Bæjarstjórn

14. október 2015 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1753

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir forseti
  • Einar Birkir Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Elva Dögg Ásud. Kristinsdóttir aðalmaður
  • Skarphéðinn Orri Björnsson varamaður

Auk ofangreindra bæjarfulltrúa sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.[line][line]Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar nema Kristinn Andersen í hans stað mætti Skarphéðinn Orri Björnsson[line][line]Áður en gengið var til dagskrár bar forseti upp afbrigði þess efnis að tekið yrði af dagskrá mál 1504002 – Kvartmíluklúbburinn, breyting á deiliskipulagi, einnig að liður 7 á dagskánni færðist til og yrði 1.liður á dagskrá.[line][line] Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti afbrigðin með 11 samhljóða atkvæðum

Ritari

  • Auður Þorkelsdóttir

Auk ofangreindra bæjarfulltrúa sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.[line][line]Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar nema Kristinn Andersen í hans stað mætti Skarphéðinn Orri Björnsson[line][line]Áður en gengið var til dagskrár bar forseti upp afbrigði þess efnis að tekið yrði af dagskrá mál 1504002 – Kvartmíluklúbburinn, breyting á deiliskipulagi, einnig að liður 7 á dagskánni færðist til og yrði 1.liður á dagskrá.[line][line] Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti afbrigðin með 11 samhljóða atkvæðum

  1. Almenn erindi

    • 0706404 – Siðareglur kjörinna fulltrúa

      1.liður úr fundargerð forsetanefndar frá 12.okt.sl.
      Siðareglur kjörinna fulltrúa tekið fyrir að nýju.
      Forsetanefnd vísar drögum að siðareglum kjörinna fulltrúa til umræðu í bæjarstjórn

      Elva Döggg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins.
      Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls.
      Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins.
      Gunnar Axel Axelsson tók til máls.Einar Birkir Einarsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:

      Í störfum sínum skulu kjörnir fulltrúar koma fram af drengskap og háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, starfsmönnum og viðskiptavinum bæjarfélagsins fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skulu hafa hugfast að orðspor allra kjörinna fulltrúa byggist á framgöngu sérhvers kjörins fulltrúa.

      Grein 2 myndi því hljóða í heild sinni svona:

      2. gr.
      Starfsskyldur kjörinna fulltrúa
      Kjörnir fulltrúar skulu í störfum sínum fylgja lögum, reglum og samþykktum Hafnarfjarðarbæjar, sem og sannfæringu sinni. Þeim ber að gæta almannahagsmuna og hagsmuna sveitarfélagsins.

      Kjörnir fulltrúar hafa ávallt í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu í störfum sínum, þ.m.t. gagnsæja og upplýsta ákvarðanatöku á grundvelli lögmætra og málefnalegra sjónarmiða.

      Í störfum sínum skulu kjörnir fulltrúar koma fram af drengskap og háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, starfsmönnum og viðskiptavinum bæjarfélagsins fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skulu hafa hugfast að orðspor allra kjörinna fulltrúa byggist á framgöngu sérhvers kjörins fulltrúa.

      Kjörnum fulltrúum ber að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að rökstyðja ákvarðanir sínar og tilgreina þá þætti sem ákvarðanir þeirra eru byggðar á. Þeir skulu bera ábyrgð gagnvart bæjarbúum í heild sinni og svara fyrirspurnum almennings um framkvæmd þeirra starfa sem þeir bera ábyrgð á sem kjörnir fulltrúar.

      Kjörnum fulltrúum ber að virða fjárhagsáætlun og grundvallarreglur um fjármálastjórn sem tryggja réttmæta og ábyrga meðferð á almannafé sveitarfélagsins.

