 2013, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð bæjarráðs frá 7.mars sl.$line$a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 19.febr. sl.$line$b. Fundargerðir stjórnar SSH frá 7.jan. og 11.febr.sl.$line$c. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 4.mars sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.mars sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 6.mars sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 25.febr. sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6.mars sl.$line$Fundargerð fræðsluráðs frá 4.mars sl.

      Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. lið – Hafravellir, gangstéttarlagnir – í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6. mars sl. Fyrsti varaforseti, Kristinn Andersen, tók við fundarstjórn. Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. Geir Jónsson tók til máls undir 7. lið – Suðurgata 41, viðræður – í fundargerð bæjarráðs frá 7. mars. sl. Kristinn Andersen tók til máls undir sama lið. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Geir Jónsson tók til máls öðru sinni undir fyrrnefndum 7. lið.

Ábendingagátt