Bæjarstjórn

4. september 2013 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1709

Mætt til fundar

  • Lúðvík Geirsson aðalmaður
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir forseti
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Valdimar Svavarsson aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri

Áður en gengið var til dagskrár var haldinn kynningarfundur þar sem Gerður Guðjónsdóttir fjármálastjóri kynnti 6 mánaða uppgjör.

Margrét Gauja Magnúsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði honum og var þá gengið til dagskrár.

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar.

Ritari

  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri

Áður en gengið var til dagskrár var haldinn kynningarfundur þar sem Gerður Guðjónsdóttir fjármálastjóri kynnti 6 mánaða uppgjör.

Margrét Gauja Magnúsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði honum og var þá gengið til dagskrár.

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar.

  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 14.08.13 og 21.08.13. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$$line$Lagt fram.$line$

      Lagt fram til kynningar.

    • 1308268 – Krýsuvík - Seltún, deiliskipulag

      6.liður úr fundargerð SBH frá 27.ágúst sl.$line$Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs um að hefja deiliskipulag svæðis í Seltúni til að bæta ferðamannaaðstöðu á svæðinu. Styrkur 1 milljón kr fékkst frá ferðamálasjóði.$line$$line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu deiliskipulags svæðis í Seltúni.$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hefja vinnu við gerð deiliskipulags svæðis í Seltúni í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarsjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 atkvæðum.

    • SB050584 – Reykjanesbraut , deiliskipulag

      7.liður úr fundargerð SBH frá 27.ágúst sl.$line$Lagðar fram lýsingar á umhverfisskýrslum dags. 23.05.13 fyrir báða hluta deiliskipulagsins og umsögn Skipulagsstofnunar um þær dags. 12.07.13.$line$ $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagðar lýsingar á umhverfisskýrslum og að meðferð málsins verði skv. 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lýsingar á umhverfisskýrslum fyrir deiliskipulag Reykjanesbrautar, annars vegar frá Kaldárselsvegi til Strandgötu og hins vegar frá Strandgötu að Krýsuvíkurvegi, báðar dagsettar 23.05.13, og að meðferð málsins verði skv. 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 atkvæðum.

    • 1303287 – Skarðshlíð lóðaúthlutun

      5.liður úr fundargerð BÆJH frá 29.ágúst sl.$line$Lagðir fram úthlutunarskilmálar, úthlutunarreglur og verðtillögur vegna fyrirhugaðrar úthlutunar í Skarðshlíð.$line$Jafnframt mætti upplýsinga- og kynningarfulltrúi á fundinn og fer yfir kynningarefni sem er í vinnslu.$line$ $line$Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögum til bæjarstjórnar:$line$$line$”Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi úthlutunarskilmála.” $line$$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggandi reglur um úthlutun íbúðalóða.”$line$$line$”Bæjarstjórn Hafnfjarðar samþykkir að verð lóða í Skarðshlíð verði eftirfarandi:$line$Einbýli 11.007.830 kr. lágmarksverð miðað við 220m2 hús $line$Parhús 8.895.216 kr. lágmarksverð miðað við 200m2 hús$line$Raðhús 8.005.694 kr. lágmarksverð miðað við 180m2 hús $line$Fjölbýli 3.961.151 kr. hver íbúð í 4-8 íbúða húsi 950m2$line$Fjölbýli 3.335.706 kr. hver íbúð í 9 og fleiri íbúða húsi 1200m2$line$$line$Vísitala ofangreindra verða er 118,6 (bvt.)”$line$

      Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls og lagði síðan fram svohljóðandi viðbótartillögu við tillögu um lóðaverð:$line$”Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að sama verð gildi fyrir lausar lóðir í eldri hverfum.”$line$Þá tók Rósa Guðbjartsdóttir til máls, þessu næst Sigríður Björk Jónsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Sigríðar Bjarkar, Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. $line$Valdimar Svavarsson tók síðan til máls, þá Eyjólfur Sæmundssson,Rósa Guðbjartsdóttiir kom að andsvari við ræðu Eyjólfs Sæmundssonar, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni, Helga Ingólfsdóttir kom þá að andsvari við upphaflegri ræðu Eyjólfs, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni.$line$Kristinn Andersen tók þá til máls, síðan Geir Jónsson, Lúðvík Geirsson kom að andsvari við ræðu Geirs, Geir Jónsson svaraði andsvari.$line$Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkti með 6 atkvæðum fyrirligjandi úthlutunarskilmála.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkti með 6 atkvæðum fyrirliggjandi reglur um úthlutun lóða.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkti með 6 atkvæðum fyrirliggjani tillögu um lóðaverð og jafnfram viðaukatillögu við hana.$line$$line$Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka eftirfarandi:$line$”Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka afstöðu sína um að ekki sé tímabært að hefja úthlutun og sölu lóða í Skarðshlíð vegna fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og aðstæðna á byggingarmarkaði. Nauðsynlegur kostnaður við uppbyggingu hverfisins, eða um tveir milljarðar króna, rúmast engan veginn innan ramma tíu ára fjárhagsáætlunar bæjarins. Einnig vegur þungt að ákvæði í samningum við slitastjórn Depfa bankans þar sem allar lóðir bæjarfélagsins eru veðsettar bankanum og 90% af andvirði þeirra rennur til bankans við sölu þeirra. $line$$line$Þess í stað ætti að leggja áherslu á að hefja framkvæmdir við Ásvallabraut í því skyni að bæta samgöngur úr og í nýjustu hverfi bæjarins. Sett verði í forgang og leitað leiða við að leggja brautina á hagkvæmari hátt en gert hefur verið ráð fyrir svo af framkvæmdinni megi verða fyrr en síðar. Þetta er brýnt hagsmunamál fyrir Hafnfirðinga, sérstaklega íbúa á Völlum. Einnig er brýnt að þétta byggð og klára frágang og uppbyggingu í nýjum hverfum sbr. á Völlum 6, Áslandi 3 og í Skipalóni.”$line$$line$Gert var stutt fundarhlé. $line$$line$Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna bókuðu eftirfarandi:$line$”Bæjarfulltrúar meirihlutans fagna því að bæjastjórn hefur samþykkt mótatkvæðalaust nýja úthlutunarskilmála fyrir fyrsta áfanga í hinu glæsilega nýbyggingarsvæði í Skarðshlíð. Bæjarbúar og aðrir vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til að kynna sér þá áhugaverðu og hagkvæmu kosti sem er í boði á þessu einstaka byggingarsvæði.”$line$$line$$line$$line$

    • 1308515 – Árshlutauppgjör 2013

      7.liður úr fundargerð BÆJH frá 29.ágúst sl.$line$Kynnt rekstrarniðurstaða janúar – júni 2013 fyrir bæjarsjóð Hafnarfjarðar.$line$Fjármálastjóri fór yfir niðurstöðuna.$line$ $line$Bæjarráð vísar uppgjörinu til kynningar í bæjarstjórn.$line$

      Uppgjörið var kynnt sérstaklega á fundi klukkan 13:00.$line$$line$Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls, þá Rósa Guðbjartsdóttir.$line$Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.

    • 1301059 – Fundargerðir 2013, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 27.ágúst sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 28.ágúst sl.$line$a. Fundargerð íþrótta-og tómstundaráðs frá 19.ágúst sl.$line$Fundargerð fræðsluráðs frá 26.ágúst sl.$line$Fundargerð umhverfis-og framkvæmdaráðs frá 28.ágúst sl.$line$a. Fundargerð stjórnar SORPU bs., frá 19.ágúst sl.$line$b. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 21.júní, 9. og 14.ágúst sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 29.ágúst sl.$line$a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 13. og 27.ágúst sl.$line$b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 19.ágúst sl.

      Helga Ingólfsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 1. liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 28. ágúst sl., Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari og tók varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins, Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari,að því loknu tók forseti Margrét Gauja við fundarstjórn að nýju.

Ábendingagátt