      Adda María Jóhannsdóttir tók til máls. Einar Birkir Einarsson kom að andsvari. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari.
      Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdótir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari öðru sinni.Guðlaug Kristjánsdóttir kom í andsvar öðru sinni. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins. Gunnar Axel Axelsson tók til máls og lagði til að liðnum yrði vísað aftur til forsetanefndar.
      Elva Dögg Ásudóttir Kristindóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir kom í andsvar. Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari. Guðlaug Kristjánsdóttir kom í andsvar öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari öðru sinni. Guðlaug Kristjánsdóttir kom að stuttri athugasemd. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins. Einar Birkir Einarsson kom í andsvar.Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari.Einar Birkir Einarsson kom í andsvar öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari. Einar Birkir Einarsson kom að stuttri athugasemd. Gunnar Axel Axelsson kom að stuttri athugasemd. Rósa Guðbjartsdóttir kom í andsvar. Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari.
      Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls.Adda María Jóhannsdóttir kom að andsvari.
      Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls. Adda María Jóhannsdóttir kom í andsvar.Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari.Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir tók til máls.
      Bæjarstjjórn samþykkir með 10 samhjóða atkvæðum að vísa liðnum aftur til forsetanefndar

    • 1502379 – Strandgata 26-30 deiliskipulagsbreyting.

      5. liður úr fundargerð SBH frá 22.sept. sl.

      Valdimar Harðarson sækir f.h. Sérverks um að breyta deiliskipulagi reitsins í samræmi við innsend gögn. Sviðsstjóri greindi frá fundi með forsvarsmönnum Fjarðar.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að ganga til samninga við húsfélag Fjarðar og lóðarhafa Strandgötu 26-30 um frágang og aðkomu að kjallara.

      Skipulags- og byggingarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
      “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Strandgötu 26-30 og að málinu verði lokið samkvæmt 42 gr. skipulagslaga nr.123/2010.

      Einar Birkir Einarsson vék af fundi kl. 15:40. Borghildur Sturludóttir tók sæti hans á fundinum.
      Ólafur Ingi Tómasson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
      “Í samþykkt skipulags- og byggingarráðs um “Strandgata 26-30 deiliskipulagsbreyting.” þann 22.9. sl. segir: “Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að ganga til samninga við húsfélag Fjarðar og lóðarhafa Strandgötu 26-30 um frágang og aðkomu að kjallara.“
      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tryggt verði að lóðarhafi Strandgötu 26-30 leggi til (kostar) aðgangstýringar á hurð frá bílakjallara Fjarðargötu 13-15 að efri hæðum hússins þannig að lokað sé fyrir aðgengi utan opnunartíma fyrirtækja í Firði. Lóðarhafi Strandgötu 26-30 greiðir allan kostnað vegna framkvæmda við tengingu bílakjallara Strandgötu 26-30 við Fjarðargötu 13-15, t.d. hugsanlegan flutning lagna, og greiðir jafnframt aukinn rekstrarkostnað við bílakjallara Fjarðargötu 13-15 sem af tengingunni hlýst.
      Samkomulag þessa efnis verði borið undir umhverfis- og framkvæmdarráð til staðfestingar.”

      Borghildur Sturludóttir tók til máls. Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls.Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins.

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu með 10 samhljóða atkvæðum.

    • 1301188 – Suðurgata 41, St. Jósefsspítali, framtíðarnotkun

      3.liður úr fundargerð BÆJH frá 8.okt.sl.
      Lagt fram afrit af svari Minjastofnunar Íslands til Hollvinasamtaka St. Jósefsspítala frá 12. ágúst 2015 varðandi varðveislumat á sjúkrahús- og skólabyggingum við Suðurgötu 41 og 44.

      Bæjarráð samþykkir að vísa eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

      Bæjarráð samþykkir að kalla eftir því að ríkið taki ábyrgð á framtíð bygginga St. Jósefsspítala og skipuð verði forvalsnefnd með fulltrúum beggja aðila sem fái það verkefni að finna fasteignunum nýtt og viðeigandi hlutverk í þágu nærsamfélagsins í Hafnarfirði. Í vinnu sinni skuli nefndin horfa til alls skipulagssvæðisins sem tilheyrir spítalanum og byggingum hans í samráði við hagsmunaaðila. Fyrsta verkefni nefndarinnar verði að undirbúa og hrinda í framkvæmd forvalsferli þar sem áhugasömum aðilum skal gefið tækifæri til að leggja fram hugmyndir sínar að framtíðarnýtingu fasteignanna. Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda ráðuneytinu erindi þessa efnis og vinna að framgangi málsins en tekur ekki afstöðu til þeirra krafna sem fram koma í erindi Hollvinasamtaka St. Jósefsspítala.

