Bæjarstjórn

27. nóvember 2019 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1837

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen forseti
  • Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Kristín María Thoroddsen aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Sigrún Sverrisdóttir varamaður
  • Bjarney Grendal Jóhannesdóttir varamaður

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskildum þeim Friðþjófi Helga Karlssyni og Sigurði Þ. Ragnarssyni en í þeirra stað mæta þær Sigrún Sverrisdóttir og Bjarney Grendal Jóhannesdóttir.

Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.

Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um að mál nr. 1411192 – Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun yrði tekið inn á dagskrá fundarins og var það samþykkt samhljóða.

Ritari

  • Ívar Bragason Ritari bæjarstjórnar og lögmaður á stjórnsýslusviði

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskildum þeim Friðþjófi Helga Karlssyni og Sigurði Þ. Ragnarssyni en í þeirra stað mæta þær Sigrún Sverrisdóttir og Bjarney Grendal Jóhannesdóttir.

Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.

Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um að mál nr. 1411192 – Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun yrði tekið inn á dagskrá fundarins og var það samþykkt samhljóða.

  1. Almenn erindi

    • 1411192 – Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun

      2. liður úr fundargerð Fjölskylduráðs frá 8. nóvember sl.

      Lagt fram til afgreiðslu.

      Framkvæmdaráætlun í barnavernd í Hafnarfirði kjörtímabilið 2018 – 2022 lögð fram og samþykkt.

      Starfshópnum eru þökkuð vel unnin störf.
      Framkvæmdaráætluninni vísað í bæjarstjórn til kynningar.

      Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir. Guðlaug svarar andsvari.

      Einnig tekur Jón Ingi Hákonarson til máls. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir og svarar Jón Ingi andsvari.

      Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu fjölskylduráðs.

    • 1911266 – Útsvarsprósenta við álagningu 2020

      4.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 21.nóvember sl.
      Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að útsvarsprósenta við álagningu 2020 verði 14,48%.

      Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra samþykkja fyrirliggjandi tillögu en fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlistans greiða atkvæði á móti tillögunni.
      Tillagan er því samþykkt og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Meirihluti Sjálftæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
      Framlögð fjárhagsáætlun sýnir að rekstur Hafnarfjarðarbæjar gengur vel og að fjárhagur bæjarfélagsins er traustur. Auk þess heldur skuldaviðmiðið áfram að lækka. Meirihlutinn hafnar þeirri tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar um að hækka útsvarið upp í leyfilegt hámark. Slíkt hefði í för með sér tekjuskerðingu fyrir bæjarbúa eða með öðrum orðum; útborguð laun íbúa bæjarfélagsins lækka. Slíkt er ekki samræmi við stefnu núverandi meirihluta sem hefur það markmið að létta undir með fjölskyldufólki og jafnframt að tryggja að allar gjaldskrár sem snerta viðkvæmustu hópa samfélagsins séu ávallt þær lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

      Sigurður Þ. Ragnarsson leggur fram svohljóðandi bókun:

      Fulltrúi Miðflokksins telur eðlilegt að sveitarfélagið nýti útsvarsskattstofn sinn að fullu þ.e. 14,52% í stað 14,48% eins og nú er. Bæjarfélaginu munar talsvert um þá fjármuni sem fást með þessu meðan kostnaður launþegans er algjörlega óverulegur. Því telur fulltrúi Miðflokksins eðlilegt að nýta útsvarið að fullu.

      Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar bókað.
      Það er einkennileg forgangsröðun að um leið og lagðar eru fram tillögur til fjárhagsáætlunar um hækkun á gjaldskrám fyrir eldri borgara og öryrkja, og leigu í félagslegu húsnæði, langt umfram það sem skýr tilmæli eru um frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í tenglsum við lífskjarasamninga, sé áfram lagt til að heimildir til nýtingu skattstofna verði ekki fullnýttar. Þá tillögu getur undirrituð ekki stutt.
      Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu til við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun að sveitarfélagið myndi nýta leyfilegt útsvarshlutfall til að styrkja stöðu bæjarsjóðs. Þá tillögu hafa fulltrúar meirihlutans í bæjarráði nú fellt.

