Bæjarstjórn

14. nóvember 2018 kl. 17:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1815

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen forseti
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir 1. varaforseti
  • Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varamaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar nema Kristín María Thoroddsen í hennar stað mætti Guðbjörg Oddný Jónasdóttir.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Kristinn Andersen setti fundinn og stjórnaði honum.[line][line]Í upphafi fundar lagði forseti til að mál nr. 1806391 Brenniskarð 1-3, fyrirspurn yrði tekið með afbrigðum inn á dagskrá fundarins. Var tillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

Ritari

  • Ívar Bragason Lögmaður á stjórnsýslusviði og ritari bæjarstjórnar

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar nema Kristín María Thoroddsen í hennar stað mætti Guðbjörg Oddný Jónasdóttir.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Kristinn Andersen setti fundinn og stjórnaði honum.[line][line]Í upphafi fundar lagði forseti til að mál nr. 1806391 Brenniskarð 1-3, fyrirspurn yrði tekið með afbrigðum inn á dagskrá fundarins. Var tillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

  1. Almenn erindi

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Breyting á áheyrnarfulltrúa í skipulags- og byggingaráði. Ómar Ásbjörn Óskarsson víkur úr ráðinu og í hans stað kemur Jón Garðar Snædal Jónsson, Klukkuvöllum 5. Varamaður hans verður Óli Örn Eiríksson Hverfisgötu 52b.

      Breyting á áheyrnarfulltrúa í skipulags- og byggingaráði. Ómar Ásbjörn Óskarsson víkur úr ráðinu og í hans stað kemur Jón Garðar Snædal Jónsson, Klukkuvöllum 5. Varaáheyrnarfulltrúi verður Óli Örn Eiríksson Hverfisgötu 52b.

      Einnig er gerð breyting á stjórn Markaðsstofu Hafnarfjarðar þar sem Einar Baldvin Brimar fer út og Anna Karen Svövudóttir, Smárabarði 2, 220 Hafnarfirði, kemur inn í hans stað.

      Er ofangreint samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

    • 1712233 – Persónuvernd, innleiðing

      2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lögð fram persónuverndarstefna Hafnarfjarðarkaupstaðar.
      Jón Ingi Þorvaldsson persónuverndarfulltrúi mætti til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir framlagða persónuverndarstefnu og vísar til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

      Bæjarstjórn staðfestir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum afgreiðslu bæjarráðs.

    • 1706369 – Hestamannafélagið Sörli, reiðhöll

      5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.

      Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætti til fundarins.

      Ný lóðamörk vegna Sörlaskeiðs 13A, lóð fyrir Reiðhöll.

      Samkvæmt nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir að íþróttasvæðið verði ein lóð, en áður var aðeins lóð utan um reiðhöllina. Lóðin breytist úr lóð Sörlaskeiðs 13A 7.582,4m² í 84.725,9m² skv. lóðarblaði sem er unnin eftir ný samþykktu deiliskipulagi.

      Forsendur þessarar stækkunar eru að skilgreina eina stóra lóð umhverfis öll mannvirki á svæðinu þar með talin bílastæðin, keppnisvellina og allar byggingar.

      Bæjarráð samþykkir breytta lóðarstærð og leggur til við bæjarstjórn að úthluta lóðinni til Hafnarfjarðarkaupstaðar og Hestamannafélagsins Sörla.

      Bæjarstjórn staðfestir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum að lóðinni Sörlaskeið 13A verði úthlutað Hafnarfjarðarkaupstaðar og Hestamannafélagsins Sörla.

    • 1806284 – Lántökur 2018

      6.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjármálasviðs vegna lántöku.

      Bæjarráð vísar til bæjarstjórnar að samþykkja lántökur í samræmi við framlagt minnisblað og viðauka sem lagður er fram samhliða í máli nr. 1704040.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum lántökur sveitarfélagsins í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað.

    • 1704040 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2021

      7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lagður fram viðauki við fjárhagsáæltun 2018.

      Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.

      Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

    • 1810333 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fjárhagsáætlun 2019

      8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lagðar fram tillögur að gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagðar tillögur að gjaldskrám heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum framlagða gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis

    • 1810400 – Slökkvilið höfuðborgarsvæðis, gjaldskrá

      9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. lögð fram.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskrá SHS verði samþykkt.

      Bæjarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

    • 1810348 – Kríuás 19, íbúð 0102, kauptilboð

      10.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lagt fram kauptilboð í íbúð að Kríuási 19 ásamt söluyfirliti.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð sveitarfélagsins í íbúð að Kríuási 19 og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.

      Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 samhljóða greiddum atkvæðum.

    • 1810347 – Berjavellir 6, kauptilboð

      11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lagt fram kauptilboð í íbúð að Berjavöllum 6 ásamt söluyfirliti.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð sveitarfélagsins í íbúð að Berjavöllum 6 og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.

      Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 samhljóða greiddum atkvæðum.

    • 1708577 – Skarðshlíð 2. áfangi, tilboðslóðir

      13.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lögð fram beiðni Fjarðarmóta ehf. um afsal lóðarinnar Glimmerskarð 2.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja afsal Fjarðarmóta ehf. á lóðinni Glimmerskarði 2.

      Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum afsal á lóðinni Glimmerskarði 2.

    • 11023155 – Skólavogin

      4.liður frá fundi fræðsluráðs 7.nóvember sl.
      Þróunarfulltrúi kynnir niðurstöður Skólavogarinnar 2017-2018 fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar.

      Fræðsluráð þakkar fyrir kynninguna.

      Fulltrúar minnihluta í fræðsluráði leggja fram svohljóðandi bókun:
      Skólavogin er mikilvægur þáttur fyrir skólastjórnendur og skólaskrifstofur til að nýta sér er kemur að innra mati skólanna. Skólapúlsinn gefur vísbendingar um þróun mála í skólanum og gera öllum kleift að beina úrbótum þar sem mestur árangur hlýst af.

      Í niðurstöðu nýjustu könnunar Skólavogarinnar fyrir 2017 og 2018 vegna grunnskóla landsins kemur í ljós að grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar fá mun lakari útkomu í heild heldur en þegar sambærileg könnun var gerð fyrir tveimur árum síðan. Þá segir að grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar séu í hópi þeirra 25% sveitarfélaga sem eru með óhagstæðustu útkomuna í 18 af 25 matsþáttum. Hér er sérstaklega vísað til vinnuaðstæður kennara, faglegan stuðning skólastjóra og valddreifingu við ákvarðanatöku.

      Að mati okkar er þetta dapurleg niðurstaða fyrir sveitarfélag sem vill vera í fremstu röð og leggum við áherslu á að fræðsluskrifstofa og allt fræðsluráð sameinist um að styrkja þá þætti sem koma hvað lakast út, ásamt því að halda áfram að bæta úr þeim þáttum sem koma vel út. Gerum það að sameiginlegu markmiði okkar allra að Hafnarfjarðarbær verði með bestu niðurstöðu allra sveitafélaga þegar kemur að næstu könnun.