      Geinargerð:
      Hingað til hefur öllum hugmyndum og tillögum bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um mögulega nýtingu á húsnæði St. Jósepsspítala verið hafnað. Hafa byggingarnar verið látnar standa auðar allt frá því að starfsemi St. Jósepsspítala var lögð niður í kjölfar sameiningar við Landsspítala Háskólasjúkrahúsi. Óskum bæjarins um að fá fasteignirnar til umráða hefur hingað til sömuleiðis verið synjað af hálfu ríkisins. Bæjarráð getur ekki fallist á það að byggingarnar standi áfram auðar og í niðurníðslu og leggur því til að málið verði sett í ofrangreindan farveg með von um að hægt verði að vinna málið hratt og vel og í góðu samstarfi aðila.

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls.Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Borghildur Sturludóttir tók til máls. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tók til máls.
      Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins.Helga Ingólfsdóttir tók til máls.

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum

    • 1510179 – Ályktun, fjármál sveitarfélaga

      Lögð fram áskorun um fjármál sveitarfélaga:
      Áskorun
      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á tekjustofnum sveitarfélaga til að tryggja að þeir séu í samræmi við þau verkefni sem sveitarfélögunum eru falin.

      Greinargerð:
      Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa átt fundi að undanförnu þar sem þau hafa farið yfir alvarlega stöðu í fjármálum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og um land allt. Bæjarstjórn Garðabæjar og borgarráð Reykjavíkur samþykktu samsvarandi ályktun og hér er borin fram í síðustu viku og búast má við því að fleiri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu fylgi í kjölfarið. Í stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014-2018 segir: “Sveitarfélögum skulu tryggðir nauðsynlegir tekjustofnar í samræmi við þau verkefni sem þeim eru falin í stjórnarskrá og lögum. Þeir skulu vera nægjanlega fjölþættir og sveigjanlegir í eðli sínu svo þeir geti staðið undir þeirri fjölbreyttu þjónustu sem íbúar þeirra kalla eftir.”
      Við núverandi aðstæður er ekki hægt að halda því fram að tekjustofnar sveitarfélaga standi undir þessum markmiðum. Enn fremur er ljóst að verði ekkert að gert mun rekstrarkostnaður sveitarfélaga hækka langt umfram tekjur þeirra á næstu mánuðum. Verði ekkert að gert munu sveitarfélög illa geta staðið undir hlutverki sínu og skyldum á næstu misserum.
      Hafnarfjarðarbær lét nýverið greina allan rekstur bæjarins ítarlega með það að markmiði að tryggja hagkvæmni. Jafnvel þótt allar tillögur til hagræðingar sem greiningunni fylgja gengju eftir að fullu myndu slíkar aðgerðir duga skammt ef ekki koma til breytingar varðandi tekjustofna sveitarfélaga. Bent er á að bæjarráð Hafnarfjarðar skoraði nýlega á Alþingi að lækka tryggingargjald mun meira en nú er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu og ítrekar bæjarstjórn þá áskorun. Einnig hefur bæjarráð beint því til Sambands íslenskra sveitarfélaga að taka upp viðræður við ríkið um lækkun á innheimtuprósentu ríkisins vegna innheimtu útsvars.

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls.Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tók til máls.Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls.
      Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný. Gunnar Axel Axelsson tók til máls.

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir áskorunina með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1510023 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fjárhagsáætlun og gjaldskrár 2016

      7.liður úr fundargerð BÆJH frá 8.okt. sl.
      Lögð fram fjárhagsáætlun og tillaga að gjaldskrá 2015 fyrir Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

      Lagt fram.

