Bæjarstjórn

12. júní 2019 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1828

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen forseti
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir 1. varaforseti
  • Kristín María Thoroddsen aðalmaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar.

Kristinn Andersen setti fundinn og stýrði honum.

Áður en gengið var dagskrár var borið upp að tekið yrði á dagskrá með afbrigðum mál nr. 1903324 – Ráðning æðstu stjórnenda skv. 56. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 80. gr. samþykkta um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar nr. 525/2016. Var það samþykkt samhljóða.

Ritari

  • Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar.

Kristinn Andersen setti fundinn og stýrði honum.

Áður en gengið var dagskrár var borið upp að tekið yrði á dagskrá með afbrigðum mál nr. 1903324 – Ráðning æðstu stjórnenda skv. 56. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 80. gr. samþykkta um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar nr. 525/2016. Var það samþykkt samhljóða.

  1. Almenn erindi

    • 1903324 – Ráðning æðstu stjórnenda skv.56.gr.sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 80 .gr. samþykkta um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar nr. 525/2016

      Lögð fram tillaga frá starfshópi um ráðningu sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs:

      Starfshópur vegna ráðningar sviðsstjóra nýs þjónustu- og þróunarsviðs leggur fram eftirfarandi tilögu til bæjarstjórnar: „Bæjarstjórn samþykkir að Sigurjón Ólafsson verði ráðinn sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs.“

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu.

    • 18129598 – Mosabarð 15, stækkun á húsi

      2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.júní sl.
      Elsa Esther Kristófersdóttir sótti þann 19.12.2018 um að stækka húsið með viðbyggingu á norðurhlið ásamt breytingu innandyra og nýrri klæðningu að utan samkvæmt teikningum Sturla Þórs Jónssonar. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 6.3.2019 var samþykkt að grenndarkynna erindið í samræmi við 1.mgr. 2.gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Grenndarkynnt var frá 12.3. – 9.4.2019. Athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 21.5.2019 var erindinu frestað. Þann 16.04.2019 var skipulagsfulltrúa falið að gera umsögn vegna framkominna athugasemda. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2019.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa og á grundvelli 4.gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði er erindinu vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun:

      Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var málið sett í grendarkynningu, en til að verða sett í grendarkynningu þarf málið að standast það að geta talist óveruleg svo þessi málmeðferð ætti að geta átt sér stað en gerir það ekki þar sem hún skertir lífsgæði nágrannans og fellur hvorki innan deiliskipulags eða innan byggingarreits. Einnig kemur fram í gögnum að um minniháttar frávik sé að ræða frá deilskipulag en ekki á það við þar sem um verulega breytingu er að ræða eða allt að 25% frávik í deiliskipulagi þar sem kveðið er á í greinargerð deiliskipulagsins að aðeins séu 10 /- og ætti því breytingin ef samþykkt er að fara í auglýsingu og senda öllum viðkomandi aðilum í nágrenninu upplýsingar, en hafa ber í huga að það eitt og sér gæti valdið vandræðum þar sem kveðið er á um að einbýlishús sé með ávekeðið nýtingarhlutfall. Þyrfti því að hækka nýtingarhlutfallið til samræmis stækkunar sem er alls ekki kosta auðvelt í þessu deiliskipulagi. Ef málið verður samþykkt að óbreytt þar sem það uppfyllir enga skilmála gæti það valdið slæmum afleiðingum.

      Viðbyggingin sem telst óveruleg og uppfylli eftirtalin skilyrði A) rúmist innan byggingarreits b) sé innan deiliskipulags c) skerði ekki lífsgæði nágranna sé hægt að meðhöndla málið sem breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 26.gr. skipulags- og byggingarlaga.? Því miður tikkar það ekki í nein box í liðum a,b og c svo ekki er hægt að veita því slíka málsmeðferð.

      Í byggingarreglugerð er tekið skýrt á því í kafla 2.3 um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir.

      2.3.4. gr. Breyting er varðar útlit eða form mannvirkis.

