Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Mættir eru alir aðalbæjarfulltrúar að undanskilinni Guðlaugu Kristjánsdóttir en í hennar stað mætir Helga Björg Arnardóttir.
Í upphafi fundar ber forseti upp tillögu um að mál 1906161 – Suðurhella 9, deiliskipulagsbreyting og mál 1411192 – Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun verði tekin af dagskrá fundarins og er það samþykkt samhljóða.
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.nóv. sl. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að fá að byggja æfingaraðstöðu (reykköfunaraðstöðu) skv. teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dags í maí 2019.12.6.2019. Erindið var grenndarkynnt tímabilið 2.9.-30.9.2019. Athugasemdir bárust. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs þann 8.10. var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 07.10.2010. Erindinu var frestað.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Til máls tekur Ingi Tómasson.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulags og byggingarráðs.
7.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.nóvember sl. Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 18.9.2019 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna breytingu á nýtingu lóðar við Haukasvæðið. Landnotkunarbreytingin hefur verið auglýst frá 27.09.-04.11.2019. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna er nær til landnotkunarbreytingar við Haukasvæði og að málsmeðferð skuli lokið í samræmi við 32.gr. skipulagslaga. Erindinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Til máls tekur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir. Ingi svarar andsvaro og kemur þá Adda María næst til andsvars öðru sinni sem Ingi svarar einnig öðru sinni.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags og byggingarráðs með 9 atkvæðum en þau Adda María Jóhannsdóttir og Friðþjófur Helgi Karlsson sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Adda María gerir næst grein fyrir atkvæði sínu og kemur að svohljóðandi bókun:
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 18.9.2019 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna breytingar á nýtingu lóðar við Haukasvæðið. Við þá samþykkt hvatti fulltrúi Samfylkingarinnar til þess að teknar yrðu saman upplýsingar um áhrif fyrirhugaðra breytinga á umferðarflæði sem og leik- og grunnskóla á svæðinu áður en til afgreiðslu tillögunnar kæmi. Þar sem þær upplýsingar liggja ekki fyrir sitja fulltrúar Samfylkingarinnar hjá við afgreiðsluna.
Adda María Jóhannsdóttir Friðþjófur Helgi Karlsson
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 7.nóvember sl. Endurnýjun lóðarleigusamnings
Bæjarráð samþykkir framlagðan lóðarleigusamning og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 8.nóvember sl. Fundargerðir bæjarráðs frá 31.október og 7.nóvember sl. a.Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.október sl. b.Fundargerð stjórnar Sambands ísl.sveitarfélaga frá 25.október sl. c.Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 1.nóvember sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6.nóvember sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 7.október sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.nóvember sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 6.nóvember sl. a. Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. og 30.október sl. Fundargerð forsetanefndar frá 11.nóvember sl.
Helga Björg Arnardóttir tekur til máls undir 1. lið í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 5. nóvember sl. Til andsvars kemur Ingi Tómasson.
Einnig tekur Jón Ingi Hákonarson til máls undir sama lið í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 5. nóvember sl. Til andsvars kemur Ingi Tómason.
Þá tekur Adda María Jóhannsdóttir til máls undir sama lið í fundargerð skipulags- og byggingarráðs.
1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 31.október sl. Tillaga að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirækja hans 2020 til 2023 lögð fram. Einnig er lögð fram gjaldskrá 2020.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins og einnig Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2020 og 2021-2023 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.
Einnig tekur til máls Adda María Jóhannsdóttir og leggur fram svohljóðandi tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun:
Tillögur Samfylkingarinnar við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2020
Tillaga 1 – Nýting skattstofna Framlögð fjárhagsáætlun sýnir að staða bæjarsjóðs er ekki sterk. Við slíkar aðstæður er eðlilegt að ákvörðun sem tekin var árið 2016 um lækkun á útsvarshlutfalli sé endurskoðuð. Útsvarið er veigamesti tekjustofn sveitarfélaga og mikilvægt að það sé nýtt til að sinna þjónustu við íbúana. Því leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að Hafnarfjarðarbær nýti leyfilegt útsvarshlutfall til að styrkja stöðu bæjarsjóðs og bæta þjónustu. Tillögunni veðri vísað til bæjarráðs.