      Bæjarráð samþykkir að vísa eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

      “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá heilbrigiðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.”

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu með öllum greiddum atkvæðum.

    • 1303252 – Samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar

      3.liður úr fundargerð forsetanefndar frá 12.okt.sl.
      Tillaga áheyrnafulltrúa Samfylkingar og fulltrúa VG lögð fram til kynningar og umræðu
      Áheyrnarfulltrúi Samfylkingar og fulltrúi VG leggja fram eftirfarandi tillögu:
      Tillaga til breytinga á samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.
      Lögð fram til umræðu á fundi forsetanefndar þann 12.10.2015.
      Almennt um tillöguna
      Lagt er til að forsetaanefnd (forsætisnefnd) verði veitt sambærilegt hlutverk á við það sem gildir um forsætisnefndir m.a. í Reykjavík og Kópavogi, þar sem henni hefur verið gefið aukið vægi m.a. í undirbúningi bæjarstjórnarfunda. Markmiðið með þeim breytingum er að auka aðkomu fulltrúa allra flokka að undirbúningi sameiginlegra bæjarstjórnarfunda og stuðla þannig að aukinni samvinnu og heilbrigðu samráði þeirra í milli.
      Til að ná því markmiði og stuðla að aukinni skilvirkni og samstöðu í störfum bæjarstjórnar leggjum við til eftirfarandi breytingar á samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar. Þá er lagt til að heiti nefndarinnar verið breytt til samræmis við það sem tíðkast um sambærilegar nefndir í öðrum sveitarfélögum, þ.e. í stað forsetanefndar komi forsætisnefnd.
      Greinargerð:
      Fram til ársins 2014 þjónaði forsetanefnd Hafnarfjarðarbæjar hlutverki óformlegs samstarfsvettvangs allra flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Hefur nefndin í gegnum tíðina unnið að undirbúningi margháttaðra breytinga og umbóta m.a. á samþykktum sveitarfélagsins, gerð erindisbréfa fyrir ráð og nefndir, fjallað um fyrirkomulag funda og annarra starfa kjörinna fulltrúa og verið mikilvægur vettvangur samskipta þeirra sem sinna trúnaðarstörfum fyrir hönd bæjarbúa í Hafnarfirði. Lengst af hafði nefndin ekki formlegt hlutverk og um hana var hvorki getið í samþykktum né var í gildi sérstakt erindisbréf um störf hennar. Það má því segja að hún hafi í reynd verið starfshópur fremur en hluti af hinu formlega stjórnkerfi. Almennt má segja að nefndin hafi eftir sem áður þjónað mjög mikilvægu hlutverki, ekki síst í því skyni að skapa fulltrúum ólíkra stjórnmálaflokka vettvang til að ræða sameiginleg málefni, s.s. skipulag funda og fyrirkomulag annarra starfa þeirra sem kjörinna fulltrúa.
      Á síðasta kjörtímabili hófst vinna við að formgera samstarfið á vettvangi forsetanefndar, tryggja henni skýrari sess í stjórnkerfinu og auka sýnileika þeirrar vinnu sem þar fer fram. Í upphafi þessa kjörtímabils samþykkti bæjarstjórn svo erindisbréf fyrir nefndina. Þrátt fyrir að með því væri stigið jákvætt skref náðist ekki samstaða innan bæjarstjórnar um að auka vægi nefndarinnar með sama hætti og gert hefur verið með góðum árangri í nágrannasveitarfélögunum.
      Það sem af er þessu kjörtímabili hefur nefndin lengst af fundað bæði sjaldan og óreglulega en undanfarnar vikur hefur orðið jákvæð breyting þar á. Eftir sem áður kemur nefndin ekkert að undirbúningi bæjarstjórnarfunda heldur er það verkefni á höndum fulltrúa þeirra flokka sem skipa meirihluta í bæjarstjórn eingöngu.
      Með breyttu fyrirkomulagi yrði það hlutverk forsætisnefndar að skipuleggja í sameiningu fyrirkomulag fundanna, t.d. röðun dagskrárliða og framsetningu þeirra. Sú vinna færi fram undir stjórn forseta sem stýrir fundum forsætisnefndar. Í stað þess að kjörnir fulltrúar sendi bæjarstjóra óskir um að tiltekin mál séu tekin á dagskrá og það sé í hans höndum að móta dagskrá bæjarstjórnafundarins, yrði forsætisnefnd viðtakandi erindanna frá kjörnum fulltrúum, sem og frá bæjarstjóra. Með breytingunum er gert ráð fyrir að nefndin fundi að lágmarki hálfsmánaðarlega og undirbúi dagskrá bæjarstjórnar áður en hún er send út til fundarmanna og kynnt almenningi í samræmi við gildandi reglur þar um. Með því takast fulltrúar allra flokka á hendur sameiginlega ábyrgð á mótun dagskrár og skipulags bæjarstjórnarfunda og öðlast um leið betri forsendur til samráðs um útfærslu einstakra mála eða tillagna. Teljum við að með þessum móti sé hægt að skapa aðstæður sem eru betur til þess fallnar en núverandi fyrirkomulag að draga úr óþarfa ágreiningi og bæta það mikilvæga starf sem fram fer á vettvangi bæjarstjórnar.