      Málið tekið til umræðu.

      Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson. Einnig tekur til máls Rósa Guðbjartsdóttir. Til andsvars kemur Sigurður Þ. Ragnarsson. Rósa Guðbjartsdóttir svarar andsvari.

      Til máls tekur Friðþjóur Helgi Karlsson. Til andsvars kemur Sigurður Þ. Ragnarsson.

      Sigurður Þ. Ragnarsson tekur til máls öðru sinni og leggur fram svohljóðandi bókun og fyrirspurn:

      “Fyrirspurn bæjarfulltrúa Miðflokksins, Sigurðar Þ. Ragnarssonar:
      Fyrir skömmu komu fram upplýsingar um að hlutfall réttindikennara í hafnfiskum skólum væri hvað lægst af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins Seltjarnarnes fær lakari útkomu en Hafnarfjörður.

      Nú liggja fyrir nýjar upplýsingar úr starfsmannakönnun í skólum og sem fram koma í Skólavoginni, upplýsinga- og greiningakerfi fyrir sveitarfélög.

      Hafnarfjarðarbær fær nokkuð lakari útkomu í heild nú en þegar starfsmannakönnunin var gerð fyrir tveimur árum og er í hópi þeirra 25% sveitarfélaga sem eru með óhagstæðustu útkomuna í 18 af 25 matsþáttum. Lökust er útkoman hvað varðar vinnuaðstæður kennara, faglegan stuðning skólastjóra og valddreifingu við ákvarðanatöku. Niðurstöður kaflans um starfsumhverfi kennara eru mun lakari en fyrir tveimur árum og bærinn þar í öllum nema einum þætti í hópi þeirra 25% sveitarfélaga sem hafa hvað lakasta útkomu.

      Rétt er að geta að marktækur munur er þó milli hafnfirsku skólanna. Þannig koma Áslandsskóli, Skarðshlíðarskóli og Öldutúnskóli áberandi best út úr könnuninni.

      Spurningar:
      1. Telja skólayfirvöld að bregðast þurfi sérstaklega við þessum upplýsingum umfram það sem þegar hefur verið gert?
      2. Ef svo er, hvernig hyggast fræðsluyfirvöld bregðast við þessum upplýsingum til að snúa þessari þróun við?
      3. Telja fræðsluyfirvöld ástæðu til að bregðast skjótt við þessum niðurstöðum?

      Umræðum lokið.

    • 1706132 – Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, nýr samstarfssamningur

      3.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 7.nóvember sl.
      3. liður úr fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 15. október sl.
      Lagður fram til samþykktar nýr samstarfssamningur milli Hafnarfjarðarbæjar og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar.

      Fulltrúi Samfylkingar bókar:
      á fundi sínum þann 10. maí 2017 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar tillögu um að framvegis yrði gengið út frá 100% eignarhlut bæjarins í íþróttamannvirkjum sem byggð yrðu með þátttöku sveitarfélagsins. Í tillögunni fólst að undirbúa ætti nýjan samstarfssamning þar sem kveðið yrði á um þessa breyttu stefnu bæjarins. Í greinargerð sem fylgdi með tillögunni var gerð nánari grein fyrir tillögunni m.a. um að með henni væri aukið jafnræði meðal félaga og deilda innan íþróttahreyfingarinnar.

      Í fyrirliggjandi drögum kveður við annan tón, og í stað þess að tala um að gengið verði út frá 100% eignarhlut segir að eignarhlutur bæjarins geti orðið allt að 100%. Þar sem um er að ræða stefnubreytingu á áður samþykktri tillögu í bæjarstjórn er nauðsynlegt að bæjarstjórn fjalli um málið og taki afstöðu til þessarar breytingar.

      Samningur samþykktur með atkvæðum meirihlutans og fulltrúi minnihlutans situr hjá. Málinu vísað til fræðsluráðs til samþykktar.

      Fulltrúar meirihlutans samþykkja fyrirliggjandi samstarfssamning milli Hafnarfjarðarbæjar og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar. Samningurinn er afrakstur samtals milli Hafnarfjarðarbæjar og Íþróttahreyfingarinnar þar sem fundnar voru leiðir til að standa áfram með þróttmiklu Íþróttastarfi í Hafnarfirði þar sem hagsmunir barna og unglingar eru höfð að leiðarljósi.

      Undirritaðir vilja ítreka og taka undir bókun frá fundi íþrótta og tómstundanefndar og ítreka að þann 10. maí 2017 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar tillögu um að framvegis yrði gengið út frá 100% eignarhlut bæjarins í íþróttamannvirkjum sem byggð yrðu með þátttöku sveitarfélagsins. Í tillögunni fólst að undirbúa ætti nýjan samstarfssamning þar sem kveðið yrði á um þessa breyttu stefnu bæjarins. Í greinargerð sem fylgdi með tillögunni var gerð nánari grein fyrir tillögunni m.a. um að með henni væri aukið jafnræði meðal félaga og deilda innan íþróttahreyfingarinnar.
      Í fyrirliggjandi drögum kveður við annan tón, og í stað þess að tala um að gengið verði út frá 100% eignarhlut segir að eignarhlutur bæjarins geti orðið allt að 100%. Þar sem um er að ræða stefnubreytingu á áður samþykktri tillögu í bæjarstjórn er nauðsynlegt að bæjarstjórn fjalli um málið og taki afstöðu til þessarar breytingar
      Undir þetta rita fulltrúar Samfylkingar, Bæjarlista, Viðreisnar og Miðflokks í fræðsluráði

      Adda María Jóhannsdóttir tekur til máls. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Adda María svarar andsvari. Ágúst Bjarni kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni.´Ágúst Bjarni kemur að stuttri athugasemd. Rósa Guðbjartsdóttir kemur næst til andsvars við ræðu Öddu Maríu. Adda María svarar næst andsvari. Rósa kemur þá til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

