Bæjarstjórn

20. ágúst 2014 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1728

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Einar Birkir Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Borghildur Sölvey Sturludóttir varamaður
  • Ófeigur Friðriksson varamaður

Í fjarveru forseta setti 2. varaforseti Kristinn Andersen fundinn og stjórnaði honum fram að kjöri 1. varaforseta. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir 1. varaforseti tók síðan við stjórn fundarins.

Áður en gengið var til dagskrár gerði forseti grein fyrir að Margrét Gauja Magnúsdóttir hafi fengið leyfi fr

Ritari

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs

Í fjarveru forseta setti 2. varaforseti Kristinn Andersen fundinn og stjórnaði honum fram að kjöri 1. varaforseta. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir 1. varaforseti tók síðan við stjórn fundarins.

Áður en gengið var til dagskrár gerði forseti grein fyrir að Margrét Gauja Magnúsdóttir hafi fengið leyfi fr

  1. Almenn erindi

    • 1406220 – Kosning forseta bæjarstjórnar

      Kosning 1. varaforseta.

      Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir hlaut 11 atkvæði sem 1. varaforseti bæjarstjórnar.

    • 1406187 – Ráð og nefndir 2014-2018, kosningar

      Kjósa þarf 1 varamann í bæjarráð, 2 aðalmenn og 1 varamann í fræðsluráð, 1 aðalmann í umhverfis- og framkvæmdaráð og 1 varamann í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

      Bæjarráð:$line$Tilnefning kom um Eyrúnu Ósk Jónsdóttur Einivöllum 5 í stað Margrétar Gauju Magnúsdóttur og skoðast hún rétt kjörinn.$line$$line$Fræðsluráð:$line$Tilnefning kom um Öddu Maríu Jóhannsdóttur Skógarhlíð 7 í staða Margrétar Gauju Magnúsdóttur og Hörð Svavarsson Hólabraut 6 í stað Helgu Bjargar Arnardóttur sem aðalmenn og Karólínu Helgu Símonardóttur Kelduhvammi 24 í stað Harðar Svavarssonar sem varamann og skoðast þau rétt kjörin.$line$$line$Umhverfis- og framkvæmdaráð:$line$Tilnefning kom um Helgu Björgu Arnardóttur Þrastarási 28 í stað Guðlaugar Kristjánsdóttur sem aðalmann.$line$$line$Stjórn SSH:$line$Tilnefning kom um Rósu Guðbjartsdóttur Kirkjuvegi 7 sem varamann.

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 09.07.14, 16.07.14, 23.07.14, 30.07.14 og 06.08.14. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr. 160/2010.$line$Lagt fram.$line$

      Lagt fram til kynningar.

    • 1408104 – Árshlutauppgjör 2014

      2. liður úr fundargerð BÆJH frá 14. ágúst sl.$line$Lagt fram til kynningar 6 mánaða uppgjör fyrir bæjarsjóð Hafnarfjarðar og stofnanir hans.$line$ $line$Bæjarráð vísar uppgjörinu til kynningar í bæjarstjórn.$line$

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls, þá Gunnar Axel Axelsson.$line$$line$Lagt fram til kynningar. $line$$line$Gunnar Axel Axelsson lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs:$line$$line$”Afkoma Hafnarfjarðarbæjar jákvæð á fyrri helmingi ársins$line$Árshlutauppgjör fyrir janúar til júní 2014 sýnir berlega þann mikla árangur sem náðst hefur á síðustu árum í rekstri bæjarins. Frávik frá áætlun ársins skýrast fyrst og fremst af áhrifum kjarasamninga og annarra ytri þátta en í heild er uppgjörið í góðu samræmi við fjárhagsáætlun ársins. Í uppgjörinu koma fram jákvæð áhrif endurfjármögnunar langtímaskulda sem kom að stórum hluta til framkvæmda sl. vor. Skuldir Hafnarfjarðarbæjar halda áfram að lækka, eða um 763 milljónir króna á fyrstu 6 mánuðum ársins, sem þýðir að skuldahlutfall heldur áfram að lækka í samræmi við áætlanir þar um. $line$Þennan árangur og þann mikla viðsnúning sem hefur orðið í rekstri bæjarins er ekki síst þakka öguðu starfsumhverfi og samhentu átaki stjórnenda og starfsfólks bæjarins. Verkefnið framundan er að styrkja þessa fjárhagsstöðu enn frekar og byggja á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður á undanförnum árum.” $line$Gunnar Axel Axelsson$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir$line$Adda María Jóhannsdóttir$line$Ófeigur Friðriksson