      Varði breyting á mannvirki útlit þess og form skal leita samþykkis hlutaðeigandi skipulagsnefndar áður en byggingarleyfi er veitt enda liggi ekki fyrir samþykkt deiliskipulag sem heimilar breytinguna. Ekki þarf að leita slíks samþykkis sé breytingin óveruleg (sem hún er ekki því þá þyrfti hún að uppfylla lið a) falla innan byggingareits b) vera til fyrir í samþykku deiliskipulagi sem hún gerir ekki. Til að breyting á mannvirki geti talist óveruleg má hún ekki skerða hagsmuni nágranna, t.d. hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, ekki breyta eða hafa áhrif á götumynd, né fela í sér stækkun húss á nokkurn hátt, nema stækkunin sé smávægileg og falli innan byggingarreits og breyti ekki eða hafi áhrif á götumynd. Húsum sem njóta friðunar, eru byggð fyrir 1918 eða njóta verndar götumyndar er ekki heimilt að breyta á grundvelli þessa ákvæðis

      Í umsögn skipulagsfulltrúa kemur fram: að minniháttar frávik séu að ræða og vitnar hann í greinargerð deiliskipulagsins í kafla 4.2

      Tek ég fram að viðbyggingin er 32,7m2. Þegar reiknað er hlutfallið þá eru það um 25% stækkun sem getur ekki með nokkru móti talist til minniháttar frávik úr deiliskipulagi.

      Enda er kveðið á í greinargerð deiliskipulags /-10% en þetta er töluvert meira en kveðið er á um við minniháttar frávik eða allt að 15% meira en það sem getur talist til minniháttar fráviks úr deiliskipulagi og kveðið er á í greinargerð deiliskipulagsins. Í lið 5 úr greinargerð deiliskipulagsins segir: „Flatarmáls- og rúmmálsaukning viðbygginga má ekki vera yfir 10% nema sérstakar aðstæður gefi tilefni til þess og að þær uppfylli að öðru leyti skilyrði sem sett eru hér framan um viðbyggingar sem er ekki uppfyllt að neinu leyti.

      Kafli 2.3 Byggingarleyfisskyldar framkvæmdir í byggingarreglugerðum

      2.3.5.gr Minniháttar framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

      Eftirfarandi framkvæmdir og breytingar eru undanþegnar byggingarleyfi enda séu þær í samræmi við deiliskipulag:

      h. Viðbyggingar.
      Ein viðbygging við mannvirki þar sem eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:
      1. Viðbyggingin er innan byggingarreits.
      2. Flatarmál viðbyggingar er að hámarki 40 m².
      3. Viðbyggingin er á einni hæð.
      Tilkynna skal fyrirhugaða framkvæmd til leyfisveitanda.

      Breytingar á deiliskipulagi eru háðar sömu efnis- og málsmeðferð og nýtt deiliskipulag óverulega breytingu má grenndarkynna í stað þess að auglýsa breytingar taka gilidi með auglýsingu í B- deild Stjórnartíðinda. Er hún óveruleg? Svarið er nei, þá þyrfti hún að vera innan deiliskipulags eða innan byggingarreits og ekki skerða lífsgæði nágranna og uppfylla skilyrði um frávik í greinargerð deiliskipulagsins 10 /-.

      Þar af leiðandi getur þessi ósk um viðbyggingu á engan hátt fengið jákvæða afgreiðslu að mati Viðreisnar á þennan hátt og miðað við gögn málsins bæri að hafna umsóknini þar sem hún uppfyllir ekki nein af þeim skilyrðum sem settar eru fram, hvorki úr deiliskipulag, byggingarreglugerðum eða almennum skilmálum um frávik í deiliskipulagi.

      Almennt um deiliskipulag er kveðið svo á með frávik:

      Frávik frá deiliskipulagi

      Heimilt er að gefa út famkvæmda- og byggingarleyfi án deiliskipulagsbreytingar ef framkvæmdin er svo óveruleg að hún skerðir á engan hátt hagsmuni nágranna svo sem hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn

      þetta á svo sannarlega ekki við þar sem í grendarkynningu kom fram athugasemd svo hljóðandi, nágrönnum þykir þrengt að sér. Viðbyggingin fer út fyrir byggingarreit sk. skipulagi frá árinu 2003.