      Eins og fram kemur í bókunum fulltrúa Samfylkingarinnar í Íþrótta- og tómstundanefnd og ítrekað er í bókun fulltrúa minnihlutaflokkanna í fræðsluráði kveður við annan tón í þeim samningi sem samþykktur hefur verið í fræðsluráði en vilji bæjarstjórnar stóð til í maí 2017. Samþykkt bæjarstjórnar gerði ráð fyrir 100% eignarhlut sveitarfélagsins í íþróttamannvirkjum sem það hefði aðkomu að. Í samningnum sem fræðsluráð hafði til afgreiðslu þann 7. nóvember sl. er gengið fram hjá samþykkt bæjarstjórnar án þess að vísa samningnum eða þeirri stefnubreytingu sem í þessu felst til bæjarstjórnar. Í samningnum er opnað á lægri hlutdeild Hafnarfjarðarbæjar, og lagt til að eignarhluturinn verði samningsatriði milli aðila. Hér er um stefnubreytingu að ræða og horfið aftur til þess fyrirkomulags sem bæjarstjórn var sammála í maí 2017 um að rétt væri að breyta, ekki síst til þess að auka jafnræði meðal félaga og deilda innan íþróttahreyfingarinnar. Það er miður að sú þverpólitíska samstaða sem ríkti í bæjarstjórn í maí 2017 hafi verið rofin. Á þeim forsendum sitjum við hjá við afgreiðslu þessa samnings.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Friðþjófur Helgi Karlsson

      Forseti ber upp tillögu um að fyrirliggjandi samstarfssamningur ÍBH verði samþykktur og er tillagan samþykkt með 6 atkvæðum og 5 bæjarfulltrúar sitja hjá.

      Guðlaug KRistjánsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu og tekur um leið undir ofangrenda bókun fulltrúa Samfylkingarinnar.

    • 1810433 – Móbergsskarð 1-3, umsókn um lóð

      17.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 8.nóvember sl.
      Lögð fram umsókn Gunnars Agnarssonar og Önnu B. Sigurðardóttur um parhúsalóðina Móbergsskarð 1-3.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Móbergsskarði 1-3 verði úthlutað til Gunnars Agnarssonar og Önnu B. Sigurðardóttur.

      Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða greiddum atkvæðum fyrirliggjandi tillög uum úthlutun á lóðinni Móbergsskarð 1-3.

    • 1702357 – Reglur um eftirlitsnefnd með fjármálum íþrótta- og æskulýðsfélaga

      4.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 3.október sl.
      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      16.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 19.sept.sl.
      7.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 5.sept.sl.
      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      4.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.
      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari.

      Jón Ingi Hákonarson tekur til máls og leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir:

      Eftir því sem næst verður komist var í þeim forsendum sem lágu til grundvallar útreikningi á leiguverði sem bærinn hefur greitt til FH vegna leigu á tímum í Risanum, knatthúsi, á sínum tíma gert ráð fyrir að leigan myndi duga til að greiða rekstrarkostnað vegna knatthússins og afborganir og vexti af lánum sem tekin voru vegna byggingar húsnæðisins, á umsömdum leigutíma.

      Með vísan til þessa er óskað eftir því að endurskoðandi bæjarins verði fenginn til að sannreyna þessar upplýsingar. Reynist þær réttar óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar svara meirihlutans á því hvort hann telji réttlætanlegt og hvort það sé í samræmi við gr. 65 í sveitarstjórnarlögum um ábyrga meðferð fjármuna að greiða nú FH fullt verð fyrir Risann og þá í reynd fjármagna húsið í annað skipti.
      Óskað er eftir að svar við fyrirspurninni verði lagt fram eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Með vísan til 65. gr. sveitarstjórnarlaga óska undirritaðir bæjarfulltrúa minnihluta bæjarstjórnar eftir því að endurskoðandi bæjarins verði fenginn til að greina hvernig leigugreiðslum frá bænum vegna Risans hefur verið ráðstafað frá upphafi leigutímans. Í því sambandi verði gerð ítarleg greining á rekstrarreikningum FH-knatthúsa ehf. frá upphafi.

      Óskað er eftir að greiningin liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls öðru sinni tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir:

      Í þeim viðræðum sem fram fóru við forsvarsmenn FH á síðasta kjörtímabili varðandi knatthús kom fram að umtalsverðar skuldir hvíla á knatthúsunum sem nú er gert ráð fyrir að kaupa og greiða fyrir að fullu.
      Með vísan til þess óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir nákvæmum upplýsingum um hversu háar þessar skuldir eru samtals og hvernig FH hyggst standa undir greiðslu afborgana og vaxta vegna þeirra. Jafnframt er óskað svara við því hvort gert sé ráð fyrir að bærinn leigi tíma af FH í nýja húsinu. Ef svo er, hvað er gert ráð fyrir að greitt verði mikið fyrir þá tíma?

      Óskað er eftir að upplýsingarnar verði lagðar fram eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      á undanförnum árum hefur FH tekið að sér ýmsar framkvæmdir á athafnarsvæði FH fyrir hönd bæjarins. Um er að ræða m.a. flýtiframkvæmdasamning, greiðslu á sl. ári vegna efnistöku af stæði væntanlegs knatthúss ofl. Fyrir þetta hefur bærinn greitt að fullu til FH. Mikilvægt er að áður en gengið verður til frekari samninga við FH liggi fyrir hvort félagið hafi gert upp að fullu við þá verktaka sem unnið hafa vegna framangreinda verka.

      Með vísan til þessa óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir því að endurskoðandi bæjarins verði fenginn til að sannreyna að engar skuldir séu vegna þessara framkvæmda.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur ágúst Bjarni Garðarsson. Guðlaug svarar andsvari. Ingi Tómason kemur næst í andsvar við ræðu Guðlaugar sem svarar svo andsvari.

      Adda María tekur næst til máls. Til andsvars kemur ágúst Bjarni Garðarsson. Adda María svarar andsvari. ágúst Bjarni kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Ingi Tómason kemur einnig til andsvars við ræðu Öddu Maríu og Adda María svarar andsvari. Ingi Tómason kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Ingi kemur að stuttri athugasemd einnig stutt athugasemd frá Öddu Maríu.

      Til máls öðru sinni tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur ágúst Bjarni Garðarsson. Guðlaug svarar andsvari. ágúst Bjarni kemur til andsvars öðru sinni.

      Adda María kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlistans:

      Í svar við fyrsta lið fyrirspurnarinnar, um rekstrartölur FH knatthúsa, vantar síðustu tvö ár, 2016 og 2017. Hér með er fyrirspurnin ítrekuð, hvað varðar þessi tvö ár og farið fram á að sambærileg úttekt verði gerð af endurskoðanda fyrir þessi tvö ár eins og árin 2008-15. Varðandi annan lið fyrirspurnarinnar er því ekki svarað hvernig FH hyggist standa skil á fyrirliggjandi skuldum, sem nema alls um 330 milljónum. Ýjað er að því að greiðslur muni byggja á leigugreiðslum frá bænum vegna nýs húss. Óskað er eftir staðfestingu á því, hvort svo sé og hver verði þá nauðsynleg leiguupphæð árlega, þ.e. hver kostnaður bæjarins verði til framtíðar litið vegna þessara skulda. Í þriðja lið var óskað eftir að endurskoðandi bæjarins yrði fenginn til að sannreyna að engar skuldir séu vegna þessara framkvæmda. átt er við dagsetningu framlagningar fyrirspurnarinnar hvað varðar þessa greiðslustöðu, þ.e. hver staðan var þann 15. ágúst 2018. Ítrekað að þeirri beiðni verði svarað.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdottir og kemur að svohljóðandi bókun:

      Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlista lýsa furðu á því að vinnsla svara við fyrirspurnum sem legið hafa fyrir vikum saman í málakerfi bæjarins sé ekki lengra komin en raun ber vitni. Að hluta til er um ítrekun þegar framlagðra spurninga að ræða, að hluta til eftirfylgni við fyrri svör. Hér með er þessi fyrirspurn ítrekuð í þriðja sinn og svara vænst án tafa á næsta fundi bæjarstjórnar.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri kemur til andsvars.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. Adda María svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Rósa Guðbjartsdóttir. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kemur næst að stuttri athugasemd.