    • 1309240 – Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og stofnana hans 2014-2017

      3. liður úr fundargerð BÆJH frá 14. ágúst sl.$line$Lagður fram viðauki III við fjárhagsáætlun bæjarjóðs Hafnarfjarðar 2014$line$ $line$Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi viðauka III við fjárhagsáætlunar bæjarsjóðs Hafnarfjarðar.”$line$

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1406242 – Ráðning bæjarstjóra

      6. liður úr fundargerð BÆJH frá 14. ágúst sl.$line$Lagður fram ráðningarsamningur við bæjarstjóra.$line$Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi ráðningarsamning við bæjarstjóra.”$line$

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls, þá Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir og tók 2. varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins undir ræðu hennar. $line$$line$Gunnar Axel Axelsson tók síðan til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Gunnars Axel Axelssonar, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd, Gunnar Axel Axelsson kom einnig að stuttri athugasemd.$line$$line$Einar Birkir Einarsson tók þessu næst til máls, Gunnar Axel Axelsson koma að andsvari við ræðu Einars Birkis Einarssonar, Einar Birkir Einarsson svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni.$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir tók þá til máls, Gunnar Axel Axelsson koma að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur. Kristinn Andersen tók síðan til máls.$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók þá til máls og tók Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan. $line$Gunnar Axel Axelson tók þessu næst til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 7 atkvæðum gegn 4. $line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar: $line$”Þegar auglýst var eftir bæjarstjóra Hafnarfjarðar í júní sl. voru gerðar kröfur um menntun og sérhæfða reynslu. Nánar tiltekið farsæla reynslu af rekstri og stjórnun, menntun sem nýttist í starfi og reynslu og þekkingu af opinberri stjórnsýslu. Tekið var tillit til þessara þátta við ákvörðun launa bæjarstjóra. Jafnframt var gerður samanburður á launakjörum bæjarstjóra eða framkvæmdastjóra annarra sambærilegra sveitarfélaga. Miðað var við að Hafnarfjörður færi ekki fram úr öðrum sveitarfélögum, en væri þeim heldur ekki langt að baki hvað laun bæjarstjóra varðar. Launakjör nýskipaðs bæjarstjóra eru nú sambærileg launakjörum bæjarstjóra í nágrannasveitarfélögunum, eins og þau voru við lok síðasta kjörtímabils.Einnig var horft til launa fyrrum bæjarstjóra Hafnarfjarðar síðustu áratugina, uppreiknuð samkvæmt vísitölum. $line$Grunnlaun bæjarstjóra, að frátöldum greiðslum vegna setu í bæjarstjórn og eftir atvikum ráðum, voru árið 2005 kr. 876.502. $line$Framreiknuð miðað við launavísitölu starfsmanna sveitarfélaga væru þau laun árið 2014 kr. 1.535.660, en ef stuðst er við vísitölu neysluverðs kr. 1.523.985. Sé launum fyrir setu í bæjarstjórn (án annarra ráða) bætt við grunnlaun, væru launin í dag kr. 1.759.598 (launavísitala starfsmanna sveitarfélaga) eða 1.756.220 (VNV). $line$Laun nýráðins bæjarstjóra Hafnarfjarðar eru heildarlaun, ekki er greitt sérstaklega fyrir setu á bæjarstjórnarfundum eða bæjarráðsfundum. Innifalið í heildarlaununum eru jafnframt greiðslur vegna aksturs. Heildarlaunin eru kr. 1.480.000.$line$Í ráðningarsamningi við bæjarstjóra voru gerðar fleiri breytingar. Ákvæðum um uppsagnarfrest var breytt, á þann veg að gagnkvæmur uppsagnarfrestur er nú 6 mánuðir, en í fyrri ráðningarsamningum var gert ráð fyrir að bæjarstjóri sem segði upp störfum gæti gert kröfu um laun út kjörtímabilið. Það svigrúm hefur nú verið þrengt. Einnig er nú fallið frá því að greiða orlof af yfirvinnu, sem áður var gert.”$line$$line$Gunnar Axel Axelsson lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs:$line$”Vegna vinnubragða fulltrúa meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar sagði fulltrúi minnihlutans í valnefnd um ráðningu bæjarstjóra sig frá störfum nefndarinnar, enda ljóst að ekki er um faglega ráðningu að ræða heldur pólitíska ákvörðun meirihlutans. Fulltrúar minnihluta sátu því hjá við afgreiðslu tillögu meirihluta bæjarráðs en óska engu að síður nýráðnum bæjarstjóra farsældar í sínum störfum og vonast til þess að eiga við hann gott samstarf.$line$Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að ráðningasamningi er gert ráð fyrir að laun bæjarstjóra hækki um 31,5% miðað við núgildandi starfskjör. Þessi tillaga um launahækkun er lögð fram án allrar umræðu og aðkomu bæjarstjórnar. Fulltrúar minnihlutans eru mjög hugsi yfir því hvaða skilaboð felast í slíkri hækkun á launum æðsta embættismanns sveitarfélagsins.”$line$$line$Adda María Jóhannsdóttir$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir$line$Gunnar Axel Axelsson$line$Ófeigur Friðriksson