Tillaga 2 – Gjaldskrár Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að fallið verði frá gjaldskrárhækkunum umfram það sem mælst er til í yfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga í tengslum við lífskjarasamninga. Samkvæmt tillögum sem fram koma í fjárhagsáætlun mun heimaþjónusta aldraðra og öryrkja hækka um 24% og ferðaþjónusta aldraðra um rúm 100%. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að gjaldskrárhækkanir á næsta ári styðji við lífskjarasamninga og verði ekki umfram 2,5%. Tillagan verði tekin til umfjöllunar í fjölskylduráði og bæjarráði.
Tillaga 3 ? Niðurgreiðsla á strætókortum Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka og endurflytja tillögu um niðurgreiðslu á strætókortum fyrir börn að 18 ára aldri. Mikilvægt er að jafna og auðvelda aðgengi ungmenna að tómstundum. Með því að niðurgreiða strætókort hvetjum við einnig til aukinnar notkunnar á almenningssamgöngum og styðjum við umhverfissjónarmið. Fyrir liggur kostnaðarmat á tillögunni og því leggjum við til að skoðaðir verði möguleikar á nýtingu og útfærslu hennar. Tillagan verði tekin til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði og bæjarráði.
Tillaga 4 – Frístundastyrkir eldri borgara Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að frístundastyrkur eldri borgara verði hækkaður til samræmis við frístundastyrk barna og ungmenna eins og samþykkt var í bæjarstjórn þann 17. janúar 2018. Skv. minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs sem lagt var fram á fundi ráðsins þann 15. febrúar 2019 kemur fram að hækkun frístundastyrks eldri borgara úr 4.000 kr. á mánuði í 4.500 kr. á mánuði kosti tæplega 1,2 milljónir króna á ársgrundvelli. Óskað er eftir að bæjarstjórn taki afstöðu til tillögunnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Tillögunni verði vísað til fjölskylduráðs.
Tillaga 5 – Uppbygging leikskóla í Öldutúnsskólahverfi Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að næstu framkvæmdir við fjölgun leikskólaplássa eigi að vera í Öldutúnsskólahverfi. Við teljum það ekki rétta forgangsröðun að fjölga plássum í Norðurbænum þar sem nú þegar eru of mörg pláss miðað við fjölda barna, á meðan pláss vantar í Öldutúnsskólahverfi. Leikskólaþjónusta á að vera nærþjónusta og styðja þannig við hugmyndir um þéttingu byggðar og umhverfissjónarmið. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja því til að fallið verði frá því að fjölga vistunarplássum á Hjalla og þess í stað hafinn undirbúningur að uppbyggingu á leikskóla í Öldutúnsskólahverfi. Tillagan verði tekin til umfjöllunar í fræðsluráði.
Þá tekur Sigurður Þ. Ragnarsson til máls og leggur fram svohljóðandi tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun:
Tillögur bæjarfulltrúa Miðflokksins við gerð fjárhagsáætlunar 2020 og 2021-2023
Tillaga 1
Hundasvæði – aðstaða og þrautabrautir Bæjarfulltrúi Miðflokksins gerir þá tillögu að sett verði 1 milljón krónur í uppbyggingu hundasvæðisins við Hamranes. Um er að ræða að setja upp þrautabrautir og æfingaaðstöðu fyrir hafnfirska hunda og eigendur þeirra. Auk þess að bæta aðstöðu með uppsetningu skjólveggs. Með þessu tæki Hafnarfjörður ákveðna forystu sveitarfélagnna á höfuðborgarsvæðinu í aðstöðu sem yrði liður í bættri hundamenningu en hundahald er orðið afar fjölmennt útverusport. Er lagt til að tillagan verði send Umhverfis og framkvæmdaraði til afgreiðslu.