      Til máls öðru sinni kemur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

      Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlista gagnrýna harðlega þá vanvirðingu sem störfum þeirra er sýnd með því að opinberum fyrirspurnum sé ekki svarað formlega. Hér með ítrekum við fyrirspurnir okkar undir þessum lið í fjórða sinn.

      Við teljum brýnt að fá upplýsingar um áætlaðar þjónustugreiðslur sem bærinn mun þurfa að inna af hendi vegna aðstöðu í umræddu knatthúsi til næstu ára. Allar líkur eru á að þegar upp er staðið muni bæjarfélagið greiða mun meira en umræddar 790 milljónir vegna viðskipta við FH vegna fjármögnunar á byggingu knatthúss, og jafnvel meira en upphafleg tilboð í framkvæmd bæjarins vegna hússins hljóðuðu upp á. Sú fullyrðing fulltrúa meirihlutans að hagkvæmnissjónarmið hafi ráðið för við þessa stefnubreytingu stendur því mjög veikum fótum.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Friðþjófur Helgi Karlsson
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson

      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir og leggur fram svohljóðandi fyrirspurnir:

      Undirrituð fer fram á að fyrirspurninni verði svarað í samræmi við bókaða spurningu úr bæjarstjórn, þ.e. að endurskoðandi sannreyni greiðslustöðu miðað við 15. ágúst. Svar sem hér var lagt fram mtt nóvember er ekki í samræmi við spurninguna sem færð var til bókar. Jafnframt er farið fram á að excelskjal verði yfirfarið og það leiðrétt, en það eru enn í því skekkjur líkt og við fyrri framlögn.

      Óskað er eftir því að þessi svör verði lögð fram á næsta bæjarráðsfundi, þann 22. nóvember. Fáist ekki viðhlítandi svör við fyrirspurninni mun undirrituð leita liðsinnis Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga til að styðja við upplýsingaöflunina.

      Jón Ingi Hákonarson kemur að svohljóðandi bókun:

      Fulltrúi Viðreisnar í bæjarstjórn, Jón Ingi Hákonarson, hvetur bæjarstjórn til þess að leita allra leiða til að stoppa upp í þá fjárhagslegu leka sem gætu leynst víða. Það er ekki ólíklegt að óþarfa útgjöld gætu hlaupið á tugum milljóna sem hægt væri að verja til góðra verka. Það að ofgreiða leigugjöld um milljónatugi til eins aðila er óásættanlegt með öllu.

      Umræðum lokið.

    • 1806391 – Brenniskarð 1-3, fyrirspurn

      8. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 6. nóvember sl.

      Lagt fram á ný leiðrétt erindi Jóns Guðmundssonar fh. Þrastarverks ehf. þar sem sótt er um að færa bílakjallara frá húsi nr. 1 og að húsi nr. 3 breyta skipulagi á bílastæðum og fjölga um eina íbúð í húsi nr. 3. Erindinu var vísað aftur til skipulags-byggingarráðs á fundi bæjarstjórnar þann 31.10. s.l.
      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að nýju að tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Brenniskarðs 1-3 verði auglýst og að málsmeðferð verði í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn að samþykkt verði að auglýsa framangreinda deiliskipulagsbreytingu og að málsmeðferð verði í samræmi við framangreind lagaákvæði.

      Fulltrúi Viðreisnar, Jón Garðar Snædal Jónsson, óskar eftir að fært sé til bókar:

      1. Verði deiliskipulagsbreytingin samþykkt. Þá er eðlilegt að benda á það, að á deiliskipulagssvæðinu, þá hafa aðrir lóðarhafar þegar lagt í kostnað vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara. Við þessa deiliskipulagsbreytingu sem er nú til afgreiðslu, þá má eiga von á því að aðrir lóðarhafar óski eftir sömu deiliskipulagsbreytingu, sambærilegri þeirri sem nú er gerð tillaga að.
      2. Einhverjir lóðarhafar hafa þegar lagt í kostnað vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara, þann kostnað vilja þeir væntanlega fá til baka, verði þessi breytingartillaga samþykkt. Það gæti leitt til skaðabótaskyldu fyrir Hafnarfjarðarbæ.
      3. Búast má við að meiri kostnaður leggst á bæjarfélagið, ef lóðarhafar telja að jafnræðis á milli aðila hafi ekki verið gætt.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Jón Ingi Hákonarson. Ólafur Ingi svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Jón Helgi Hákonarson. Ólafur Ingi svarar andsvari öðru sinni.

      Bæjarstjórn samþykkir með 9 greiddum atkvæðum að tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Brenniskarðs 1-3 verði auglýst og að málsmeðferð verði í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einn bæjarfulltrúi greiðir atkvæði á móti og einn bæjarfulltrúi situr hjá við atkvæðagreiðslu.

      Jón Ingi Hákonarson kemur að svohljóðandi bókun:

      Bæjarfulltrúi Viðreisnar Jón Ingi Hákonarson vill bóka eftirfarandi

      1. Verði deiliskipulagsbreytingin sem nú var samþykkt er eðlilegt að benda á það, að á deiliskipulagssvæðinu, hafa aðrir lóðarhafar þegar lagt í kostnað vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara. Við þessa deiliskipulagsbreytingu sem er nú til afgreiðslu, má eiga von á því að aðrir lóðarhafar óski eftir sömu deiliskipulagsbreytingu, sambærilegri þeirri sem nú hefur verið samþykkt.
      2. Einhverjir lóðarhafar hafa þegar lagt í kostnað
      vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara, þann kostnað vilja þeir væntanlega fá til baka, nú þegar þessi tillaga hefur verið samþykkt. Það gæti leitt til skaðabótaskyldu fyrir Hafnarfjarðarbæ.
      3. Búast má við að meiri kostnaður leggst á bæjarfélagið, ef lóðarhafar telja að jafnræðis á milli aðila hafi ekki verið gætt.