    • 1404190 – Einivellir 3 og Kirkjuvellir 12, deiliskipulagsbreyting

      5. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 7. ágúst sl.$line$Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi lóðanna. Skipulagið var auglýst skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, athugasemd barst. Haldinn var kynningarfundur um skipulagið 21.07.14.$line$$line$Skipulags- og byggingarráð fellst á innkomna athugasemd að svalir skuli snúa í vestur á húsum Einivellir 3 og Kirkjuvellir 12. Athugasemd varðandi einstefnuakstur á Kirkjuvöllum er vísað til Undirbúningshóps umferðarmála. $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og að meðferð þess verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: $line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á skipulagi 3. áfanga Valla hvarð varðar lóðirnar Einivelli 3 og Kirkjuvelli 12 og að málinu verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$

      Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 10 samhljóða fyrirliggjandi tillögu skipulags- og byggingarráðs.

    • 1401064 – Fundargerðir 2014, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð fræðsluráðs frá 11. ágúst sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 13. ágúst sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 7. ágúst sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 14. ágúst sl.$line$a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 7. ágúst sl.$line$b. Fundargerð hafnarstjórnar frá 12. ágúst sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 13. ágúst sl.$line$a. Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar frá 17. júní og 27. júní sl.

      Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna fundargerðar bæjarráðs frá 14. ágúst sl. 1. liðar Endurfjármögnun lána, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við ræðu Gunnars Axels Axelssonar, Gunnar Axel Axelssonar svaraði andsvari. $line$Rósa Guðbjartsdóttir tók þá til máls, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari.$line$Gunnar Axel Axelsson tók aftur til máls, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við ræðu Gunnars Axels Axelssonar.$line$$line$Ólalfur Ingi Tómasson kvaddi sér hljóðs vegna 3. liðar fundargerðar skipulags- og byggingarráðs frá 7. ágúst sl. Reykjanesbraut tenging við Rauðhellu/Krýsuvíkurveg.$line$$line$

Ábendingagátt