      Það er dapurlegt að Hafnarfjarðarbær ætli ekki að styðja við lífskjarasamninga en kjósi frekar að halda útsvari óbreyttu. Það að fullnýta útsvar myndi þýða u.þ.b. 200 kr hækkun á mánuði á meðallaun ? og minna á laun undir meðallagi ? á meðan hækkun á umræddum gjaldskrám kemur til með að verða mun hærri upphæð hjá þeim sem á þjónustunni þurfa að halda.

      Adda María Jóhannsdóttir

      Guðlaug Kristjánsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:

      Fulltrúi Bæjarlistans ítrekar afstöðu sína frá umræðu um fjárhagsáætlun fyrir árið 2019, þar sem gagnrýnd var sú ákvörðun meirihlutans að auka lántökur og halda til streitu lækkun útsvars og fasteignaskatta og þar með varpa kostnaði af rekstri bæjarins inn í framtíðina. Á síðasta kjörtímabili var áætlað sérstaklega fyrir umframgreiðslum inn á lán og hins vegar áskilið að mögulegar ófyrirséðar umframtekjur færu í sama farveg. Fulltrúi Bæjarlistans saknar slíkrar ráðdeildar í meðferð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og óháðra. Það er ekki ábyrgt að afsala sér tekjum í nútíma en varpa þess í stað álögum inn í framtíðina á formi skulda. Ábyrgara væri að fullnýta skattstofna í rauntíma í ljósi núverandi rekstraraðstæðna bæjarsjóðs.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson og Adda María svarar andsvari. Þá kemur Ágúst Bjarni til andsvars öðru sinni sem Adda María svarar einnig örðu sinni.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir og svarar Guðlaug andsvari.

      Þá tekur til máls Jón Ingi Hákonarson.

      Einnig tekur til máls Ágúst Bjarni Garðarsson. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir.

      Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum frá fulltrúum meirihluta ásamt fulltrúa Viðreisnar en þær Adda María Jóhannsdóttir, Sigrún Sverrisdóttir, Bjarney Grendal Jóhannesdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir greiða atkvæði á móti.

      Guðlaug Kristjánsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:

      Fulltrúi Bæjarlistans ítrekar afstöðu sína frá umræðu um fjárhagsáætlun fyrir árið 2019, þar sem gagnrýnd var sú ákvörðun meirihlutans að auka lántökur og halda til streitu lækkun útsvars og fasteignaskatta og þar með varpa kostnaði af rekstri bæjarins inn í framtíðina. Á síðasta kjörtímabili var áætlað sérstaklega fyrir umframgreiðslum inn á lán og hins vegar áskilið að mögulegar ófyrirséðar umframtekjur færu í sama farveg. Fulltrúi Bæjarlistans saknar slíkrar ráðdeildar í meðferð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og óháðra. Það er ekki ábyrgt að afsala sér tekjum í nútíma en varpa þess í stað álögum inn í framtíðina á formi skulda. Ábyrgara væri að fullnýta skattstofna í rauntíma í ljósi núverandi rekstraraðstæðna bæjarsjóðs.

      Adda María Jóhannsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:

      Um leið og fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra leggja til að ekki eigi að nýta útsvarshlutfall til fulls stendur til að hækka gjaldskrár á tekjulága, eldri borgara og öryrkja langt umfram það sem mælst hefur verið til af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga í tengslum við lífskjarasamninga. Slíka tillögu geta fulltrúar Samfylkingarinnar ekki stutt. Ágóðinn af lægra útsvari er hverfandi á hvern bæjarbúa og nýtist helst þeim sem hæstar hafa tekjurnar. Fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir koma hins vegar til með að hafa neikvæð áhrif á ráðstöfunartekjur þeirra hópa sem um ræðir. Við gagnrýnum þessa forgangsröðun og greiðum atkvæði gegn tillögunni.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Sigrún Sverrisdóttir

      Ágúst Bjarni Garðarsson kemur að svohljóðandi bókun:

      Framlögð fjárhagsáætlun sýnir að rekstur Hafnarfjarðarbæjar gengur vel og að fjárhagur bæjarfélagsins er traustur. Auk þess heldur skuldaviðmiðið áfram að lækka. Meirihlutinn hafnar þeirri tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar um að hækka útsvarið upp í leyfilegt hámark. Slíkt hefði í för með sér tekjuskerðingu fyrir bæjarbúa eða með öðrum orðum; útborguð laun íbúa bæjarfélagsins lækka. Slíkt er ekki samræmi við stefnu núverandi meirihluta sem hefur það markmið að létta undir með fjölskyldufólki og jafnframt að tryggja að allar gjaldskrár sem snerta viðkvæmustu hópa samfélagsins séu ávallt þær lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

    • 1808075 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022

      5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 21.nóvember sl.
      1.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6.nóvember sl.
      Lagður fram viðauki.
      Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar viðauka til afgreiðslu bæjarráðs.

      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundars.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og leggur fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

      Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.

    • 1206073 – HS veitur ehf, lóðarleigusamningar fyrir ýmsar lóðir

      8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 21.nóvember sl.
      Endurnýjun lóðarleigusamninga og gerð nýrra lóðarleigusamninga við HS veitur hf. Lagt fram minnisblað og drög að lóðarleigusamningi.

      Ólafur Ingi Tómasson víkur af fundi undir þessum lið.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að lóðarleigusamningi og leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að endurnýja og gera nýja lóðarleigusamninga við HS veitur í samræmi við fyrirliggjandi drög.

      Ólafur Ingi Tómasson víkur af fundi undir þessum lið.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurnýja og gera nýja lóðarleigusamninga við HS veitur í samræmi við fyrirliggjandi drög.

    • 1911252 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- Kópavogs og Garðabæjar fjárhagsáætlun 2020 og gjaldskrár

      10.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 21.nóvember sl.
      Lagðar fram tillögur að gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- Kópavogs og Garðabæjar.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- Kópavogs og Garðabæjar verði samþykkt.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi gjaldskrá.

    • 1909461 – Dofrahella 2, umsókn um lóð

      11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 21.nóvember sl.
      Lögð fram umsókn um atvinnuhúsalóðina Dofrahellu 2.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsókn Kytru ehf. og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.

    • 1808503 – Fjölmenningarmál

      3.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 22.nóvember sl.
      Lagðar fram tillögur að breytingum á samþykktum Fjölmenningarráðs, reglur sjóðs sem styður við þátttöku erlendra barna í íþróttum og umsóknareyðublað fyrir sjóðinn.

      Fjölskylduráð samþykkir breytingar á reglum sjóðs sem styður við þátttöku erlendra barna í íþróttum og umsóknareyðublað fyrir sjóðinn. Verkefnastjóra fjölmenningar falið að kynna þessar breytingar fyrir nemendaverndarráðum grunnskóla, leikskólastjórum og öðrum þeim sem koma að málefnum erlendra barna.

      Fjölskylduráð samþykkir tillögur um breytingar á samþykktum Fjölmenningarráðs. Sviðsstjóra falið að fylgja þessu eftir. Breytingar á samþykktum Fjölmenningarráðs vísað til bæjarstjórnar til kynningar.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Einnig tekur til máls Helga Ingólfsdóttir. Til andsvars kemur Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Næst tekur Adda María Jóhannsdóttir til máls. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir og svarar Adda María andsvari.

    Fundargerðir

    • 1901147 – Fundargerðir 2019, til kynningar í bæjarstjórn

      Fundargerð fræðsluráðs frá 20.nóvember sl.
      a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 13.nóvember sl.
      Fundargerð fjölskylduráðs frá 22.nóvember sl.
      Fundargerð bæjarráðs frá 21.nóvember sl.
      a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 8.nóvember sl.
      b. Fundargerð menningar-og ferðamálanefndar frá 14.nóvember sl.
      c. Fundargerð stjórnar SSH frá 4.nóvember sl.
      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 20.nóvember sl.
      a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 1.nóvember sl.
      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 19.nóvember sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 25.nóvember sl.

      Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir undir 2. lið í fundargerð fjölskylduráðs frá 22.nóvember sl. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og svarar Helga andsvari.

      Einnig tekur til máls Sigrún Sverrisdóttir undir 5. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 20. nóvember sl.

Ábendingagátt