    Fundargerðir

    • 1801218 – Fundargerðir 2018, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð fjölskylduráðs frá 9.nóv. sl.
      Fundargerðir bæjarráðs frá 31.október og 8.nóvember sl.
      a.Fundargerðir hafnarstjórnar frá 24. og 31.október sl.
      b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.október sl.
      c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 31.október sl.
      d. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 24. og 25.október sl.
      e. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 25.október sl.
      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 7.nóvember sl.
      a. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 24. og 25. okt.sl.
      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 6.nóvember sl.
      Fundargerð fræðsluráðs frá 7.nóvember sl.
      a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 31.október sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 12.nóvember sl.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls undir lið 3 í fundargerð fjölskylduráðs frá 9. nóvember sl. Einnig tekur til máls undir sama lið Helga Ingólfsdóttir.

      Næstur tekur til máls Sigurður Þ. Ragnarsson undir 5. lið í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 6. nóvember sl. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson.

      Næst til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson undir 3. lið úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 6. nóvember sl.

    Áætlanir og ársreikningar

    • 1808075 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022, fyrri umræða.

      1. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 31.október sl.
      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.

      1. liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 29.október sl.
      Fjárhagsáætlun 2019-2022 tekin til umræðu.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða rekstrar og fjárfestingaráætlun sviðsins og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. Fulltrúi Samfylkingar, Friðþjófur Helgi Karlsson, situr hjá við atkvæðagreiðslu og óskar eftir því að eftirfarandi sé fært til bókar:
      Ég sit hjá m.a. vegna þess að mér finnst sú forgangsröðun sem birtist í henni ekki vera ásættanleg. Það er nauðsynlegt að mínu mati að forgangsraðað sé með skýrari hætti t.d. í þágu viðhalds á fasteignum bæjarins, eflingar á þjónustugetu þjónustumiðstöðvar, umhverfismála og uppbyggingu á grunnþjónustu s.s. eins og á leikskólarýmum í þeim hverfum þar sem vöntun er á slíku. Hvorki sú rekstraráætlun né fjárfestingaráætlun sem liggja hér fyrir sem hluti af fjárhagsáætlun endurspegla þær áherslur nægjanlega vel og þar eru m.a. áætlaðar háar fjárhæðir til framkvæmda í bæjarfélaginu sem ekki teljast til grunnþjónustu.
      Vil einnig ítreka athugasemdir mínar um það hversu seint gögn eru að berast ráðsmönnum og hversu lítið samráð hefur verið við vinnuna. Drög að fjárfestingaráætlun kom fyrst fyrir augu ráðsmanna síðastliðinn miðvikudag. Það er óásættanlegt og gerir ráðsmönnum erfitt með að setja sig inn í mál og taka afstöðu til þeirra svo vel sé. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun fer fram á fundi bæjarstjórnar næstkomandi miðvikudag þannig að tíminn fyrir fulltrúa minnihlutans til að fara yfir fjárhagsáætlunina hefur verið mjög naumur.

      Fulltrúar Bæjarlistans, Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, og Viðreisnar, Þórey Svanfríður Þórisdóttir, harma það að bærinn sé hér með að falla frá þeirri stefnu sem mörkuð var á síðasta kjörtímabili, að bærinn byggi og eigi íþróttamannvirkin sín sjálfur. Við hörmum það einnig að hluti þeirra greiðslna til FH skuli hafa farið fram án þess að viðaukinn hafi fengið gildi. Einnig finnst okkur það fráleitt að haldið skuli áfram með málið á meðan kæruferli er í gangi. Er þessi leið, sem núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og óháðra hefur kosið að fara; að greiða FH fyrir eignarhluti, sem virðast vera á reiki hverjir eru, á meðan að virði húsnæðisins sem fjárfesta á í er ekki á hreinu, finnst okkur vítavert kæruleysi með fjármuni bæjarbúa.

      3.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 29.október sl.
      Yfirferð á fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundarþjónustu fyrir fjárhagsárið 2019

      Yfirferð fjárhagsáætlunar fræðslu- og frístundarþjónustu fyrir fjárhagsárið 2019 lögð fram. Meirihluti fræðsluráð samþykkir fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundasviðs 2019 og samþykkir að vísa fjárhagsáælun fræðslu- og frístundasviðs til bæjarráðs. Fulltrúar Bæjarlistans og Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

      Fulltrúar minnihluta í fræðsluráði lögðu fram eftirfarandi bókun;
      Í fyrsta lagi: Góð vinna við gerð fjárhagsáætlunar er mikilvægur hluti af vinnu kjörinna fulltrúa. Að geta unnið hana í sátt, með góða yfirsýn og skilning er grundvöllur góðrar stjórnsýslu. Það að gögn berist seint og tímarammi umræðu og vinnslu áætlunarinnar sé jafn þrjöngur og raun ber vitni er kjörnum fulltrúum og bæjarbúum ekki bjóðandi.

      Í öðru lagi: Við hörmum þá ákvörðun að ekki hafi verið gert ráð fyrir stöðugildi sálfræðs fyrir hvern skóla Hafnarfjarðar, inn í fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu fyrir fjárhagsárið 2019.

      Teljum við mikilvægt að tryggt verði aðgengi að geðheilbriðgðisþjónstu innan veggja skólanna til að sinna þeim fjölmörgu og áríðandi verkefnum sem þar þarf að vinna. Felst sú vinna m.a. í greiningu á vanda barna, ráðgjöf til foreldra og starfsfólks, stuðningsviðtöl við börn og annarskonar forvarnir.

      Í 2. mgr. 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla er beinlínis lögð sú skylda á skólayfirvöld að láta fara fram greiningar á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Ljóst er að sú greiningarvinna sem í dag er unnin, nægir ekki til að grípa strax inn í erfiðleika nemenda eða áður en vandinn verður að veruleika. Vegna þessa geta nemendur fallið aftur úr námslega séð, einangrað sig félagslega sem allt eykur á vanlíðan þeirra. Finni nemandi sig ekki í skóla vegna þeirra sálrænu erfiðleika, sem nemandinn fær ekki bót á, getur það verið greiðasta leiðin inn í heim þunglyndis, kvíða eða þaðan af verra.

      Að mati okkar er það fyrirkomulag að bæta við einum sálfræðing í fullt starf í hvern grunnskóla, ekki of dýrt þegar litið er til þeirra hagsmuna sem þar eru undir. Þurfum við öll að bera ábyrgð á efla allt geðheilbrigði innan skóla Hafnarfjarðarbæjar. Þá fyrst verður hægt að standa við loforð nánast allra flokka um snemmtæka íhlutun.

      Skorum við því á bæjaryfirvöld að breyta afstöðu sinni í þessu máli, sem hægt væri að koma í gagnið strax á fyrstu mánuðum næsta árs.