      Við sem stöndum að þessari tillögu að breyttum starfsaðferðum teljum að með þeim geti skapast meira jafnræði milli fulltrúa í bæjarstjórn og dreifð ábyrgð á skipulagi bæjarstjórnarfunda geti stuðlað að jákvæðara andrúmslofti, dregið úr óþarfa ágreiningi og leitt til aukinnar skilvirkni í störfum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
      Tillagan byggir á því fyrirkomulagi sem í gildi er í borgarstjórn Reykjavíkur og hefur reynst vel.
      Tillaga að nýrri grein (aðrar greinar í núgildandi samþykkt breytist til samræmis, þ.e. sú grein sem nú er nr. 50 verði nr. 51 o.s.fv.:
      50. gr
      Forsætisnefnd
      Forseti og varaforsetar bæjarstjórnar skipa forsætisnefnd og stýrir forseti starfi nefndarinnar.
      Nú á framboðslisti sem fær kjörinn fulltrúa í bæjarstjórn ekki fulltrúa í forsætisnefnd skv. 1. málsl. og skal hann þá tilnefna bæjarfulltrúa úr sínum röðum sem áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd með málfrelsi og tillögurétt.
      Forsætisnefnd heldur að jafnaði fundi tvisvar í mánuði. Boða skal til aukafunda eftir þörfum.
      Forseti bæjarstjórnar boðar til funda forsætisnefndar og ákveður dagskrá í samráði við framkvæmdastjóra nefndarinnar. Verkefni forsætisnefndar eru sem hér segir:
      1. Skipuleggur starf bæjarstjórnar.
      2. Fjallar um tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar og samþykktum fyrir einstakar nefndir
      3. Fjallar um álitamál varðandi málsmeðferð í nefndarkerfi og bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og önnur álitaefni sem til hennar er vísað..
      4. Setur reglur um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa
      5. Fjallar um önnur þau mál sem forseti leggur fyrir hana eða aðrir nefndarmenn, áheyrnarfulltrúar eða framkvæmdastjóri forsætisnefndar óska eftir að ræða.
      Bæjarlögmaður annast umsýslu fyrir forsætisnefnd, þ.m.t. ritun fundargerða og er framkvæmdastjóri forsætisnefndar.
      Tillaga að breytingu á 10. grein í núgildandi samþykkt
      Greinin í dag:
      10. gr.
      Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
      Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.
      Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
      1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta og varaforseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
      2. Fundargerðir ráða, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins sem lagðar eru fram til kynningar.
      3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
      4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.
      Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra og forseta skriflega, ásamt því að skila nauðsynlegum gögnum, fyrir kl. 11:00 á mánudegi fyrir reglulegan fundartíma bæjarstjórnar á miðvikudegi kl. 14:00.
      Tillaga að breyttri 10. grein:
      10. gr.
      Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
      Forseti bæjarstjórnar semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við bæjarstjóra og forsætisnefnd og skal dagskráin fylgja fundarboði.
      Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
      1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta og varaforseta bæjarstjórnar, kosn¬ingar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjar¬stjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
      2. Fundargerðir ráða, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins sem lagðar eru fram til kynningar.
      3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
      4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dag¬skrá.
      Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það forsætisnefnd skriflega, ásamt því að skila nauðsynlegum gögnum, fyrir kl. 11.00 á mánudegi fyrir reglulegan fundeða á fundi forsætisnefndar í síðasta lagi.
      Tillaga að breytingu á 24. grein í núgildandi samþykkt
      Greinin í dag:
      24. gr.
      Þóknun o.fl.
      Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
      Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
      Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
      Tillaga að breyttri 24. grein:
      24. gr.
      Þóknun o.fl.
      Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjar¬stjórnar¬innar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
      Forsætisnefnd skal setja nánari reglur um réttindi, kjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa, svo sem um lífeyrissjóð, fæðingarorlof, starfslok, ferða-, dvalar- og ráðstefnukostnað o.fl.Bæjarfulltrú má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