      Minniháttar frávik úr deiliskipulagi getur því alls ekki átt við hér bæði vegna stærðar á breytingu og skerðingar á lífsgæðum nágranna.

      Finnst Viðreisn það hart að leggja málið í þann farveg að sveitarfélagið gæti orðið skaðabótaskylt vegna ákvörðunar sinnar að samþykkja umsóknina, þrátt fyrir Ítrekaðar tilraunir Viðreisnar að benda á að það uppfylli enginn þau skilyrði sem fram eru lögð og þvert á það sem greinargerð deiliskipulagsins kveður á um og gegn byggingarreglugerðum í kafla 2.3 2.3.4 og 2.3.5 og gegn almennum skilmálum um frávik í skipulagslögum.

      Telur því Viðreisn að málinu eigi að hafna samvkæmt þessum upplýsingum.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson. Adda María svarar andsvari. Ólafur Ingi kemur til andsvars í annað sinn. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson.

      Til máls tók bæjarfulltrúi Friðþjófur Helgi Karlsson.

      Til máls tekur í annað sinn Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Ólafur Ingi Tómsson kemur til andsvars. Jón Ingi svarar andsvari. Ólafur Ingi kemur til andsvars öðru sinni. Jón Ingi svarar andsvari öðru sinni.

      Til máls tekur Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Jón Ingi Hákonarson. Guðlaug Svala svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Jón Ingi. Guðlaug Svala svarar andsvari öðru sinni. Jón Ingi gerir stutta athugasemd.

      Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson öðru sinni. Til andsvars kemur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Ólafur Ingi svarar andsvari.

      Tillaga samþykkt með 10 greiddum atkvæðum. Bæjarfulltrúi Jón Ingi Hákonarson greiðir atkvæði gegn tillögunni.

      Adda María Jóhannsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu.

      Jón Ingi Hákonarson leggur fram eftirfarandi bókun: Fullrúi Viðreisnar vill ítreka bókun fulltrúa Viðreisnar í skipulagsráði þar sem mjög ítarleg rök eru lögð fram og sýna svo ekki sé um villst að ákvörðunin stenst ekki þær reglur sem liggja til grundvallar slíkri heimild. Fulltrúi Viðreisnar telur að hér sé ekki verið að iðka vandaða stjórsýsluhætti.

    • 1902369 – Kvistavellir 63, umsókn um byggingarleyfi

      3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.júní sl.
      Brynja hússjóður lagði inn uppfærða aðaluppdrætti dags. 14.02.2019 teiknaða af Glámu/Kím arkitektum vegna lokaúttektar. Vegna mistaka við útsetningu húss á lóð á byggingartíma fór hluti húss út fyrir byggingarreit á norð-vestur horni hússins. Erindið var grenndarkynnt sem óveruleg breyting frá 29.03.2019-26.04.2019. Ein athugasemd barst. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð vegna framkominna athugasemda á fundi sínum þann 7. maí s.l. Lögð fram á ný greinagerð skipulagsfulltrúa dags. 6.05.2019.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingarnar sem felast í grenndarkynntum uppdráttum Glámu/Kím arkitektum dags. 14.02.2019 og að erindinu verði vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Jón Ingi svarar andsvari. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson.

      Tillagan samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum, einn bæjarfulltrúi er ekki í salnum.

    • 1706355 – Strandgata 30, byggingarleyfi

      4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.júní sl.
      Lögð fram breyting á greinagerð deiliskipulags Strandgötu 30. Breytingin felur í sér skilgreiningu á
      bílastæðakröfum. Lagður fram uppdráttur ASK arkitekta dags. 29.05.2019.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytta greinagerð deiliskipulagsins með vísan til 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt er erindinu vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

      Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson. Adda María svarar andsvari. Ólafur Ingi kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Sigurður Þ. Ragnarsson kemur til andsvars. Adda María svarar andsvari.