      Undir þetta rita fulltrúa minnihluta í fræðsluráði:
      Vaka Ágústsdóttir – Viðreisn
      Sigrún Sverrisdóttir – Samfylking
      Birgir Örn Guðjónsson – Bæjarlistinn
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir – Miðflokkurinn

      1.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 26.okt. sl.
      Yfirferð fjárhagsáætlunar fjölskylduþjónustsu fyrir fjárhagsárið 2019 lögð fram.
      Fjölskylduráð samþykkir fjárhagsáætlun fjölskylduþjónustu 2019. Fjölskylduráð samþykkir að vísa fjárhagsáælun fjölskylduþjónustu til bæjarráðs.

      4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.okt.sl.
      Lögð fram tillaga að skipulagsverkefnum 2019-2022.

      Skipulags- og byggingarráð vísar tillögu að skipulagsverkefnum 2019-2022 til Bæjarráðs. Ráðið telur jafnframt að nauðsynlegt sé að ráðin sé lögfræðingur til Umhverfis- og skipulagsþjónustu. Skipulagsgerð og vinna tengdri henni er flókin og þarfnast oftar en ekki lögfræðilegrar yfirferðar. Viðkomandi lögfræðingur gæti verið hluti af lögfræðiteymi bæjarins.

      Fulltrúi Bæjarlistans leggur fram svohljóðandi bókun:
      Bæjarfulltrúi Bæjarlistans minnir á tillögu sína frá bæjarstjórnarfundi í júní síðastliðnum, sem vísað var til bæjarráðs en hefur ekki komið hér á dagskrá síðan. Tillagan er eftirfarandi:
      “Stytting vinnuviku hjá starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar, tilraunaverkefni Hafið verði verkefni um styttingu vinnuviku í samráði við stéttarfélög og starfsfólk bæjarins. Starfsfólk félagsþjónustu hefur þegar óskað eftir slíkri tilraun og fjallaði bæjarráð um þá tillögu á fundi sínum þann 20. apríl síðastliðinn. Var bæjarstjóra falið að taka málið til skoðunar (1803258 – Stytting vinnuvikunnar, erindi). Einnig verði tekið upp samtal við aðrar stofnanir bæjarins um mögulegan áhuga á sambærilegu verkefni.” Forseti ber upp tillögu um að framkominni tillögu verði vísað til bæjarráðs og er það samþykkt samhljóða.
      Óskað er eftir því að afstaða verði tekin til þessarar tillögu í vinnu við fjárhagsáætlun 2019-2022.

      Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. Einnig tekur til máls Friðþjófur Helgi Karlsson. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson.

      Næst til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir og leggur fram svohljóðandi tillögur Samfylkingarinnar við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun

      Tillaga 1 – Endurskilgreining á ráðningahlutfalli starfsmanna vegna ákvæða um hvíldartíma.

      Brögð eru að því að starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sem starfa m.a. á heimilum og starfsstöðvum fatlaðs fólks fái ekki ráðningu í 100% starf vegna ákvæða um hvíldartíma. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að störf hjá Hafnarfjarðarbæ sem vegna ákvæða um hvíldartíma teljast ekki 100% verði endurskilgreind þannig að starfshlutfall sem fer að mörkum um hvíldartíma teljist fullt starf og verði 100%.
      Þetta ætti að vera sjálfsögð og eðlileg krafa til handa þeim sem á þessum starfsstöðum starfa og sú metnaðarfulla stefna að fjölga fagmenntuðu starfsfólki á heimilum og starfsstöðvum fatlaðs fólks hlýtur að kalla á að starfsumhverfi og launakjör fólks séu eftirsóknarverð. Þetta er ein leið til þess.

      Tillögunni er vísað til fjölskylduráðs og bæjarráðs.

      Tillaga 2 – Samgöngusamningar mál nr. 1806353

      Á fyrsta fundi bæjarstjórnar í júní sl. lögðu fulltrúar Samfylkingar fram tillögu um að teknir yrðu upp samgöngusamningar við starfsfólk bæjarins. Þar sem tillagan hefur ekki hlotið afgreiðslu, endurflytjum við hana hér og vísum til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
      Upphafleg tillaga var svohljóðandi:

      Áhersla á lýðheilsu á að vera forgangsmál í hverju samfélagi. Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær gangi fram með góðu fordæmi og stuðli að aukinni lýðheilsu starfsfólks. Fulltrúar Samfylkingar leggja til að teknir verði upp samgöngusamningar við starfsfólk bæjarins. Það eflir lýðheilsu og styður við umhverfissjónarmið.

      Tillögunni er vísað til bæjarráðs.

      Tillaga 3 – Stuðningur við ungt fólk, sálfræðiþjónusta

      Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í júní sl. lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um stuðning við ungt fólk í Hafnarfirði sem m.a. tók til aukins aðgengis að sálfræðingum. Tillögunni sem slíkri var ekki vísað til fjárhagsáætlunar en gera má ráð fyrir að sú aukning sem fram kemur í áætluninni sé að einhverju leyti viðbrögð við henni. Við teljum hins vegar mikilvægt að gengið verði lengra og leggjum tillögu okkar því fram aftur með áskorun um að gera enn betur og taka einnig fyrir þann hluta sem varðar aðgengi að sálfræðiþjónustu í Ungmennahúsi fyrir ungmenni sem lokið hafa grunnskóla. Það er mikilvægt að tryggja aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu til að sinna þeim fjölmörgu aðkallandi verkefnum sem þarf að sinna m.a. hvað varðar greiningu á vanda, ráðgjöf, stuðningi og ekki síst forvörnum.

      Fulltrúar Samfylkingar taka undir bókun sem fulltrúar minnihlutaflokka í fræðsluráði lögðu fram undir umræðum um fjárhagsáætlun og leggja til fjölgun á stöðugildum sálfræðinga í grunnskólum Hafnarfjarðar umfram það sem kemur fram í fjárhagsáætlun sem og aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir 16-18 ára börn í Ungmennahúsi.

      Tillögunni er vísað til fræðsluráðs

      Tillaga 4 – Stuðningur við ungt fólk, niðurgreiðsla á strætókortum

      Fulltrúar Samfylkingar ítreka og endurflytja tillögu sína um niðurgreiðslu á strætókortum fyrir börn að 18 ára aldri. Til að jafna og auðvelda aðgengi ungmenna að tómstundum leggjum við til að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði strætókort fyrir börn að 18 ára aldri sem verði þeim að kostnaðarlausu. Þannig minnkum við líka skutl og styðjum við umhverfissjónarmið.
      Tillagan var áður flutt á fyrsta fundi bæjarstjórnar í júní sl. og hefur ekki hlotið afgreiðslu. Vísum við henni inn í frekari vinnu við fjárhagsáætlun.