      Lagt fram.

      Gunnar Axel Axelsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi afgreiðslutillögu:
      Bæjarstjórn samþykkir að tillögunni verði vísað til umfjöllunar í forsetanefnd og henni verði falið að undirbúa fyrri umræðu um breytingarnar í bæjarstjórn. Nefndinni verði falið að leita eftir kynningu á starfsháttum borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Kópavogs, sem eru sveitarstjórnir sem búa yfir reynslu af innleiðingu sambærilegra umbóta í störfum sínum.

      Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls.Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný.Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir tók til máls. Adda María Jóhannsdóttir tók til máls. Ófeigur Friðriksson tók til máls. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls.Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari.Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný.Gunnar Axel Axelsson gerði athugasemd við fundarsköp forseta.

      Fundarhlé gert kl. 18:00
      Fundi framhaldið kl. 18:08

      Framkomin afgreiðslutillaga var felld með 7 atkvæðum gegn 4.
      Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins.Guðlaug Kristjánsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný. Gunnar Axel Axelsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.

    • 1407042 – Bæjarstjórn, starfsumhverfi

      4.liður úr fundargerð forsetanefndar frá 12.okt.sl.
      Breyting á fundartíma bæjarstjórnar.
      Forsetanefnd leggur til að næsti fundur bæjarstjórnar hefjist kl. 16

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breyttan fundartíma bæjarstjórnar með öllum greiddum atkvæðum

    Fundargerðir

    • 1501023 – Fundargerðir 2015, til kynningar í bæjarstjórn

      Fundargerð bæjarráðs frá 8.okt.sl.
      a. Fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.sept. sl.
      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 7.okt. sl.
      a.Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 24.sept.sl.
      b.Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 28.ágúst og 10.sept. sl.
      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 6.okt. sl.
      Fundargerð fræðsluráðs frá 7.okt. sl.
      Fundargerð fjölskylduráðs frá 5.okt.sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 12.október sl.

      Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs undir fundargerð bæjarráðs frá 8.okt. sl.21.liður., Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tók til máls.Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tók til máls. Adda María Jóhannsdótti kvaddi sér hljóðs undir fundargerð bæjarráðs frá 8.október sl., 21.lið. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Adda María Jóhannsdóttir kom að andsvari. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjándóttir kom í andsvar. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari. Guðlaug Kristjánsdóttr tók við stjórn fundarins. Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Adda María Jóhannsdóttir tók til máls.Unnur Lára Bryde kom í andsvar. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir 1.varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls.Gunnar Axel Axelsson kom í andsvar. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir kvaddi sér hljóðs undir fundargerð fjölskylduráðs frá 5.okt.sl. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný. Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir kvaddi sér hljóðs undir fundargerð bæjarráðs frá 8.okt. sl. 21.lið.

Ábendingagátt