      Forseti ber upp tillögu um að málinu verði frestað. Tillagan er samþykkt samhljóða.

    • 1705346 – Hrauntunga, deiliskipulagsbreyting

      9.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.júní sl.
      Lögð fram á ný tillaga A arkitekta dags. 25.3.2019 að breyttu deiliskipulagi Hrauntungu 5 ásamt skýringargögnum. Gögn frá íbúafundum lögð fram. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 11.04.-23.05.2019 í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.

      Skipulags- og byggingaráð samþykkir breytt deiliskipulag og að málsmeðferð verð lokið í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

      Framlögð tillaga samþykkt samhljóða

    • 1609323 – Fjölskyldugarðar

      4.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 5.júní sl.
      Lögð fram tillaga um breytingu á gjaldskrá á leigu á um 10m2 garði sé kr. 1.500 sumarið 2019.

      Verð var áður 5000 kr. fyrir tvo 10m2 garða en innifalið var útsæði og forræktað grænmeti.

      Fræðsluráð samþykkir meðfylgjandi gjaldskrá fyrir sumarið 2019 og vísar til frekari staðfestingar í bæjarstjórn.

      Kristín María Thoroddsen tekur til máls.

      Fyrirliggjandi tillaga að gjaldskrá samþykkt samhljóða.

    • 1808075 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022

      6.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.júní sl.
      3.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22. maí sl.
      Lagðar fram lykiltölur fyrir fyrstu 3 mánuði ársins sem og breytingar í fjárfestingum 2019. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar breytingar í fjárfestingum 2019 og vísar til bæjarráðs.

      Lagður fram viðauki.

      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir framlagaðan viðauka og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.

      Fulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðslu framlagðs viðauka og leggur fram eftirfarandi bókun:
      Framlögðum tillögum Samfylkingarinnar um uppbyggingu á leikskóla í Öldutúnsskólahverfi hefur ítrekað verið hafnað. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra ákváðu þess í stað að stækka leikskólann Smáralund til að bregðast við skorti á leikskólaplássum í hverfinu. Nú hefur þeirri framkvæmd einnig verið frestað um óákveðin tíma þar sem lagt er til að lækka framlög til undirbúnings stækkunarinnar úr 15 m.kr. í 5 m.kr. Gert er ráð fyrir að viðbótarkennslustofa verði sett á lóðina sem gerir ráð fyrir 20 plássum til viðbótar en uppfyllir engan veginn þörfina sem fyrir er í hverfinu sem við síðustu samantekt voru rúmlega 100 pláss. Óskað er svara við því hvað eigi að rúmast innan þeirra 5 milljóna sem nú eru áætlaðar í stækkun leikskólans. Minnt er á að enn bíða þá foreldrar barna í Öldutúnsskólahverfi eftir að þessari mikilvægu nærþjónustu sé sinnt með viðunandi hætti innan hverfisins.

      Adda María Jóhannsdóttir

      Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
      Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum 9. maí 2019 að kennslustofu verði komið fyrir á lóð Smáralundar. Við þá breytingu getur nemendum í Smáralundi fjölgað úr 50 í 70. Auk þess er rétt að benda á að nýr leikskóli í Skarðshlíð muni bæta við annarri deild í haust, til viðbótar við það sem áætlað var og opna tvær deildar í haust í stað einnar, alls 37 nemendur.

      Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir.

      Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson. Helga Ingólfsdóttir kemur til andsvars.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir. Adda María svarar andsvari.

      Framlagður viðauki er samþykktur með 10 atkvæðum, bæjarfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

    • 1706152 – Hverfisgata 49, lóðarstækkun, lóðarleigusamningur, endurnýjun

      10.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.júní sl.
      Endurnýjun lóðarleigusamnings.

      Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Samþykkt samhljóða.