      Tillögunni er vísað til fræðsluráðs

      Tillaga 5 – Hækkun á frístundastyrkjum

      Fulltrúar Samfylkingar leggja til að frístundastyrkir verði hækkaðir, amk til jafns við nágrannasveitarfélögin.

      Frístundastyrkir ættu að vera stolt okkar Hafnfirðinga og við eigum að leggja metnað okkar í að vera í forystu þegar kemur að því að jafna og auðvelda aðgengi barna og ungmenna að íþrótta- og tómstundastarfi.

      Tillögunni er vísað til fræðsluráðs.

      Tillaga 6 – Stytting vinnuvikunnar mál nr. 1806352

      Á fyrsta fundi bæjarstjórnar í júní sl. lögðu fulltrúar Samfylkingar fram tillögu um undirbúning á tilraunaverkefni um styttingu vinnuviku. Þar sem tillagan hefur ekki hlotið afgreiðslu endurflytjum við hana hér og vísum til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
      Tillagan var svolhljóðandi:

      Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær stuðli að aukinni samveru fjölskyldna með skrefum í átt að styttingu vinnuviku ásamt því að stuðla enn frekar að styttri vinnudegi barna með aukinni samþættingu skóla og frístunda. Fulltrúar Samfylkingar leggja til að hafin verði undirbúningur á tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar í stofnunum bæjarins.

      Tillögunni er vísað til bæjarráðs.

      Tillaga 7 – Uppbygging leikskóla í Öldutúnsskólahverfi

      Þar sem fallið hefur verið frá áformum um uppbyggingu leikskóla við Öldugötu og ljóst er að tveggja deilda viðbygging við Smáralund muni ekki svara þeim skorti sem er á leikskólaplássum í skólahverfi Öldutúnsskóla, leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að hafist verði handa við frekari uppbyggingu á leikskóla í hverfinu.

      Það er fyrirséð að með frekari áætlunum um lækkun á inntökualdri muni þörfin í hverfinu síst fara minnkandi og því mikilvægt að horfa til framtíðar og byggja upp þessa mikilvægu grunnþjónustu innan hverfisins með áherslu á að samnýta grunnstoðir leik- og grunnskóla, og draga þannig úr aðgreiningu milli skólastiga.

      Tillögunni er vísað til fræðsluráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs.

      Tillaga 8 – Uppbygging á félagslegum íbúðum

      Í samantekt fjölskylduráðs kemur fram að félagslegar íbúðir í Hafnarfirði eru 7,9 á hverja þúsund íbúa á meðan meðaltalið á landsvísu er 10,5 íbúðir á hverja þúsund íbúa. Til að hlutfall félagslegra íbúða miðað við íbúafjölda verði það sama og í Reykjavík er ljóst að það vantar um 220 íbúðir inn í kerfið. Ef ekki verður bætt í mun það taka 16 ár að takast á við uppsafnaðan vanda miðað við núverandi stöðu.
      Í ljósi þess uppsafnaða vanda sem Hafnarfjarðarbær stendur frammi fyrir þegar kemur að félagslegu húsnæði leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að brugðist verði við með því að forgangsraðað verði í þessa átt og aukið verði við framlög til kaupa á félagslegum íbúðum.

      Tillögunni er vísað til fjölskylduráðs og bæjarráðs.

      Tillaga 9 – Uppbygging á hagkvæmu húsnæði

      Í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem er á húsnæðismarkaði leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að Hafnarfjarðarbær leiti leiða til að skoða frekara samstarf við óhagnaðardrifin félög um að byggja upp hagkvæmar leiguíbúðir svo hægt verði að fjölga félagslegum íbúðum sem og almennum leiguíbúðum á viðráðanlegu verði hraðar en núverandi áætlanir gera ráð fyrir.

      Tillögunni er vísað til fjölskylduráðs og bæjarráðs

      Tillaga 10 – Nýting skattstofna

      Lögbundin verkefni sveitarfélaga eru fjölmörg og mikilvægt að þeim sé sinnt. Þar sem framlögð fjárhagsáætlun sýnir að ekki verði hægt að ráðast í öll þau verkefni sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir legga fulltrúar Samfylkingarinnar til að Hafnarfjarðarbær nýti leyfilegt útsvarshlutfall og endurskoði lækkun á álagningarstofni fasteignaskatta á atvinnueignir. Þessir skattstofnar eru sveitarfélaginu mikilvægir til að geta staðið straum af þeim fjölmörgu verkefnum sem fyrir liggja en hafa lítil áhrif á hinn almenna bæjarbúa.

      Tillögunni er vísað til bæjarráðs.

      Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari. Ólafur Ingi kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni.

      Næst tekur til máls Jón Ingi Hákonarson.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir og leggur fram svohljóðandi bókun/tillögur við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun:

      Undirrituð ítrekar tillögur frá 20. júní sl, fyrsta fundi bæjarstjórnar á kjörtímabilinu, en þeim var vísað til viðeigandi ráða og hafa hlotið mismikla umræðu eða úrvinnslu.

      Stytting vinnuviku hjá starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar, tilraunaverkefni (1806352):

      Hafið verði verkefni um styttingu vinnuviku í samráði við stéttarfélög og starfsfólk bæjarins. Starfsfólk félagsþjónustu hefur þegar óskað eftir slíkri tilraun og fjallaði bæjarráð um þá tillögu á fundi sínum þann 20. apríl síðastliðinn. Var bæjarstjóra falið að taka málið til skoðunar (1803258 – Stytting vinnuvikunnar, erindi). Einnig verði tekið upp samtal við aðrar stofnanir bæjarins um mögulegan áhuga á sambærilegu verkefni. Þessari tillögu var vísað til bæjarráðs en ekki hefur verið fjallað um hana frá því hún var kynnt í ráðinu í júní. Í greinargerð með fjárhagsáætlun er sums staðar fjallað um stytta vinnuviku, helst á sviði fræðslumála. Þessi tillaga er hér með ítrekuð.

      Fjölgun úrræða fyrir fólk með heilabilun (1806356):

      Óskað verði eftir samstarfi við félagasamtök (Alzheimersamtökin) um opnun nýrrar dagdvalar fyrir fólk með heilabilun, til viðbótar við þá þjónustu sem veitt er í Drafnarhúsi og í þeim sama anda. Horft verði til þjónustukjarna við Sólvang varðandi staðsetningu. Starfshópur var stofnaður um sambærilegt mál í september 2018 og vonandi ratar niðurstaða þeirrar vinnu í farveg í framhaldinu, þó svo þess sjáist ekki merki í fyrirliggjandi drögum að fjárhagsáætlun.