Greinargerð: Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs voru í Hafnarfirði skráðir 735 hundar í upphafi þessa árs 2019 en í samlaginu öllu eru alls 2.135 hundar . Árlegt gjald af einum hundi er 12.800 krónur sem þýðir að tekjur Heilbrigðiseftirlitsins af hundahaldi hafnfirskra hundaaeigenda eru kr. 9.408.000. Einn starfsmaður hjá Heilbrigðiseftirlitinu starfar við hundaeftirlit en gegnir líka öðrum störfum hjá eftirlitinu. Þá sér skrifstofustjóri um innheimtu gjalda og svarar fyrirspurnum vegna hunda og sér um skráningar. Gjaldfærður kostnaður við hundaeftirlit hefur verið um 1,5 stöðugildi á liðnum árum fyrir samlagið allt. Er hlutdeild Hafnfirðinga í áætlaðum heildarkostnaður eftirlitsins sé 8,3 milljónir sem þýðir að gjöld hafnfirskra hundaeigenda skila heilbrigðiseftirlitinu hagnaði uppá 1,1 milljón. Litlum sem engum fjármunum hefur verið varið við viðhald hundasvæðisins við Hamranes síðustu ár og sjást þess merki. Hér er lagt til að á árinu 2020 verði einni miljón króna varið til svæðisins. Með þessu tæki Hafnarfjörður ákveðna forystu í aðstöðu á höfuðborgarsvæðinu en aðeins í Reyjavík er þrautabrautir að finna. Forysta í þessum málaflokki myndi skila sér í bættri hundamenningu, fækkun óskráðra hunda og vinsældir svæðisins myndu aukast til muna og þar með félagsskapur og samheldni hundaeigenda.
Tillaga 2 Bæjarfulltrúi Miðflokksins leggur til í ljósi lífskjarasamninganna að fyrirhugaðar hækkanir á félagslegri þjónustu við aldraða og öryrkja verði teknar til baka og að hækkanir þeirra verði ekki meiri en lífskjarasamningarnir segja til um eða 2,5%. Fyrirhugaðar hækkanir eru: Hækkun á leigu í félagslegum íbúðum um 21%, hækkun á heimaþjónstu um 24%, hækkun á ferðaþjónustu aldraðra um 104%, hækkun á tímabundinni stoðþjónustu fólks t.d. vegna slysa hækki um 16,1%. Er lagt til að tillagan verði send fjölskylduráði og umhverfis og framkvæmdaráði til afgreiðslu.
Einnig tekur til máls Helga Björg Arnardóttir.
Einnig Jón Ingi Hákonarson sem kemur að svohljóðandi tillögum að breytingum á fyrirliggjandi áætlun:
Viðreisn gerir sér fullkomlega grein fyrir að ekki er mikið svigrúm til aukinna útgjalda þá viljum við koma eftirfarandi ábendingum að
Tillögur Viðreisnar vegna vinnu við fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar ? Tökum hækkun/leiðréttingu á leigubílaakstri eldri borgara á lengri tíma (Fjölskylduráð) ? Finnum leiðir til að auka við sálfræðiþjónustu við börn og unglinga um eitt stöðugildi (Fræðsluráð) ? Fjölgum um 1 stöðugildi á Skipulags og byggingarsviði (Skipulags og byggingaráð) ? Ráðning verkefnastjóra til að flýta fyrir innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna og Heimsmarkmiðanna (bæjarráð)
Forseti ber næst upp tillögu um að framkomnum tillögum að breytingum á fjárhagsáætlun verði vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun í þeim ráðum sem þar er vísað til og þær eiga heima. Er það samþykkt samhljóða.
Forseti leggur þá næst til að tillaga að fjárhagsáætlun 2020 og 2021 til 2023 verði vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn sem fari fram 11. desember nk. Er tillagan samþykkt samhljóða.