    • 1905362 – Tinnuskarð 7, umsókn um lóð

      11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.júní sl.
      Lögð fram umsókn Helgu Lindberg Jónsdóttur og Sumarliða Dagbjarts Gústafssonar um einbýlishúsalóðina nr. 7 við Tinnuskarð.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Tinnuskarði 7 verði úthlutað til Helgu Lindberg Jónsdóttur og Sumarliða Dagbjarts Gústafssonar.

      Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða

    • 1906048 – Tinnuskarð 28-30, umsókn um lóð

      12.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.júní sl.
      Lögð fram umsókn Einars Jóns Blandon um parhúsalóðina nr. 28-30 við Tinnuskarð.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Tinnuskarði 28-30 verði úthlutað til Einars Jóns Blandon.

      Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða

    • 1905361 – Völuskarð 3, umsókn um lóð

      13.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.júní sl.
      Lögð fram umsókn Edmunds Kampe um einbýlishúsalóðina nr. 3 við Völuskarð.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Völuskarði 3 verði úthlutað til Edmunds Kampe.

      Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða

    • 1906047 – Völuskarð 4, umsókn um lóð

      14.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.júní sl.
      Lögð fram umsókn Írisar Kristinsdóttur og Grettis Adolfs Haraldssonar um einbýlishúsalóðina nr. 4 við Völuskarð.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Völuskarði 4 verði úthlutað til Írisar Kristinsdóttur og Grettis Adolfs Haraldssonar.

      Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða

    • 1906133 – Hvassahraun,flugvöllur,uppbygging,efnahagsleg áhrif á Hafnarfjarðabæ

      Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi tillögu.

      Úttekt: Efnahagsleg áhrif uppbyggingar flugvallar í Hvassahrauni á Hafnarfjarðarbæ

      Lagt er til að Hafnarfjarðarbær ráði aðila til þess að leggja mat á þau hagrænu tækifæri Hafnarfjarðarbæjar af mögulegri uppbyggingu flugvallar í Hvassahrauni.
      Annars vegar væri skoðaðar líklegar sviðsmyndir af auknum útsvarstekjum bæjarins og hinsvegar tekjur af lóðasölu vegna meiri ásóknar í samgöngutengdum atvinnulóðir í bænum. Úttektin skal miða við fjórar sviðsmyndir: A) ábata af nýjum kennslu og æfingavelli B) ábata af nýrri miðstöð fyrir innanlandsflug og C) ábata af nýjum alhliða alþjóðaflugvelli. D) ábata af nýjum alhliða alþjóðaflugvelli og stórskipahafnar að Óttarstöðum.

      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

      Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. Sigurður svarar andsvari.

      Forseti ber upp tillögu um að málinu verði vísað til bæjarráðs, er það samþykkt samhljóða.

    Fundargerðir

    • 1901147 – Fundargerðir 2019, til kynningar í bæjarstjórn

      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.júní sl.
      Fundargerð fræðsluráðs 5.júní sl.
      a. Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar frá 15. og 29.maí sl.
      Fundargerð fjölskylduráðs frá 7.júní sl.
      Fundargerð bæjarráðs frá 6.júní
      a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 29.maí sl.
      b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.maí sl.
      c. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 16. og 29.maí sl.
      d. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 29.maí sl.
      e. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 29.apríl og 29.maí sl.
      f. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17.maí sl.
      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5.júní sl.
      a. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 29.apríl og 29.maí sl.
      b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17. maí sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 7.júní sl.

      Til máls tekur Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir undir fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5. júní 2019 mál nr. 2.

      Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir undir fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5. júní 2019 mál nr. 2. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir kemur til andsvars. Helga svarar andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kemur til andsvars. Friðþjófur Helgi Karlsson kemur til andsvars.

      Sigurður Þ. Ragnarsson tekur til máls undir fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5. júní 2019 mál nr. 2. og sömu fundargerð mál nr. 6.

      Helga Ingólfsdóttir tekur til máls undir fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5. júní 2019 mál nr. 2. og sömu fundargerð mál nr. 6.

      Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls undir fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5. júní 2019 mál nr. 2.

      Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson undir fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5. júní 2019 lið 7

Ábendingagátt