      NPA samningar, fjölgun (1806357):

      Þegar í stað verði opnað fyrir fjölgun NPA samninga á vegum félagsþjónustunnar í Hafnarfirði, í samráði við notendur. Þjónustuformið NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð) sem hingað til hefur verið rekið sem tilraunaverkefni hefur nú fengið stoð í lögum og hugmyndafræðin um sjálfstætt líf verið innleidd í öll ákvæði laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Jafn réttur íbúa bæjarins til að stjórna eigin lífi er forsenda þess að þjónusta bæjarins standist ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks um ,,að fatlað fólk hafi tækifæri til þess að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra, og að því sé ekki gert að eiga heima þar sem tiltekið búsetuform ríkir.”

      Fjallað hefur verið um þessa tillögu í fjölskylduráði en framlögð fjárhagsáætlun gefur ekki til kynna að til standi að opna aðgang að nýjum NPA samningum, nema hvað varðar fólk sem þegar er með beingreiðslusamning. Því ítreka ég þá tillögu mína að opnað verði fyrir nýjar umsóknir um NPA samninga.

      Stefnumótun í búsetumálum fatlaðra (1806358):

      Farið verði í heildstæða stefnumótun í samráði við notendur um framtíðarfyrirkomulag búsetumála fatlaðs fólks í sveitarfélaginu, meðal annars með tilliti til þjónustu í eigin húsnæði. Farið verði yfir kosti og galla ólíkra búsetuúrræða og þarfagreining gerð á hverju úrræði fyrir sig. Niðurstöður vinnunnar verði hluti af húsnæðisstefnu Hafnarfjarðarbæjar, sem nú er í vinnslu.

      Þessi tillaga hefur ratað nærri orðrétt í texta í drögum að húsnæðisstefnu og fyrir það er þakkað og áréttað mikilvægi þess að henni verði fylgt eftir sem fyrst.

      Atvinnumál fatlaðs fólks (1806359):

      Aukinn verði stuðningur við atvinnumál fatlaðra í bænum, þannig að hjá Hafnarfirði sem vinnustað verði störfin fleiri og fjölbreyttari og á öllum sviðum starfseminnar. Gert verði tilraunaverkefni með kaffihús í anda GÆS í anddyri Ásvallalaugar, þar sem aðgengi er eins og best verður á kosið og aðstaða fyrir veitingasölu hefur verið til staðar frá opnun, en ekki verið tekin í notkun sem slík.

      Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir auknu fjármagni í atvinnumál fatlaðs fólks, aðallega atvinnu með stuðningi, en gaman væri að sjá tilraunaverkefni með vinnustað í anda GÆS kaffihússins í Ásvallalaug og þar með nýta það húsnæði enn betur.

      Einnig bætist við ný tillaga: Greiðsla inn á lífeyrisskuldbindingar

      Við ofangreindar tillögur sem þegar hafa verið lagðar fram, vil ég í ljósi þess sem hér að ofan kemur fram leggja til að kveðið verði á um það í greinargerð með fjárhagsáætlun og áætlun til 2022 að mögulegar aukatekjur eða aukið svigrúm í rekstri bæjarins verði nýttar til að hefja inngreiðslur á lífeyrisskuldbindingar.

      Þá tekur til máls Sigurður Þ. Ragnarsson og leggur fram svohljóðandi tillögu:

      Tillaga bæjarfulltrúa Miðflokksins Sigurðar Þ. Ragnarssonar:
      Fasteignir fyrirtækja eru 20% hússnæðis í bænum. Tekjur af fasteignasköttum fyrirtækja nema hins vegar 50% af fasteignatekjum bæjarins. Það gerir þá kröfu að fyrirtæki fái þjónustu í samræmi við það.

      Fyrirtæki á Hraununum vestan Vallahverfis búa við það að ekki hefur verið klárað árum saman að ljúka við frágang við lóðir í hverfinu s.s. gangstíga. Þetta er frágangur sem snýr að Hafnarfjarðarbæ.
      Bæjarfulltrúi Miðflokksins leggur til að gert verði sérstakt átak við gerð göngustíga og annars frágangs í hverfinu og eyrnarmerkja 15 milljónir króna til þessa verkefnis. Til fjármögnunar á þessu verði framlög til uppbyggingar Bláfjallasvæðis lækkaðar úr 85 milljónum í 75 milljónir. Er lagt til að málið verði sent umhverfis- og framkvæmdaráði til afgreiðslu og ákvörðunar.

      Jón Ingi Hákonarson kemur að svohljóðandi bókun:

      Viðreisn harmar þá ákvörðun að ekki hafi verið gert ráð fyrir stöðugildi sálfræðs fyrir hvern skóla Hafnarfjarðar, inn í fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundaþjónustu fyrir fjárhagsárið 2019.
      Viðreisn telur mikilvægt að tryggt verði aðgengi að geðheilbriðgðisþjónstu innan veggja skólanna til að sinna þeim fjölmörgu og áríðandi verkefnum sem þar þarf að vinna. Felst sú vinna m.a. í greiningu á vanda barna, ráðgjöf til foreldra og starfsfólks, stuðningsviðtöl við börn og annarskonar forvarnir.

      Í 2. mgr. 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla er beinlínis lögð sú skylda á skólayfirvöld að láta fara fram greiningar á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Ljóst er að sú greiningarvinna sem í dag er unnin, nægir ekki til að grípa strax inn í erfiðleika nemenda eða áður en vandinn verður að veruleika. Vegna þessa geta nemendur fallið aftur úr námslega séð, einangrað sig félagslega sem allt eykur á vanlíðan þeirra. Finni nemandi sig ekki í skóla vegna þeirra sálrænu erfiðleika, sem nemandinn fær ekki bót á, getur það verið greiðasta leiðin inn í heim þunglyndis, kvíða eða þaðan af verra.

      Að mati Viðreisnar er það fyrirkomulag að bæta við einum sálfræðing í fullt starf í hvern grunnskóla, ekki of dýrt þegar litið er til þeirra hagsmuna sem þar eru undir. Þurfum við öll að bera ábyrgð á efla allt geðheilbrigði innan skóla Hafnarfjarðarbæjar. Þá fyrst verður hægt að standa við loforð nánast allra flokka um snemmtæka íhlutun.
      Við erum þess fullmeðvituð að ekki er hægt að gera allt á sama tíma en við skorum á meirhluta að taka fyrsta skrefið og ráð einn sálfræðing í einn skóla sem tilraunaverkefni og kanna að ári ávinninginn

      Forset beru upp tillögu um að framkomnum tillögum verði vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun í þeim ráðum sem þar er vísað til og þær eiga heima. Er það samþykkt samhljóða.

      Forseti legur þá næst til að tillaga að fjárhagsáætlun 2019 og 2020 til 2022 verði vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn sem fari fram 12. desember nk. Er tillagan samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Ábendingagátt